Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 17
mánudagur 25. október 2010 erlent 17 Barack Obama, forseti Bandaríkj- anna, hyggst nú snúa vörn í sókn í kosningabaráttu Demókrataflokks- ins vegna komandi kosninga til full- trúadeildar Bandaríkjaþings. Ætlar hann að leggja áherslu á að ná eyrum bandarísku kvenþjóðarinnar, en það voru einmitt atkvæði kvenna sem vógu hvað þyngst í að koma Obama í Hvíta húsið í forsetakosningunum fyrir tveimur árum. Skoðanakann- anir hafa leitt í ljós að æ fleiri konur styðja nú Repúblikanaflokkinn, en til þessa hafa þær í miklum meiri- hluta kosið demókrata. Talið er að slæmu efnahagsástandi og miklu at- vinnuleysi sé um að kenna en rep- úblikanar tefla fram nokkrum áber- andi konum í kosningunum, meðal annars hinum íhaldssömu Sharron Angle og Christine O’Donnell – sem vilja báðar láta kenna sig við Teboðs- hreyfinguna. Obama lagði því land undir fót í síðustu viku og hélt baráttufundi með kvenframbjóðendum demó- krata. Treysta demókratar því að óumdeildir persónutöfrar forset- ans muni hjálpa til við að hífa fylgi flokksins upp á við. Hann tók til máls í bakgarði fjölskyldu einnar í Seattle og sagði að konur væru nú ábyrgar fyrir meira en helmingi tekna mið- stéttarfjölskyldna í Bandaríkjunum: „Velgengni kvenna mun vera veiga- mikil þegar við metum lífsgæði á heimilum yfir höfuð.“ Hvíta húsið sendi einnig frá sér skýrslu sem greindi frá þeim jákvæðu áhrifum sem stefnumál Obama hafa haft á hag kvenna. Þar er sérstaklega átt við heilbrigðisfrumvarpið um- deilda, sem léttir undir hjá mæðr- um – sérstaklega þeim sem eru ein- stæðar. Í skýrslunni kom einnig fram að áhrif efnahagskreppunnar hefðu komið mikið niður á konum, vegna vaxandi hluts þeirra á atvinnumark- aði. bjorn@dv.is Kvenkyns kjósendur yfirgefa Demókrataflokkinn í auknum mæli: Vill ná til kvenna stuðningi við stríðið í Írak. Segir hann ráðuneytið reiðubúið að láta af hendi til Alþingis allar upplýsingar um mál- ið sem til eru, verði um það beðið. Birgitta Jónsdóttir, þingmað- ur Hreyfingarinnar, situr í utanrík- ismálanefnd og er í Íslandsdeild NATO-þingsins. Hún hefur einnig unnið með Wikileaks, meðal annars við birtingu gagna um stríðið í Afgan- istan. Tekur hún undir með Össuri og segir sorglegast að sjá hve mikið af óbreyttum borgurum hefur látið lífið, án þess að dauðsföllin hafi verið svo mikið sem skráð þrátt fyrir vitneskju bandarískra stjórnvalda. „Mér finnst sjálfsagt að yfirvöld þeirra landa sem standa að þessu stríði biðji íröksku þjóðina opinberlega afsökunar. Það á líka við um löndin sem eru á lista hinna viljugu þjóða, meðal annars Ís- land. Þau ættu að senda frá sér sam- eiginlega yfirlýsingu þar sem beðist er afsökunar.“ Birgitta ætlar að fjalla um málið á fundi utanríkismálanefndar og segist enn fremur ætla að berjast fyrir því að um málið verði fjallað á þingmannafundi NATO sem fer fram í nóvember. „Íslensk stjórnvöld eiga að fordæma þessa leynd sem hefur hvílt yfir tölum um raunverulegt mannfall og við eigum hiklaust að krefjast þess að óháð rannsókn fari fram á pynting- um og mannfalli óbreyttra borgara.“ PYNTINGAR OG MORÐ Á SAKLAUSU FÓLKI Ritstjórinn Julian Assange er aðalritstjóri Wikileaks. Flýja sprengjur frá seinni heimsstyrjöld Franska borgin Rennes á Breta- gne-skaga var ekki svipur hjá sjón um helgina. Þurftu um 10 þúsund íbúar hennar að yfirgefa borgina, þegar sprengjur úr síðari heimsstyrj- öldinni fundust í fjölda bygginga í gamla miðbænum. Var borginni lok- að fyrir gestum á meðan sprengju- sérfræðingar unnu dag og nótt við að gera sprengjurnar óvirkar. Maur- ice Leclerc er 81 árs gamall íbúi í Rennes: „Ég man eftir sprengjuárás- unum 1944 þegar hundruð borgar- búa létu lífið. Sú staðreynd að sömu sprengjurnar eru að angra okkur enn þann dag í dag er stórmerkilegt.