Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2010, Síða 25
Sölvi Snéri aftur í Sigurleik Lands- liðsfyrirliðinn Sölvi Geir Ottesen kom inn á sem varamaður í 3–0 sigri FCK á Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í gær. Sölvi hefur verið frá í nokkrar vikur vegna brotinnar handar en hann gat hvorki leikið landsleikinn gegn Portúgal né útileikinn gegn Bar- celona í Meistaradeildinni. Sölvi verður því væntanlega í byrjun- arliðinu þegar Barcelona kemur í heimsókn á Parken eftir tæpar tvær vikur en fjölmargir Íslendingar hafa keypt sér miða á leikinn til þess að berja stjörnurnar í Barcelona augum. Hk fyrSt til að leggja fH HK-ingar unnu á laugardaginn frábæran sigur á FH í N1-deild karla í handbolta og varð HK um leið fyrsta liðið til að leggja Hafnfirðingana sem hafa lit- ið ógnvænlega vel út í byrjun tímabilsins. HK hafði sigur í skemmti- legum leik, 35–32, þar sem markvörðurinn Björn Ingi Friðþjófsson og skyttan Ólafur Bjarki Ragnarsson fóru á kostum í liði HK. Ólafur Bjarki skoraði tólf mörk en Björn Ingi varði 25 skot í markinu, mörg hver úr opnum færum. Ásbjörn Friðriksson var markahæstur FH með níu mörk en HK tyllti sér á toppinn með sigrinum. mánudagur 25. október 2010 Sport 25 Manchester United tókst loks að vinna útisigur í ensku úrvalsdeild- inni en hann kom á hinum geysi- erfiða Brittania-leikvangi Stoke- manna í gær. Javer „Chicharito“ Hernandez var hetja gestanna en hann skoraði bæði mörk liðsins, þar á meðal sigurmarkið á 86. mín- útu. Hann hafði upphaflega komið United yfir með glæsilegum skalla með hnakkanum en Tuncay Sanli jafnaði metin fyrir Stoke á 81. mín- útu. „Þetta var gott mark,“ sagði „Litla baunin“ eins og hann er kall- aður um fyrra markið. Ég stökk upp og sá að boltinn var fyrir aftan mig. Ég reyndi því að ná einhvern veg- inn skalla á markið. Guði sé lof að boltinn fór inn. Aðalatriðið er þó að það var engin hetja í þessum leik, þetta snýst allt um liðið,“ sagði Hernandez. Hernandez hefur farið ágætlega af stað með Manchester United. Hann hefur skorað fimm mörk í tíu leikjum þar af fjögur í síðustu fimm leikjum. Þrátt fyrir þessa staðreynd átti hann afar erfitt með að hrósa sjálfum sér í viðtali á MUTV-sjón- varpstöðinni eftir leikinn. „Þetta er allt liðsfélögum mín- um að þakka. Þeir treysta mér. Það er ótrúlegt tækifæri fyrir mig að spila með stærsta liði í heimi, Manchester United. Ég legg hart að mér því ég vil vera hérna lengi og vinna mikið af titlum,“ sagði Hern- andez. Sigurinn var svo sannarlega mikilvægur fyrir Manchester Un- ited til þess að halda í við topplið- in. United er nú enn fimm stigum á eftir Chelsea en þó loks komið á blað á útivelli. Manchester United er enn eina ósigraða liðið í ensku úrvalsdeildinni. tomas@dv.is Fyrsti útisigur Manchester United: „Litla baunin“ til bjargar Hetjan Javier Hernandez tryggði Manchester United sigur á síðustu stundu. Það voru ekki liðnar nema tæplega fimm mínútur af stórleik helgarinn- ar í ensku úrvalsdeildinni þegar bak- verðinum unga í liði City, Dedryck Boyata, tókst að eyðileggja hann. Boyata braut heimskulega á Marou- ane Chamakh sem var að sleppa einn að marki en Boyata átti aldrei mögu- leika að ná boltanum. Rautt spjald dæmt og heimamenn einum færri í áttatíu og fimm mínútur. Arsenal gekk á lagið og rúllaði City upp, 3–0, þar sem Samir Nasri, Alexandre Song og Nicklas Bendtner skoruðu mörk- in. Með sigrinum komst Arsenal upp í annað sæti deildarinnar á marka- tölu og varð um leið fyrsta liðið til að leggja City á Borgarleikvanginum í Manchester. Þar hafa nú þegar Chel- sea og Liverpool legið í valnum. Spiluðum vel „Þetta gat ekki verið neitt annað en rautt. Ég var sloppinn í gegn og hann tók mig bara niður,“ sagði Marouane Chamakh eftir leikinn. „Mér fannst við spila virkilega vel. Það hjálpaði auðvitað til að vera einum fleiri, það eru ekki mörg lið sem ráða við okk- ur þegar þau vantar einn mann. Við þurftum samt að klára leikinn því City barðist fyrir sínu. Heilt yfir átt- um við sigurinn fyllilega verðskuld- aðan og okkur líður vel að sjá okkur í öðru sætinu. Nú er bara stefnan að ná Chelsea,“ sagði Chamakh. Markvörðurinn Joe Hart gat lítið gert í mörkunum sem Arsenal skor- aði. Hann varði meira að segja víta- spyrnu frá Cesc Fabregas í fyrri hálf- leik. „Þetta var nú líklega rautt spjald þó mér fyndist hann ekki alveg vera að stefna að marki. Ég á samt eftir að sjá þetta betur. Það er afskaplega erfitt að vera einum færri gegn Ars- enal, það færir boltann svo vel á milli. Við viljum ekki tapa á heimavelli og munum láta það koma sem sjaldnast fyrir, helst aldrei,“ sagði Joe Hart. Chelsea þakkaði fyrir Með sigri Arsenal hélt Chelsea fimm stiga forskotinu sem það náði á City á laugardaginn þegar liðið lagði Úlf- ana auðveldlega. United og Arsenal jöfnuðu City að stigum með sigrum sínum um helgina og er nú þriggja liða pakki þarna ásamt Tottenham að reyna elta Chelsea. Tottenham tókst ekki að vinna Everton á heimavelli en þar skildu liðin jöfn, 1–1. tómaS þór þórðarSon blaðamaður skrifar: tomas@dv.is Dedryck Boyata var skúrkurinn hjá Manchester City þegar hann lét reka sig af velli eftir tæpar fimm mínútur í stór- leik helgarinnar gegn Arsenal. Skytturn- ar gengu á lagið og unnu léttan 3–0 sigur. Arsenal varð því fyrsta liðið til að leggja Manchester City á heimavelli og lyfti sér um leið upp í annað sæti deildarinnar. Auðvelt hjá ArsenAl Dugði ekki Joe Hart varði víti frá Cesc Fabregas en hann þurfti samt að sækja knöttinn þrisvar sinnum úr netinu. mynD reuterS Slæmt brot Dedryck Boyata gerði Arsenal auðveldara fyrir með því að láta reka sig út af fyrir þessa tæklingu. ÚrSlit Enska úrvalsdEildin tottenham - everton 1-1 0-1 Leighton Baines (17.), 1-1 Rafael van der Vaart (21.). Birmingham - Blackpool 2-0 1-0 Liam Ridgewell (37.), 2-0 Nikola Zigic (57.). Chelsea - Úlfarnir 2-0 1-0 Florent Malouda (23.), 2-0 Salomon Kalou (81.). Sunderland - aston Villa 1-0 1-0 Richard Dunne (25. sm). WBa - Fulham 2-1 0-1 Scott Carson (9. sm), 1-1 Youssuf Mulumbu (17.), 2-1 Marc- Antoine Fortuné (40.). Wigan - Bolton 1-1 1-0 Hugo Rodallega (59.), 1-1 Johan Elmander (66.). West Ham - newcastle 1-2 1-0 Carlton Cole (12.), 1-1 Kevin Nolan (23.), 1-2 Andy Carroll (69.). Stoke - man. united 1-2 0-1 Javier Hernández (27.), 1-1 Tuncay Sanli (81.), 1-2 Javier Hernández (86.). Liverpool - Blackburn 2-1 1-0 Sotirios Kyrgiakos (48.), 1-1 Jamie Carragher (51. sm), 2-1 Fernando Torres (53.). man. City - arsenal 0-3 0-1 Samir Nasri (20.). RAUTT: Dedryck Boyata, Man. City (5.), 0-2 Alexandre Song (66.), 3-0 Nicklas Bendtner (88). staðan Lið L u J t m St 1. Chelsea 9 7 1 1 25:2 22 2. Arsenal 9 5 2 2 21:10 17 3. Man. Utd 9 4 5 0 20:12 17 4. Man. City 9 5 2 2 12:8 17 5. Tottenham 9 4 3 2 11:8 15 6. WBA 9 4 3 2 13:15 15 7. Sunderland 9 2 6 1 8:7 12 8. Bolton 9 2 6 1 13:13 12 9. Newcastle 9 3 2 4 14:13 11 10. Aston Villa 9 3 2 4 9:13 11 11. Everton 9 2 4 3 9:8 10 12. Birmingham 9 2 4 3 10:12 10 13. Stoke City 9 3 1 5 10:13 10 14. Blackpool 9 3 1 5 13:20 10 15. Wigan 9 2 4 3 7:16 10 16. Fulham 9 1 6 2 10:11 9 17. Blackburn 9 2 3 4 8:10 9 18. Liverpool 9 2 3 4 9:14 9 19. Wolves 9 1 3 5 8:15 6 20. West Ham 9 1 3 5 7:17 6

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.