Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2010, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 30.08.2010, Blaðsíða 19
gUÐJÓN bALDVINSSON knattspyrnumaður hjá KR, skoraði tvö af fjórum mörkum liðsins þegar KR lék gegn Fylki í síðustu viku. Annað markið skoraði Guðjón með hjólhestaspyrnu. Guðjón segir konuna og börnin og metnaðinn til að ná langt drífa hann áfram en hann hefur æft knattspyrnu í 19 ár. KjúKlingurinn hennar mömmu bestur Kreppan virðist alveg komin úr tísku. Undanfarin tvö ár hefur fátt ann- að verið rætt en kreppan, en nú er eins og allir séu endanlega búnir að fá nóg. Líklega ert þú, lesandi góð- ur, að hugsa um að hætta að lesa þessa grein núna, þar sem minnst hefur verið á kreppuna þrisvar sinn- um í jafn mörgum málsgreinum. En hvað varð af henni? Fór hún í sum- arfrí, og snýr aftur um leið og gúrku- tíðinni lýkur? Eða hefur ríkisstjórn- inni í raun tekist að ráða niðurlögum hennar? Og hvers vegna þakkar eng- inn henni þá fyrir? Nýir bílar eru aftur að komast á göturnar, og manni finnst Aust- ur-Evrópubúar aftur farnir að vera áberandi í afgreiðslustörfum. Á yfir- borðinu virðist allt vera að komast í samt lag, við sláum kannski ekki upp veislu eins og það sé 2007, en hugs- anlega eins og það sé 1999. Dagurinn sem Kennedy dó Allir hafa fundið fyrir kreppunni að einhverju leyti, með hækkandi mat- vöruverði og skuldum. En það er samt ekki raunveruleg kreppa, 1930 kreppa, nema hjá um tíu prósentum þjóðarinnar. Eðli málsins samkvæmt eru það þau tíu prósent sem minnst áhrif hafa. Hinir hafa vissulega dreg- ið saman neysluna, en smám saman fer að losna um pyngjuna aftur. Og þeir sem eiga raunverulega peninga eru farnir að eyða þeim aftur og eru ekki lengur jafn hræddir við að ber- ast á. Maður heyrir jafnvel að það sé í lagi að græða peninga. Það hefur verið talað svo illa um peningafólk að sumum finnst nóg um, og pend- úllinn er að sveiflast aðeins til baka. Í nýjustu seríu þáttaraðarinn- ar Mad Men er sagt frá morðinu á Kennedy forseta. Þjóðin verður fyr- ir áfalli og um tíma halda allir að allt sé breytt. En nýr forseti tekur við og allt heldur áfram eins og áður. Vissu- lega er efnahagshrun líklegra til að kalla á breytingar heldur en forset- amissir, en samt sem áður sjáum við hliðstæður hér. Til skamms tíma breyttist fátt, en til lengri tíma lit- ið markaði morðið á Kennedy djúp spor í bandaríska þjóðarsál. Hinni óbilandi bjartsýni eftirstríðsáranna var lokið, við tók Víetnam, Waterg- ate og harðar deilur á milli kynþátta. Það má næstum segja að morð hafi komist í tísku, morðtíðnin jókst til muna og Martin Luther King og Ro- bert Kennedy voru á meðal þeirra sem féllu í valinn. Vafalaust má segja að Bandaríkin séu enn að vinna úr þessum vatnaskilum, næstum 50 árum síðar. Hvað hefur þá breyst? Hvað segir þetta okkur um Ísland? Ef maður gengur niður Laugaveg- inn virðist lítið hafa breyst. En þó er þjóðarsálin öðruvísi en hún var fyrir hrun. Hin íslenska bjartsýni sem hefur einkennt þjóðina frá lýð- veldisstofnun, þrátt fyrir verðbólgu og aflabrest, er líklega endanlega horfin. Við erum ekki lengur ævin- týraeyja þar sem allt er hægt, held- ur lútum við sömu lögmálum og aðrar þjóðir. Mest afgerandi breyt- ingarnar eru líklega þær að þjóðin missti sakleysi sitt. Við gerum okk- ur grein fyrir því að spilling og vald- níðsla eiga