Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 19
Kúvendingar til hins verra, hvort sem er hjá ein- staklingum, fyrir- tækjum eða þjóð- um, kalla einatt á breytingar. Og yf- irleitt sársauka- fullar. Þekkt neyð- arráð í slíkum hamförum er nið- urskurður. Skera af þá kvisti sem gætu misst sín. Og þá kemur í ljós mismunandi forgangs- röð í hugum fólks. En þeir sem eiga sín hreiður handan afklippunnar verjast gjarnan með oddi og egg, svokallaðir hagsmunahópar. Nýverið var forvígismaður sér- fræðilækna spurður hvert framlag stéttarinnar væri til endurreisnarinn- ar. Sú kvað lækna hafa hætt við fyr- irhugaða hækkun gjaldskrár. Tilefni spurningarinnar var umframkostn- aður ríkisins vegna sérfræðilækna sem nam 1,6 milljörðum á síðasta ári. Heildarframlög vegna þessarar þjón- ustu áttu að vera 4,3 milljarðar en urðu vegna ofannefndrar umframkeyrslu 5,9 milljarðar. Sem sagt 37% umfram plön. Þessi ofvöxtur og framúrkeyrsla á þjónustu sérfræðilækna er ekkert eins- dæmi, mörg umliðin ár hefur þetta viðgengist. Við hvað er hann hræddur? Á meðan ráðamenn standa ráðþrota gagnvart sérfræðilæknum skera þeir niður bráðaþjónustu á landsbyggðinni og skerða starfsgetu sjálfs háskóla- sjúkrahússins. Fyrrverandi heilbrigð- isráðherra sagðist reyndar hafa farið bónarför til sérfræðilækna í því skyni að lækka gjaldskrá en það verið erind- isleysu. Við hvað er ráðherra hrædd- ur? Fýlu eða fjöldauppsagnir? Ekki veit ég en jafnvel læknar hljóta að sjá launaviðmið sín úrelt. Þjóð á hausnum getur ekki haldið úti dekri við eina stétt þó mikilvæg sé, annaðhvort er að taka þátt eða koma sér úr landi. Í dag geta allir sérfræðilæknar sem þess óska farið á samning við trygg- ingastofnun. Sjálfdæmi hafa þeir um eigin verk og stjórna sjúklingaflæð- inu að miklu leyti sjálfir. Enn fremur er fólki frjálst að leita til sérfræðinga án atbeina heimilislæknis. Eflaust eru allir þessir þættir samverkandi hvað varðar áðurnefnda framúrkeyrslu á fjárlögum. En fyrir þann sem hefur það hlutverk að gæta almannaheilla, ekki síst í harðæri, er nauðsynlegt að for- gangsraða fyrir fólkið og hætta með- virkni með hagsmunaaðilum. Þjóð- in hefur í mörg ár þurft að horfa upp á yfirgang slíkra aðila í sjávarútvegi og nú virðist það sama uppi á teningnum í heilbrigðisgeiranum. Greiðsluþak á hvern lækni Stjórnvöldum ber skylda til að lækka gjaldskrá sérfræðinga. Ekki gengur að læknar ákveði sjálfir kaupþörf rík- isins á þjónustu sinni, slíkt getur vart flokkast undir annað en sjálftöku. Stjórnvöld eiga enn fremur að setja greiðsluþak á hvern lækni. Fari ein- hver fram úr þeim ramma yrði inn- heimtan á ábyrgð læknisins sjálfs. Og stjórnvöld eiga að koma á fót tilvísun- arkerfi sem tryggir vandamálum sinn rétta sess innan heilbrigðiskerfisins, þannig að dýrari leiðir séu ekki farn- ar þegar ódýrari bjóðast. Sjúklingum ætti ekki að leyfast sjálfdæmi í þess- um efnum nema bera þann kostnað sjálfir. Svo þarf að hækka komugjöld, ég held að fólki þyki það illskárri kost- ur en að missa þjónustuna frá sér. Með ofangreindu yrði miklu til leið- ar komið, bæði fyrir landsbyggðina og háskólasjúkrahúsið. Fólk á lands- byggðinni gæti þá gengið áfram að grunn- og neyðarþjónustu vísri ásamt því að eiga griðastað á spítala allra landsmanna fyrir flóknari vandamál. En við sérfræðilækna vil ég segja þetta: Gangið nú með þjóðinni eins og hún hefur gengið með ykkur. Við erum stödd á slysstað og þar ganga menn til verka án þess að hugsa hvað komi fyrir. Ekki síst læknar, einn, einn, tveir. RaGnheiðuR haRaldsdóttiR er forstjóri Krabbameinsfélagsins sem stóð fyrir Bleiku slaufunni, átaki gegn brjóstakrabbameini. Hún reynir að láta gott af sér leiða og segir mikilvægt að konur séu meðvitaðar um brjósta- krabbamein. Dáist að glað- lynDi mömmu 1 Fundu aFlimað lík albínóa Aflimað lík níu ára drengs fannst við landamæri Tansaníu og Búrúndí fyrir skemmstu. 