Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Síða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Síða 16
16 erlent 18. ágúst 2010 miðvikudagur Lögregluyfirvöld í austurafríska rík- inu Tansaníu hafa handtekið mann sem þau segja hafa reynt að selja albínóa. Maðurinn var handtek- inn þegar lögreglumenn þóttust vera viðskiptavinir sem vildu kaupa líkams hluta af albínóa. Þeir segja að þeir hafi gert samning við manninn um að borga 250 þúsund Banda- ríkjadali fyrir albínóann sem er tví- tugur að aldri. Sá sem var hand- tekinn er 28 ára. Hann hefur verið ákærður fyrir mansal. Líkamshlutar af fólki sem þjáist af albínisma eru notaðir í Tansaníu af töfralæknum. Þeir búa til seyði úr þeim og fullvissa skjólstæðinga sína um að það muni gera þá ríka og heil- brigða. Talið er að um fimmtíu al- bínóar; börn og fullorðnir, hafi ver- ið myrtir í landinu á síðustu þremur árum. Yfirvöld í Tansaníu hafa heit- ið því að uppræta þessa starfsemi og hafa sjö menn verið dæmdir til dauða vegna þessa. Morðum á al- bínóum hefur fækkað en gríðarleg hræðsla ríkir á meðal þeirra vegna þessara ofsókna. Í mörgum Afríku- löndum hafa albínóar verið ofsóttir um aldir vegna litaraftsins og anda- trúar um þá. Algengur fylgikvilli al- bínisma í Afríku er húðkrabbamein en fæstir afrískra albínóa ná fjörutíu ára aldri. Á Vísindavef háskólans kemur fram að albínismi stafi af gölluðu litargeni. „Þetta gen er víkjandi sem þýðir að barn þarf að fá það frá báð- um foreldrum til þess að áhrifin komi fram. Hafi einstaklingur eitt eðlilegt litargen sjást engin merki um albínisma hjá viðkomandi. En eignist þessi einstaklingur barn með öðrum einstaklingi sem einnig hefur eitt gallað litargen eru fjórðungs lík- ur á því að barnið verði albínói. Talið er að einn einstaklingur af hverjum 20.000 sé albínói.“ helgihrafn@dv.is Maður ákærður fyrir mannsal í Afríkuríkinu Tansaníu: Ætlaði að selja albínóa Tugir láta lífið í sprengjuárás Að minnsta kosti sextíu létust í sjálfsmorðssprengjuárás á herstöð í Bagdad í gær. Samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins, BBC, særð- ust að minnsta kosti 100 manns í árásinni. Fórnarlömbin voru flest íraskir hermenn sem berjast við hlið bandarískra hermanna og banda- manna þeirra í Írak. Herstöðin er í miðborg írösku höfuðborgarinn- ar. Um 250 nýir hermenn koma til byggingarinnar á hverjum degi en stjórnvöld í Írak reyna nú að auka við heraflann til að undirbúa sig fyrir minnkandi umsvif Bandaríkja- manna í landinu, en þeir áforma að hætta hernaðaraðgerðum í Írak í lok mánaðarins, eftir sjö ára stríð. Upplýsingafulltrúi íraska hersins, Qassim al-Moussawi, tjáði Associat- ed Press að sprengjumaðurinn hefði verið einn á ferð. Ísraelsstjórn ábyrg fyrir dauða barns Ísraelskur dómstóll hefur úrskurðað að ísraelsk yfirvöld beri sök á dauða ungrar palestínskrar stúlku á Vestur- bakkanum fyrir þremur árum. Stúlk- an var tíu ára og hét Abir Aramin. Hún bjó í þorpinu Anata og lést þegar landamæravörður skaut hana með gúmmíkúlu þegar hann var í átökum við börn og unglinga sem köstuðu í hann grjóti. Samkvæmt dómnum var skotunum ekki beint að þeim sem köstuðu grjótinu og þau því óréttlæt- anleg. Stúlkan var skotin þegar hún gekk heim úr skólanum með systur sinni og tveimur bræðrum, en syst- kinin höfðu staldrað við til að kaupa sælgæti. Stjórnvöld eru því skylduð til að greiða fjölskyldunni skaðabætur. Dómarinn vísaði frá þeim getgátum verjenda ísraelska ríkisins að grjóti hefði verið kastað í Aramin litlu og úrskurðaði að byssuskotið hefði verið dánarorsök hennar. Ástralía rjúfi konungssamband Julia Gillard, forsætisráðherra Ástr- alíu, hefur opinberað þá skoðun sína að landið eigi að slíta konungs- sambandi sínu við Bretland þegar Elísabet II Bretadrottning deyr. Ástr- alar kjósa til þings á laugardaginn en hingað til hefur lítið sem ekkert verið fjallað um málefni konungs- sambandsins í kosningabaráttunni. Gillard sagði að við