Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Blaðsíða 11
mánudagur 25. október 2010 fréttir 11
Novator og hafi lagt fram ýmsar hug-
myndir – minnisblaðið hafi verið ein
af þeim. „Hann sýndi alltaf frum-
kvæði og lagði fram ýmsar áhuga-
verðar hugmyndir. Sumum var hrint
í framkvæmd og öðrum ekki. Heim-
ildarmaður DV að þessu sinni, fyrr-
verandi bankaráðsmaður í Lands-
bankanum, getur upplýst DV um að
þessi tilvitnaða áætlun var ekki fram-
kvæmd,“ segir Ragnhildur.
Aðgerðaáætlun um skortsölu
Þrátt fyrir að Heiðar Már segi að
minnisblaðið hafi einungis verið
brunaáætlun og að aldrei hafi staðið
til að nota þær hugmyndir sem þar
koma fram fylgdi sérstök aðgerða-
áætlun um skortsöluna á krónunni,
hlutabréfum og skuldabréfum minn-
isblaðinu sem hann kynnti fyrir Björ-
gólfi Thor.
Í aðgerðaáætluninni segir meðal
annars um skortstöðu á hlutabréfum
tengdum Baugi: „Loka áhættu strax.
Síðan byggja upp skortstöður í þeim
sem helst yrðu fyrir barðinu ástand-
inu. Það eru bankar og fyrirtæki með
umsvifamikinn fjármálarekstur. Eins
fyrirtæki sem eru skuldsett og tengj-
ast Baugi.“
Skortsala á hlutabréfum gengur í
einföldu máli út á að kaupa hlutabréf
sem talið er að muni lækka í verði og
selja þau svo aftur eftir að þau hafa
lækkað í verði og græða á því. Þetta
er stundum gert þannig að bréfin
eru fengin að láni og svo seld á með-
an gengið er hátt. Eftir verðfall þeirra
eru bréfin svo keypt aftur á lægra
verði og þeim skilað til þess sem lán-
aði þau. Mismunurinn á verði bréf-
anna verður svo eftir í vasa þess sem
veðjaði á lækkunina. Áætlun Heiðars
var að skortselja hlutabréf í Baugs-
fyrirtækjunum FL Group, Dagsbrún
og Mosaic auk bréfa í Kaupþingi og
Íslandsbanka fyrir samtals um 30
milljarða króna og græða á lækkun
bréfanna. Um þetta segir Heiðar Már
í minnisblaðinu: „20 milljarða skor-
staða í hlutabréfum sem við búumst
við 30% hagnaði af eða 6 milljörðum.“
Einnig mælti Heiðar Már með
skortsölu á skuldabréfum hinna
bankanna tveggja, Kaupþingi og Ís-
landsbanka, sem og á skuldabréfum
Baugstengdra fyrirtækja. „Skortselja
skuldabréf, alþjóðlega, sem tengjast
KB, ISB, Baugi og FL. Búast við 1–2
milljarða hagnaði af því.“
Mesta tækifærið í krónunni
Heiðar Már taldi hins vegar að mesta
hagnaðartækifærið lægi í íslensku
krónunni. Í minnisblaðinu talar hann
almennt um skortstöðuna og segir: „Í
heildina væri í mesta lagi um ríflega
30 milljarða hagnað af skortstöðum
að ræða. Þetta væri hreinn hagnaður,
óháður áhættustýringarsjónarmið-
um. Langmest hagnaðartækifæri er í
íslensku krónunni.“ Athygli vekur að
Heiðar Már virðist hafa hugsað um
skortstöðurnar sem sóknartækifæri
en ekki eingöngu sem varnaðarað-
gerð til að bregðast við óhjákvæmi-
legri lækkun krónunnar.
Fjármálafyrirtæki nota gjarnan
afleiðusamninga í gjaldeyrisvörn-
um þar sem þau taka stöðu með eða
á móti gjaldmiðlum eftir því hvort
þau telja að gengi þeirra muni hækka
eða lækka. Þetta gera þau til að verja
sig gegn miklum gengisbreytingum.
Ráðagerð Heiðars gekk því ekki ein-
göngu út á að verja fyrirtæki Björgólfs
Thors gegn lækkun krónunnar heldur
einnig að græða á henni. Því var ekki
eingöngu um hefðbundnar varnir að
ræða.
