Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 4
4 fréttir 25. október 2010 mánudagur
Sími 569 3100 • Stórhöfða 25 • www.eirberg.is
Slakaðu á heima
• Stillanlegt Shiatsu herða- og baknudd
• Djúpslökun með infrarauðum hita
• Sjálfvirkt og stillanlegt nudd
Verið velkomin í verslun okkar
prófið og sannfærist!
Úrval nuddsæta
Verð frá 23.750 kr.
Mótmælendur
í réttarsalinn
Í vikunni þurfa hinir ákærðu níu-
menningar svokölluðu að mæta fyrir
rétt þar sem mál íslenska ríkisins gegn
þeim er tekið fyrir. Einstaklingarnir
níu voru ákærðir fyrir árás á Alþingi
árið 2008 er búsáhaldabyltingin stóð
sem hæst. Níumenningarnir tóku þátt
í mótmælunum og ruddust ásamt öðr-
um inn í þinghúsið og áleiðis að áhorf-
endapöllum hússins, þann 8. desem-
ber 2008. Níumenningarnir hafa gefið
út eigin bækling um dómsmálið á
ensku og var honum dreift á bóka-
messu í Lundúnum um nýliðna helgi.
Möguleg brot
í bönkunum
Á borði sérstaks saksóknara liggja
nú niðurstöður erlendra sérfræðinga
á meintum lögbrotum í starfshátt-
um stóru viðskiptabankanna þriggja
fyrir bankahrunið. Ef marka má
heimildir RÚV skjóta niðurstöðurn-
ar stoðum undir málsókn á hendur
stjórnendum bankanna fyrir skjala-
brot, auðgunarbrot og brot á lögum
um fjármálafyrirtæki. Sérfræðing-
arnir erlendu hafa nú rannsakað
bókhald bankanna eftir húsleitir
sem gerðar voru fyrir ári hjá endur-
skoðunarfyrirtækjunum KPMG og
PricewaterhouseCoopers. Niður-
stöðurnar gefa til kynna að helstu
stjórnendur bankanna kunni að vera
sekir um ólöglegt athæfi þar sem til
að mynda raunafkoma bankanna
hafi ekki verið sú sem gefin var upp
opinberlega.
Dýrir skólar
Kostnaður við rekstur grunn- og
leikskóla er hvergi meiri innan
OECD en á Íslandi. Engu að síður
eru laun grunnskólakennara hér
á landi aðeins um 70 prósent af
meðallaunum grunnskólakenn-
ara í öðrum ríkjum innan OECD.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
stofnunarinnar sem gefin er út
árlega um stöðu menntamála
í aðildarlöndunum 33. Á sama
tíma og laun íslenskra kennara
eru lægri en hjá kollegum erlend-
is benda tölur til þess að fjöldi
starfsmanna sé meiri í skólakerf-
inu hér á landi.
Forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar stendur í ströngu:
Tvö mál á einni viku
Tvö mál gegn Kára Stefánssyni, for-
stjóra Íslenskrar erfðagreiningar,
fara fram þessa dagana í réttarsal
Héraðsdóms Reykjavíkur. Annars
vegar fer fram aðalmeðferð í máli
gegn honum vegna rotþróar og hins
vegar var tekið fyrir mál á hendur
Kára vegna nýbyggingar hans við
Elliðaárvatn.
Kára var stefnt fyrir að greiða ekki
reikning lagnafyrirtækisins Hreinsi-
bíla ehf. sem sá um að hreinsa rot-
þró við sumarbústað forstjórans.
Reikningurinn er upp á 93 þúsund
krónur en í vikunni fer fram aðal-
meðferð í málinu.
Eiríkur Gunnsteinsson lögmað-
ur flytur málið fyrir Hreinsibíla og
sagði hann í samtali við DV fyrir
skemmstu að Kári fullyrði að hann
hafi greitt fyrir verkið nú þegar. „Af-
staða okkar er sú að ekki sé búið að
greiða fyrir þetta verk en þetta eru
ekki stórar tölur,“ sagði Eiríkur.
Fyrir helgi var síðan fyrirtaka
í máli byggingafélagsins Eyktar á
hendur Kára. Eykt krefur hann um
11 milljónir, auk vaxta, vegna við-
bótarkostnaðar vegna tafa við bygg-
ingu húss forstjórans við Elliðaár-
vatn. Eykt stefndi Kára fyrr á þessu
ári vegna verksamnings þeirra á
milli. Húseignin sem um ræðir er
ókláruð og stendur við Fagraþing
5, Kópavogsmegin við Elliðaárvatn.
Eykt hóf að byggja hið ókláraða hús,
sem samkvæmt fasteignaskrá verð-
ur um 550 fermetrar að stærð. Kári
og Eykt deila um greiðslur vegna
verksins.