“ Meistari í síðdegisblundi Heldur óvenjuleg keppni fór fram í Madríd um helgina þegar Pedrio Soria Lopez var krýndur heims- meistari í síestu, eða síðdegis- blundi. Keppendur voru um 300 talsins og fengu þeir afnot af sófa í verslunarmiðstöð í miðborg Madrídar. Fengu þeir svo 20 mín- útur til að sofa eins mikið og hægt var. Lopez tókst að sofa í 17 mín- útur af 20 en það voru þó hrotur hans sem fleyttu honum í efsta sæti keppninnar, en þær mældust um 70 desibil. Soria tryggði sér 1.000 evrur í verðlaunafé. Fjöldamorð í partíi Vopnaðir menn réðust inn í sam- kvæmi í borginni Ciudad Juarez í Mexíkó á föstudag. Þeir tóku að skjóta á veislugesti sem var ungt fólk á aldrinum 16–25 ára. Alls létust 13 manns í árásinni en 15 eru alvar- lega særðir. Ciudad Juarez komst í umræðuna á Íslandi á dögunum, en hún er sögusvið nýjustu kvikmyndar Baltasars Kormáks, Inhale. Er borg- in nú talin ein hættulegasta borg í heimi, en þar geisar blóðugt eitur- lyfjastríð. Borgin er rétt við landa- mærin að Bandaríkjunum og er því yfirleitt síðasti áfangastaður smygl- ara, áður en þeir freista gæfunnar við landamærin. Úti í garði. Obama ávarpaði fámennan hóp í bakgarði í Seattle. Franski ilmvatnsfrömuðurinn Jean- Paul Guerlain sagðist hafa unnið eins og „niggari“ að því að finna nýjan ilm, sem kom nýlega í verslanir. Lét hann þessi orð falla í beinni útsendingu í spjallþætti í frönsku sjónvarpi. Hafa samtök sem berjast gegn kynþáttafor- dómum í Frakklandi staðfest að þau muni fara í mál við Guerlain vegna ummælana, sem vakið hafa hörð við- brögð. Guerlain er eitt elsta ilmvatns- gerðarfyrirtæki í heimi, en því var stjórnað af Guerlain-fjölskyldunni frá stofnun þess árið 1828 eða allt þar til 1994, þegar Luis Vuitton-Moët Henn- essy samsteypan eignaðist meiri- hluta í fyrirtækinu. Jean-Paul Guer- lain hafði haldið um stjórnartaumana fram að því en hann starfar enn þann dag í dag sem sérstakur ráðgjafi æðsta ilmvatnsgerðarmeistara fyrirtækis- ins. Þáttastjórnandi á TF1, ríkissjón- varpsstöð Frakka, spurði Guerlain um vinnuferlið við nýja ilmvatnið, og svarið var: „Ég vann eins og niggari. Ég veit nú ekki hvort niggarar hafa alltaf unnið svona mikið, en í öllu falli...“ Kynþáttahatur í Frakklandi Patrick Lozés situr í fulltrúaráði Sam- taka þeldökkra í Frakklandi. Hann segir að sú staðreynd að Guerlain hafi leyft sér að mæla þessi orð sýni fram á djúpt undirliggjandi kynþáttahat- ur í Frakklandi. Hefur hann fordæmt ekki aðeins Guerlain, heldur einnig Luis Vuitton-Moët Hennessy-sam- steypuna og hefur hann hvatt almenn- ing í Frakklandi til að sniðganga vörur frá þeim. Litlu virðist skipta að Gu- erlain sjálfur hefur beðist afsökunar á hneykslandi orðum sínum og ætlar sér að taka fulla ábyrgð á þeim. Aðal- skrifstofa Guerlain hefur gefið út yfir- lýsingu þar sem fullyrt er að fyrirtæk- ið fordæmi kynþáttafordóma í hvaða mynd sem þeir birtast. Almenningur tekur lítið mark á afsökunarbeiðnun- um ef marka má atburði síðasta laug- ardags en þá söfnuðust saman hundr- uð mótmælenda fyrir utan verlsun Guerlain við Champs Élysées-breið- götuna í París. Báru margir hverjir skilti með orðunum „Ég vil ekki held- ur vinna eins og niggari.“ Mikill órói á götum úti Segja má að ummæli Guerlains hafi komið á besta tíma fyrir Nicolas Sar- kozy forseta Frakklands sem stendur í ströngu þessa dagana. Dregur mál- ið ögn úr athygli á hinu umdeilda eft- irlaunafrumvarpi sem franska þing- ið staðfesti á föstudaginn. Enn eru starfsmenn olíuhreinsistöðva í verk- falli og talið er að fjórðungur bensín- stöðva í Frakklandi séu þurrar. Aðrar þurfa að skammta eldsneyti. Loksins hafa stjórnmálamenn fengið tækifæri til að tjá sig um eitthvað annað en eft- irlaunafrumvarpið, en fjármálaráð- herra Frakklands, Christine Lagarde, sagði um orð Guerlains að þau væru „brjóstumkennanleg.“ Jean-Paul Guerlain vakti hörð viðbrögð vegna kynþáttafordóma sem hann sýndi í sjónvarpsviðtali. „Ég vann eins og niggari“ Ég veit nú ekki hvort niggarar hafa alltaf unnið svona mikið. bJöRn teitsson blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is ilmvatnsgerð Jean-Paul Guerlain þykir mikill ilmgerð- armeistari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.