Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 29
mánudagur 25. október 2010 sviðsljós 29 Fyrirsætuferillinn www.birkiaska.is Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap. www.birkiaska.is Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum, dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox). Birkilaufstöflur Vildu ekki Gibson M el Gibson mun ekki leika í gam-anmyndinni The Hangover 2 eins og til stóð. Ástæðan er sú að að- standendur myndarinnar voru ekki allir á eitt sáttir um aðkomu hans að myndinni. Gibson er væg- ast sagt umdeildur eftir að upp- tökur birtust þar sem hann hót- aði fyrrverandi kærustu sinni og barnsmóður öllu illu. Ekki bættu niðrandi ummæli hans um gyð- inga, blökkufólk og aðra minni- hlutahópa heldur úr skák. „Ég held að Mel hefði verið frá- bær í myndinni og ég hafði fullan stuðning Jeffs Robinovs, forstjóra Warner Brothers,“ sagði leikstjóri myndarinnar, Todd Phillips, fyr- ir helgi. „En ég áttaði mig á því að kvikmyndagerð er samvinna ótal margra einstaklinga og þessi ákvörðun hafði ekki fullan stuðn- ing allra sem að myndinni koma.“ Margir töldu að hlutverkið myndi gera góða hluti fyrir Mel til þess að bæta ímynd hans en fer- ill hans er í rúst eftir fjölmiðlafár síðustu mánaða. Ekki eru öll kurl komin til grafar í málum hans og Oksönu Grigorieva en líkur er á að hún verði kærð fyrir fjárkúgun. Vildu þeir ekki Gibson? Zach Galifianakis, Bradley Cooper og Ed Helms. bæ, bæ, Gibson! Ekki voru allir sáttir við þátttöku hans. Leikur ekki í The Hangover 2: Valdi sjóliðabúning Paris Hilton undirbýr sig fyrir hrekkjavökuna: sjóliði Paris var ekki feimin við að ganga um í undirfötunum. Mikið ÚrVAl Paris leitaði að hugmyndum á Twitter. P aris Hilton fór í undirfata-verslun að leita sér að bún-ingi fyrir hrekkjavökuna á dögunum. Eftir að hafa ósk- að eftir hugmyndum frá 2.900.000 áhangendum sínum á Twitter-sam- skiptasíðunni fór hún í verslun sem er frægust fyrir að vera í sérstöku uppá- haldi hjá stelpunum hans Hughs Hefners á Playboy-setrinu ásamt fleiri stór- og smástirnum í L.A. Eftir að hafa mátað nokkra búninga valdi Paris þessi efnislitlu sjóliðaföt fram yfir norna- og skrímslabúninga sem þykja hefðbundnari fyrir hrekkjavök- una. Hún sprangaði um verslunina ófeimin að vanda enda tók hún sig al- veg ágætlega út í fötunum. m yndir sem birtust af Glee-leikurunum Diönnu Agron, Leu Michele og Cory Monteith í tímarit- inu GQ fyrir helgi vöktu hörð viðbrögð. Fjölmargir hafa fordæmt þau þar sem leikararnir sitja fyrir á ögrandi myndum en í þáttunum leika þau unglinga í fram- haldsskóla. Dianna Agron hefur bloggað um málið en segist aðeins tala fyrir sjálfa sig. „Ég biðst afsökunar ef þú móðgaðist við að sjá þessar myndir. Það var aldrei ætlunin. Og ef átta ára barnið þitt er með eintak af GQ þá biðst ég aftur af- sökunar. En verð um leið að spyrja hvernig í ósköpunum það kosmt þangað.“ Agron segist ekki vera sérstaklega stolt af myndunum en að hún sé 24 ára gömul og þetta sé partur af þeim heimi sem hún starfar í sem leikkona. afsakar ögrandi myndir glee-stjarnan Dianna Agron: ÖGrAndi Dianna Agron í tímaritinu GQ.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.