Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 9
mánudagur 25. október 2010 fréttir 9 Safnstjóri Listasafns Árnesinga í Hveragerði, Inga Jónsdóttir, rit- skoðaði sýninguna Koddu sem nokkrir af þekktustu myndlistar- mönnum þjóðarinnar höfðu út- búið og opna átti í safninu þann 4. nóvember og rifti samningn- um við sýningarstjórana. Sýningin átti öðrum þræði að fjalla um ís- lenska efnahagshrunið á gagnrýn- in hátt og átti Bjarni Ármannsson að prýða boðskortið á sýninguna. Meðal þessara listamanna eru Ól- afur Elíasson, Hannes Lárusson, Ragnar Kjartansson og Ásmundur Ásmundsson. Sýningarstjórarnir, þau Hannes, Ásmundur og Tinna Grétarsdótt- ir mannfræðingur, hafa sent stjórn Sambands íslenskra listamanna og Bandalags íslenskra listamanna er- indi um málið og beðið um ályktun vegna málsins. Í bréfinu segir með- al annars: „Við óskum eftir hér með að stjórn SÍM álykti um málið tafar- laust enda um að ræða alvarlegt og einstakt mál sem varðar starfsvett- vang og starfsheiður listamanna. Jafnframt óskum við eftir að lög- fræðingi sambandsins verði falið að innheimta laun sýningartjóra/ listamanna/hönnuða/fræðimanna ásamt áfallins kostnaðar vegna vinnu við verkefnið. Jafnframt ósk- um við eftir því að lögfræðingur sambandsins kanni bótaskyldu í þessu máli varðandi álitshnekki, samningsrofs og hugsanlega brot á höfundarétti.“  Hannes segir aðspurður að inn- tak sýningarinnar hafi verið þjóð- leg listsköpun og þjóðarímynd- ir. „Í stuttu máli þá fjallar sýningin um samband hugmyndafræði og myndmáls, bæði með vísunum í eldri ímyndir og yngri. Þetta er ekki síst greining á samtímanum. Við erum öðrum þræði að greina hrun- ið þarna og þá hugmyndafræði sem leiddi til hrunsins,“ segir Hannes en meðal þess sem listamennirnir leika sér með á sýningunni er fræg ljósmynd af helstu stjórnendum Baugs og Landsbankans á skíða- svæðinu Courchevel í Frakklandi árið 2007. „Eðlislæg íhaldssemi“  Í bréfi sem Inga sendi sýningarstjór- unum þar sem hún greindi þeim frá ástæðunum fyrir því að samn- ingnum um sýninguna var rift seg- ir hún meðal annars að það sé í eðli safna að vera íhaldssöm. „Starfsemi safna er samfella byggð á hefðum og þar gætir eðlislægrar íhaldssemi – því söfn sem stofnanir standa fyr- ir ákveðna ímynd sem þeim ber að verja.“  Ljóst er að sýningin og inntak hennar hefur komið við kauninn á Ingu og hún hefur verið ósátt við hana – margir af þeim listamönnum sem koma að sýningunni eru þekkt- ir fyrir mjög gagnrýna og ögrandi listsköpun og má ætla að verk þeirra á sýningunni hafi verið nokkuð ágeng. Inga sagði einnig í bréfinu: „Þegar skoðun sýningarstjóra og safnstjóra fer saman þá er það hið besta mál – en ef það er ágreining- ur þá segir mín siðferðisvitund að safnstjórinn verði að ráða þar sem hann er með lögbundnar skyldur gagnvart safninu.