2 StoFnandi WikileakS gekk út í viðtali Julian Assange gekk út í miðju viðtali við CNN eftir að fréttamaður spurði hann út í meinta nauðgun sem hann er ákærður fyrir. 3 liStaverk úr riStuðu brauði Ung bresk kona bjó til listaverk með andlitsmynd af tengdamóður sinni úr 9.852 ristuðum brauðsneiðum. 4 „Heiðar er gambler“ Heiðari Má Guðjónssyni er lýst sem hrokafullum „gambler“ í nærmynd í helgarblaði DV. 5 Celine dion eignaðiSt tvíbura Söngkonan góðkunna Celine Dion eignaðist tvíbura á laugardaginn. Börnin á hún með söngvaranum René Angélil 6 lögreglan burt aF HáSkóla-lóðum Egypskur dómstóll úrskurð- aði fyrir helgi að lögreglusveitir skuli fluttar af lóðum háskóla þar í landi. 7 FranSkur prinS vill lögbann á liStaSýningu Afkomandi Loðvíks XIV hefur sóst eftir lögbanni á sýningu japansks listamanns í Versalahöllinni í Frakklandi. mest lesið á dv.is myndin hver er konan? „Ragnheiður Haralds- dóttir, hjúkrunarfræðingur, forstjóri Krabbameinsfélags Íslands , mamma og amma.“ hvað drífur þig áfram? „Að kljást við áhugaverð verkefni, láta til mín taka og reyna að láta gott af mér leiða.“ hvar ertu uppalin? „Við Ægisíðuna í vesturbæ Reykjavíkur.“ Áttu þér einhverja fyrirmynd? „Ekki neina eina, en ég dáist að sterkum eiginleikum í fari fjölda fólks. Glaðlyndi mömmu, þrautseigju pabba, dugnaði eiginmannsins, kjarki Vigdísar Finnboga, húmor Siggu, hugmyndaauðgi Tótu Siggu, hugsjónamennsku Vilborgar o.s.frv., o.s.frv.“ uppáhaldsbókin þín? „Í augnablikinu er það Gerpla, en ég er að lesa hana vel áður en ég fer á sýninguna. Þvílík skemmtun!“ hver eru þín helstu áhugamál? „Ég hef áhuga á allri hönnun, en lestur góðra bóka er ævilöng ástríða hjá mér.“ hvað táknar Bleika slaufan? „Hún táknar baráttuna gegn krabbameini hjá konum, með áherslu á brjóstakrabba- mein því það er algengast.“ hver er tilgangurinn með bleiku slaufunni? „Að vekja athygli á baráttunni gegn brjóstakrabba og að bæta möguleika okkar á að ná enn betri árangri.“ eru íslenskar konur meðvitaðar um brjóstakrabbamein? „Já, en sennilega ekki nægilega vel. Það er mikið í húfi.“ eru konur duglegri við notfæra sér leitarstöðina núna en áður? „Konur mættu gjarnan færa sér betur í nyt boð okkar um að mæta í Leitarstöðina.“ hvað er mikilvægast í lífinu? „Heilsan og góð samskipti við þá sem manni þykir vænt um.“ maður dagsins „Ég er aðeins byrjuð að spá í jólagjafir og þá að byrja fyrr en seinna að kaupa inn.“ MaRta MaRía sVeinsdóttiR 30 áRA NEMI „Hugur minn þessa dagana er allur bundinn við jólabæinn á Hljómalindar- reit sem á að opna 9. desember.“ JakoB FRíMann MaGnússon 57 áRA MIðBoRGARSTJóRI „Nei, alls ekki.“ hallGRíMuR eyMundsson 32 áRA TöLVUNARFRÆðINGUR „Nei, alls ekki.“ aldís BJöRG siGuRðaRdóttiR 37 áRA MARGMIðLUNARFRÆðINGUR „Nei, jól eru fyrir aumingja.“ ÁstRíðuR halldóRsdóttiR 30 áRA NEMI ertu Farin/n að Huga að jólum? dómstóll götunnar mánudagur 25. október 2010 umræða 19 Einn, einn, tveir lýður árnason kvikmyndagerðarmaður skrifar Stjórnvöldum ber skylda til að lækka gjaldskrá sér- fræðinga. kjallari Blindflug Mávarnir við Austurbakkann þurfa ekki að sjá vitann á gamla sjómannaskólanum til þess að geta flogið í vetrarmyrkrinu. Þeim nægir skíman úr rennu skuttogarans sem bundinn er við bryggju. Mynd siGtRyGGuR aRi Jóhannsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.