Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 26
Grínbræðurnir Steinþór Hróar
Steinþórsson og Ágúst Bent Sig-
bertsson, sem eru á bakvið sjón-
varpsþættina Steindinn okkar,
gerðu sér lítið fyrir og keyptu sér
hvor sitt 42“ plasma-sjónvarpið
á útsölu í Elko í gær. Þeir Steindi
og Bent eru miklir tölvuleikja-
unnendur eins og DV hefur áður
greint frá, en plasma-sjónvörpin
munu eflaust henta mjög vel við
PlayStation 3-tölvurnar. Sjón-
vörpin eru af gerðinni Pana sonic
og kosta 129 þúsund krónur
stykkið. Greinilegt að grínið hjá
þeim bræðrum er farið að borga
sig, en þeir hafa einnig staðið í
auglýsingagerð í sumar.
Breski hnefaleikamaðurinn Carl
Froch kennir Eyjafjallajökli um
tap sitt í síðasta bardaga. Froch
tapaði á dómaraúrskurði gegn
Dananum Mikkel Kessler núna
í vor. Er það hans eina tap á ferl-
inum, en næst mætir hann King
Arthur Abraham. „Mitt eina tap
var gegn Mikael Kessler, en vegna
öskufallsins frá Íslandi, þá seink-
aði ferðinni til Danmerkur fram
á síðustu stundu. Það tók snerp-
una frá mér,“ segir Froch í viðtali
við Telegraph. Tapið tók greini-
lega á kappann, en hann segist
ætla hætta í hnefaleikum ef hann
sigri ekki í næsta bardaga. „Ef ég
vinn ekki, þá vil ég ekki taka þátt
í hnefaleikum lengur,“ segir Carl,
en hann keppir í millivigt. Eins
og þekkt er þá stöðvaði öskufall
vegna eldgossins í Eyjafjallajökli
flugumferð í Evrópu í fleiri daga.
Hafði það áhrif á hina ýmsu við-
burði, en meðal annars þurfti
grínistinn John Cleese að ferðast
á leigubíl um hálfa Evrópu til þess
að komast heim til sín, eins og
greint var frá fyrr í sumar. Er Carl
Froch nú nýjasta fórnarlamb eld-
gossins, og vonandi fara eldstöðv-
ar ekki af stað aftur, áður en hann
mætir Arthur Abraham einhvern
tíma í haust.
Kennir ösKunni um tapið
Keyptu sér
plasma-
sjónvarp
Hnefaleikamaðurinn Carl froCH varð fyrir barðinu á gosinu í eyjafjallajökli:
Þær Valgerður Halldórsdóttir og
Sesselja Vilhjálmsdóttir vinna nú
hörðum höndum að heimildar-
myndinni The Startup Kids, en
myndin fjallar um unga frum-
kvöðla, sem hafa með frum-
kvæði og útsjónarsemi komið á
fót mörgum af vinsælustu síð-
um netsins. Í myndinni verður
talað við stofnendur vefsíða á
borð við Dropbox, Vimeo, Flickr,
WordPress og Posterous. Þær
Valgerður og Sesselja eru einna
best þekktastar fyrir að hafa
sett á markað spilið Heilaspuna
um síðustu jól, sem vakti mikla
lukku. Myndinni verður vænt-
anlega dreift frítt á netinu í nóv-
ember.
26 fólkið 18. ágúst 2010 miðvikudagur
ómar ragnarsson:
Kennir öskufalli um tapið
Carl Froch gefur Mikkel Kessler
einn á kjaftinn.
Heila
spuna
stúlKur
gera mynd
Hnúturinn í maganum
horfinn
„Þetta er kúvending fyrir mig.
Það er ólýsanlegur munur að vera
ekki með stöðugan hnút í magan-
um fyrir hver mánaðarmót,“ segir
Ómar Ragnarsson, fjölmiðla- og
kvikmyndagerðarmaður, um þá
breytingu sem hefur orðið á lífi
hans eftir að landsmenn, að frum-
kvæði Friðriks Weisshappels, söfn-
uðu og gáfu honum tæpar 13 millj-
ónir króna í sjötugsafmælisgjöf.
