Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 14
Dísilolía Algengt verð verð á lítra 194,7 kr. verð á lítra 191,7 kr. Almennt verð verð á lítra 194,5 kr. verð á lítra 191,5 kr. Algengt verð verð á lítra 196,5 kr. verð á lítra 193,5 kr. bensín Algengt verð verð á lítra 197,5 kr. verð á lítra 195,2 kr. Almennt verð verð á lítra 194,5 kr. verð á lítra 191,5 kr. Almennt verð verð á lítra 194,6 kr. verð á lítra 191,6 kr. SkiptibókA- mArkAðir Til eru vefsíður sem bjóða upp á skráningu skiptibóka til sölu endur- gjaldslaust. Þar er einnig oft hægt er að kaupa bæk- ur á betra verði en á skiptimörkuðum verslana, þó að úrvalið sé misgott. Ekki þarf að skrá sig til þess að kaupa skiptibók á vefsíð- unni skiptibokamarkadur.is, en sam- kvæmt stofnendum síðunnar seld- ust bækur fyrir 40 milljónir króna á síðunni í fyrra. Seljendur þurfa þó að skrá netfang sitt á síðunni, og setja þeir verð á bækurnar sjálfir. Stúd- entamiðlun rekur einnig skiptibóka- vefsíðu af sama tagi, en þar þurfa allir notendur að skrá sig. Einnig eru vanalega færri bækur til sölu þar, og helst fyrir háskólanema. Flestar ritfanga- eða bókabúðir hafa einnig skiptibókamarkaði, en þar fæst oftast lægra verð fyrir notuðu bækurnar. Stærstu skiptibókamarkaðirnir þar eru í Office 1 og Griffli í Skeifunni, ásamt Eymundsson í Kringlunni. illA undirbúið á SubwAy nLastið að þessu sinni fær Subway í Mosfellsbæ. Óánægður viðskipta- vinur hafði samband við blaðið, en hún hafði verslað á staðnum um síð- ustu helgi. Á vakt voru aðeins tveir starfsmenn og miklar annir á staðn- um. Ekki hafði verið pantað nægi- lega mikið af brauði, og það kláraðist á sunnudagskvöldinu. Seinasta helgi var mikil ferðahelgi þar sem fjöldinn allur af hátíðum var úti á landi og því hefði átt að sjá til þess að staður- inn væri betur birgur. Viðskiptavinurinn óánægði þurfti að bíða í óratíma á meðan að reynt var að útvega meira brauð. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS klASSAklipping n Lofið að þessu sinni fær hársnyrti- stofan Sjoppan á Laugavegi. Ánægð- ur viðskiptavinur fer alltaf þangað í hársnyrtingu, og finnst mikið til þjónustunnar þar koma. Hársnyrtar á staðnum vanda alltaf til verks, og ekki er rukkað of mikið fyrir þjónustuna. Á staðnum er enn fremur gott úrval hársnyrtivara og gott úrval tíma- rita. Síðast en ekki síst nefnir viðskiptavinurinn að boðið er upp á drykki á borð við kaffi og gos endurgjaldslaust fyrir viðskiptavini, en það er betri þjónusta en þekkist á mörgum öðrum stöðum. LOF&LAST 14 neyTendur UmSjóN: baldur guðmundsson baldur@dv.is 18. ágúst 2010 miðvikudagur FerðAheimiLdir TiL BnA munu kOSTA Frá og með 8. september mun kosta 14 dollara að fá ferðaheimild til Banda- ríkjanna. Frá þessu er greint á vefsíðu neytendasamtakanna. Þessi heimild hefur verið gefin að kostnaðarlausu, en breyting mun verða á því. Umrædd heimild gildir samkvæmt neytendasamtökunum í tvö ár, og er endurnýt- anleg. Hægt er að sækja um ferðaheimild til Bandaríkjanna rafrænt, og því er skynsamlegt að sækja um hana áður en gjaldtaka hefst. Ekki þarf að til- greina hvenær ferðin verður farin þegar sótt er um heimildina. Hægt er að sækja um ferðaheimild til Bandaríkjanna á vefsíðunni esta.cbp.dhs.gov. e L d S n e y T i Fjallagrös Fjallagrös vaxa í ríkum mæli á Ís- landi, og þá sérstaklega á norð- ur- og vesturhluta landsins. Grösin eru í raun samlífi á milli þörungs og svepps, og því ekki í raun grös. Fólk lagði sér þau til munns á árum og öldum áður þegar hungursneyð var, en þau hafa meðal annars verið not- uð til þess að drýgja mat. Stór hluti grasanna er slímkenndar fjölsykr- ur, sem bólgna út þegar þær kom- ast í snertingu við vatn. Við það sef- ast slímhimnur sem viðkvæmar eru vegna kvefs eða hósta. Neysla fjalla- grasa getur þannig hjálpað gegn kvefi og eymslum í öndunarfærum. Fjalla- grös geta einnig reynst góð við maga- verkjum, því hlaupið sem myndast úr sykrunum sefar magann. Hvítlaukur Hvítlaukur hefur lengi verið notaður sem lækningajurt. Fyrsta skiptið sem hann var nefndur í þeim tilgangi var fyrir um 3.500 árum, í fornegypsk- um texta. Hann er náttúrulega sýkla- drepandi, og er góður gegn ýmsum sýkingum. Rannsókn sýndi fram á að um 2,5 prósent af hvítlauk í vatns- lausn