Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2010, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2010, Blaðsíða 20
Yoko Ono veitir viðurkenningu úr LennonOno-friðarsjóðnum á Íslandi: Verðlaunuð í nafni friðar 30 ára dVali Hljómsveitin Melchior heldur út- gáfutónleika á Café Rósenberg á fimmtudaginn en þetta verður í fyrsta sinn í 32 ár sem hljómsveit- in spilar á tónleikum. Hljómsveitin Melchior er skipuð þeim Hilmari Oddssyni, Hróðmari I. Sigurbjörns- syni og Karli Roth, en þeir félagar syngja og leika á gítara og hljóm- borð. Gunnar Hrafnsson leikur á bassa og Steingrímur Guðmundsson á trommur. Kristín Jóhannsdóttir er söngkona sveitarinnar. Tónleikarnir eru haldnir í tilefni af útgáfu tvöfalds hljómdisks sem kemur út á miðviku- dag og nefnist 1980. Um er að ræða endurútgáfu á lögum sveitarinnar sem öll voru tekin upp fyrir 1980. Spilar með StórStjörnum Ólöf Arnalds er á leið í heil- mikla tónleikaferð um Evrópu og Bandaríkin í tilefni af út- komu breiðskífu sinnar Innund- ir skinni. Platan kemur út hér á landi sem og erlendis þann 13. september. Í tónleikaferðinni mun Ólöf meðal annars leika á undan stórstjörnunum í Air á fernum tónleikum í Frakklandi í nóvember og vítt og breitt um Bandaríkin með Blonde Redhead í nóvember og desember. Alls er búið að staðfesta 32 tónleika fyrir ferðina, sem hefst á End of the Road Festival í Bretlandi 12. sept- ember og lýkur í Austin í Texas í Bandaríkjunum. HádegiSperlur í Hafnarborg Tenórsöngvarinn Garðar Thór Cort- es syngur á fyrstu hádegistónleikum haustsins í Hafnarborg á fimmtu- dag klukkan 12.00. Þetta er áttunda árið sem boðið er upp á hádegistón- leika í Hafnarborg fyrsta fimmtudag í mánuði. Antonía Hevesi píanó- leikari hefur verið listrænn stjórn- andi tónleikanna frá upphafi og hefur hún fengið til liðs við sig flesta fremstu söngvara landsins. Tónleik- arnir standa yfir í um hálfa klukku- stund og eru öllum opnir á meðan húsrúm leyfir. Húsið verður opnað klukkan 11.30. Á dagskrá eru aðal- lega þekktar íslenskar söngperlur. 20 fókus 30. ágúst 2010 mánudagur nýtt lag frá elektru Stúlkna- sveitin Elektra sendi frá sér nýtt lag fyrir helgi. Það heitir Cobra on Heels og er eftir Eurovision-reynslu- boltann Örlyg Smára og Smára Tarf. Textinn er eftir Valgeir Magnússon og Gerard James Borg. Lagið var flutt á Skjá einum um helgina í söfnunarþættinum Á allra vörum. Stúlkurnar í Elektru eru svo á leið til spænsku eyjunnar Mallorca í lok september. Þar koma þær fram á lesbíuhátíðinni L-Sun. HVað Heitir lagið? „No hell below us, above us only sky“ SVar: imagine - John lennon Yoko Ono mun standa fyrir ýmsum viðburðum á Íslandi þann 9. okt- óber í tilefni af afmælisdegi eigin- manns hennar, Johns Lennon, sem hefði orðið sjötugur þennan dag. Meðal annars mun Ono veita verð- laun úr LennonOno-friðarsjóðn- um sem var stofnaður árið 2002 til þess að heiðra framlag Lennons til heimsfriðar og mannréttindabar- áttu. Fjórir einstaklingar sem þykja hafa sýnt hugrekki og helgað sig friði, sannleika og mannréttindum hljóta verðlaunin að þessu sinni. Þau eru rithöfundurinn Michael Pollan, rithöfundurinn, ljóðskáld- ið og baráttukonan Alice Walker, Barbara Kowalcyk, stofnandi CFI- góðgerðarsamtakanna, og kvik- myndagerðarmaðurinn Josh Fox, sem skrifaði og leikstýrði heimild- armyndinni GASLAND árið 2010. Þetta er í þriðja sinn sem sjóður- inn