Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Síða 13
miðvikudagur 18. ágúst 2010 fréttir 13 ÁTTA INNBROT Á DAG 6. janúar Ófagrir tÓnar Snemma á árinu 2009 var kvartað til lögreglu vegna hávaða í fjölbýlishúsi í Kópavogi. Er lögregla kom á staðinn komst hún að því að hávaðinn kom frá heimili miðaldra karlmanns sem var að spila ölvaður á píanóið sitt. Maðurinn var það ölvaður, og hljóðfæraleikurinn í samræmi við það, að lögregla sá þann kost vænstan að biðja hann að hætta spilamennskunni. 14. janúar JÓlatré á bíl nágrannans Lögreglan þurfti að hafa afskipti af nágrannadeilu í höfuðborginni er tilkynnt var að karlmaður hafði hent jólatré sínu niður af svölum og ofan á bíl nágranna síns. Viðkomandi höfðu átt í deilum um nokkurt skeið og grunsemdir lögreglumanna sneru að því að atvikið væri liður í þeirri deilu. 27. janúar brutust inn í hesthús Tvær konur voru handteknar af lög- reglunni fyrir að brjótast inn í fjölda hesthúsa á höfuðborgarsvæðinu. Við húsleitir hjá þeim fundust yfir þrjátíu stolnir hnakkar ásamt öðrum hlutum úr hesthúsunum. 21. september festust í lyftu Sjö ungir karlmenn festust í lyftu í fjölbýlishúsi í miðborginni og þurfti lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að koma þeim til aðstoðar. Mennirnir voru allir ölvaðir og kom síðar í ljós að burðarþol lyftunnar miðaðist við sex menn. 12. október ungur á rúntinum Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nokkuð ungan ökumann í bíltúr í Kópavogi í október. Sá reyndist aðeins fjórtán ára gamall og hafði hann tekið bíl foreldranna í leyfisleysi. 9. desember Keyrði á strætÓ Í desember var fólksbíl ekið inn í strætisvagn á Suðurlandsbraut. Ökumaður og farþegar bílsins slösuð- ust lítillega auk þess sem bíllinn skemmdist mikið við áreksturinn. 21. desember bJörguðu álft Lögreglan var fengin til að leysa óvenjulegt vandamál í Kópavogs- lauginni þar sem álft hafði fengið sér sundsprett. Starfsmenn sáu enga aðra leið færa en að kalla til lögreglu til að fjarlægja fuglinn úr lauginni. ÓlíK útKöll „Þetta var mikill léttir, ég finn að þessu fylgir mikið frelsi,“ segir Guðrún Ebba Ólafsdóttir, sem var skyndilega boð- uð á fund kirkjuráðs í gær, þriðjudag, klukkan þrjú. Hún fór á fundinn ásamt þeim Sólveigu Önnu Bóasdóttur og Sigfinni Þorleifssyni sem voru henni til halds og trausts. „Kirkjuráð hlýddi á frásögn mína þar sem ég lýsti reynslu minni af föður mínum. Ég ítrekaði mikilvægi þess að allir starfsmenn kirkjunnar sem starfa með börnum og unglingum fái fræðslu um kynferðis- ofbeldi. Ég ítrekaði líka mikilvægi þess að kirkjan taki skýra afstöðu með þol- endum kynferðisofbeldis. Þetta var eitthvað sem ég var ákveðin í að gera. Það skipti mig afar miklu að geta fylgt þessu eftir á vettvangi kirkjunnar. Mér fannst það mjög mikilvægt að kirkju- ráð fengi að heyra mína sögu. Eins og komið hefur fram þá vildi ég líka að komið yrði í veg fyrir að þetta gæti gerst aftur, að kynferðisbrotamenn gætu komist til æðstu metorða.