hafði sýklaeyðandi áhrif, en þó kvörtuðu þátttakendur rannsóknar- innar vegna stækrar andremmu sem frá þeim lagði. Hann hefur einnig reynst vel gegn kvefi. Í gegnum tíð- ina hefur tíðkast að mæla með hvít- lauki gegn háu kólesteróli og hjarta- sjúkdómum, en viðamikil rannsókn Stanford-háskóla árið 2007 sýndi fram að það ætti ekki við raun að styðjast. Niðurstaðan þar var að engin breyting varð á blóðfitu þátt- takenda eftir sex mánaða hvítlauks- neyslu. Þó hefur sérstök aðferð við vinnslu hvítlauks sem kallast kald- þroskun aukið hróður hans, því aðrar rannsóknir hafa sýnt fram á góð áhrif kaldþroskaðs hvítlauks gegn blóð- fitu og gegn krabbameini. Hvítlaukur hefur einnig aukið testósterón í rott- um er hans var neytt með pró tínum. rabarbari Rabarbari er sannkölluð munaðar- vara í Evrópu, en á Íslandi vex hann hér um bil alls staðar. Notkun þess- arar jurtar hefur tíðkast frá fornöld, en helst þekkist notkunin frá Kína. Kínverjar voru þó duglegir við að vara við hættum rabarbarans, en þeir trúðu því að hann væri eitrað- ur í óhóflegu magni. Sannleikurinn er sá að lauf jurtarinnar eru eitr- uð, en þau eru einungis banvæn ef um 75 gramma fyrir hvert kíló í lík- amsþyngd er neytt. Rabarbari hefur herpandi áhrif á slímhúð, sem get- ur dregið úr bólgum. Hann reynist vel sem hægðarlyf, en stilkar jurt- arinnar eru ríkir af antrakínónum sem hafa hægðarlosandi áhrif. alvera / aloe Vera Alvera er kannski þekktasta lækn- ingarjurt heimsins, en hún hefur verið notuð í misjöfnum og marg- víslegum tilgangi. Rannsóknir til stuðnings græðandi mætti jurtar- innar stangast oft hver á við aðra, og því skortir beinharðar sannan- ir um lækningamátt jurtarinnar. Henni eru helst talin til tekna græð- andi áhrif alveru-gels, og áhrifin sem safi jurtarinnar á að hafa. Þrátt fyrir misjafnar rannsóknarniður- stöður, hafa í ríkari mæli fund- ist ýmis efnasambönd í jurtinni sem hafa áhrif á húðina. Þar af má nefna kláðastillandi efni, verkja- og bólgustillandi efni ásamt því að það fyrirfinnst sveppa- og bakteríu- eyðandi efni í jurtinni. Rannsókn- ir hafa enn fremur stutt þá stað- hæfingu að alvera hraði endurbata vegna brunasára, og flestar nýleg- ar kannanir á því hafa sýnt svip- aða niðurstöðu. Safi jurtarinnar er talinn hafa hægðarlosandi áhrif. Ein möguleg skýring á mismun- andi niðurstöðum á rannsóknum á lækningamætti alveru, er sú að ekki er víst að græðandi áhrif plöntunn- ar haldist söm við geymslu henn- ar. Því skiptir mestu að varan sem inniheldur jurtina, hafi sem hæst hlutfall af sem ferskustu alveru. bláber Á Íslandi vaxa í náttúrunni þrjár tegundir af bláberjum. Af þeim má nefna bláber og aðalbláber. Bláber eru mjög holl og hafa margvísleg góð áhrif á líkamann. Flestar rann- sóknir hafa verið framkvæmdar á aðalbláberjum, en talið er að önn- ur bláber hafi svipuð áhrif á heils- una. Aðalbláber innihalda ríku- legt magn andoxunarefna, en þau gefa góða raun gegn heilakvillum á borð við Alzheimer-sjúkdóm og Parkinson-heilkennin. Andoxunar- efni hafa einnig fyrirbyggjandi áhrif gegn ýmsum sjúkdómum. Rann- sóknir hafa enn fremur sýnt fram á að aðalbláber lækki blóðfitu og kólesterólmagn í blóði, og dragi úr áhrifum öldrunar. Ný rannsókn leiddi svo í ljós að safi bláberja bæt- ir minni, stuðlar að lægri blóðsykri og dregur úr einkennum þunglynd- is hjá eldra fólki. Síðast en ekki síst hefur komið í ljós að bláber bæta sjón við aðstæður þar sem ljós er lítið. Sögur eru um breska flug- menn sem bættu nætursjón sína með drjúgum skammti af bláberja- sultu. Það er því full ástæða til þess að bæta bláberjum í fæðuvalið, því þau eru með hollustu fæðu sem fyrirfinnst. lax Allir ættu að borða fisk að minnsta kosti tvisvar í viku og af þeim eru Ljúffengt fæði em bætir Lífið Hvítlaukur, fjallagrös, bláber og lax eru allt margrómaðar fæðuteg- undir, sem allir ættu að neyta í hóflegu magni. DV tók saman sjö fæðutegundir sem auka lífsgæði og hafa ýmis góð áhrif á líkamann. Allt er þó gott í hófi, en sitt lítið af öllu mun gera gæfumuninn. lax er uppspretta hollrar fitu Og hefur fyrirbyggjandi áhrif gegn ýmsum krabbameinum. Valhnetur Líkt og aðrar hnetur innihalda holla fitu sem er nauðsynleg líkamanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.