Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2010, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2010, Blaðsíða 17
mánudagur 30. ágúst 2010 erlent 17 Mikið fjölmiðlafár hefur umlukið lít- inn kaþólskan barnaskóla í Ástralíu síðustu daga eftir að kennarar verð- launuðu nemanda á grímuballi, en sá hafði verið klæddur eins og Adolf Hitler. Níu og tíu ára börn skólans höfðu verið beðin um að klæða sig í búning frægra manna fyrir árlegt grímuball í skólanum sem er í Perth í vesturhluta Ástralíu. Þegar grímuballið stóð sem hæst var komið að því að verðlauna það barn sem þótti hafa útbúið best heppnaða búninginn. Kennararnir lýstu því yfir að sigurvegarinn væri drengur sem var klæddur eins og Ad- olf Hitler, klæddur í nasistabúning með hakakrossinn á áberandi stað. Skólastjórinn sagði við fjölmiðla að eftir á að hyggja hafi það ekki verið heppilegt ákvörðun. Yfirvöld ákváðu að gefa ekki upp nafn skólans, af ótta við að börnin yrðu fyrir ónæði vegna ágangs fjölmiðla. En starfsfólk hans þurfti samt að biðjast opinberlega afsökunar á athæfinu, vegna fjölda kvartana frá foreldrum og forráða- mönnum. Yfirkennari skólans segir í við- tali við dagblað í Perth að hann telji að fólk hafi gert úlfalda úr mýflugu í málinu. Hann segir að margir hafi fyllst gremju þegar börnin kölluðu „Hitler, Hitler, Hitler“ á grímuballinu, en það hafi aðeins verið til að skera úr um hver hefði sigrað í búninga- keppninni, börnin hefðu aðeins sagt sína skoðun á hver ætti að vinna. Yf- irkennarinn varði starfsfólk skólans og lýsti atvikinu sem einangruðu og sagði að Hitler væri einfaldlega mjög frægur maður. Hann skrifaði foreldrum barn- anna bréf og lofaði þeim að í fram- tíðinni yrði börnum bannað að herma eftir öðrum frægum persón- um en þeim sem við hæfi þyki fyrir börn á þessum aldri. Yfirkennarinn sagði að margir hefðu einnig kvart- að yfir því að börnunum hefði verið leyft að klæða sig eins og vampírur og draugar. helgihrafn@dv.is Fjölmiðlafár um barnaskóla í Ástralíu: Verðlaunuðu barn í Hitlersbúningi Angela Merkel, kanslari Þýskalands, bauð George W. Bush í skoðunar- ferð um heimahaga hennar í norður- austurhluta landsins sumarið 2006, á leið þeirra til G-8-fundarins í Rúss- landi. Þúsundir lögreglumanna gættu þeirra. Nú hefur þýskur fangi leitað til dómstóla og krefst þess að þýska ríkið gefi upp hvað skemmtiferðin kostaði almenning í Þýskalandi. Heilgrillað villisvín Merkel bauð Bush til heimahéraðs hennar í sambandsríkinu Mecklen- burg-Vorpommern, sem liggur við Eystrasaltið, í norðurhluta Þýska- lands. Þar ferðuðust þau saman í þrjá daga og skoðuðu náttúruna og sögu- fræga staði. Merkel sló upp grillveislu í þorpinu Trinwillershagen fyrir bandaríska forsetann og á boðstólum var heilgrillað villisvín, sem er frægur réttur frá þessum slóðum. Á meðan þau gæddu sér á villisvíninu, og ferð- uðust um svæðið, gættu rúmlega tólf þúsund lögreglumenn þeirra. Bankaræningi krefst svara Almennur borgari, sem situr í fangelsi á hinum enda landsins, í sambands- ríkinu Baden-Württemberg í suður- hluta Þýskalands, og var dæmdur í áratugalangt fangelsi fyrir bankarán, hefur nú krafist þess að sjá hversu miklu þýska ríkið þurfti að punga út vegna skemmtiferðar og villisvínaáts leiðtoganna. Dómstóll í Schwerin, höfuðborg sambandsríkisins, mun úrskurða um hvort yfirvöld þurfi að sundurliða kostnaðinn vegna upplýs- ingalaga sem fanginn vísar í. Óvíst hver borgaði hvað Innanríkisráðuneytið í Mecklenburg- Vorpommern gaf út árin 2007 og 2008 að kostnaður heimsóknarinnar hafi verið 8,7 milljónir evra, eða 1,3 millj- arðar íslenskra króna, en þær upplýs- ingar voru birtar að kröfu öfgahægri- flokksins NPD. En talið er að önnur sambandsríki hafi staðið straum af 5,7 milljónum evra, tveimur þriðju upphæðarinnar, með því að senda þúsundir lögreglumanna á svæðið. Venjulega greiðir það sambandsríki sem býður þjóðarleiðtogum í heim- sókn, sjálft allan kostnað við öryggis- gæslu. Í þessu tilviki hafði Merkel hins vegar boðið Bush upp á sitt eindæmi og þess bera að geta að Mecklenburg- Vorpommern er eitt fátækasta sam- bandsríki þýska sambandslýðveldis- ins. Embættismenn í feluleik Fanginn segir lögbundinn rétt allra borgara að fá að sjá reikninga hjá hinu opinbera. Stefan Schulz, lögmaður hans, er bjartsýnn á að sigur vinn- ist í máli skjólstæðingsins. „Upplýs- ingalögin eru mjög skýr. Yfirvöld geta aðeins bannað að veita upplýsingar þegar einhver hætta stafar að þeim.