Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.2010, Qupperneq 20
Ekkert að frétta
Útgáfuteiti í
Kling & Bang
Í tilefni af útgáfu skáldsögunnar
Saga eftirlifenda - Höður og Bald-
ur verður haldinn útgáfufögnuður
næstkomandi miðvikudag, þann
18. ágúst kl. 20.00, í gallerí Kling &
Bang, Hverfisgötu 42. Boðið verð-
ur upp á léttar veitingar og Emil
Hjörvar les upp úr bókinni. Höður
og Baldur er fyrsta skáldsaga Emils
Hjörvars Petersen en áður hefur
hann gefið út ljóðabækurnar Refur
og Gárungagap. Bókin er sú fyrsta í
fyrirhuguðum þríleik, en um er að
ræða spennandi fantasíutrylli, með
tilheyrandi skopi, ádeilu og samfé-
lagsrýni.
20 fókus 18. ágúst 2010 miðvikudagur
Daði sýnir í artóteK Á Menningarnótt, laugardaginn 21. ágúst kl. 16.00
verður opnuð sýning á verkum Daða Guðbjörnssonar listmálara í Artóteki.
Sýningin er á 1. hæð Borgarbókasafns Reykjavíkur, Grófarhúsi, Tryggvagötu 15. Daði er
lærður húsgagnasmiður en sneri sér fljótlega að myndlist. Hann útskrifaðist frá Listaaka-
demíunni í Amsterdam í Hollandi árið 1984 en áður hafið hann lokið námi frá Myndlista-
og handíðaskóla Íslands og stundað nám í Myndlistaskólanum í Reykjavík.
Daði vinnur mest með grafík og málar með vatnslitum og olíu. Sýningin stendur til 3.
október. Opið er mánudaga til fimmtudaga 10.00–19.00, föstudaga 11.00–19.00
og um helgar 13.00–17.00
Hvað Heitir lagið?
„Jensen går ned til en å for at fange sig
en fisk, hvad han ofte har gjort, men
der er ingen ting at hente, en industri
har fyldt åen op med skidt og lort.“
Svar: John Mogensen - Det er noget galt i Danmark
artfart í Dag og
á morgun
Miðvikudagur
Stella Polaris - Workshop: The Dream of the
Shaman
Ármann kl. 10.00–17.00
Anna Asplind - Dancewalks
Hugmyndahús háskólanna kl. 16.00
Inga Maren Rúnarsdóttir - Workshop: Flying low
and Passing Through
Danslistaskóli JSB frá kl. 17.00–20.00
The Shakespeariment - Shakespeare in Pieces
Crymo gallerí frá kl. 18.00–21.00
Árni Kristjánsson - Á gólfinu
Ármann frá kl. 18.00–18.50
Kammersveitin Ísafold - Spektralhátíð
Norðurpóllinn frá kl. 19.00–23.00
Fimmtudagur
Stella Polaris - Workshop: The Dream of the
Shaman
Ármann frá kl. 10.00–17.00
Inga Maren Rúnarsdóttir - Workshop: Flying low
and Passing Through
Danslistaskóli JSB frá kl. 17.00–20.00
Sýnir - Allir komu þeir aftur
Elliðaárdalur frá kl. 18.00–19.10
Árni Kristjánsson - Á gólfinu
Útgerðin frá kl. 18.00–18.50
Hnoð - Snoð
Smiðjan, LHÍ Sölvhólsgötu frá kl. 20.00–21.00
Ingi Hrafn Hilmarsson & Kane Husbands - In the
beginning
Listasafn Reykjavíkur frá kl. 20.30–21.00
Aukasýningar
AMMA - VAKT
Norðurpóllinn kl. 21.00 – fimmtudag
Dans á rósum - Mario bros
Norðurpóllinn kl. 19.00 – fimmtudag
Það er alltaf gaman þegar eitthvað
nýtt er reynt í tölvuleikjum. Hvort
sem það er í söguþræði, spilun eða
útliti. Stundum eru heilu leikirnir
bornir uppi af ferskleikanum, og því
fögnum við hér á DV. Það er margt
nýtt undir sólinni hér í Kane & Lynch
2. Fyrir það fyrsta stýra leikmenn
núna Lynch, en ekki Kane, alltaf
gaman að leika geðsjúkling. Hasar-
inn er í algjöru blasti allan tímann,
sagan er aðeins margslungnari en
síðast og útlitið hefur fengið þvílíka
yfirhalningu. Leikurinn spilast á frek-
ar þéttu tempói, sem er líka gleðilegt.
Nánast enginn dauður punktur. Tek-
ið hefur verið upp nýtt, „cover“-kerfi,
sem gerir það að verkum að maður er
nánast allan tímann í hnipri á bakvið
eitthvað drasl. Það er margt í Kane &
Lynch sem er hægt að hafa gaman
af, eins og áður er upptalið. Leikur-
inn hins vegar nær bara ekki að grípa
mann, mögulega eins og fyrri leikur-
inn. Þrátt fyrir æsilegan söguþráð og
skemmtilegt sögusvið, þá bara vant-
ar eitthvað alveg sárlega upp á. Útlit
leiksins sem byggir á einhvers kon-
ar heimildarmynda-„cinematík“, fer
líka alveg skelfilega í taugarnar á mér,
hálf slappt eitthvað. Skotkerfið er sér-
stalega ófullkomið og svo er bara ein-
hver leiðindabragur á leiknum sem
ég kann bara ekki við. „Co-op“-kerf-
ið er hins vegar ágætt, því það sam-
einar tvo anda á trylltum augnablik-
um. Það er nóg af frábærum hlutum
að gerast í heimi tölvuleikja um þess-
ar mundir, en þeir félagar Kane &
Lynch verða að vera út í kuldanum,
að sinni.
