Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Qupperneq 24

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Qupperneq 24
Gylfi lék seinni hálfleikinn í jafntefli Gylfi Sigurðsson, landsliðsmaður í knatt- spyrnu, lék seinni hálfleikinn í viðureign Borussia Dortmund og Hoffenheim í þýsku úrvalsdeildinni í gær. Liðsfélagar Gylfa í Hoffenheim komust yfir með marki Demba Ba í fyrri hálfleik en heimamenn frá Dortmund jöfnuðu leikinn í uppbótartíma. Heimavöllur Dortmund, Signa-Iduna Park, er einn sá magnaðasti sem hægt er að spila á í Evrópu en hann tekur tæplega níutíu þúsund manns og er stemningin þar jafnan ólýsanleg. aZ-strákarnir komu báðir við söGu Jóhann Berg Guðmundsson og Kolbeinn Sigþórsson komu báðir inn á sem varamenn í sigri AZ Alkmaar á Willem II í hollensku úrvals- deildinni í gær. Jóhann Berg kom inn á eftir klukkustundar leik og Kolbeini var hent í framlínuna fimm mínútum síðar. AZ vann leikinn 3–0 og var Jóhann Berg óheppinn að bæta ekki við marki fyrir AZ. Báðir eru þeir hluti af íslenska U21 árs landsliðinu sem vann sér sæti á Evrópumótinu í Danmörku að ári en einnig eru þeir fastamenn í A-landsliði Íslands. molar Ein kEppni Enn hjá Armstrong n Sjöfaldi Tour de France-meistar- inn Lance Armstrong mun taka þátt í einni keppni til viðbótar utan Bandaríkjanna. Armstrong mun keppa í Ástralíu- hjólreiðunum á næsta ári en þær fara fram í Adela- ide. Hinn þrjátíu og níu ára gamli Lance Armstrong sagði eftir Frakk- landshjólreiðarnar í ár að hann ætl- aði ekki að keppa meira utan Banda- ríkjanna en á heimasíðu Ástralanna stendur að Armstrong muni mæta til leiks í sína síðustu keppni á alþjóða- vettvangi. Armstrong vann Tour de France sjö ár í röð frá 1999–2005 en endaði 23. í sumar. rAngErs sigrAði ErkifjEndurnA n Bæði Glasgow Rangers og Glasgow Celtic voru búin að vinna alla sína leiki þegar liðin mættust í fyrsta ná- grannaslagnum í skosku úrvals- deildinni í gær. Það voru Rang- ers-menn sem héldu sigurgöng- unni áfram en þeir lögðu Celt- ic-menn á þeirra heimavelli, 3–1. Celtic komst yfir þegar Gary Hooper skoraði fyrir heimamenn eftir hálf- tíma leik. Það voru þó þeir Kenny Miller, sem skoraði tvívegis, og Kyle Lafferty sem tryggðu Rangers þýðingarmikinn sigur. Stemning- in var að vanda engu lík þegar liðin mættust og völlurinn að sjálfsögðu pakkfullur. CArrAghEr rAunsær n Jamie Carragher, varnarmað- ur Liverpool, hefur litla trú á því að Liverpool vinni ensku úrvalsdeild- ina á meðan hann er ennþá að spila. Liver- pool komst hvað næst því á þar síðasta tímabili þegar liðið varð í öðru sæti á eft- ir Manchester United. „Ég verð að hafa trú á því að nýju eigend- urnir muni snúa þessu við á næstu tveimur árum og vonandi mun Liverpool geta unnið titilinn, en ég er nógu raunsær til að vita að það verður mjög erfitt. En ef liðið vinnur ekki titil á meðan ég er ennþá leik- maður, þá verð ég bara ánægður ef nýju eigendunum tekst að láta það gerast stuttu eftir að ég hætti,“ segir Carragher. ÓtrúlEgur sigur psV n Byrjun tímabilsins hjá hollenska knattspyrnustórveldinu Feyenoord fór svo sannarlega úr öskunni í eld- inn á sunnu- dag. Feye noord tapaði fyrir PSV Eindhoven 10-0 á útivelli, hvorki meira né minna. Fóru heimamenn með Feyen oord eins og litla krakka sem áttu engin svör við spila- mennsku PSV. Feyenoord missti mann af velli á 34. mínútu í stöð- unni 1–0 en með því er varla hægt að réttlæta 10–0 tap. Feyenoord er sem stendur í 16. sæti hollensku úrvals- deildarinnar af átján liðum. Feyen- oord er eitt þeirra liða í Hollandi sem hefur aldrei fallið niður um deild. 24 sport UmSJón: tóMAs þór þórðArson tomas@dv.is 25. október 2010 mánudagur Upprisa Ferrari í Formúlu 1 full- komnaðist endanlega í Suður-Kór- eu í gærmorgun þegar Fernando Alonso varð fyrstur til að vinna á þessari nýju braut. Lewis Hamilton á McLaren varð annar en liðsfélagi Alonso, Felipe Massa, þriðji. Eng- inn hefur hlotið fleiri stig en Alonso í síðustu átta keppnum og er hann nú að uppskera eins og hann hefur sáð. Hann er orðinn efstur í stigakeppni ökumanna þegar aðeins tvö mót eru eftir. Hann þurfti þó að fá heppnina með sér í lið því báðir bílar Red Bull heltust úr lestinni og þá hefði Ham- ilton einnig getað stungið af með sigurinn. Alonso er því með titilinn í höndum sér, ellefu stigum á und- an Mark Webber en allt getur gerst í Formúlu 1. Áttum heppnina skilda Það voru miklar sviptingar á hinni nýju braut í Suður-Kóreu vegna