“ Fað- ir Guðrúnar Ebbu var Ólafur Skúla- son sem sætti ásökunum um að hafa beitt kynferðisofbeldi á meðan hann var biskup. kirkjan tekur afstöðu gegn kynferðisofbeldi Fundurinn hófst á því að biskup kynnti fyrir Guðrúnu Ebbu hvað kirkjan hefði gert til að berjast gegn kynferðisofbeldi á síðustu árum. Eftir fundi Guðrúnar Ebbu og Sigrúnar Pálínu Ingvarsdótt- ur með biskupi fyrir rúmu ári baðst hann afsökunar á kynferðisofbeldi innan kirkjunnar. Þá voru reglur hertar og nýjar siðareglur starfsmanna sam- þykktar á kirkjuþingi. Áður en barna- starfið hefst í haust á að fá undirskrif- að samþykki frá öllum starfsmönnum fyrir skimun. „Það er algjörlega skýrt og kirkjan hefur ítrekað reynt að sýna það að hún hefur tekið skýra afstöðu gegn kynferðisofbeldi. Kirkjan styður þolendur kynferðisofbeldis og þá sem vinna gegn því. Hún styður alla sem vinna að því að auka vitundarvakningu samfélagsins fyrir kynferðisofbeldi. Það er alveg skýrt að allir starfsmenn kirkjunnar hafa tilkynningaskyldu til barnaverndar. Kirkjuráð og biskup vilja að kirkjan sé öruggur staður og það sé skýrt að tekið verði á svona mál- um á öllum stöðum innan kirkjunnar. Við reynum að gera allt til að uppræta ofbeldi. Við erum ekki páfinn en kyn- ferðisofbeldi er synd.“ sárt að hlusta á þjáningar annarra Aðspurður segir Kristján að fund- urinn í dag hafi verið langur og strangur en góður. „Það var mjög gott að fá Guð- rúnu Ebbu á okkar fund. Hennar erindi var skýrt, hún vildi segja sína sögu. Það var gott að hún gat gert það fyrst hún vildi það. Hún var búin að láta vita af því áður um hvað hún vildi tala. Í kirkjuráði sitja tveir prestar, biskup og tveir leikmenn og skrifstofustjóri Biskupsstofu, sem er líka prestur. Við höfum heyrt fólk lýsa þjáningum sínum áður. Sá sársauki sem ég finn til þegar ég hlusta á hana lýsa reynslu sinni er ekkert sem skiptir máli. Hann er heldur ekk- ert í samanburði við þjáningu þeirra kvenna og barna sem hafa orðið fyrir ofbeldi. Sérstaklega ef um börn er að ræða sem alast jafnvel upp við ofbeldi og eiga alltaf von á því. Það er slæm staða þegar sálarlíf barns og ungl- ings er skaðað vegna kynferðisofbeld- is eða annars konar ofbeldis. Guðrún Ebba sagði töluvert frá starfi sínu með Blátt áfram og Stígamótum og ég var ánægður að heyra af því. Hún er þol- endum kynferðisofbeldis til uppörv- unar og hvatningar.“ biskup ætlar að geyma þetta í hjarta sínu Eftir að Guðrún Ebba lauk máli sínu spurði hún hvort einhver vildi spyrja einhvers. Þá tók Karl Sigurbjörnsson biskup til máls og sagðist myndu geyma þessa reynslu í hjarta sínu og þakkaði henni fyrir. Þar með var fund- inum lokið. Sól- veig Anna segir að það hafi kom- ið sér á óvart hvað Guðrún Ebba fékk lítil viðbrögð við máli sínu. „Henni var sýnd virðing, það horfðu allir á hana af athygli allan tímann á meðan hún var að tala. Hún bauð upp á spurning- ar en enginn vildi spyrja neins. Biskup sagði að hann myndi íhuga orð henn- ar. Ég veit það ekki, ég átti von á því að hún fengi einhverja stund á eftir þar sem fólk gæti talað saman. Þegar hún var búin að tjá sig var þetta bara búið. En ég er rosalega ánægð fyrir hennar hönd að þetta sé búið. Hún gerði þetta af mikilli reisn. Það er búið að vera aðdáunarvert að fylgjast með henni. Guðrún Ebba er yndisleg kona sem reynir að snúa erfiðri lífsreynslu upp í eitthvað jákvætt. Hún er sterk fyrir- mynd. Hún hefur sýnt mikinn styrk sem mun hafa áhrif langt fram í tím- ann. Það þarf kjark til þess að gera þetta og enn meiri kjark verandi sú sem hún er.