Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.2010, Side 26
Einar Bárðarson, útvarpsstjóri Kanans, var að hefja MBA-nám í Háskólanum í Reykjavík og situr því sveittur við bækurnar þessa dagana. „Þetta eintak kemur bara einu sinni á öld en maður er alltaf að reyna að betrumbæta sjálfan sig,“ sagði hann hinn hressasti með þessa breytingu. Um það hvað drífi hann áfram segir hann: „Áhuginn á því að bæta sjálfan mig og gera eitthvað skemmtilegt. Á seinni árum er það líka velferð fjölskyldu minn- ar.“ Enda líður honum alltaf best við hliðina á konunni sinni. Annars fagnaði Einar þeim áfanga í vikunni að koma Kan- anum yfir eins árs múrinn og segir að besta tónlistin, fréttir og skemmtilegasta fólkið sé það sem einkenni Kanann. Aðspurð- ur hver væri uppáhaldsútvarps- þátturinn sem er ekki á Kanan- um var hann ekki lengi að svara: „Listapopp Gunnars Salvars- sonar sem var á Rás 2 á laugar- dögum á árunum 1984–1987. Besti útvarpsmaðurinn af gamla skólanum er Kvöldsögu-Jónas, af milli skólanum er það Gulli Helga og af nýjustu kynslóðinni Ásgeir Páll Ágústsson. Svo er Þorgeir Ástvaldsson helvíti góð- ur líka. “ Fjölmiðladrottningin Ellý Ár- manns leggur nú drög að bók sem á að koma út fyrir jólin. Ellý vill lítið gefa upp um bókina eins og er. „Þetta er svolítið leyndar- dómsfullt núna,“ segir hún móð en þegar DV náði sambandi við hana var hún úti að hjóla. Það eina sem hún gefur upp er að bókin er ekki skáldsaga. „Þessi bók verður á andlegu nótunum. Hún verður jákvæð og uppbyggj- andi, kærleiksrík og frá hjartanu. Eitthvað sem við þurfum á að halda,“ segir hún. Ellý vaknar snemma alla morgna og spáir fyrir konum á Facebook. Þessir morgnar með Ellý eru orðnir mjög vin- sælir þar sem hún rýnir í spilin. Það eru þessar konur sem hjálpa Ellý við skrifin. „Íslenskar kon- ur eru að gera þetta með mér. Ég er að gera þetta í samvinnu við fjöldann allan af konum sem ég eyði morgnunum með. Ég spái fyrir þeim frítt á Facebook. Það koma svona 100–200 konur þarna inn,“ segir Ellý Ármanns- dóttir. tomas@dv.is ELLÝ ÁRMANNS GEFUR ÚT BÓK FYRIR JÓLIN: Konukvöld verður haldið í sund- lauginni á Hofsósi á fimmtudag- inn. Sundlaugin er hin glæsi- legasta eins og við var að búast af gjöf athafnakvennanna Lilju Pálmadóttur og Steinunnar Jónsdóttur. Á fimmtudaginn verður mikið húllumhæ í laug- inni en þá verður tískusýning, veitingar og snyrtivörukynning- ar og annað skemmtilegt í boði. Sundlaugin er staðsett við sjáv- arbakka Hofsóss og er útsýnið yfir fjörðinn ekki af verri endan- um. Konur á Norðurlandi ættu ekki að láta sig vanta á þennan atburð, þótt ekki væri nema til að kíkja á íþróttafulltrúa Skaga- fjarðar en það er gamla knatt- spyrnukempan Sævar Péturs- son, líklega betur þekktur sem litli bróðir Lindu Pé. KONUKVÖLD Í SUNDLAUG 26 FÓLKIÐ 6. september 2010 MÁNUDAGUR JÁKVÆÐ OG UPPBYGGJANDI BÓK Mögnuð Ellý Ármanns fer oftast sínar eigin leiðir og gerir það vel. MYND HEIÐA HELGADÓTTIR STEFÁN HRAFN MAGNÚSSON: HREINDÝRABÓNDI Á SKÓLABEKK Stefán Hrafn Magnússon hrein- dýrabóndi er kominn til Íslands og sestur aftur skólabekk eftir að hafa stundað hreindýrarækt í Isortoq á Suður-Grænlandi í um 25 ár. Stefán er mikill ævintýramaður en ásamt því að stunda hreindýrarækt starf- ar hann einnig við ferðaþjónustu á Grænlandi og hefur unnið við málmleit í jörðu fyrir ástralskt stór- fyrirtæki. Hann er ötull talsmaður ísbjarna og vill sjá náttúrufriðland á Hornströndum fyrir ísbirni sem álpast til Íslands. Hann stundar nú nám við háskólann á Bifröst og seg- ir ástæðuna fyrir því að hann valdi þann skóla frekar en einhvern ann- an vera fyrst og fremst náttúrufeg- urðina þar allt um kring. „Umhverf- ið hér er mjög fagurt. Ég hef búið í náttúrunni alla ævi og vil vera á stað þar sem ég get stundað útivist. Svo er ekki nema klukkutíma akst- ur til Reykjavíkur ef maður vill fara í stórbæ.“ Aðspurður hvernig honum lítist á námið segir hann: „Ég er í frum- greinadeildinni. Það er deild fyr- ir fólk með reynslu en sem þarf að fá smá smurningu til að geta far- ið í frekara nám og það er einmitt það sem ég var að leita að.“ Hann segist stefna á áframhaldandi nám og segir það tengjast því sem hann hefur verið að gera á Grænlandi en vill þó ekkert fara nánar út í það að svo stöddu. Þegar kemur að málefnum ís- bjarnanna sem villast til Íslands er Stefán Hrafn á þeirri skoðun að þeim eigi að koma fyrir á Horn- ströndum. „Lifandi ísbjörn er mun meira virði en dauður. Það er hægt að reisa þriggja metra háa girðingu yfir eiði þarna og svo geta þeir étið selina og refina. Það er hægt að rukka fyrir aðgang að þeim og skapa atvinnu í leiðinni. Ísbjörn sem hef- ur nóg að éta fer ekki neitt og það er ekki eins og það séu margir af þeim sem villast hingað yfir.“ Hann gefur ekki mikið fyrir hug- myndir Jóns Gnarr um að fá ísbjörn í húsdýragarðinn: „ Ég set þum- alinn niður við þeirri hugmynd. Ís- björn á ekkert erindi í húsdýragarð, þar myndi honum leiðast og hann myndi vera óánægður. Og það vilj- um við ekki.“ hanna@dv.is Stefán á veiðum Stefán á yfir 4.000 hreindýr. EINAR Í MBA -NÁM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.