Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2010, Blaðsíða 10
10 fréttir 30. ágúst 2010 mánudagur
LEYND YFIR UPPGJÖRI
BJÖRGÓLFS THORS
Björgólfur Thor Björgólfsson fjár-
festir mun ekki greina frá því ná-
kvæmlega í hverju nýlegt 1.200
milljarða króna skuldauppgjör
hans felst. DV hefur leitað svara hjá
talsmanni hans, Ragnhildi Sverris-
dóttur, um í hverju skuldauppgjör-
ið felist, meðal annars hvort Björ-
gólfur Thor hafi greitt tiltekna skuld
í beinhörðum peningum eða ekki.
DV hefur ekki fengið ásættanleg
svör við þessum spurningum frá
Ragnhildi. Svar hennar er á þá leið
að skuldauppgjör Björgólfs hafi
verið fullt skuldauppgjör sem tekið
hafi til allra skulda hans en að frek-
ari upplýsingar um eðli uppgjörs-
ins verði ekki gefnar upp.
Upphaflega leitaði DV til Ragn-
hildar til að inna hana eftir því
hvort rúmlega 11 milljarða króna
skuld eignarhaldsfélagsins Main-
see, sem Björgólfur átti með Ró-
berti Wessmann, hefði verið hluti
af skuldauppgjöri Björgólfs. Ragn-
hildur svaraði þessari spurningu
játandi en gaf ekki nánari svör.
„BTB [Björgólfur Thor Björgólfs-
son, innskot blaðamanns] gerði að
fullu upp sinn hluta þeirrar skuld-
ar við Glitni við skuldauppgjör sitt,
sem skýrt var frá nú í júlí.“
Hvað felst í uppgjörinu?
Þegar DV fékk þetta svar frá Ragn-
hildi spurði blaðið hvað fælist í
þessu svari, til dæmis hvort Björg-
ólfur hefði greitt Mainsee skuldina í
reiðufé. Spurning DV fer hér á eftir:
„Þú segir: „BTB gerði að fullu
upp sinn hluta þeirrar skuldar við
Glitni við skuldauppgjör sitt, sem
skýrt var frá nú í júlí.“ Þýðir þetta
svar þitt að Björgólfur hafi borgað
þessa skuld við Glitni í beinhörð-
um peningum? Ef ekki, með hvað
hætti var hún þá gerð upp? Hægt
er að skilja og túlka orðalagið „að
gera upp skuld“ með margvísleg-
um hætti. Þetta er mikilvægt atriði.“
Þessari spurningu vildi Ragn-
hildur ekki svara fyrir hönd Björg-
ólfs Thors: „Eins og fram kom við
skuldauppgjörið gerði BTB allar
skuldbindingar sínar við íslenska
banka og fjölda erlendra banka
upp að fullu. Það persónulega upp-
gjör verður ekki útlistað nánar en
svo, enda hlýtur þetta að vera meg-
inmáið: Fullt uppgjör skulda.“
Þegar DV fékk þetta svar spurði
blaðið aftur hvað fælist í því að
Björgólfur hefði gert skuldir sínar
upp að fullu. „Hvað felst í því? Ég vil
fá nánari svör. Þetta er of loðið hjá
ykkur.“ Svar Ragnhildar við þessari
ítrekun var: „Nanari uppl um per-
sonulegt uppgjør eru ekki veittar.
Tetta var fullt uppgjør, eins og kom
fram a sinum tima.“ Þar við sat og
DV spurði Ragnhildi ekki frekari
spurninga.
Ekkert vitað
Staðan er því sú að þrátt fyrir að
Ragnheiður tali um að skuldir
Björg ólfs Thors verði gerðar upp
að fullu þá er ekkert vitað um hvað
felst nákvæmlega í þessu skulda-
uppgjöri. Almennur skilningur
fólks á orðinu skuldauppgjör er
á þá leið að maður borgi upp all-
ar skuldir sínar og vextina af þeim
upp á krónu, til dæmis þegar mað-
ur gerir upp námslánin sín á einu
bretti með því að borga þau niður í
beinhörðum peningum.
Af framsetningu starfsmanna
Björgólfs á skuldauppgjöri hans
mátti ætla að um hefði verið að
ræða slíkt skuldauppgjör hjá hon-
um: Að niðurstaðan í skuldaupp-
gjöri Björgólfs yrði sú að hann
borgaði kröfuhöfum sínum til baka
1.200 milljarða króna í peningum
eða á annan hátt. Svör Ragnhild-
ar við spurningum DV benda hins
vegar til að þetta hafi ekki verið
raunin og að samkomulag Björg-
ólfs Thors við lánardrottna sína
hafi verið með einhverjum öðrum
hætti og stangist því á við almenn-
an skilning fólks á orðinu skulda-
uppgjör. Ljóst er jafnframt af svör-
um Ragnhildar að Björgólfur kærir
sig ekki um að segja allan sannleik-
ann um skuldauppgjörið, af ein-
hverjum ástæðum.