“ málinu lokið Áður en Guðrún Ebba kvaddi, um hálftíma eftir að fundurinn hófst, faðmaði Halldór Gunnarsson sókn- arprestur í Holti hana að sér. Sig- rún Pálína hefur lýst yfir sérstöku þakklæti í hans garð fyrir stuðning- inn sem hann sýndi henni. „Það var kannski ekki alveg mér að þakka. Móðir mín sagði mér frá ákveðnum atburðum sem vörðuðu Ólaf sem ég trúði ekki á sínum tíma. Það var mjög erfitt og hún misvirti það við mig að ég skyldi ekki trúa henni. Þannig að þegar þessi mál komu upp síðar varð það kannski til þess að ég brást öðru- vísi við en aðrir. En Guðrún Ebba hafði fullkomin stuðning allra í kirkjuráði og það ríkti mikil einlægni á fundinum. Og ég verð að segja að frá því að þessi mál komu upp hefur margt gerst. Það má ekki gleyma því að Ólafur Skúlason varð að segja af sér. Það var margt gert í framhaldinu, eins og að stofna fag- ráðið. Ég tel að kirkjan sé að bregðast einarðlega og ákveðið við því að berj- ast gegn kynferðisofbeldi. En núna tel ég að þessu máli sé lokið. Kirkjan hef- ur tekið á móti þessu fólki og komið til móts við það með þeim hætti að ég sé ekki hvernig væri hægt að gera betur.“ Kristján tekur undir það að málinu sé nú lokið. Áður en Guðrún Ebba kvaddi hóp- inn tóku prestarnir í hönd hennar og þökkuðu henni fyrir. „Ég hældi henni fyrir það að hafa stigið þetta skref. Hún Guðrún Ebba er mikill skörungur,“ segir Kristján. Guðrún ebba ólafsdóttir fékk áheyrn hjá kirkjuráði í gær. Þar sagði hún sögu sína sem karl sigurbjörnsson biskup sagðist ætla að geyma í hjarta sínu. Í kjölfarið upp- lifði hún mikinn létti og frelsi. Kirkjuráð telur að þar með sé málinu lokið. LýsTI ReyNsLu sINNI Af föðuR síNum Fimm kynferðisbrotamál hafa borist fagráði kirkjunnar frá stofnun ráðsins árið 1999. mál Gunnars björnssonar Nú hefur fagráðið upplýst um öll mál sem því hafa borist. Tvö mál sem vörðuðu unglinga voru tilkynnt strax til viðkomandi barnaverndaryfirvalda. Ákært var í öðru málinu en viðkomandi sýknaður af ákæru fyrir dómi. Það var mál Gunnars Björnssonar, þáverandi sóknarprests á Selfossi. Eftir sýknudóminn var málið tekið upp innan kirkjunnar og því vísað til úrskurðarnefndar. Gunnar var síðan færður úr starfi sóknarprests í framhaldi af því. „Biskup greip inn í þrátt fyrir sýknudóm og gerði ríkari kröfu en dómsvöld,“ segir Kristján Björnsson sóknarprestur í Vestmannaeyjum. óvelkomin snerting prests Í hinu tilvikinu sem vísað var til barnaverndaryfirvalda og varðar samskipti leiðtoga og unglinga í æskulýðsstarfi var viðkomandi vikið úr starfi á grundvelli siðareglna kirkjunnar og reglna æskulýðsstarfsins um samskipti leiðtoga við börn og unglinga. Kristján segir að ekki hafi verið gefin út ákæra í þessu máli þar sem yfirvöld töldu ekki ástæðu til þess, hvorki var um kynferðislega áreitni eða ofbeldi að ræða. Þrjú mál hafa borist frá fullorðnum einstaklingum. Þeim hefur verið veitt ráðgjöf og stuðningur. „Þær kusu að kæra ekki málin en samskiptin voru óviðeigandi,“ segir Kristján. „Þær kusu að fara hvorki með mál sín fyrir dómstóla né senda þau til úrskurð- arnefndar kirkjunnar. Þetta eru um tuttugu ára gömul mál. En þriðja málið er varðar fullorðinn einstakling var þegar prestur gerði sig sekan um óvelkomna snertingu. Kynferðisbrot innan KirKJunnar inGibjörG döGG kjartansdóttir blaðamaður skrifar: ingibjorg@dv.is kvenskörungur Guðrún Ebba Ólafsdóttir hefur sýnt mikið hug- rekki og mikinn styrk í baráttunni gegn kynferðisofbeldi. Þakkaði Guðrúnu ebbu fyrir Karl Sigur- björnsson biskup kynnti aðgerðir kirkjunnar fyrir Guðrúnu Ebbu í gær áður en hann hlýddi á sögu hennar á fundi kirkjuráðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.