Í minnisblaðinu rakti Heiðar Már
svo hvernig Landsbankinn, Samson
og Straumur áttu að geta grætt 20
milljarða króna á skortsölu á íslensku
krónunni, eða í heildina um 66 pró-
sent af heildarhagnaðinum af skort-
sölunum. „Straumur, Landsbanki og
Samson skortselja ISK, hver fyrir sig
sem samsvarar 30 til 50 milljörðum
eftir því á hvaða verðum við fáum það
gert. Búast við 20 % hagnaði af 100
milljarða stöðu, eða 20 milljörðum.“
Í lok minnisblaðsins var að finna
tímaáætlun þar sem sagt var hvenær
ætti að framkvæma tiltekna gerninga
í þessari skortstöðuáætlun. Þar seg-
ir meðal annars, og er vísað til fyrstu
vikunnar í febrúar árið 2006. „Fyrsta
vika febrúar: Landsbanki og Straum-
ur eyða einnig viðskiptamannna-
áhættu með því að skortselja hluta-
bréf, skuldabréf og íslensku krónuna,
þar sem við á.“
Líkt og áður hefur komið fram
segja Ragnhildur og Heiðar Már að
þessari áætlun hafi ekki verið kom-
ið í framkvæmd að neinu leyti. Heið-
ar segir að þetta hafi verið miður.
„Því miður skyldi Landsbankinn ekki
áhættuna eftir að hafa fengið þetta
minnisblað. Það voru engin viðskipti
í framhaldinu, hvorki hjá mér, þeim
eða neinum sem ég þekkti, enda stóð
það aldrei til. Ég og Novator tókum
aldrei skortstöðu í krónunni og töp-
uðum á falli krónunnar.“
Sver af sér tengslin við Drobny
Athygli vekur að einungis um mánuði
eftir að minnisblaðið með tillögum
Heiðars var kynnt sendi James Leitn-
er, bandarískur vogunarsjóðsmaður
og vinur Heiðars Más, út tölvupóst
til meðlima Drobny-samtakanna þar
sem hann mælti með stöðutöku gegn
íslensku krónunni.
Aðspurður hvort hann hafi vit-
að af því að þessi árás væri á næsta
leyti í janúar 2006 segir Heiðar Már
að svo sé ekki: „Ég hafði ekki að-
gang að Drobny og veit ekki hvað
þeir voru að sýsla. Ég réð engu og
vissi ekki um neinar fyrirætlanir
Drobny.“ Um Leitner sagði Heiðar
Már í DV í síðustu viku: „Jim Leitn-
er hefur verið vinur fjölskyldunnar
í langan tíma.“ Ljóst er því að hann
og Heiðar Már þekkjast ágætlega og
sagði Ragnhildur Sverrisdóttir einn-
ig að Heiðar Már hefði kynnt
Björgólf Thor fyrir Leitner
en sá síðastnefndi fjárfesti
í Straumi í kjölfarið og
settist í stjórn bankans.
Heiðar Már sagði
líka í DV í síðustu viku,
aðspurður af hverju
hann hefði fund-
að með tveimur
stærstu vogun-
arsjóðsmönn-
um Banda-
ríkjanna,
George Sor-
os og Bruce
Kovner, í jan-
úar 2007 að
hann hefði
gert það til
að skiptast
á skoðunum
við þá um
viðskipti. „Og
hvatinn að fundum mínum með stór-
um fjárfestum er einfaldur. Þeir hafa
áhuga á mínum skoðunum, eins og
ég hef áhuga á þeirra.“ Helsta túlkun
Heiðars á fundinum með Soros og
Kovner var að það freistaði þeirra að
ráðast á íslensku krónuna með stöðu-
töku.
Ef Heiðar Már er að segja satt varð-
andi þá vitneskju sem hann hafði um
heilræði Leitners um íslensku krón-
una felst í því að Leitner hefur ekki
rætt við hann um stöðutökuna eða
leitað ráða hjá honum áður en hann
mælti með henni. Samt má telja full-
víst að Leitner hafi leitað til íslenskra
aðila um stöðu-
töku gegn krón-
unni áður en
hann mælti með
henni.