veitir viðurkenningar sem eru vanalega tvær. Viðurkenningarn- ar verða veittar í Höfða en klukk- an 20.00 verður svo kveikt á friðar- súlunni í Viðey líkt og gert er á ári hverju á afmælisdegi Bítilsins. Einnig verður um sögulega stund að ræða þegar Yoko Ono og Plastic Ono Band halda tónleika síðar um kvöldið. Upphaflegu með- limir þeirrar sögufrægu sveitar voru, auk þeirra Ono og Lennons, til dæmis Eric Clapton, George Harrison, Ringo Starr, Keith Moon, Phil Spector og fleiri. asgeir@dv.is Yoko Ono Stendur fyrir ýmsum viðburðum þann 9. október. Michael Cera er í öllu þessa dagana. Hann kemst upp með að leika sama karakter- inn aftur og aftur og Scott Pilgrim vs. The World er alls engin undantekn- ing. Myndin er byggð á teiknimynda- sögunni Scott Pilgrim's Precious Litt- le Life sem sækir margar hugmyndir í tölvuleiki 9. og 10. áratugarins. Mynd- in er þar af leiðandi full af slíkum vís- unum. Svoleiðis áhættur er alltaf erf- itt að taka en leikstjóranum Edgar Wright tekst hið ómögulega í þessu tilfelli og setur saman eina skemmti- legustu mynd ársins. Brellurnar verða aldrei þreytandi og þrátt fyrir flug- eldasýninguna missir maður aldrei sjónar á aðalpersónunum sem eru jafn ljóslifandi á skjánum og tölvu- leikjaatriðin. Michael Cera leikur titilpersón- una Scott Pilgrim sem virðist vera algjör lúði. Hann býr í Toronto, er í misheppnaðri hljómsveit sem árang- urslítið reynir að ná í plötusamning og á kærustuna Knives sem hann hef- ur aldrei kysst þó þau hafi einu sinni komist nálægt því að haldast í hend- ur. Þegar á líður hittir hann hina stór- merkilegu en ógæfusömu Ramonu Flowers (Mary Elizabeth Winstead) sem flúði til Toronto eftir kærasta- vandræði í New York. Þau fella hugi saman en fljótlega kemur í ljós að veruleiki Scotts og Ramonu er ekki eins og við eigum að venjast. Cera er traustur að venju og leik- ur sömu persónu og hann gerir allt- af, þó með örlítið meiri þroska í þetta skiptið. Mary Elizabeth Winstead stendur sig sömuleiðis vel og minnir oft á Kate Winslet í Eternal Sunshine of the Spotless Mind. Brandon Routh stelur senunni í litlu aukahlutverki sem einn af fyrrverandi kærustum Ramonu en Routh ætti að vera mörg- um kunnur eftir að hann fór með hlut- verk Superman fyrir nokkrum árum. Routh mætti sjást meira á hvíta tjald- inu. Aðrir aukaleikarar eru sömuleiðis mjög skemmtilegir en þar mætti nefna Önnu Kendrick, Chris Evans, Kier- an Culkin og síðast en ekki síst Jason Schwartzman í hlutverki sjálfs enda- kallsins en slíkir eru að sjálfsögðu ómissandi í tölvuleikjum og kvik- myndum sem þessari. Það verður mjög spennandi að sjá næstu myndir Edgar Wright, en hann hefur nú hitt í mark þrisvar í röð með Shaun of the Dead, Hot Fuzz og nú Scott Pilgrim vs. The World. Myndin er fyndin og frumleg frá fyrstu mínútu og aldrei leyfir Wright tæknibrellun- um að skyggja á aðalpersónurnar. Það er brellan sem fæstum tekst að fram- kvæma nú til dags. Jón Ingi Stefánsson Scott pilgrim vS. the world Leikstjóri: Edgar Wright. Aðalhlutverk: Michael Cera, Mary Elizabeth Winstead, Kieran Culkin, Chris Evans, Anna Kendrick, Ellen Wong, Alison Pill, Brandon Routh, Jason Schwartzman. kvikMyndir fyndin og frumleg ScOtt PiLgrim Mætir hér einum af andstæðingum sínum. ScOtt Og rAmOnA Mary Elizabeth Winstead og Michael Cera í hlutverkum sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.