Um tíma var Kári sektaður dag
hvern af hálfu Kópavogsbæjar þar
sem lóð hans í bænum hafi lengi
staðið ókláruð. Dagsektargreiðsl-
urnar voru komnar hátt í milljón
króna þar sem 20 þúsund krónur
bættust við daglega.
trausti@dv.is
Stendur í ströngu Kári þarf að verjast á
tveimur vígstöðvum þessa dagana.
Daníel Ernir Jóhannsson, litli sex
mánaða gamli drengurinn, sem
komst lífs af úr bílslysi í Tyrklandi á
miðvikudaginn, er í tímabundinni
umsjá móðurbróður síns, Gunnars
Tryggvasonar, og eiginkonu hans,
Úlfhildar Leifsdóttur.
Eins og komið hefur fram þá
létust foreldrar Daníels, Dagbjört
Tryggvadóttir og Jóhann Árnason,
í bílslysi, þegar bifreið þeirra lenti
framan á sendibíl sem var ekið úr
gagnstæðri átt. Daníel var fyrst um
sinn á sjúkrahúsi í bænum Mugla
en ræðismaður Íslands og kona
hans tóku við honum eftir það
meðan beðið var eftir aðstandend-
um.
Ljúfasta skylda
Nú er Daníel Ernir kominn heim til
Íslands eftir erfiða för aðstandenda til
Tyrklands og Gunnar segir í samtali
við DV að það sé honum hin ljúfasta
skylda að hugsa um litla drenginn.
Hann staðfestir að ekki ami nokkuð
að drengnum og að á honum sé ekki
að finna einustu skrámu. Hann sé
glaðvær og uni sér ágætlega. Gunnar
segist þakklátur því að vel hafi verið
hugsað um Daníel og að það sé allri
fjölskyldunni mikil huggun að hann
sé á lífi þótt harmur þeirra sé mikill.
Ábyrgir foreldrar
Daníel er kallaður „kraftaverkabarn-
ið“ í tyrkneskum fjölmiðlum sökum
þess að hann slapp án allra meiðsla.
Gunnar segir það foreldrum hans að
þakka.
„Bíllinn er tiltölulega illa farinn
og við fengum að vita að þau hafi far-
ið fljótt og þjáðst lítið. Daníel slapp
hins vegar við öll meiðsl og á honum
fannst ekki skráma. Hann á foreldr-
um sínum lífið að launa. Þau voru
afar ábyrgir foreldrar og tóku sér góð-
an tíma í að velja handa honum ör-
uggan bílstól áður en þau lögðu af
stað til Tyrklands og hann hefur
bjargað honum frá meiðslum.“
Þakka samhuginn
Hann segir enga ákvörðun hafa ver-
ið tekna um hver fari með umsjá
drengsins. Nú liggi fyrir að skipu-
leggja útför þeirra Dagbjartar og Jó-
hanns og óvíst hvenær hún verði. Það
þurfi að ganga frá ýmsum gögnum,
sækja muni þeirra og ganga frá flutn-
ingi þeirra til Íslands.
Gunnar segir alla fjölskylduna
finna fyrir því að hugur Íslendinga
sé hjá fjölskyldunni og það sé henni
mikils virði.
Dagbjört og Jóhann bjuggu í Hors-
ens í Danmörku þar sem þau voru við
nám. Þau voru á ferðalagi í Marmaris
á Tyrklandi þegar hið hörmulega slys
átti sér stað. Gunnar segir systur sína
hafa dvalið á Íslandi síðustu misseri
vegna krabbameinsmeðferðar. „Hún
hafði gengið í gegnum erfiða lyfja-
meðferð hér á Íslandi og hafði lokið
henni og var farin aftur til Danmerk-
ur. Hún var að stíga upp úr veikind-
um sínum. Til að ná frekari bata og
til að lyfta sér upp eftir erfiðleikana
ákváðu þau að fara í frí til Tyrklands.“
Hjónin Dagbjört Þóra Tryggvadóttir og Jóhann Árnason létust í bílslysi á miðvikudag í
Tyrklandi. Sonur þeirra, Daníel Ernir, sem slapp ómeiddur úr slysinu dvelur nú hjá móður-
bróður sínum, Gunnari Tryggvasyni. Gunnar segir foreldra Daníels hafa bjargað lífi hans
og að það sé honum ljúft að annast frænda sinn meðan annað hefur ekki verið ákveðið.
kriSTJana GuðbranDSDóTTir
blaðamaður skrifar: kristjana@dv.is
Þau björguðu
lífi ha s
Í faðmi ættingja Úlfh
ildur Leifsdóttir kona
Gunnars Tryggvasona
r með Daníel Ernir í
fanginu í Tyrklandi. M
ynD HurryET.coM
.Tr
Völdu vel Dagbjört og Jóhann
þóttu ábyrgir foreldrar og völdu
vandaðan bílstól fyrir Daníel.
Þau voru afar ábyrgir foreldr-ar og tóku sér góðan tíma í að
velja handa honum öruggan bílstól
áður en þau lögðu af stað til Tyrk-
lands og hann hefur bjargað honum.