Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Side 2
02 fréttir 1. nóvember 2010 mánudagur
Stjórn Íbúðalánasjóðs stefnir að
því að taka ákvörðun um það hver
verði næsti framkvæmdastjóri
sjóðsins á fundi sínum í dag. Stjórn
sjóðsins fundaði daglangt á föstu-
dag um málið án þess að komast að
niðurstöðu.
Yfirstjórn sjóðsins auglýsti í síð-
ustu viku fjórar stöður sviðsstjóra
hjá Íbúðalánasjóði: stöðu fyrir-
tækjasviðs, einstaklingssviðs, eign-
asviðs og fjármálasviðs. Umsókn-
arfrestur rennur út 11. nóvember
næstkomandi. Samkvæmt upplýs-
ingum sem DV hefur aflað, er ekki
ætlunin að ráða í umræddar stöður
fyrr en ráðinn hefur verið nýr fram-
kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs.
Tafir á því að ráða framkvæmda-
stjóra í stað Guðmundar Bjarna-
sonar eru orðnar æði miklar, en
staðan var fyrst auglýst í apríl síð-
astliðnum. Ágreiningur innan
stjórnar sjóðsins um það hvort ráða
ætti Ástu H. Bragadóttur, aðstoð-
arframkvæmdastjóra Íbúðalána-
sjóðs, eða Yngva Örn Kristinsson,
fyrrverandi yfirmann verðbréfa-
sviðs Landsbanka Íslands, varð
til þess að Árni Páll Árnason, þá-
verandi félagsmálaráðherra, skip-
aði valnefnd til þess að ráða fram
úr málinu seint í ágúst síðastliðn-
um. Þeir sem skipuðu nefndina
voru Jón Sigurðsson, lektor við HR,
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, lekt-
or við hagfæðideild HÍ, og Magnús
Pétursson ríkissáttasemjari. Fjöldi
umsækjenda dró við þetta um-
sóknir sínar til baka, þeirra á með-
al Ásta sem þá gegndi stöðu fram-
kvæmdastjóra sjóðsins.
Niðurstaða valnefndarinnar
varð sú að mæla ekki með neinum
umsækjanda, hvorki Yngva Erni
né öðrum umsækjendum sem til
greina höfðu komið á lokasprett-
inum. Því var borið við að umsækj-
endum hefði fækkað og aðstæður
breyst.
Undirtök stjórnarandstöðu
Núverandi stjórn Íbúðalánasjóðs
var skipuð af framsóknarmannin-
um Magnúsi Stefánssyni, þáver-
andi félagsmálaráðherra, um ára-
mótin 2006 og 2007. Eftir því sem
næst verður komist hafði Þórólfur
Gíslason, kaupfélagsstjóri Kaup-
félags Skagfirðinga, sótt fast að
verða formaður Íbúðalánasjóðs
á þessum tíma. Af því varð ekki
og úr varð að Magnús skipaði tvo
framsóknarmenn, Hákon Hákon-
arson, formann, og Elínu R. Lín-
dal og sjálfstæðismennina Gunn-
ar S. Björnsson og Kristján Pálsson
í stjórnina. Aðeins einn fulltrúi þá-
verandi stjórnarandstöðu, Jóhann
Ársælsson, Samfylkingunni, tók
sæti í stjórninni. Umboð stjórnar-
innar rennur út um áramótin og þá
kemur til kasta Guðbjarts Hannes-
sonar, núverandi félagsmálaráð-
herra, að skipa nýja stjórn. Jafnvel
þótt það freistaði hans að fela nýrri
stjórn að ljúka málinu þolir það
vart lengri töf enda staða sjóðsins
bágborin.
Þessi staða mála er ein helst rót
þess að illa hefur gengið að velja
eftirmann Guðmundar Bjarna-
sonar. Raunverulega hefur núver-
andi stjórnarandstaða undirtökin
í stjórn Íbúðalánasjóðs og gæti því
komið sínum umsækjanda í emb-
ættið. Það stríðir aftur á móti gegn
grundvallarviðmiðum um að ráða
aðeins þann hæfasta samkvæmt
skilmálum auglýsingar og mati á
reynslu, menntun og öðrum kost-
um umsækjenda.
Tafir á því að skipa nýjan fram-
kvæmdastjóra eru miklar eins og
áður segir. Það kemur í hlut Guð-
bjarts Hannessonar núverandi fé-
lagsmálaráðherra að skipa nýja
stjórn yfir Íbúðalánasjóð í árslok.
Ólíklegt þykir að hann fari að for-
dæmi forvera síns, Magnúsar Stef-
ánssonar, og skipi fjóra stjórnarliða
í stjórn á móti einum úr stjórnar-
andstöðu. Þótt skammt sé þess að
bíða að ný stjórn taki við er varla
verjandi fyrir félagsmálaráðherra
að tefja málið enn frekar og því
ræður núverandi stjórn úrslitum
um val á næsta framkvæmdastjóra
Íbúðalánasjóðs.
Fjórir í úrslit
Eftir að valnefnd fyrrverandi félgs-
málaráðherra ákvað að mæla ekki
með neinum umsækjanda var stað-
an auglýst aftur. Þá sóttu 26 manns
um stöðuna. Fimm hættu við þeg-
ar fjölmiðlar óskuðu eftir því að fá
að birta lista yfir umsækjendur.
Hagavangur valdi 12 af 21 umsækj-
anda til að fjalla nánar um og skil-
aði stjórn Íbúðalánasjóðs loks lista
með 4 nöfnum. Stjórn sjóðsins fjall-
aði um þessi nöfn á fundi sínum
fyrir helgi og fjallar aftur um þau í
dag. DV hefur ekki tæmandi upp-
lýsingar um það hvaða nöfn eru á
þeim lista. Nafn Yngva Arnar Krist-
inssonar er þar örugglega enda
var hann helsti keppinautur Ástu
H. Bragadóttur áður en málið fór í
handaskolum og auglýst var aftur.
Raunverulega hefur núverandi
stjórnarandstaða undir-
tökin í stjórn Íbúðalána-
sjóðs og gæti því kom-
ið sínum umsækjanda í
embættið.
jóhann haUksson
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Vandræðagangur ríkir enn á stjórnarheimilinu vegna skip-
unar í stöðu framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs. Meirihluti
stjórnar sjóðsins ræður í stöðuna og tekur að líkindum ákvörð-
un sína í dag. Stjórnarandstaðan hefur meirihlutavald í stjórn-
inni, en hún var skipuð í stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins og
Framsóknarflokksins. Fjórar stöður sviðsstjóra hjá sjóðnum
vöru auglýstar lausar til umsóknar í síðustu viku og því þarf
að hraða ráðningu nýs framkvæmdastjóra.
TekisT á um völdin
skipaði 4 stjórnarliða Magnús
Stefánsson,fyrrverandifélagsmálaráð-
herra,skipaðifjórafulltrúaríkisstjórnar
SjálfstæðisflokksogFramsóknarflokks
ístjórnÍbúðalánasjóðs.Þeirhafaþar
meirihlutatiláramóta.
Umsækjandi Slagurinnstóðmilli
ÁstuH.BragadótturogYngvarsArnar
Kristinssonar.Húnergenginúrskaftinu
enhannerennmeðalumsækjenda.
Byggingaframkvæmdir Íbúðalána-
sjóðurbýrviðmikinnvandaíkjölfar
bankahrunsinsoghefurnúþegar
leysttilsínhundruðíbúðaíkjölfar
nauðungaruppboða.