dauða Elísabet- ar II væri tímabært fyrir Ástrala að finna nýjan þjóðarleiðtoga, sem væri hvorki breskur konungur né drottn- ing. Ástralar höfnuðu að breyta ríkinu í lýðveldi í þjóðaratkvæða- greiðslu árið 1999. Helsti mótframbjóðandi Gillard er Tony Abbott úr hægriflokki frjáls- lyndra, en hann er yfirlýstur kon- ungssinni. Gillard sagði við sama tækifæri að hún bæri mikla virðingu fyrir og væri hlýtt til Elísabetar drottning- ar, sem er 84 ára að aldri, og sagðist vonast til að hún lifði lengi enn. Hræðsla vegna morðöldu Tansanísk kona með barni sínu, sem fæddist með albínisma. Mikil hræðsla hefur ríkt í Tansaníu hjá albínóum og aðstandendum þeirra vegna ofsókna. Mynd ReuteRs FRJÁLS EFTIR 11 ÁR Í FANGELSI Igor Sutyagin, rússneskum vís- indamanni, sem dæmdur var í fimmtán ára fangelsi fyrir njósn- ir, hefur skyndilega verið sleppt úr haldi. Honum var flogið til Bret- lands þegar Rússland og Banda- ríkin skiptust á njósnurum á dög- unum í stærstu aðgerð þeirrar tegundar frá lokum kalda stríðsins. Hann var handtekinn árið 1999 og sat í ellefu ár í rússnesku fangelsi en hélt ávallt fram sakleysi sínu. Sutyagin er kjarneðlisfræðingur og fékk dóm fyrir að hafa njósnað fyrir bandarísku leyniþjónustuna, CIA, en honum var gefið að sök að hafa komið leynilegum upplýsing- um um kjarnorkukafbáta og flug- skeytavarnir til bresks ráðgjafa- fyrirtækis sem Rússar sögðu vera undir hatti bandarísku leyniþjón- ustunnar. Igor Sutyagin er nú í útlegð í Lundúnum og segir fjölmiðlum frá reynslu sinni, BBC segir að heit- asta ósk hans sé að fá að snúa aftur til heimalandsins. Hann segist vera hálfhræddur við hraðann í bresku samfélagi og þjást af heimþrá. skyndilega sleppt Í júlí var Sutyagin í Rússlandi við vinnu í fangelsinu, sem er við norðurheimskautsbaug, þegar honum var skyndilega og án út- skýringa sagt að búa sig undir brottför. Hann var handjárnaður og komið fyrir í flugvél sem flutti hann til Moskvu. Hann var einn af fjórum njósn- urum sem sendir voru til Vestur- landa í skiptum fyrir rússnesku njósnarana sem játuðu í vor að hafa verið meðlimir leynilegs rúss- nesks njósnahrings sem starfaði í Bandaríkjunum. Sutyagin seg- Rússneski vísindamaðurinn Igor suty- agin var í sumar skyndilega leystur úr rússnesku fangelsi og sendur til Bret- lands í stærstu njósnaraskiptum Rússa og Bandaríkjamanna frá lokum kalda stríðsins. Hann var dæmdur í 15 ára fangelsi fyrir njósnir, skömmu eftir að Vladimir Putin komst til valda. Sutyagin hefur ávallt haldið fram sakleysi sínu en segist harma að hafa verið sleppt með þessum hætti. HelgI HRafn guðMundsson blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Mig langaði auð-vitað að verða frjáls. En mig langaði að verða frelsaður á grundvelli réttlætisins. flutt frá Bandaríkjunum n „Richard Murphy“ og „Cynthia Murphy“ viðurkenndu að vera Vladimir Guryev (44 ára) og Lydia Guryeva (39 ára). n „Donald Howard Heathfield“ og „Tracey Lee Ann Foley“ viðurkenndu að vera Andrei Bezrukov (49 ára) og Elena Vavilova (47 ára). n „Michael Zottoli“ og „Patricia Mills“ viðurkenndu að vera Mikhail Kutsik (49 ára) og Natalia Pereverzeva (36 ára). n „Juan Lazaro“ viðurkenndi að vera Mikhail Vasenkov (66 ára), kvæntur blaðamanninum Vicky Pelaez (55 ára), fæddri í Perú. n Anna Chapman, 28 ára (upprunalega Anya Kushchenko), fasteignasali, dóttir rússnesks sendiráðsmanns. n Mikhail Semenko starfaði undir eigin nafni. Hvarf n Ellefti njósnarinn „Christopher Metsos“, hvarf á Kýpur. fluttir frá Rússlandi n Igor Sutyagin vísindamaður, dæmdur í fangelsi árið 2004 fyrir að njósna fyrir CIA. n Sergei Skripal, fyrrverandi leyniþjónustumaður, dæmdur fyrir að njósna fyrir Bandaríkin árið 2006. n Alexander Zaporozhsky, fyrrverandi leyniþjónustumaður, dæmdur fyrir njósnir árið 2003. n Gennady Vasilenko, fyrrverandi KGB-maður, dæmdur árið 2006 fyrir ólöglega vopnaeign. FANGASKIPTI STórveldANNA

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.