Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2010, Síða 25
José taki við af ferguson Wesley Sneijder,
hollenski snillingurinn hjá Inter, segir að José Mourinho, sem nú
þjálfar Real Madrid, en þjálfaði áður Inter, muni taka við Manchest-
er United þegar Alex Ferguson lætur af störfum. Hollendingurinn
segir að Mourinho hafi í samtölum þeirra lýst þessu yfir og að stjórn
Manchester United horfi hýru auga til hans. „Ég hef átt löng og
mikil samtöl við José og ég myndi leggja mikið undir í veðmáli um
hvort hann taki við af Ferguson. Ég veit að hann langar til að verða
stjóri hjá Manchester United,“ segir Sneijder.
Óvissa um kyn í kvennahlaupi Hin suð-
urafríska Caster Semenya endaði í þriðja sæti í 800 metra sprett-
hlaupi í lokakeppni Diamond League á föstudaginn. Keppnin var
haldin í Belgíu en hin breska Jemma Simpson segir að ósanngirni
hafi gætt í garð hinna keppenda hlaupsins, því að niðurstöðum
kynjaprófs sem gert var á Semenya hefur verið haldið leyndum fyrir
hinum keppendunum. Þá segir Simpson að niðurstöðurnar komi
hinum keppendunum kannski ekki við, en það væri samt betra að
keppendur gætu verið vissir um kyn Semenya.
mánudagur 30. ágúst 2010 sport 25
Alex Ferguson var ánægður með sína
menn er hann horfði á þá sigra West
Ham með þremur mörkum gegn
engu á Old Trafford á laugardaginn.
Wayne Rooney endaði markaþurrð
sína er hann skoraði eitt mark í sig-
urleik Manchester United í dag en
hann gerði það úr vítaspyrnu sem
var jafnframt fyrsta mark leiksins.
Nani og Dimitar Berbatov skoruðu
eitt mark hver í leiknum.
„Þetta var mjög góð frammi-
staða. Við héldum boltanum vel og
kannski hefðum við getað skorað oft-
ar,“ sagði Ferguson við ESPN. „Það er
ávallt reyndin þegar þú skorar fyrsta
markið, þá opnast dyrnar fyrir þér.
Við þurftum að bíða eftir því en við
spiluðum áfram okkar leik og náð-
um verðskuldaðri forystu. Þetta var
frábært mark frá Nani og ég er mjög
sáttur við frammistöðu hans.“
Rooney hafði ekki skorað mark
síðan í mars og en átti ekki í nein-
um vandræðum með að koma bolt-
anum í markið í fyrri hálfleik. „Hann
naut þess að spila knattspyrnu í dag.
Hann var fullur af orku sem var mjög
gott,“ sagði Ferguson á laugardaginn.
Chelsea vann Stoke 2-0 á laugar-
daginn með mörkum frá Florent Ma-
louda og Didier Drogba. Lundúna-
liðið trónir á toppi deildarinnar með
fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Chelsea
hefur skorað 14 mörk og ekki fengið
á sig eitt einasta mark.
Arsenal marði sigur á Blackburn á
laugardaginn. Leikurinn endaði 2-1
en Theo Walcott og Andrei Arshavin
skoruðu mörk Arsenal, en lánsmað-
urinn Mame Diouf frá Manchester
United skoraði mark Blackburn.
Tottenham fékk skell þegar Wigan
sigraði á White Hart Lane 0-1.
Wayne Rooney skoraði loksins um helgina:
Ferguson ánægður með Rooney
Úrslit
Enska úRvalsdEildin
Blackburn - Arsenal 1-2
0-1 Walcott (‘20), 1-1 Diouf (‘27), 1-2 Arshavin (‘51).
Blackpool - Fulham 2-2
0-1 Zamora (‘35), 1-1 Pantsil (‘71 sm), 2-1 Varney (‘76), 2-2
Etuhu (‘87).
Chelsea - Stoke 2-0
1-0 Malouda (‘32), 2-0 Drogba (‘77 v).
Man. Utd - West Ham 3-0
1-0 Rooney (‘33 v), 2-0 Nani (‘50), 3-0 Berbatov (‘69).
Tottenham - Wigan 0-1
0-1 Rodallega (‘80).
Wolves - Newcastle 1-1
1-0 Ebanks-Blake (‘44), 1-1 Carroll (‘63).