mik- illar rigningar. Keppnin hófst tíu mínútum of seint og eftir fjóra hringi var gert hálftíma hlé þar sem menn sáu ekki út úr hjálmunum. Snemma í keppninni féll Mark Webber á Red Bull úr leik þegar hann keyrði of langt upp á hjálparkant og snérist út úr brautinni. Sigur Sebastian Vettel á Red Bull var því aldrei í hættu þar til vélin hjá honum bilaði aðeins nokkr- um hringjum frá marki. Því gat Fern- ando Alonso rúllað fyrstur í mark en meira að segja Lewis Hamilton var kominn fram úr honum að klúðraði því. Heppnin svo sannarlega með Alonso í liði. „Við áttum heppnina skilda,“ sagði hæstánægður Fernando Alonso eftir keppnina. „Það er frábært að vinna á þennan hátt. Þetta var virkilega erf- ið keppni vegna aðstæðna,“ sagði Alonso sem vissi vel hvers vegna hann hafði unnið keppnina. „Auðvit- að hjálpaði þessi heppni okkur mikið í stigakeppninni en heppnin sannar bara að Formúla 1 snýst ekki einung- is um stærðfræði. Það var einfaldlega afrek að halda sér á þessari blautu braut, sérstaklega þar sem enginn okkar hafði keyrt hér áður. Við erum núna í góðri stöðu og ég auðvitað sérstaklega. Titillinn er samt langt frá því að vera í hendi,“ sagði Alonso. nánast fullkomin keppni „Ég var fyrstur alla keppnina, réði henni algjörlega og var bara að passa dekkin. Það er ekkert meira sem ég hefði getað gert,“ sagði sár- svekktur Sebastian Vettel sem hóf keppni á ráspól og var fyrstur allt til þar vélin í bílnum hans sprakk. Á fyrri hluta keppnistímabilsins vann Vettel marga ráspóla en tókst aldrei að hafa sigur, var hann oftast kom- inn niður í annað eða þriðja sæti eftir fyrstu beygju. Hann hefur lagað það á seinni hluta móts en heppn- in lék svo sannarlega ekki við hann í Suður-Kóreu. Hann er nú tuttugu og fimm stigum á eftir Fernando Alonso. „Heilt yfir var nánast allt fullkomið hjá okkur í dag sem og í tímatökunni. Sem betur fer eru ennþá fimmtíu stig eftir í keppninni um heimsmeistara- titilinn. Lífið hefði orðið auðveldara ef við hefðum unnið og vélin ekki bil- að. En svona er lífið stundum,“ sagði spekingslegur Vettel. Eigum góðan möguleika Lewis Hamilton hefur verið afskap- lega óheppinn að undanförnu en með óláni Red Bull í Suður-Kóreu og öðru sætinu hjá sér sjálfum er heimsmeistarinn frá því 2008 kom- inn í bullandi baráttu um sinn annan heimsmeistaratitil. Hann þarf þó að vinna upp tuttugu og eitt stig á Fern- ando Alonso en með nýja stigakerf- inu þar sem 25 stig eru gefin fyrir sig- ur er allt hægt. Hann vonast því eftir góðum keppnum í Brasilíu og Abu Dahbi þar sem síðustu tvö mótin fara fram. „Þetta var klárlega áhugaverðasta keppnin í ár. Hún var mjög erfið, vá!“ sagði Hamilton við breska ríkissjón- varpið eftir keppnina. „Það var mjög skrýtið að sjá báða Red Bull-bílana falla úr leik. Fernando keyrði samt alveg rosalega vel en þessi braut hentaði klárlega Ferrari-bílnum að- eins betur en okkur. Nú eru tvær keppnir eftir þar sem við virkilega verðum að standa okkur eins vel og við getum. Það er ekkert ómögulegt og við eigum góðan möguleika á að vinna eitthvað,“ sagði Lewis Hamilt- on bjartsýnn. Ökumaður Lið stig 1. Fernando Alonso Ferrari 231 2. mark Webber Red Bull 220 3. Lewis Hamilton mcLaren 210 4. Sebastian Vettel Red Bull 206 5. Jenson Button mcLaren 189 6. Felipe massa Ferrari 143 7. Robert Kubica Renault 124 8. nico Rosberg mercedes 121 9. m. Schumacher mercedes 66 10. R. Barrichello Williams 47 ökumEnn Lið stig 1. Red Bull 426 2. mcLaren 399 3. Ferrari 374 4. mercedes 187 5. Renault 143 6. Force India 68 7. Williams 65 8. Sauber 44 9. Toro Rosso 11 10. Hispania 0 11. Lotus 0 bílAsmiðir Stigakeppni ökumanna í Formúlu 1 breyttist eftir keppnina í Suður-Kóreu. Fernando Alonso vann keppnina á meðan báðir bílar Red Bull féllu úr leik. Alonso leiðir keppn- ina um heimsmeistaratitilinn þegar tvö mót eru eftir en með þriðja sæti Felipe Massa í Suður-Kóreu er Ferrari einnig komið í baráttuna um silfrið í stigakeppni bílasmiða. með titilinn í höndum sér tóMAs þór þórðArson blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Klúður Webber keyrði of langt upp á kant og snéri sér út af brautinni og úr efsta sætinu. Ekki gleyma mér Lewis Hamilton er ekki langt frá Alonso og gæti vel stolið titlinum í síðustu tveimur keppnunum. Myndir rEutErs Á toppnum Fernando Alonso hefur gengið gríðarlega vel í síðustu keppnum og er kominn með heims- meistaratitilinn í sínar hendur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.