Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Page 19
Fjöldauppsagn-
ir á Vestfjörðum
vekja ugg. Sex-
tíu manns enda
mikill fjöldi á svo
fámennu svæði.
Fróðlegt er að
skoða hvers
konar störf eru
að glatast. Ann-
ars vegar störf í
fiskvinnslu, hins
vegar í jarðvegs-
vinnu. Tilvera
strandbyggða, ekki bara á Vest-
fjörðum, heldur allt í kringum
landið, byggist á gjöfulum fiski-
miðum í nánd. Svo hefur verið frá
ómunatíð og veiðirétturinn aldrei
rengdur fyrr en með framsalinu
sem opnað var á 1990. Fiskvernd
og hagkvæmni voru markmið
kvótakerfisins, útkoman hins vegar
á annan veg.
Okkar helzti veiðifiskur, þorsk-
urinn, er nú veiddur í þriðjungs-
magni miðað við það sem áður
var, skuldir sjávarútvegsins 500
milljarðar. Og íbúar sjávarþorp-
anna geta sjálfir vitnað um veðhæfi
eigna sinna fyrr og nú. Árangur eða
réttara sagt árangursleysi þessa
kerfis er ekki lengur álitamál held-
ur nöturleg staðreynd.
Viðgangur og fylgispekt margra
við þetta kerfi, ekki sízt íbúa svæð-
anna sem verst eru úti, er sér-
kennileg. En hún skýrist af því að
þorri fólksins hefur komið nærri
veiðum og fiskvinnslu. Margir tek-
ið þátt í kvótakaupum, kvótasölu,
leigt, braskað eða þekkt náið ein-
hverja sem tekið hafa þátt í slíku.
Í hnotskurn má segja að um sé að
ræða stórfjölskyldu og flestir með-
virkir, annaðhvort vegna beinna
hagsmuna, óbeinna eða fortíð-
ar. Innan þessa ramma eru mátt-
arstólpar þessara litlu byggðarlaga
sem tengja sig síðan stjórnsýslunni
og öfugt. Þannig verður til sam-
félagslegur skjólveggur sem stýr-
ir umræðum og veitir skjól þeim
sem undir gangast. Þetta skýrir
samhljóða boðskap sveitarstjórn-
armanna og útgerðarmanna í flest-
um þessum plássum, boðskap sem
gengur þvert á hagsmuni og sjálfs-
björg fólksins sem þarna býr. Og til
að moka yfir þetta samkrull hags-
munaaðila og sveitarstjórna er
jarðvegsvinnan óspart notuð.
Samgöngumálum er oft hamp-
að þegar heilla skal kjósendur. All-
ir vilja göng, brýr og vegi. Og Vest-
firðingar hafa ekki farið varhluta af
þessu. Um það leyti sem ég kom
vestur fyrir 12 árum voru nýlega
opnuð göng sem tengdu Suðureyri,
Flateyri og Þingeyri við Ísafjörð og
síðan búið að malbika alla leiðina
til Reykjavíkur, Mjóifjörður brúað-
ur og þegar ég kvaddi opnuð Bol-
ungarvíkurgöng. Samantekið eru
þetta framkvæmdir fyrir á annan
tug milljarða. Vitaskuld fagna allir
samgöngubótum en slagorðin um
aukin atvinnutækifæri og aðflutn-
inga hafa reynst skrum. Þrátt fyrir
allar þessar framkvæmdir er raun-
in ekki sú, sorglegt en satt. Samt
tefla sveitarstjórnarmenn þessu
enn fram að samgöngur séu algert
forgangsatriði fyrir búsetu.
Vilji landsbyggðin einhvern
framgang er nauðsynlegt að leita
sjálfsbjargar og aukins sjálfsfor-
ræðis. Allt í kringum landið eru
bestu verstöðvar í heimi og þegar
þorpin fara að byggja á auðlindum
sínum en ekki ölmusu annars stað-
ar frá er þeim borgið. Forgangsröð-
in á að vera atvinna sem kallar á
göng en ekki göng sem kalla á at-
vinnu.
