Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Side 20
Sumt klikkar ekki
Hvað Heitir lagið?
„En hann getur kæft
og hann getur svæft.“
svar: Gamli Grafreiturinn - Klassart
Ævisaga guðrúnar Ögmunds Út er komin hjá Veröld
ævisaga Guðrúnar Ögmundsdóttur, rituð af Höllu Gunnarsdóttur. Guðrún
Ögmundsdóttir á að baki litríka og dramatíska ævi; Dóttir konu sem „fór heim
án barns“ af fæðingardeildinni og ólst upp hjá kjörforeldrum, tók síðan sjálf barn
í fóstur. Hún er holdgervingur ’68 kynslóðarinnar og fyrrverandi borgarfulltrúi
og alþingismaður. Halla Gunnarsdóttir skrifar sögu Guðrúnar Ögmundsdóttur.
Guðrún Ögmundsdóttir – Hjartað ræður för er 257 blaðsíður að lengd, auk
sérstakra myndaarka. Helgi Hilmarsson braut bókina um og Dynamo hannaði
kápuna. Bókin er prentuð í Odda. Leiðbeinandi útsöluverð er 6.490 krónur.
20 fókus 25. október 2010 mánudagur
nýtt myndband
frá Hjaltalín
Hjaltalín hefur sent frá sér nýtt
myndband við lagið Sweet Impress-
ions en lagið kom út á plötunni
Terminal í fyrra. Fyrir stuttu kom
lagið út sem stafræn smáskífa og
hlaut mikið lof, meðal annars hjá
miðlum á borð við Guardian og
Drowned in Sound. Myndband við
Sweet Impressions má nú finna á
nýrri heimasíðu Hjaltalín, hjalta-
linmusic.com, en myndbandið var
frumsýnt á heimasíðu Drowned
in Sound í gær. Myndbandinu var
leiksýrt af Árna Þór Jónssyni, oft
nefndum Zúri gæinn, og framleitt af
Republik í samvinnu við Hjaltalín.
Um kvikmyndatöku sá Elli Cassata. Í
aðalhlutverkum eru Gísli Örn Garð-
arsson og Þrúður Vilhjálmsdóttir.
Einnig bregður fyrir í myndbandinu
Hilmari Guðjónssyni, mótorkross-
gengi og dansandi drengjakór.
Þór – leyndar-
mál guðanna
Út er komin hjá Veröld, Þór
– Leyndarmál guðanna sem
Friðrik Erlingsson skrásetti. Þór
Óðinsson þeytist um heiminn
frá morgni til kvölds að sinna
skyldum sínum við guði og
menn, í von um að faðir hans
vígi hann endanlega inn í goð-
heima. Gömlu guðirnir eru hins
vegar fullir öfundar yfir vinsæld-
um Þórs og reyna að losa sig við
hann. Friðrik Erlingsson sló eftir-
minnilega í gegn með margverð-
launaðri sögu sinni Benajmín
dúfu. Þór – Leyndarmál guðanna
er 327 blaðsíður að lengd. CAOZ
braut bókina um, Gunnar Karls-
son hannaði kápuna og teiknaði
myndir í bókina. Bókin er prent-
uð í Odda. Leiðbeinandi útsölu-
verð er 3.990 krónur.
Pétur og
úlfurinn í Hofi
Miðvikudaginn 27. október kl. 17
flytur Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands ævintýrið um Pétur og úlfinn
eftir Sergei Prokofieff í Hofi. Pétur
og úlfurinn er eitt frægasta tónlistar-
ævintýri fyrir börn sem samið hefur
verið og fá verk hafa orðið eins til að
efla skilning barna á klassískri tón-
list og Pétur og úlfurinn. Verkið er
sviðsett með leikbrúðum og sett upp
í samstarfi við Brúðuheima í Borg-
arnesi og Leikfélag Akureyrar. Leik-
brúðustjórnandi er Bernd Ogrodnik,
leikstjóri Jana María Guðmunds-
dóttir og sögumaður er Guðmundur
Ólafsson. Stjórnandi er Guðmundur
Óli Gunnarsson.
Það eru vissir
leikir sem ein-
faldlega klikka
ekki þegar kem-
ur að Nintendo.
Zelda er gott
dæmi, Mario er
annað og Metroid
á klárlega heima í
þessum hópi. Í
fyrstu gæti aðdá-
endum leikjanna
brugðið í brún
þegar þeir spila
Other M. Í stað þess að leikurinn gerist
eingöngu sem fyrstu persónu skotleik-
ur þar sem flakkað er á milli sólkerfa
þá hefur áherslunum verið breytt.
Að þessu sinni gerist leikurinn á
einni og sömu geimstöðinni þar sem
blandað er saman fyrstu og þriðju
persónu skotleik. Wii-fjarstýringunni
er snúið á hlið og þannig er spilaður
bróðurparturinn af leiknum í þriðju
persónu. Þegar henni er svo beint að
skjánum breytist leikurinn í fyrstu per-
sónu. Þetta tvennt þarf maður svo að
ná að sameina listilega vel til þess að
sigra fjölbreytta og erfiða andstæð-
inga.
