Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Blaðsíða 29
miðvikudagur 18. ágúst 2010 sviðsljós 29 Sá líf Sitt sem bíómynd leikarinn Nicolas Cage sá líf sitt eins og kvik-mynd þegar hann var yngri. „Ég horfði stíft á sjónvarpið og reyndi að átta mig á því hvern-ig ég gæti troðið mér inn í atburðaásina. Þeg- ar ég gekk svo í grunnskóla, þá ímyndaði ég mér að það væri stórt kranaskot í gangi, þar sem myndavélin myndi rólega rísa upp í loftið og þá myndi ég sjást sem pínulítill drengur á gangi upp stóra götu,“ segir Cage í nýlegu viðtali. Það var þó ekki fyrr en seinna sem leik- arinn áttaði sig á því hvað hann vildi gera í lífinu. „Það var ekki fyrr en ég var 15 ára, en þá fór ég í New Be- verly-bíóið, sem sýnir listrænar kvikmyndir. Ég horfði þar á James Dean í kvikmyndinni East of Eden. Atriðið þar sem hann er að reyna að fá Raymond Massey pen- inga, sem hann fékk fyrir baunir á afmælisdegi föður síns, fór gjörsamlega með mig,“ segir Nicolas sem hef- ur átt blómlegan feril á hvíta tjaldinu. Nú leikur hann í ævintýramyndinni The Sorcerer’s Apprentice og hef- ur hann lengi viljað takast á við galdra á hvíta tjaldinu. „Maður getur eiginlega ekki lifað af sem listamaður ef maður ræktar ekki barnið í sjálfum sér. Galdrar eru einfaldir. Þeir snúast um ímyndunarafl, viljastyrk og getuna til þess að búa til meðvituð áhrif í efnislegum heimi. Þannig er hvert skáldverk eins og galdur. Hver ræða sem hreyfir við fólki og hver bíómynd.“ Nicolas Cage á frjóu ímynd- unarafli feril sinn að þakka: Nicolas Cage Varveitir barnið í sjálfum sér. Strákur og Stelpa Neil Patrick Harris og David Burtka ættleiða tvíbura: Gamanleikarinn Neil Patrick Harris og kærasti hans til margra ára, David Burt-ka, tilkynntu nýlega að þeir myndu ætt-leiða tvíbura í október. Það er staðgöngu- móðir sem gengur með börnin en nýjustu fregnir herma að um strák og stelpu sé að ræða. Harris og Burtka hafa verið saman í ein sex ár. Harris hefur gert það gríðarlega gott í þáttunum How I Met Your Mother undanfarin ár en þar leikur hann hinn öfgagagnkynhneigða Barney Stinson Neil Patrick Harris og kærastinn David Burtka Hafa verið saman í sex ár og ættleiða tvíbura í haust. Hinn 65 ára gamli Michael Douglas hefur greinst með æxli í hálsinum. Það fannst nýverið við læknisskoðun og verið er að undirbúa meðferð sem mun standa yfir næstu mánuðina. Leikarinn mun ganga í gegnum geisla- og lyfjameðferð og er búist við því að hann nái sér að fullu. „Ég er mjög bjartsýnn,“ sagði leikarinn í stuttri yfirlýsingu sem hann sendi frá sér. Douglas er kvæntur leikkonunni Catherine Zeta-Jones, en lítið hefur farið fyrir þeim báðum á hvíta tjaldinu undanfarin ár. Með æxli í hálsinum TVÆR KONUR 2 JÁKVÆÐARNÝJUNGAR Sykurveiðarinn Suco Bloc. 180 töflur. Hentar öllum, stöðvar sykurinn áður en hann verður að fitu. STÖÐVIÐ SYKUR OG KOLVETNI NÝJUNG! BRENNIÐ FITU 30 Days 120 töflur ásamt samnefndu kremi vinnur á appelsínuhúð. 30 Days (120 töflur)ásamt OxyTarm (60 eða 150)töflur gegn kviðfitu gefur 35% meiri virkni. Valin heils uvara ársin s 2008 & B e t r i a p ó t e k i n o g M a ð u r l i f a n d i w w w . s o l o g h e i l s a . i s Catherine Zeta-Jones og Michael Dou- glas Hafa ekki verið áberandi á hvíta tjaldinu undanfarin ár.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.