Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2010, Blaðsíða 22
22 úttekt 30. ágúst 2010 mánudagur
Lindsay Dee Lohan fæddist þann 2. júlí 1986 og eyddi fyrstu árum ævi sinnar í litlu þorpi á vesturströnd Cold Spring Harbour í New York. Faðir hennar,
Michael Lohan, starfaði sem viðskiptajöfur á
Wall Street en móðir hennar, Dina Lohan, starf-
aði sem dansari og þekkti því til skemmtana-
bransans. Dina og Michael giftust árið 1985 en
Dina hefur látið hafa eftir sér að þau Michael
hafi verið of ung. Hún hafi verið trúlofuð öðr-
um manni sem lést í bílslysi og hafi því kynnst
Michael í sorg. Ári seinna var Lindsay fædd og
bróðir hennar Michael fæddist ári eftir. Aliana
kom svo í heiminn árið 1994 og drengurinn Da-
kota árið 1996 en Lohan-fjölskyldan á ættir að
rekja til Ítalíu og Írlands. Michael, faðir Lindsay,
var dæmdur í fjögurra ára fangelsi árið 1990 fyr-
ir fjársvik. Þegar hann var settur inn flutti Dina
með börnin í sinn gamla heimabæ, Merrick. Lo-
han gekk alltaf vel í skóla þar sem hún fékk ávallt
bestu einkunn en hún gekk í Laurel Springs-
gagnfræðaskólann sem býður ungum stjörnum
og afreksbörnum upp á einstaklingsmiðað nám.
Hún þótti fyrirmyndarnemandi í stærðfræði og
vísindum og hafði einnig mikinn áhuga á íþrótt-
um, sundi, skautum, söng, hjólreiðum, lestri,
skrift og að leika sér við systkini sín.
Barnastjarna fæðist
Ferill Lindsey hófst þegar hún var aðeins
þriggja ára og fékk samning hjá Ford-umboð-
inu. Dina keyrði með dótturina til og frá Long
Island til New York svo Lindsay gæti mætt í
danstíma, söngkennslu og prufur í stórborg-
inni en sem barn kom Lindsay fram í yfir 60
sjónvarpsauglýsingum. Þar á meðal voru aug-
lýsingar Gap, Pizza Hut, Wendy’s og Jell-O þar
sem hún lék á móti Bill Cosby. Lohan var einn-
ig andlit Abercrombie & Fitch Kids og Calvin
Klein Kids. Fyrsta hlutverk hennar í sjónvarpi
var í þáttunum Another World árið 1996 og
stuttu síðar var hún valin í hlutverk tvíbura-
systranna í Disney kvikmyndinni The Parent
Trap. Myndin sló í gegn og Lindsay fékk Young
Artist-verðlaunin sem besta unga leikkonan í
aðalhlutverki auk annarra tilnefninga.
sakleysið hverfur
Disney-kvikmyndarisinn gerði þriggja mynda
samning við Lohan sem lék auk þess í fjölda
sjónvarpsþátta. Fljótlega kom út myndin
Freaky Friday þar sem hún lék á móti Jamie
Lee Curtis en gagnrýndendur héldu ekki vatni
yfir frammistöðu beggja leikvennanna. Linds-
ay kom einnig að tónlist Freaky Friday en hún
söng lagið Ultimate sem heyrist í upphafi og
enda myndarinnar. Árið 2004 fékk Lohan MTV
Movie-verðlaun sem besti nýliðinn auk ann-
arra tilnefninga en Lindsay var sjálf kynnir á
verðlaunaathöfninni og sá yngsti í sögunni. Á
þessum tíma bjó Lohan í Los Angeles ásamt
annarri ungri leikkonu, Raven-Symoné, sem
er frægust fyrir hlutverk sitt í þáttunum The
Cosby Show. Fljótt var ljóst að Lindsay var
ekki lengur lítil og saklaus heldur sjálfstæð
ung kona sem átti eigin íbúð og bíl. Fréttir um
samband hennar og Aarons Carter, litla bróður
Nick úr Backstreet Boys, fóru að birtast í blöð-
unum og leikkonan öðlaðist smám saman orð-
stír fyrir að lifa bæði hátt og hratt. Ekki skánaði
umfjöllunin þegar myndir af leikkonunni þar
sem hún var úti á lífinu ásamt nýjustu vinkon-
unni, partíljóninu París Hilton, fóru að birtast í
slúðurblöðunum.
Dramatískur faðir
Þegar hjónabandi Dinu og Michael lauk missti
Michael samband við börnin. Krakkarnir
fylgdu Dinu sem starfaði alfarið sem umboðs-
maður Lindsey. Á sama tíma og Freaky Friday
sló hvert aðsóknarmetið birtust fréttir af Mi-
chael þar sem hann hafði verið ákærður fyrir
að ráðast á ræstitækni sem hafði lagt í stæð-
ið hans á Manhattan. Seinna sama ár slasaði
hann mág sinn með því að berja hann með skó
í höfuðið og að auki var sagt frá því, í helstu
slúðurblöðunum, að hann hefði hlaupið frá
hótelreikningi. Í febrúar 2005 lenti hann svo í
alvarlegu bílslysi og var dæmdur í fjögurra ára
fangelsi fyrir að keyra undir áhrifum áfengis.
Næsta stóra kvikmynd Lohan var grín-
myndin Confessions of a Teenage Drama
Queen, sem kom út árið 2004. Þrátt fyrir litla
velgengni myndarinnar dásömuðu jafnvel
hörðustu gagnrýnendur frammistöðu leik-
konunnar. Í kjölfarið fylgdi myndin Mean Girls
sem gekk mun betur og varð til þess að launa-
kröfur leikkonunnar hækkuðu en Lohan fékk
litlar 7,5 milljónir Bandaríkjadala fyrir mynd-
ina Just My Luck, sem kom út árið 2006. Lind-
say Lohan var komin á toppinn og gat valið og
hafnað hlutverkum að vild.
lögð inn á sjúkrahús
Árið 2004 var Lohan á föstu með leikaranum
Wilmer Valderrama og birtist við hlið hans í þátt-
unum That ‘70s Show. „Wilmer var mín fyrsta
ást. En tímasetningin var slæm. Og allar þess-
ar stelpur sem héngu í kringum hann og hann
daðraði við – ég réði ekki við það. Ég treysti hon-
um ekki. Svo við áttum ekki séns,“ lét leikkon-
lindsay lohan var að-
eins þriggja ára þegar
hún hóf feril sinn í
skemmtanaheiminum.
Frægðarsól Lindsay reis
hratt og hún var óum-
deild prinsessa Disney.
Lohan virtist eiga glæsta
framtíð í Hollywood þeg-
ar halla fór undan fæti
og umfjöllun um leik-
konuna fór að snúast um
skemmtanalíf, meðferðir
og fangelsi.
Lindsay
Lohan
stendur á tímamótum
n
æ
r
m
yn
d