Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Page 16
16 erlent 1. nóvember 2010 mánudagur
Breskir Evrópuþingmenn hafa lýst
yfir hneykslun sinni á framkvæmda-
stjórn Evrópusambandsins fyrir
óhóflega eyðslu í ráðstefnu sem var
tileinkuð réttindabaráttu samkyn-
hneigðra, tvíkynhneigðra og kyn-
skiptinga. Ráðstefnan var haldin á
fimm daga tímabili í Haag í Hollandi
og náði hámarki á laugardaginn var.
Í síðustu viku hittust einnig leiðtogar
aðildarríkja Evrópusambandsins í
Brussel til að ræða endurbætur á
fjármálakerfi evrusvæðisins. Þar voru
það Bretar sem lögðu höfuðáherslu á
að aðildarríki mættu ekki fara fram úr
fjárlögum sínum nema því sem nemi
2,9 prósentum. Á sama tíma borg-
aði framkvæmdastjórnin undir 200
manna ráðstefnuna í Haag en talið
er að hún hafi kostað um 124 þúsund
evrur, eða því sem nemur rúmlega 19
milljónum íslenskra króna.
Philip Davies situr á breska þing-
inu fyrir Íhaldsflokkinn. Hann segir
að þetta sé dæmigert fyrir Evrópu-
sambandið, að borga fúlgur fjár til að
sýna að pólitísk rétthugsun sé við lýði
innan sambandsins. „Því fyrr sem
við komumst úr þessu ægilega sam-
bandi því betra. Í öllu falli eigum við
alls ekki að standa í frekari peninga-
gjöfum, þar sem þeir eiga greinilega
næga peninga til að brenna.“ Maria
van Bijsterveldt er ráðherra jafnrétt-
ismála í Hollandi og ávarpaði ráð-
stefnugesti. Hún var öllu jákvæðari í
garð ráðstefnunnar en Davies. Bauð
hún 40 fundargesti frá löndum í Aust-
ur-Evrópu sérstaklega velkomna, en
þar hafa samkynhneigðir átt erfitt
uppdráttar. Vitnaði hún meðal ann-
ars í leikskáldið Oscar Wilde: „Verið
þið sjálf, allir aðrir hafa verið teknir
frá.“ bjorn@dv.is
Bretar hneykslast á eyðslusemi framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins:
Eyðir fúlgum í samkynhneigða
Vísindamönnum í Wake Forest-há-
skólanum í Bandaríkjunum hefur
tekist að rækta starfandi lifur á stærð
við heslihnetu. Þetta kom fram á
læknaráðstefnu sem haldin var í
Boston á dögunum. Shay Soker stýr-
ir verkefninu sem hefur vakið mikla
athygli. „Við erum mjög spennt yfir
þeim möguleikum sem verkefn-
ið býður upp á. Við erum einungis
stödd á frumstigi rannsóknarinn-
ar og ennþá þarf að yfirstíga tækni-
legar hindranir áður en sjúklingar
geta farið að njóta góðs af verkefn-
inu.“ Takist vísindamönnunum að
rækta lifur sem hægt væri að græða
í sjúklinga myndi það verða bylting í
læknavísindum. Árlega eru nú fram-
kvæmdar þúsundir lifrarígræðslna í
heiminum en framboð af nothæf-
um lifrum er enn allt of lítið. Talið
er að allt að fimmtungur sjúklinga
með alvarlega lifrarsjúkdóma deyi á
meðan þeir eru á biðlista eftir nýrri
lifur.
Áfengi og eiturlyf stór
vandamál
Helstu vandamál lifrarsjúklinga eru
áfengi og eiturlyf. Ekki aðeins fyrir
þá sjálfa, heldur er framboð af vel
starfandi lifrum til ígræðslu orðið
lítið á Vesturlöndum vegna áfeng-
is- og lyfjaneyslu. Þá leiðir áfengis-
og eiturlyfjaneysla til lifrarsjúkdóma
en talið er að allt að helmingur
þeirra sjúklinga sem þurfa að gang-
ast undir lifrarígræðslu hafi eyðilagt
lifrina með neyslu. Í Bretlandi hafa
læknar gengið svo langt, að neita
sjúklingum um lifrarígræðslu nema
þeir sverji þess eið að drekka ekki
áfengi að ígræðslunni lokinni. Þar í
landi eru lifrarsjúkdómar í fimmta
sæti yfir algengustu dánarorsakir
en á síðasta ári dóu yfir 15 þúsund
manns vegna þeirra. Talið er að sú
tala eigi eftir að tvöfaldast á næstu
20 árum.
Önnur líffæri gætu verið
ræktuð
Verkefnið í Wake Forest hefur gef-
ið vísbendingar um að hægt sé að
rækta fleiri líffæri, svo sem nýru
eða bris. Sjúklingar þurfa einung-
is að gefa stofnfrumur sem eru síð-
an ræktaðar í sérstökum lífræn-
um „orkutanki.“ Stofnfrumur gætu
einnig verið teknar úr fósturvís-
um til þessa. Ennþá á þó eftir að
rækta lifur sem er nægilega stór fyrir
mannslíkamann og þá á eftir að at-
huga hvort hún geti starfað í líkama.
Pedro Baptista var einn af þeim sem
vann að verkefninu: „Við vonumst til
að geta grætt líffæri í sjúklinga innan
skamms, og við vonum auðvitað líka
að líffærin haldi áfram að starfa og
þróast með þeim sem þiggja þau.“
VÍSINDAMENN
RÆKTA LIFUR
bjÖrn teitsson
blaðamaður skrifar: bjorn@dv.is
Takist vísinda-mönnunum að
rækta lifur sem hægt
væri að græða í sjúk-
linga myndi það verða
bylting í læknavísind-
um.
Vísindamönnum í Wake Forest-háskól-
anum í Bandaríkjunum hefur tekist að
rækta lifur. Takist að græða ræktaða lifur
í sjúklinga gæti það orðið bylting í lækna-
vísindum en árlega deyja sjúklingar í þús-
undatali vegna lifrarsjúkdóma. Framboð
af nothæfum lifrum er enn allt of lítið.
Lést úr
krabbameini
Leikkonan Denise Borino-Qu-
inn, sem lék konu mafíósans
Johnny Sacramoni í vinsælu
sjónvarpsþáttunum um Sopr-
ano-fjölskylduna, lést síðast-
liðinn miðvikudag af völdum
krabbameins.
Denise sagðist, í viðtali árið
2000, hafa fengið hlutverk-
ið eftir að hafa farið í opna
áheyrnarprufu með vinkonu
sinni sem var að falast eftir
hlutverki í þáttunum, en áður
hafði Denise starfað sem ritari
á lögfræðistofu.
Sjónvarpsþáttaröðin um
Sopranos-fjölskylduna naut
gífurlegra vinsælda úti um all-
an heim og hlaut meðal annars
Golden Globe-verðlaun sem
besta dramaþáttaröðin árið
2000.
Lifrarígræðsla Erfittgetur
reynstaðfinnaheilbrigðalifur.
Framkvæmdastjórnin Bretartelja
ESBfaraóvarlegameðpeninga.