Grafíkin í leiknum er flott og stýri-
kerfið gengur mjög vel upp. En maður
þarf að gefa þessu smátíma því í fyrstu
virkar þetta ekki sannfærandi. Eins og
vanalega í Metroid-leikjum er fjöldinn
allur af krefjandi höfuðpaurum. Þeir
eru miserfiðir en nokkrum sinnum
þurfti ég að gæjast í „walkthrough“ til
þess að skilja hvernig ætti að sigra þá.
Eitt það skemmtilegasta í leiknum
er að bæta búning Samus með því að
finna hina og þessa hluti. Eftir því sem
þú kemst svo lengra í leiknum bætast
við vopn og alls kyns eiginleikar sem
eru nauðsynlegir til þess að yfirstíga
ólíkar þrautir.
Mikið er lagt í sögu leiksins og geta
myndbrotin á milli atriða oft orðið að-
eins of flókin og löng. Þá mætti leikur-
inn líka vera aðeins lengri. Mér fannst
vanta aðeins meira „showdown“ í lok-
in. En niðurstaðan er sú að Other M er
virkilega vönduð vara og ætti ekki að
svíkja neinn aðdánda Metroid.
ÁSGEIR
JÓNSSON
blaðamaður dæmir
tölvuleikir Metroid:
other M
Tegund: Hasarleikur
Spilast á: Nintendo Wii
Metroid: Other M
Stendur fyrir sínu og
rúmlega það.
Kassie (Anis-
ton) er einhleyp
kona um fertugt
sem bregður á
það snilldarráð
að halda „sæð-
isgjafapartí“ til
þess að verða
ófrísk. Sjö árum
seinna hittir
hún aftur besta
vin sinn, Wally
(Bateman), en
hvorugt þeirra
veit (eða man) að fyrir sjö árum
skipti hann sæði sæðisgjafans út
fyrir sitt eigið. Leikstjórarnir Josh
Gordon og Will Speck eiga að baki
eina kvikmynd í fullri lengd, hina
hressandi Blades of Glory frá 2007.
Hugmyndin að myndinni er í
grunninn áhugaverð og myndin á
góða spretti. Handrit Allan Loeb er
hins vegar óþægilega og óþarflega
klisjukennt og verður söguþráður-
inn fljótt hálf óeðlilegur og raun-
ar ósmekklegur. Það er þó reynt að
hylma yfir smekkleysuna með ein-
staklega skemmtilegum leikarahóp,
auk þess sem þetta er allt saman lát-
ið gerast hjá ríku, myndarlegu fólki í
New York.
Jason Bateman og Jennifer An-
iston eru viðkunnanleg í aðalhlut-
verkunum og eru í rauninni að leika
sömu persónur og þau hafa oft-
ast gert. Bateman er hæglátur en
komplexaður, með bestu vinkonu
sína á heilanum en er fyr-
ir löngu kominn á hið svo-
kallaða vinasvæði í huga
hennar. Jennifer Aniston
hefur fyrir löngu sannað að
hún hefur góða tilfinningu
fyrir gamanleik, hefur gott
skopskyn og tímasetning-
ar. Það kemur því ekkert
á óvart í leik hennar hér.
Hún hefur hins vegar verið
föst í sama karakter í bráð-
um tvo áratugi. Vonum að
það sama verði ekki sagt
um Jason Bateman eftir
10 ár.
Þau Patrick Wilson, Juliette Lewis
og Jeff Goldblum fara með auka-
hlutverk og eru öll bráðskemmti-
leg, sérstaklega Goldblum. Hann er
frábær gamanleikari og með hrein-
um ólíkindum að maður með hans
hæfileika sjáist ekki oftar í bíó. Hinn
ungi Thomas Robinson stendur sig
svo með prýði í hlutverki barnsins
sem allt snýst um.
The Switch er áhugaverð í upp-
hafi, en þegar á líður verður hún
frekar þvinguð og óeðlileg þó svo að
sögusviðið og heillandi leikarahóp-
ur leggi sitt af mörkum við að gera
þessa mynd áhorfanlega. En þó hún
sé stundum skemmtileg er myndin
ekkert sérstaklega fyndin. Sem þyk-
ir ekki kostur þegar gamanmyndir
eru annars vegar.
Húmorslaus
í New York
JÓN INGI
StEfÁNSSON
dæmir
kvikMyndir
Vesen Jason
Bateman í
hlutverki sínu.
Viðkunnanleg Jason Bateman og Jennifer Aniston eru viðkunnanlegir gamanleikarar
the switch
Leikstjóri: Josh Gordon, Will Speck.
Handrit: Allan Loeb eftir smásögu
Jeffrey Eugenides.
Leikarar: Jennifer Aniston, Jason
Bateman, Patrick Wilson, Juliette Lewis,
Jeff Goldblum, Thomas Robinson
101 mínúta