Dóri DNA
Kane & Lynch 2: Dog Days
Útgefandi: Eidos Interactive
Tegund: Hasarleikur
Spilast á: PS3/Xbox/PC
tölvuleikir
Kane & Lynch 2: Dog Days
Það vantar eitthvað upp á.
Evelyn Salt (Angelina Jolie) er þaul-
reyndur CIA-njósnari sem fær það
verkefni að yfirheyra Vassily Orlov
(Daniel Olbrychski), ljónharðan ná-
unga sem lítur út eins og Björgólfur
Thor eftir 5 ár. Hann lýsir því yfir að
hann vinni að endurreisn Rússlands
sem stórveldis gegnum leyniverkefni
sem fram að þessu var álitið að væri
byggt á sögusögnum. Hann bendir á
Salt sem þungavigtarleikmann í þeim
þætti verkefnisins sem snýr að því að
drepa núverandi forseta Rússlands
sem honum þykir heldur linur fulltrúi
rússneska bjarnarins.
Samsærið er veigamikið og miðar
að því að koma af stað þriðju heims-
styrjöldinni þar sem Rússland stend-
ur uppi sem sigurvegari og eina eftir-
lifandi stórveldið. Þarna virðist sem
það hafi verið komið upp um Salt og
hennar raunverulega tilgang inn-
an CIA. Hún neyðist í kjölfarið til að
flýja og hefst þar spennuþrungin eft-
irför hennar gömlu kollega. Það er frá
því að segja að myndin svíkur engan
með tilliti til hasars sem fram fer um
víðan völl, Salt stekkur milli trukka og
lumbrar á heilu herdeildunum. Auð-
vitað er allt yfirdrifið og ósennilegt,
til dæmis sleppur hún úr höfuðstöðv-
um CIA án þess að þyrla sé notuð við
eftirförina. Þyrlur eru notaðar af lög-
gæslumönnum í Bandaríkjunum
jafnvel þótt um bílaþjófa sé að ræða,
hvað þá meintan rússneskan njósn-
ara. Látum það liggja á milli hluta, því
tökur og brellur (sem Íslendingar eiga
að hluta til heiðurinn af) eru flottar og
hressandi.
Samsærið er geðveikislegt, yfir-
gripsmikið og matreitt af mjög vond-
um Rússum sem tala móðurmál sitt
reiprennandi og það er góð tilbreyt-
ing. Hér er komin enn ein tilraun til
að feta í fótspor James Bond. Gallinn
er bara að Bond-formúlan er stein-
dauð. „Bond, James Bond“ hefur verið
í óstöðvandi krísu sem hlýtur að enda
með greftrun hans. Kvikmyndagerð-
armenn hafa brugðist við þessu með
því að gera njósnamyndir þar sem um
innbyrðis fyrirtækjanjósnir er að ræða
eða herför gegn stórglæpamönnum
í stórfyrirtækjageiranum. Bourne-
myndirnar eru án efa sterkasti arf-
takinn en í þeim á Bourne í stríði við
stóru leyniþjónusturnar sem birtast
sem hryðjuverkaarmur hverrar ríkis-
stjórnar. En framhaldsmyndin Salt er
meira í anda Bond, nema hvað reynt
er að nútímavæða harkalega. Njósna-
hetjan er grjóthörð kona sem á und-
arlegan heimavinnandi húskarl sem
safnar skordýrum. Hann er leikinn af
hinum frábæra þýska leikara August
Diehl sem er reyndar fáránlega kjána-
legur og stórskrýtinn hér.
Jolie leikur prýðilega eins og oft
áður, þótt hún hafi snemma vanið sig
á að leika eingöngu í ógeðslega vondu
rusli. Örugglega hennar besta mynd
til þessa en það eitt og sér þarf ekki
að segja mikið. Ég vil ekki eyðileggja
spennuna fyrir komandi áhorfend-
um en myndin er, rétt eins og James
Bond, alveg einstaklega fyrirsjáanleg.
Ég vissi ekkert um þráð myndarinnar,
en myndin er rétt byrjuð þegar maður
áttar sig á plottinu. Til dæmis meiðir
hún en drepur ekki fyrrverandi sam-
herja sína á flóttanum og sena þar
sem hún tekur eitur úr könguló kom
manni í fullan skilning um hver flétt-
an væri. Fín sulta alveg hreint en það
er augljóslega kominn tími á eitthvað
nýtt. Geisp.
Erpur Eyvindarson
James BonD í
g-streng
saLT
Leikstjóri: Phillip Noyce
Aðalhlutverk: Angelina Jolie, Liev
Schreiber.
kvikmyndir