Líklega
kynnt fyrir
Björgólfi Thor
Þau svör Heiðars
Más og Ragn-
hildar að
minnis-
blaðið hafi verið kynnt fyrir stjórn
Landsbankans er hæpin. Eins og
áður segir herma heimildir DV
að Heiðar Már hafi kynnt minnis-
blaðið fyrir Björgólfi Thor og helstu
starfsmönnum Novators í Lond-
on í ársbyrjun 2007. Sú staðhæfing
að minnisblaðið hafi aðeins ver-
ið kynnt fyrir stjórn Landsbank-
ans gengur meðal annars ekki upp
af þeim sökum að hugmyndirnar
náðu einnig til Samsonar, Straums
og Actavis. Stjórn Landsbankans,
sem Björgólfur Guðmundsson fór
fyrir, stýrði vitanlega ekki þess-
um þremur félögum heldur aðeins
Landsbankanum. Stjórn Lands-
bankans kom því ekkert við hvað
Björgólfur Thor ætlaðist fyrir varð-
andi rekstur þessara þriggja félaga.
Það eina sem tengir öll þau fyrir-
tæki sem um ræðir saman var það
að Björgólfur var stærsti hluthafinn
í þeim öllum og ráðandi aðili. Auk
þess er afar hæpið að svo eldfim-
ar tillögur hefðu verið kynntar fyr-
ir stjórn Landsbankans sem í sátu
utanaðkomandi aðilar, meðal ann-
ars Kjartan Gunnarsson, einn nán-
asti vinur og samverkamaður Dav-
íðs Oddssonar seðlabankastjóra.
Ólíklegt er að Kjartan hefði verið
hlynntur slíkri stöðutöku og hvað
þá Davíð.
Langlíklegast er að skjalið hafi
verið unnið af Heiðari Má sem
starfsmanni Novators fyrir eig-
anda Novators, Björgólf Thor, og
þeirra fyrirtækja sem minnst er
á í skjalinu. Enn liggur þó ekki
fyrir hvort og þá hversu mikið af
þeim tillögum sem rætt var um í
því var hrundið í framkvæmd en
ljóst er að ef átt hefði að gera það
hefði sú ráðagerð ekki farið mjög
hátt og alls ekki fyrir stjórn Lands-
bankans. Skipanir um stöðutök-
urnar hefðu líklega borist beint til
stjórnenda fyrirtækjanna, Lands-
bankans, Straums og Samsonar.
MÆLTI MEÐ 100 MILLJARÐA
SKORTSÖLU Á KRÓNUNNI
„Ísland var hágengisland fram að hruni. Gengi
krónunnar var langtímum saman haldið of
háu, ýmist með handafli eða með öðrum
ráðum. Þetta var gert til að halda aftur af
verðhækkun innfluttrar vöru og þjónustu.
Afleiðingin var mikill innflutningur, af því að
hann var ódýr, og lítill útflutningur, af því að
hann gaf of fáar krónur í aðra hönd fyrir hvern
dollara og hverja evru, sem fékkst fyrir útflutn-
ingsafurðir. Mikill innflutningur og lítill útflutn-
ingur mynduðu halla á viðskiptum við útlönd
og tilheyrandi skuldasöfnun erlendis. Þetta er
kunnuglegt munstur víða í Afríku og ekki bara
þar: skuldum vafðir útflutningsatvinnuvegir í
eilífu basli. Við skulum nefna hlutina réttum nöfnum: gengisfölsun var fram að hruni
snar þáttur í hagstjórnarstefnu stjórnvalda. Við og við brustu varnir gengisfölsunarfé-
lagsins, og þá féll gengið með brauki og bramli. Hágengislönd verða með reglulegu
millibili fyrir gengisfalli. Ísland er engin undantekning frá reglunni.
Árin fyrir hrun var gengi krónunnar augljóslega orðið allt of hátt eins og hömlulaus
innkaup margra Íslendinga í öðrum löndum báru með sér. Aðrar vísbendingar voru
einnig býsna skýrar. Þjóðartekjur á mann hér heima voru 2007 orðnar helmingi
hærri en þjóðartekjur á mann í Bandaríkjunum. Hafði hagvöxturinn hér verið svona
miklu meiri en í Bandaríkjunum? Nei, hann hafði verið svipaður í báðum löndum.