Ein kenning um skuldaupp-
gjörið, sem mikið hefur verið á vör-
um manna eftir að það var kynnt,
er að Björgólfur borgi kröfuhöf-
um sínum í raun ekki neitt strax
heldur aðeins hluta skuldanna
þegar hann mun selja hlut sinn
í samheitalyfjafyrirtækinu Acta-
vis. Kenningin hermir að þá muni
Björgólfur borga kröfuhöfum sín-
um hluta af því sem hann fær fyr-
ir lyfjafyrirtækið og að afgangurinn
af skuldum hans verði ekki greidd-
ur.
Niðurstaðan er því sú að það er
ekki rangt að tala um „samkomu-
lag um heildaruppgjör“ skulda
Björgólfs og að skuldir hans verði
„gerðar upp“, líkt og Ragnhildur
hefur gert. Orðin „skuldauppgjör“
og að „skuldir verði gerðar upp“
þurfa þó vitanlega ekki að þýða að
Björgólfur muni greiða allar skuld-
irnar upp, krónu fyrir krónu.
Hugsanlegt er því að einhverjar
slíkar ástæður skýri þá leynd sem
hvílir yfir skuldauppgjöri Björg-
ólfs Thors og útskýri meðal ann-
ars af hverju ekki er hægt að svara
því með skýrum hætti, af eða á,
hvort í skuldauppgjöri Björgólfs
Thors felist að hann greiði lánar-
drottnum sínum einhverja fjár-
muni í peningum eða ekki. Því er
ekki hægt að fullyrða að Björgólf-
ur Thor muni greiða lánardrottn-
unum þessa 1.200 milljarða króna
og jafnframt er ómögulegt að segja
hversu mikið hann mun greiða
þeim til baka í raun.
Talsmaður Björgólfs Thors Björgólfssonar vill ekki svara því efnislega í hverju skuldauppgjör hans
felst. Engar frekari upplýsingar verða veittar um uppgjörið en nú þegar hafa komið fram. Engin sönnun
hefur komið fram um að Björgólfur Thor hafi greitt lánardrottnunum einhverja fjármuni. Hávær orð-
rómur er um að lánardrottnar hans fái fyrst einhverja fjármuni þegar Björgólfur selur Actavis.
n Tilkynningin um skuldauppgjör Björgólfs Thors sem send var til fjölmiðla í júlí:
„Björgólfur Thor Björgólfsson og fjárfestingarfélag hans, Novator, hafa
nú gengið frá samkomulagi um heildaruppgjör við erlenda og innlenda
lánardrottna sína.
Samkvæmt samkomulaginu munu skuldir verða gerðar upp að fullu og ekki
gefnar eftir. Allar eignir Björgólfs Thors og Novators liggja til grundvallar
uppgjörinu, en á þeim var gerð ítarleg úttekt og mat af hálfu alþjóðlegs
ráðgjafarfyrirtækis. Björgólfur Thor verður áfram hluthafi í félögum á borð við
Actavis, Play, CCP og Verne Holding. Arðurinn af þessum eignarhlutum og
verðmæti, komi til sölu þeirra, munu hins vegar ganga til uppgjörs skuldanna,
ásamt ýmsum persónulegum eigum hans. Þar á meðal eru húseign í Reykjavík
og sumarhús við Þingvelli.
Samhliða þessu skuldauppgjöri hefur náðst samkomulag um fjárhagslega
endurskipulagningu lyfjafyrirtækisins Actavis.
Við gerð samkomulagsins nutu Björgólfur Thor og Novator liðsinnis tveggja
alþjóðlegra fyrirtækja, hinnar virtu lögmannsstofu Linklaters og ráðgjafarfyrir-
tækisins AlixPartners, sem er eitt þekktasta fyrirtæki heims á sviði fjárhagslegr-
ar endurskipulagningar.“
skuldauppgjör björgólfs
ingi f. vilHjálmsson
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Nanari uppl um personulegt
uppgjør eru ekki veitt-
ar. Tetta var fullt upp-
gjør, eins og kom fram
a sinum tima.
fátt um svör Talsmaður Björgólfs
Thors vill ekki greina efnislega frá
skuldauppgjöri hans og neitar
meðal annars að svara því hvort
fjárfestirinn hafi greitt lánardrottn-
um sínum einhverja fjármuni.