Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Page 6
6 fréttir 6. september 2010 mánudagur
Kristján L. Möller, þingmaður Sam-
fylkingarinnar í Norðausturkjördæmi,
lætur nú af embætti samgönguráð-
herra eftir að hafa setið á ráðherra-
stóli í þrjú ár og þrjá mánuði. Á þing-
flokksfundi Samfylkingarinnar og
síðar flokksstjórnarfundi fór Jóhanna
Sigurðardóttir, forsætisráðherra og
formaður Samfylkingarinnar, þess á
leit við Kristján að hann héldi áfram
störfum við stór og mikilsverð sam-
gönguverkefni sem þegar sér fyrir
endann á.
„Ég er auðvitað ákaflega ánægð-
ur með beiðni forsætisráðherra því
þetta eru verkefni sem ég hefði viljað
fá tækifæri til þess að ljúka og hefði
þurft tvo til tvo og hálfan mánuð til
þess í viðbót.“
Kristján segir að fyrst og fremst sé
um að ræða viðræður við lífeyrissjóð-
ina um fjármögnun mikilvægra vega-
framkvæmda. „Þetta eru stórar vega-
framkvæmdir sem kosta allt að 35
milljarða króna, bæði á höfuðborgar-
svæðinu og annars staðar á landinu.
Forsætisráðherra bað mig sem sagt
um þetta og ég þarf að ræða þetta við
hana. Ef þetta snýst um þá viðræðu-
áætlun sem ég hef stýrt við lífeyris-
sjóðina mun ég gera það með glöðu
geði. Þetta er mikilvægt atvinnumál
og framkvæmdir sem um eitt þúsund
manns munu vinna við næstu tvö til
þrjú árin. Þetta er 35 milljarða króna
pakki. Þetta yrði bara viðbót við mikl-
ar samgöngubætur á undanförnum
árum.“
Tvenn jarðgöng
Mjög styttist í að bæði Bolungarvík-
ur- og Héðinsfjarðargöng verði tek-
in formlega í notkun. Bolungarvík-
urgöngin verða vígð 25. september
og Héðinsfjarðargöngin 2. októ ber.
Ætla má að Héðinsfjarðargöngin
séu Kristjáni mikið hjartans mál
sem Siglfirðingi og baráttumanni
fyrir gerð ganganna árum saman.
En hann verður ekki sá ráðherra
sem klippir á borða og tekur göng-
in formlega í notkun. „Það hefði
verið ánægjulegt að gera það bæði
þar og í Bolungarvík. En það skipt-
ir ekki máli hver klippir á borðann.
Það skiptir máli að verkinu er að
ljúka og ég er ákaflega stoltur af því
að göngin verða opnuð á þessum
tíma. Borðaklippingin er ekki aðal-
atriðið.
17 kílómetrar – 17 milljarðar
Framkvæmdir við Héðinsfjarðar-
göng hófust árið 2006 og kostnaður
við gerð þeirra verður nálægt 12 millj-
örðum króna. Göngin milli Ólafs-
fjarðar og Héðinsfjarðar eru tvíbreið,
rétt um 7 kílómetrar að lengd. Það-
an er ekin 600 metra vegalengd um
botn Héðinsfjarðar og inn í göngin til
Siglufjarðar sem eru 3,7 kílómetrar að
lengd. Heildarvegalengdin er því um
12 kílómetrar og kostnaður því um
einn milljarður króna fyrir hvern kíló-
metra. Um 100 manns hafa unnið við
lokafrágang ganganna í sumar. Áætl-
að er að taka göngin formlega í notk-
un 2. október næstkomandi eins og
áður segir.
Bolungarvíkurgöng eru 5,1 kíló-
metri að lengd og er áætlaður kostn-
aður við gerð þeirra liðlega 5 millj-
arðar króna. Göngin leysa af hólmi
Óshlíðarveg sem þykir hættulegur
sökum snjóflóðahættu og hruns. Ós-
hlíðarvegur hefur verið Vegagerðinni
dýr um langt skeið og gerðar hafa ver-
ið á honum margvíslegar endurbætur
til að auka öryggi vegfarenda. Bolung-
arvíkurgöngin verða tekin í notkun
efir þrjár vikur.
Það hefði verið ánægjulegt að
gera það bæði þar og
í Bolungarvík. En það
skiptir ekki máli hver
klippir á borðann.
Þúsund manns
við framkvæmdir
Forsætisráðherra vill að Kristján L. Möller ljúki stórum samgönguverkefnum á næstu
mánuðum. Þau felast meðal annars í því að ljúka samningum við lífeyrissjóðina um 35
milljarða króna fjármögnun á samgöngumannvirkjum á höfuðborgarsvæðinu og lands-
byggðinnni. Meðal annars eru Norðfjarðargöng á dagskrá.
jóhann hauKsson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
samgöngur í innanríkisráðuneyti For-
sætisráðherrahefurbeðiðKristjánL.Möller
aðsinnaáframundirbúningisamgönguverk-
efnasemkostasamtals35milljarðakróna.