“ Upplýsingafulltrúi Mecklenburg- Vorpommern, Karsten Neumann, styður fangann. Hann sagði frétta- mönnum að embættismenn hefðu ekki viljað opinbera kostnaðinn. Þeir hafi ekki viljað að uppljóstrað yrði hversu margir lögreglumenn hafi verið sendir frá öðrum sambands- ríkjum til að gæta Merkel og Bush, og hefðu því ekki verið á vakt í heimahé- röðunum. Neumann líkti tegðu yfir- valda við að sýna gögnin við einræð- istilburði. Árið 2006 bauð Angela Merkel, kanslari Þýskalands, George W. Bush, þáverandi forseta Bandaríkjanna, í skoðunarferð á heima- slóðir hennar við Eystrasaltið og kostaði ferðin víst skildinginn. 1,3 milljarðar fyrir villisvín HElGi HrAfn GuðMundsson blaðamaður skrifar: helgihrafn@dv.is Á meðan þau gæddu sér á villi- svíninu, og ferðuðust um svæðið, gættu rúm- lega tólf þúsund lög- reglumenn þeirra. rándýr grillveisla Bush og Merk- el gæddu sér á heilgrilluðu villisvíni við Eystrasaltsströnd Þýskalands fyrir fjórum árum. Veislan kostaði þýska skattgreiðendur á annan milljarð íslenskra króna. Mynd rEutErs og dæmt þúsundir íbúa til að fara,“ sagði einn af leiðtogum frumbyggj- anna sem búa á nærliggjandi svæð- um. fimmtánföld Kárahnjúkastífla Afl virkjunarinnar verður ellefu þús- und megavött en það er um fimmt- ánfalt afl Kárahnjúkavirkjunar. Tal- ið er að stíflugerðin muni kosta á bilinu 1.300 til 2.000 milljarða ís- lenskra króna. Stjórnvöld segja að hún muni veita 23 milljónum heim- ila rafmagn. Samfara miklum hag- vexti í Brasilíu segir ríkisstjórn að nauðsynlegt sé að byggja stíflur til að tryggja að næg raforka verði fyr- ir hendi næstu áratugina. Sagt er að um sjötíu stíflur séu fyrirhugaðar á Amasónsvæðinu. Gagnrýnendur stíflunnar segja að hún verði mjög afkastalítil og framleiðsla hennar verði aðeins einn tíundi af heildargetunni þrjá til fjóra mánuði ári þegar lítið er í ánum. risastífla í amason Ógnar lífríkinu Indjáni af Chicrin-þjóðarbrotinu horfir á ána Bacaja, hliðará Xingu-fljótsins. Eftir áratugalangar deilur hefur ríkisstjórn Brasilíu loks ákveðið að hefjast handa við þriðju stærstu stíflu veraldar á svæðinu þar sem þúsundir frumbyggja hafa átt heimili í margar aldir. Mynd rEutErs Eldgos eftir 400 ára hlé Þúsundir Indónesa eru á flótta undan eldgosi sem hófst aðfara- nótt sunnudags á eyjunni Súmötru. Sinabung-fjall hefur ekki gosið í 400 ár. Stjórnvöld hafa lýst yfir neyðar- ástandi en mikil kvika flæðir niður hlíðar fjallsins. Strókurinn í fjallinu fer um einn og hálfan kílómetra upp í loftið. Tíu þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín í nærliggjandi þorpum. Indónesía er eitt mesta eldfjallasvæði heims en virk eld- fjöll í landinu eru að minnsta kosti 129 talsins og þar á meðal eru sum illvígustu eldfjöll jarðar sem valdið hafa miklum skaða og hamförum í sögunni. Bað fórnarlömb um að þegja Fyrrverandi kardináli í kaþólsku kirkjunni í Belgíu hvatti fórnarlamb kynferðisglæps til þess að þegja um málið, að minnstu þangað til gerandinn færi á eftirlaun. Biskup- inn Roger Vangheluwe misnotaði ungan mann um margra ára skeið, bæði sem prestur og sem biskup. Fórnarlambið fór á fund God fried Danneels, fyrrverandi kardinála og sagði honum frá misnotkuninni. „Ég veit ekki hvort að það verði mik- ill ávinningur af því að hafa hátt um þetta, fyrir þig eða hann,“ sagði Danneels við fórnarlambið. En fórn- arlambið hafði tekið samtalið upp, og fór með málið í belgíska fjöl- miðla. Samtalið átti sér stað í apríl, og í kjölfar þess að málið komst í há- mæli sagði biskupinn af sér. Bin laden undir- maður Bush Fidel Castro, fyrrverandi forseti Kúbu, segir að skjöl á Wikileaks sanni að hryðjuverkaforinginn Osama Bin Laden starfi fyrir banda- rísku leyniþjónustuna. Hann segir Bin Laden hafa verið undirmann Bush, og ávallt verið til taks þegar hinn síðarnefndi þurfti að „hræða heiminn.“  Castro sagði þetta á fundi með litháískum rithöfundi að nafni Daniel Estulin, en hann er þekktur höfundur ýmissa samsæriskenn- inga og hefur ritað mikið um meint heimsyfirráð Bilderberg-hópsins. Hitler Ástralskt barn var verðlaunað fyrir að klæða sig eins og Hitler á grímuballi í skólanum og fjölmiðlafár hófst í kjölfar- ið. Vaxmynd frá Madame Tussauds í Berlín. Mynd rEutErs

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.