Skýringin lá einfaldlega í því, að gengi krónunnar hafði snarhækkað einkum vegna
mikils innstreymis lánsfjár utan úr heimi, sem lagðist ofan á gömlu gengisfölsunar-
áráttuna. Þegar gengi krónunnar er of hátt skráð, er gengi efnahagslífsins eins og
það leggur sig einnig of hátt skráð. Margir fylltust falskri öryggiskennd og börðu sér
á brjóst.
Við slíkar aðstæður geta gjaldeyrisbraskarar séð sér leik á borði. Þeir eru eins og ljón,
sem sjá haltrandi sebradýr í hjörðinni og elta það uppi, af því að það er minni fyrir-
höfn en að eltast við fullfrísk dýr. Þegar gjaldeyrisbraskari sér lítinn gjaldmiðil, sem
er augljóslega of hátt skráður, þá getur hann hamstrað ódýrum erlendum gjaldeyri,
beðið eftir gengisfalli og selt gjaldeyrinn aftur á hærra verði með hagnaði. Braskarinn
getur einnig gert þetta með framvirkum samningum. Gjaldmiðlar smáþjóða liggja
betur við höggi en gjaldmiðlar stórþjóða. Fjármálamaðurinn Georg Soros auðgaðist
um einn milljarð dollara á því að veðja rétt á gengisfall pundsins 1992. Hann hefur
einkum notað hagnaðinn til að hjálpa Austur-Evrópu eftir hrun kommúnismans.
Krónan lá sérlega vel við höggi árin fyrir hrun vegna þess, að hún var augljóslega
allt of hátt skráð og Seðlabankinn var úti að aka og átti ekki nema lítið brot af þeim
gjaldeyri, sem hefði þurft til að verja krónuna áhlaupi. Það er því mesta furða, að
erlendir gjaldeyrisbraskarar skyldu ekki ráðast til atlögu gegn krónunni. Þegar
gengið féll, var ekki við gjaldeyrisbraskara að sakast ekki frekar en hægt er að áfellast
ljónið, sem eltir uppi halta sebradýrið. Áhlaup gjaldeyrisbraskara á veikan gjaldmiðil
verður ámælisvert, ef braskarinn býr yfir innherjaupplýsingum, því að þá hefur hann
brotið lög. Margir hafa hyldjúpa skömm á gjaldeyrisbraski, því að gengishagnaður
braskarans bitnar á öðrum. Bankarnir lánuðu sumum viðskiptavinum sínum fram að
hruni mikið fé til að braska með eins og það væri sjálfsagt, og mikið af því fé tapaðist.
Saklaust fólk situr eftir með sárt ennið innan lands og utan.
Braskarinn, sem græðir á því að veðja rétt á gengisfall, hagnast á kostnað þeirra,
sem gengisfallið bitnar á. Gengisfall hækkar verð á innfluttum vörum í búðunum,
og aðrar vörur hækka smám saman í verði og einnig þjónusta, svo að kaupmáttur
heimilanna minnkar. Óverðtryggðar eignir rýrna. Áhrif gengisfallsins geta borist
um óvæntar brautir út um allt efnahagslífið. Til dæmis getur mikið gengisfall og
samsvarandi rýrnun kaupmáttar heimilanna freistað stjórnvalda til að reyna að mæta
vandanum með því að ganga á aðrar eignir, til dæmis lífeyrissjóði og náttúruauðlind-
ir, sem ættu að réttu lagi að vera utan seilingar.“ Þorvaldur Gylfason hagfræðingur
Áhrif gengisfalls Á almenning
Því miður skyldi Landsbankinn
ekki áhættuna eftir að
hafa fengið þetta minn-
isblað.
Líklega unnið fyrir Björgólf Thor Afar líklegt er að Heiðar
Már hafi unnið minnisblaðið um stöðutökuna fyrir Björgólf Thor
Björgólfsson þar sem fyrirtækin sem rætt er um í því voru öll í eigu
hans. Heiðar Már og talskona Björgólfs segja þetta ekki vera rétt.
framhald á
næstu sÍÐu