Söfnun fór af stað eftir að Ómar
sagði frá fjárhagsstöðu sinni í helg-
arviðtali í DV. Ómar og eiginkona
hans, Helga Jóhannsdóttir, höfðu
sett alla sína fjármuni í heimildar-
myndagerð sem snýr nánast öll að
verndun íslenskrar náttúru. Skuld-
ir höfðu hlaðist upp og Ómar var
með einar níu myndir í vinnslu og
var nánast stopp í þeim öllum.
„Þetta var eins og af himnum
ofan. Ég var uppi á hálendi og vissi
ekkert af þessu. Ég rétt kíkti við á
Hótel Rangá til þess að blogga og
skoða fréttir áður en ég færi af stað
aftur.“ Ómar settist fyrir framan
tölvuna og var um leið að hringja
símtöl vegna skulda sinna. „Ég var
að hringja í vin minn til að biðja
hann
um
að bíða
enn. Að
ég gæti
ekki borg-
að honum
skuld eins
og ég ætlaði
að gera í júní
heldur þyrfti
það að bíða
fram í sept-
ember í fyrsta
lagi.“
Ómar var
með sím- ann við
eyrað þeg- ar hann
rak svo augun í frétt á mbl.
is. „Ómar fær milljónir stóð í fyrir-
sögn. Hvaða maður er það hugs-
aði ég. Þá var það bara ég,“ segir
hann kátur. „Þannig að það næsta
sem ég sagði var: „nei bíddu, ég
ætla borga
þér þessa
peninga“,“
en Ómar
er ævinlega
þakklátur öll-
um þeim sem
studdu hann.
Myndin sem Ómar
vinnur nú hörðum
höndum að því að klára
er um Gjástykki og Leir-
hnjúk en Ómar segir að
svæðið sé ein merkasta
náttúruperla heims,
en á því stendur til að
virkja. „Þarna er gjáin
þar sem Ísland kem-
ur upp og Evrópa
og Ameríka fjar-
lægjast hvor aðra.
Þetta er eini stað-
urinn í heiminum þar sem
þú getur séð nýtt land koma upp á
milli flekanna. Það er enginn stað-
ur í heiminum sem getur keppt við
þetta.“
Ómar segir að nú sé verið að
leita eftir sátt til að fá að nota tvö
prósent af svæðinu undir virkjun.
„Það er nú fín sátt eða hitt þó held-
ur. Tvö prósent eru tveir ferkíló-
metrar. Það er eins og að setja upp
virkjun í þjóðgarðinum á Þingvöll-
um sem nær yfir tvo ferkílómetra
en segja að það sé allt í lagi því allt
hitt sé þarna ennþá. Eða gera mal-
aragryfju í hlíðum Esjunnar, sem
eru aðeins tvö prósent af hlíð-
um hennar. Annað hvort er þetta
svæði bara friðað eða ekki.“
Ómar stefnir að því að koma
myndinni um Gjástykki og Leir-
hnjúk frá sér skömmu eftir ára-
mót. „Nú get ég meira að segja
fengið mann til þess að klippa og
vinna myndina fyrir mig og borg-
að honum fyrir það. Maður get-
ur ekki endalaust níðst á vinum
sínum og það er góð tilfinning að
geta borgað fyrir þá vinnu sem
unnin er.“
Ásamt því að klára myndina
undirbýr Ómar nú 50 ára afmæli
sitt sem skemmtikraftur. „Það fer
allt af stað í september og eins
og ég hef áður sagt þá ætla ég að
þakka fyrir þessi fimmtíu frábæru
ár með stæl.“
asgeir@dv.is
Ómar Ragnarsson segir það ótrú-
legan mun að þurfa ekki að kvíða
hverjum mánaðarmótum eftir að
landsmenn tóku sig til og söfnuðu
tæplega 13 milljónum í afmælisgjöf
handa honum í sumar. Ómar var
kominn í miklar skuldir vegna
heimildarmyndagerðar um
íslenska náttúru en nú er
fyrsta myndin af mörgum
væntanleg í vetur.
Ómar Ragnarsson Er á fullu þessa dagana
við að ná í myndefni, þökk sé veglegri
afmælisgjöf landsmanna.