Bolton - Birmingham 2-2
0-1 Johnson (‘4), 0-2 Gardner (‘51), 1-2 Davies (‘71 v), 2-2 Blake
(‘81). n Jaaskelainen (‘36).
Liverpool - West Brom 1-0
1-0 Torres (‘65). n Morrison (WBA) (‘86).
Sunderland - Man City 1-0
1-0 Bent (‘90, víti).
Aston Villa - Everton 1-0
1-0 Young (‘9).
staðan
Lið L U J T M St
1. Chelsea 3 3 0 0 14:0 9
2. Arsenal 3 2 1 0 9:2 7
3. Man. Utd 3 2 1 0 8:2 7
4. Aston Villa 3 2 0 1 4:6 6
5. Bolton 3 1 2 0 5:3 5
6. Birmingham 3 1 2 0 6:5 5
7. Wolves 3 1 2 0 4:3 5
8. Newcastle 3 1 1 1 7:4 4
9. Man. City 3 1 1 1 3:1 4
10. Sunderland 3 1 1 1 3:3 4
11. Tottenham 3 1 1 1 2:2 4
12. Blackpool 3 1 1 1 6:8 4
13. Liverpool 3 1 1 1 2:4 4
14. Fulham 3 0 3 0 4:4 3
15. Blackburn 3 1 0 2 3:4 3
16. WBA 3 1 0 2 1:7 3
17. Wigan 3 1 0 2 1:10 3
18. Everton 3 0 1 2 1:3 1
19. Stoke City 3 0 0 3 2:6 0
20. West Ham 3 0 0 3 1:9 0
Enska b-dEildin
Sheffield Utd- Preston 1-0
Scunthorpe - Cr. Palace 3-0
Portsmouth - Cardiff 0-2
Nottingham F. - Norwich 1-1
Millwall - Coventry 3-1
Ipswich - Bristol City 2:0
Doncaster - Hull 3:1
Derby - QPR 2:2
Barnsley - Middlesbro 2:0
Watford - Leeds 0:1
Swansea - Burnley 1:0
Leicester - Reading 1:2
staðan
Lið L U J T M St
1. QPR 4 3 1 0 11:2 10
2. Cardiff 4 3 1 0 9:2 10
3. Ipswich 4 3 1 0 8:3 10
4. Millwall 4 3 0 1 11:4 9
5. Burnley 4 2 1 1 5:2 7
6. Leeds 4 2 1 1 6:4 7
7. Norwich 4 2 1 1 6:4 7
8. Coventry 4 2 1 1 7:6 7
9. Doncaster 4 2 1 1 6:6 7
10. Barnsley 4 2 1 1 6:7 7
11. Scunthorpe 4 2 0 2 5:4 6
12. Swansea 4 2 0 2 5:4 6
13. Reading 4 1 2 1 5:5 5
14. Watford 4 1 2 1 5:5 5
15. Derby 4 1 1 2 6:7 4
16. Middlesbro 4 1 1 2 2:5 4
17. Sheffield Utd 4 1 1 2 2:5 4
18. Hull 4 1 1 2 3:7 4
19. Nottingham F. 4 0 3 1 3:4 3
20. Cr. Palace 4 1 0 3 4:8 3
21. Preston 4 1 0 3 1:7 3
22. Bristol City 4 0 2 2 4:9 2
23. Leicester 4 0 1 3 3:8 1
24. Portsmouth 4 0 1 3 1:6 1
pEpsi-dEild kaRla
Grindavík - Breiðablik 2-3
Fylkir - ÍBV 2-4
Stjarnan - Fram 1-2
staðan
Lið L U J T M St
1. ÍBV 18 11 3 4 29:18 36
2. Breiðablik 18 10 4 4 40:22 34
3. KR 17 9 4 4 34:22 31
4. FH 17 8 5 4 33:26 29
5. Fram 18 7 5 6 29:28 26
6. Stjarnan 18 6 6 6 36:31 24
7. Keflavík 18 6 6 6 19:23 24
8. Valur 17 5 7 5 23:30 22
9. Grindavík 18 5 4 9 22:28 19
10. Fylkir 18 5 3 10 31:38 18
11. Selfoss 17 4 2 11 24:39 14
12. Haukar 18 2 7 9 24:39 13
Léttir Wayne Rooney fagnaði ákaft með
samherjunum fyrsta marki sínu á tímabilinu,
en það skoraði hann úr vítaspyrnu á móti
West Ham á laugardaginn. MyND REUTERS
Fernando Torres kom slöku liði Liver-
pool til bjargar þegar hann skoraði
fyrsta og eina mark leiksins á móti
West Brom á heimavelli á Anfield.