Mynd róberT reynisson
héðinsfjarðargöng Tæpurmánuður
erþangaðtilklipptverðuráborðannog
umferðhleyptáHéðinsfjarðargöngin.
„Þaðhefðiveriðánægjulegtaðklippaá
borðann,“segirKristjánL.Möller.
Mynd Vegagerðin
LAGERSALA
www.xena.is
Mikið úrval af skóm
á alla fjölskylduna
Frábær verð
no1
st. 36-41 verð kr. 8995.-
no2
st. 36-41 verð kr. 8995.-
no3
st. 36-41 verð kr. 8995.-
no4
st. 36-46 verð kr. 8995.-
Opið virka daga 12-18
laugardag 12-16
kirkjan lögð
í einelti
Fjölmiðlar hafa kynt undir úrsögn-
um úr þjóðkirkjunni að mati sókn-
arprests Neskirkju. Séra Örn Bárður
Jónsson segir fjölmiðla hafa lagt
kirkjuna í einelti og vill sjálfur fá að
segja sig úr fjölmiðlum. Guðsþjón-
ustu í Neskirkju var útvarpað á Rás 1
í gær en þar sagði Örn kirkjuna vera
að mörgu leyti ráðalausa og þurfa
að horfast í augu við sjálfa sig. Hann
sagði fjölmiðla þurfa að kasta af sér
yfirlæti og sjálfsöryggi í skjóli þess
að þeir hefðu vald sem erfitt væri að
gagnrýna.
Einn með
allar réttar
Einn heppinn einstaklingur var með
allar tölur réttar í lottóútdrættinum
á laugardag. Fyrir að hafa fimm tölur
réttar fær viðkomandi fimm milljónir
króna en vinningsmiðinn var keyptur
í Bjarnabúð í Biskupstungum. Þá var
einn með bónusvinninginn en fyrir
það fær hann rúmlega tvö hundr-
uð og átján þúsund krónur í vasann.
Miðinn með bónusvinningnum var
keyptur hjá Olís á Húsavík.
Brunakerfi fór af
stað vegna bilunar
Sextíu ára afmæli Þjóðleikhúss-
ins gekk ekki áfallalaust fyrir sig á
sunnudag. Eldvarnarúðar hússins
fóru í gang vegna bilunar. Slökkvilið
og lögregla voru boðuð á vettvang
en fljótlega varð ljóst að enginn
eldur var í húsinu. Bilunin er rakin
til þess að of mikill þrýstingur var á
kerfinu og því fór það í gang. Slökkt
var á úðurunum og er ekki talið að
miklar vatnsskemmdir hafi orðið á
húsinu að því er fram kom á vef Rík-
isútvarpsins.
Það gæti tekið þó nokkurn tíma að
ákveða hvort leyfi verði veitt til skrá-
setningar á herþotuflota hollenska
fyrirtækisins ECA hér á landi, að mati
Ögmundar Jónassonar innanríkis-
ráðherra. Ögmundur sagði í sam-
tali við fréttastofu Ríkisútvarpsins að
komast þyrfti að því hvers konar fyr-
irtæki ECA er og á hvaða grundvelli
það starfar. Eins og frægt er orðið
var það síðasta embættisverk Kristj-
áns Möller, fráfarandi samgöngu-
ráðherra, að senda Flugmálastjórn
bréf þess efnis að hefja undirbúning
á starfsemi fyrirtækisins ECA í Kefla-
vík. Hollenska fyrirtækið ECA fullyrti
á heimasíðu sinni að íslensk stjórn-
völd hefðu veitt fyrirtækinu starfs-
leyfi hér á landi, að því er fram kom
á vef Ríkisútvarpsins.
Þar sagði Ögmundur málið
blöndu af misskilningi og bráðræði.
ECA hefði ekki átt að setja slíka til-
kynningu inn á heimasíðu sína að
hans mati því málið væri ekki frá-
gengið. Hann sagði að skoða yrði
hvort það samræmdist utanríkis-
stefnu Íslands að ECA hefði bæki-
stöð á Íslandi. Utanríkisstefnan eigi
að vera friðsamleg. Einnig þyrftu
menn að kynna sér fyrirtækið til þess
að komast að því hvað það ætlar að
gera hér á landi. Talið er að 200 störf
geti skapast á Suðurnesjum ef ECA
fær að hefja starfsemi hér. Atvinnu-
leysi hér á landi er hvað mest á Suð-
urnesjunum en Ögmundur taldi rétt
að taka hliðsjón af fleiru en bara at-
vinnuhagsmunum.
Ögmundur segir tímafrekt að skoða leyfi fyrir ECA:
Misskilningurogbráðræði
skoðar eCa Ögmundursegistþurfaað
kynnasérECAtilþessaðvitahvaðþað
ætlaraðgerahérálandi.