sér stað hér, og að þeir sem mest hafa á milli handanna eru ekki endilega þeir sem eiga það helst skilið. Heimurinn er ekki leng- ur jafn öruggur eða jafn sanngjarn og hann var áður. Það er ávallt sorg- legt þegar fólk missir sakleysi sitt, en um leið nauðsynlegt. Það verð- ur ekki jafn auðveld fórnarlömb svikahrappa þar eftir. Unglingsár- um Íslands er lokið, við taka full- orðinsárin. Þau verða ekki jafn góð og maður hafði vonað, þau eru það aldrei. En ef til vill erum við betur í stakk búin til að takast á við þau en við vorum áður. Hvað varð af kreppunni? 1 Fíknin öllu yFirsterkariArna Ósk Geirsdóttir, starfsmaður á leikskóla á Akureyri, lýsir því viðtali í DV hvernig hún missti dóttur sína í febrúar eftir langa baráttu við fíkniefni. 2 engin lokapróF í HarvardHarvard-háskóli í Bandaríkjunum tók þá ákvörðun í júlí að hætta að nota lokapróf sem mælikvarða. 3 Þeir ÞurFtu að HorFast í augu við lygarnar Stefanía Þorgrímsdóttir segir yfirmenn kirkjunnar ekki geta horfst í augu við málefni Ólafs biskups. 4 HeFur bitið nærri 60 mannsApi hefur valdið miklum óróleika í Japan, en hann hefur bitið nærri 60 manns frá því um miðjan ágúst. 5 skondið skeyti Frá tinu FeyTina Fey sendi leikkonunni Betty White skondið skeyti í kjölfar Emmy-verðlaunanna. 6 Fjöldi Fólks Flýr í kjölFar eldgoss Eldgos á eyjunni Súmötru í Indónesíu hefur skotið íbúum skelk í bringu. 7 baugur Fer í Hart vegna persónulána Fyrrverandi starfsmenn Baugs verða krafðir um endurgreiðslu af lánum sem þeir fengu í september 2007. mest lesið á dv.is myndin Hver er maðurinn? „Guðjón Baldvinsson knattspyrnumað- ur.“ Hvað drífur þig áfram? „Fjölskyldan, konan mín og barn og metnaðurinn til að ná langt í fótbolta.“ Hvar ertu uppalinn? „Í Garðabænum, besta bænum.“ Við hvað lékstu þér helst í æsku? „Það var aðallega fótboltinn.“ Hvað hefur þú æft fótbolta lengi? „Frá því ég var fimm ára. Í 19 ár.“ Ef ekki KR, hvaða lið þá? „Stjarnan.“ Uppáhaldsmatur? „Grillaðar kjúlingabringur með kartöflum og salati a la mamma.“ Hvert stefnirðu? „Eins langt og hægt er.“ Áttu þér fyrirmynd? „Hef í gegnum árin litið upp til Eiðs Smára. Torres og Rooney sem sentera.“ Með hvaða liði heldurðu í enska? „Manchester United.“ Hverjir verða Íslandsmeistarar? „Kr-ingar. Ef við nýtum tækifærin rétt.“ maður dagsins kjallari „Jú, ég fór núna um helgina.“ ÓttAR EggERtSSON 68 áRA, FyRRVERAnDI KEnnARI „Ég er nýkomin úr berjamó.“ bÁRA gUÐMUNDSDÓttIR 65 áRA, FyRRVERAnDI ÍÞRÓTTAKEnnARI „Jú, ég hef farið í berjamó og tíndi nóg af berjum.“ FRÍMANN HELgASON 63 áRA, KEnnARI „nei, ég hef ekki ennþá farið í berjamó.“ SNORRI ÁSMUNDSSON 44 áRA, MynDlISTARMAðUR „Ég fór í berjamó þessa helgina og það var nóg af berjum.“ ANNA MAgNúSDÓttIR 62 áRA, HEIMAVInnAnDI HúSMÓðIR HeFur Þú Farið í berjamó í sumar? dómstóll götunnar mánudagur 30. ágúst 2010 umræða 19 „En þó er þjóðar- sálin öðruvísi en hún var fyrir hrun. “ VALUR gUNNARSSON rithöfundur skrifar Að gömlum sið útför ágústs M. Sigurðssonar, fyrrverandi sóknarprests og rithöfundar að Möðruvöllum í Hörgárdal, fór fram á föstudaginn. Samkvæmt gamalli hefð gengu viðstaddir í röð frá Dómkirkjunni í Reykjavík að leiðinu í Hólavallakirkjugarði. Slíkt er sjaldgæft orðið. Við útförina voru margir af æðstu þjónum hinnar íslensku þjóðkirkju. MyND SIgtRyggUR ARI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.