Markið, sem er það fyrsta sem Torres
skorar á tímabilinu, kom þegar Spán-
verjinn afgreiddi snyrtilega fyrirgjöf
frá Dirk Kuyt í netið. Hann hefði get-
að bætt við öðru marki síðar, en Scott
Carson, markvörður West Brom, náði
að verja. Leikmenn Liverpool vildu fá
vítaspyrnu þegar Gonzalo Jara virt-
ist handleika knöttinn í teignum, en
dómarinn hafði ekki veitt því athygli.
James Morrison, miðjumaður West
Brom, var rekinn af velli eftir ljóta tæk-
lingu á fyrrnefndum Fernando Torres.
Spánverjinn lék vel í leiknum og er án
vafa mjög létt nú þegar hann hefur
rofið tíu leikja markaþurrð sína.
Fyrir leikinn, og á meðan honum
stóð, beindust myndavélarnar að Raul
Meireles, portúgalska miðjumannin-
um sem Roy Hodgson keypti til Liver-
pool um helgina. Hann fylgdist með
leiknum og gaf eiginhandaráritanir.
Klúður hjá City
Sunderland lagði milljónalið
Manchester City 1-0 á heimavelli á
sunnudag. Sigurmarkið skoraði Dar-
ren Bent úr vítaspyrnu í uppbótar-
tíma, en hún var dæmd eftir að Micah
Richards ýtti markaskoraranum. Bent
spyrnti boltanum undir lappirnar á
Joe Hart, en markið var það fyrsta sem
Manchester City fær á sig á tímabil-
inu. Roberto Mancini, stjóri City, stóð
furðu lostinn og öskureiður á hliðar-
línunni. Hann hafði búist við sigri í
leiknum en í stað þess fékk liðið ekkert
stig í leiknum sem City glutraði niður
á lokamínútunum. Carlos Tevez fékk
stórkostlegt tækifæri, eftir sendingu
frá Yaya Toure, til að skora en klúðraði
því á ótrúlegan hátt fyrir framan opið
markið. Emmanuel Adebayor spyrnti
síðar í leiknum að marki með hæln-
um en Simon Mignolet, markvörður
Sunderland, varði glæsilega.
Ná ekki að komast í stuð
City er með dýrasta lið deildarinnar
og hefur gríðarlega háleit markmið
en samt nær félagið ekki stöðugleika
í deildinni. Það missti af Meistara-
deildarsæti í fyrra vegna of margra
leikja þar sem liðið náði ekki að kom-
ast í stuð, þrátt fyrir ótrúlegan leik-
mannahóp – sem ef til vill er sá sterk-
asti í heiminum. Mancini verður að ná
stöðugleika ef hann ætlar sér ekki að
verða rekinn líkt og forveri hans, Mark
Hughes, lenti í eftir nokkur léleg úrslit
í röð.
torresbjargaði Liverpool
Liverpool og Manchester City halda áfram að valda stuðningsmönnum sínum vonbrigð-
um. Fernando Torres skoraði eina mark leiksins gegn West Brom, en stórlið Liverpool
virtist ákaflega slakt í leiknum. City glutraði niður leiknum gegn Sunderland á útivelli
þegar Darren Bent skoraði sigurmark heimaliðsins úr vítaspyrnu í uppbótartímanum.
HELGI HRAFN GUðMUNDSSoN
blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is
FLINKUR ToRRES Fernando Torres skoraði
fyrsta mark sitt í tíu leikjum fyrir Liverpool
á móti West Brom á sunnudaginn. Þrálát
meiðsli hafa plagað Spánverjann en hann
sýndi þó gamalkunna takta og bjargaði
Liverpool sem spilaði illa í leiknum.
MyND REUTERS
DRAMATÍK Vítaspyrna var dæmd í uppbótartíma á Manchester City eftir að Micah
Richards ýtti Darren Bent, framherja Sunderland, í teignum. Bent skoraði sigurmark
Sunderland úr spyrnunni. MyND REUTERS