“ Auk þess benti Inga á að sýningarskráin hefði ver- ið ómálefnaleg og að slík skrá væri hluti af ímynd safnsins út á við. Í bréfinu til Sambands íslenskra listamanna túlka sýningarstjór- arnir uppsögnina á samningnum á þann veg að Inga hafi verið ósátt við að þau hafi ekki verið reiðubúin að beygja sig undir afskipti hennar af sýningunni. Þar segir meðal ann- ars: „Ástæða safnstjóra fyrir riftun samnings byggist á þeim grundvelli að sýningarstjórar voru ekki tilbún- ir til að beygja sig undir íhlutun og afskipti hans af undirbúningsferli og framsetningu sýningarinnar þar sem m.a. er farið fram á að verk verði fjarlægð, texta breytt og um- gjörð sýningarinnar skrumskæld. Við óskum eftir hér með að stjórn SÍM álykti um málið tafarlaust enda um að ræða alvarlegt og einstakt mál sem varðar starfsvettvang og starfsheiður listamanna.“ Sorglegt segir Hannes Hannes segir að hann telji að ástæð- urnar fyrir því að þeim var úthýst úr safninu séu meðal annars þær að sýningin hafi þótt óþægileg. „Þeg- ar um ritskoðun er að ræða þá held ég að það sé af tvennum toga. Ann- ars vegar stafar hræðslan af því að verið er að greina eða afhjúpa eitt- hvað í samtímanum sem menn vilja einfaldlega ekki sjá eða vita af. Hins vegar er það ef þessi greining er sett fram með róttækum hætti, hvern- ig listin er unnin og ef í þessu felst gagnrýnin afstaða til listarinnar sem slíkrar. Það er því að ég held bæði verið að hafna því sem sýningin á að sýna og greina og eins vinnubrögð- unum,“ segir Hannes. Hannes segir að í stuttu máli finnist honum það sorglegt og skað- legt fyrir samfélagið að slík listasýn- ing sé ritskoðuð. „Það er sorglegt ef skrifræðið og kerfið ná að kúga lista- menn með þessum hætti og beygja þá undir eitthvert ímyndað vald. Ég held að þessi sýning varpi svolítið ljósi á alvarleika ástandsins hér á landi.“ Hannes segir að sýningarstjórn- arnir leiti nú að öðrum sal en Lista- safni Árnesinga til að hýsa sýning- una Koddu. ingi f. vilHjálmSSon fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is SÝNING UM HRUNIÐ RITSKOÐUÐ Það er sorglegt ef skrifræðið og kerfið ná að kúga listamenn með þessum hætti og beygja þá undir eitthvert ímyndað vald. Safnstjóri Listasafns Árnesinga ritskoð- aði sýningu um hrunið og þjóðarímyndir Íslendinga. Baugur og Bjarni ármanns- son voru meðal þeirra sem fjalla átti um á sýningunni. Sýningin kom við kauninn á safnstjóranum sem sagði að ef ágrein- ingur kæmi upp ætti siðferðisvitund hennar að ráða. Sýningarstjórarnir telja að sér vegið og hafa kvartað til Sam- bands íslenskra myndlistarmanna. Ósátt við ritskoðun  HannesLárusson, TinnaGrétarsdóttirog ÁsmundurÁsmunds- soneruósátteftirað safnstjóriListasafns Árnesingaritskoðaði sýninguþeirra semöðrumþræði fjallaðiumíslenska efnahagshrunið. mynd Sigtryggur ari forkólfar Baugs og landsbankans Einnafhlutunumásýningunniáttimeðal annarsaðverafrægmyndafhelstuforkólfumBaugsogLandsbankanssemtekin varíCourchevelíFrakklandi „ÁþessumárumþóttustÍslendingar farasigurförumheiminnáflestum sviðum,sigrarsemaðmestuleyti voruínösunumáþeimsjálfumog byggðustaðþvíervirtist,einsog flestirsigrarÍslendinga,átiltölu- legagræskulausrihvítrilygisem sneristreyndaraðþessusinniuppí ofstopafullasvartalygisemlagðist yfirsamfélagiðeinsoghlaupkennd maraogfylltiöllvitþjóðarinnareins ogdaunilltútfrymi.“ Úr sýningar- skránni:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.