Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Side 3
miðvikudagur 18. ágúst 2010 fréttir 3 www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25 Hlaupasokkar • Minnka verki og þyngsl í kálfum • Minni hætta á blöðrumyndun • Draga úr bjúgsöfnun Lífsýnarannsókn á líkamsleifum skákmeistarans Bobbys Fischer sýna að hann getur ekki hafa ver- ið faðir filippseysku stúlkunnar Jinky Young. DNA-sýni þeirra voru nýverið borin saman sem liður í barnfaðernismáli fyrir íslenskum dómstólum. Með þessari niður- stöðu er því máli lokið. Niðurstöður úr greiningu á líf- sýni úr skákmeistaranum annars vegar og stúlkunnar hins vegar liggja fyrir. Þær benda til þess að ekki sé skyldleiki milli þeirra og því fellur um sjálfa sig fullyrðing mæð- gnanna Jinky og Marylin Young um að hin níu ára Jinky sé blóðskyldur afkomandi Fischers. Með því er útilokað að hún geti gert tilkall til arfs en í dánarbúi skáksnillingsins eru hundruð milljóna króna. Enn óuppgert Hæstiréttur úrskurðaði í júnímán- uði að líkamsleifar Fischers skyldu grafnar upp í þeim tilgangi að fá lífsýni úr honum. DNA-greining- in skipti sköpum í baráttu ættingja og meintra ættingja hans um dán- arbúið sem bíður opinberra skipta. Jákvæð niðurstaða hefði útilok- að systursyni Fischers en neikvæð fellir hina meintu dóttur. Meint ekkja Fischers, Japaninn Miyoko Watai, vonast enn til að sanna hjú- skap sinn við skáksnillinginn. Það var snemma júlímánaðar sem lífsýni úr Fischer voru tekin og send út til rannsóknar. Niðurstað- an var svo afhent í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudagsmorgun þar sem kom í ljós að útilokað sé að skákmeistarinn sé faðir Jinky. Þá eru eftir í baráttunni um arf- inn systursynir Fischers, búsett- ir í Bandaríkjunum, og hin meinta ekkja frá Japan. Bíða átekta Fischer lést í janúar árið 2008 og í kjölfarið stigu fram þrír keppinaut- ar um arf skáksnillingsins; meint dóttir, meint ekkja og tveir frændur hans, systrasynirnir frá Bandaríkj- unum. Fischer var grafinn í kirkju- garði við Laugardælakirkju í Flóa- hreppi. Watai hefur enn möguleika á að sanna hjúskap sinn og Fischers þrátt fyrir að Hæstiréttur hafi kom- ist að þeirri niðurstöðu að hjúskap- urinn væri ekki lögmætur og því vísað frá kröfu hennar um einka- skipti dánarbúsins. Samkvæmt heimildum DV hefur hún lagt fram ný gögn í þeirri von að sýna fram á hjúskapinn og takist henni það situr hún ein að arfinum. Takist það ekki standa Targ-bræðurnir, systursynir Fischers, einir eftir en þeir bíða nú átekta og fylgjast með framvindu mála. Frændur Bobbys Fischer bíða í ofvæni eftir því hvort meint ekkja skákmeistarans nái að sanna hjúskap þeirra Fischers. Takist henni það heltast þeir úr lestinni. trausti haFstEinsson blaðamaður skrifar: trausti@dv.is Bobby Fischer Niðurstöður DNA-rann- sóknarútiloka aðhannhafi veriðfaðirJinky Young. Við leiðið HérkrjúpafilippseyskumæðgurnarviðleiðiFischersenþærvonuðust tilaðsannaaðJinkyværidóttirhans. jinky ekki dóttir fischers Watai hefur enn möguleika á að sanna hjúskap sinn og Fischers. Vinir í sárum Hannes Þór Helgason F.  9 .  j ú l í  1 9 7 3  –  D .  1 5 .  á g ú s t  2 0 1 0 Handtekinn vegna ástar á unnustunni Á vettvangi Fleirihafaveriðhandteknirítengslumviðmorðmáliðenenginner núíhaldilögreglu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.