HUGRÚN HJALTADÓTTIR er í Bríeti,
félagi ungra femínista, sem í samstarfi
við Skotturnar strengdu rauðan þráð á
milli Hæstaréttar og Héraðsdóms á
kvennafrídaginn. Drifkraftur Hugrúnar
er vonin um réttlátt samfélag og hún
nýtur þess að prjóna og horfa á
sjónvarpið á meðan.
ÉG ER ALLT
SEM ÉG SEGI
1 SOPRANO-LEIKKONA DEYR Leikkonan Denise Borino-Quinn lést af
völdum krabbameins í síðustu viku.
2 HRISTI 3 MÁNAÐA BARN TIL DAUÐA ÞVÍ ÞAÐ TRUFLAÐI
FARMVILLE-LEIK Á FACEBOOK 22
ára kona í Jacksonville í Flórída hefur
játað að hafa hrist 3 mánaða son sinn
til dauða.
3 FIMM LÍKAMSÁRÁSIR OG MIKIL ÖLVUN Í REYKJAVÍK Lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að
snúast á laugardagskvöldið.
4 ÁSMUNDUR KALLAÐI STEIN-GRÍM J. „KERLINGU“ Ásmundur
Friðriksson, bæjarstjóri í Garði, kallaði
Steingrím J. Sigfússon, fjármálaráð-
herra, kerlingu
5 RJÚPNASKYTTUR FUNDUST HEILAR Á HÚFI Í NÓTT Tvær týndar
rjúpnaskyttur skyldu eftir nákvæma
ferðaáætlun svo auðvelt var að finna
þær.
6 NAFN ÍSLENDINGSINS SEM LÉST Í NOREGI Kjartan Björnsson lést í
Noregi þegar hann varð fyrir lest.
7 STÆRSTI JARÐSKJÁLFTINN TIL ÞESSA Í NÓTT UNDIR BLÖNDU-
LÓNI Stór jarðskjálfti varð undir
Blöndulóni aðfaranótt sunnudags.
MEST LESIÐ á dv.is MYNDIN
Hver er konan? „Ég er allt sem ég segi
og líka þegar ég þegi.“
Hvað drífur þig áfram? „Vonin um
réttlátt samfélag.“
Hvar ertu uppalin? „Í Uppsölum í Sví-
þjóð og í Laugarneshverfinu, en þangað
er ég aftur komin. 105 er alveg nýja 101.“
Hver eru áhugamál þín? „Elda mat,
borða mat og gefa fólki að borða. Prjóna
og horfa á sjónvarpið á sama tíma.
Leika mér við Huldu dóttir mína og allt
femínista- og kynja-eitthvað.“
Afrek vikunnar? „Rauði þráðurinn milli
Hæstaréttar og Héraðsdóms Reykjavíkur
á kvennafrídaginn.“
Fyrir hvað stóð rauði þráðurinn?
„Rauði þráðurinn í lífi margra kvenna
sem verða fyrir kynferðislegu ofbeldi er
sektarkennd og skömm. Mér finnst það
skjóta skökku við því þær hafa ekkert gert
af sér, það var ráðist á þær. Ofbeldis-
mennirnir virðast þó oft sleppa. Þetta er
eitthvert menningarlegt fyrirbæri sem við
verðum að breyta. Með því að draga þráð-
inn fram í dagsljósið óskuðum við þess
að dómskerfið myndi varpa ábyrgðinni,
sektarkenndinni og skömminni þangað
sem hún á heima, á herðar þeirra sem
brotin fremja.“
Hvað verður gert við rauða trefilinn
sem var notaður? „Við seldum mest
af honum á kvennafrídaginn en það eru
enn nokkrir eftir. Nú stendur til að selja
nokkra á uppboðsvefnum selt.is en allur
peningurinn rennur til Stígamóta. Ég hvet
alla sem vilja eignast hlut í honum til þess
að fylgjast með!“
Áttu þér einhverja fyrirmynd? „Já,
hvar á ég að byrja? Vilborg Sigurðardóttir
og hinar rauðsokkurnar, Ingibjörg Sólrún,
Kristín Ástgeirsdóttir og hinar kvenna-
listakonurnar, Þorgerður Einarsdóttir
og hinar fræðikonurnar. Vigdís Finn-
bogadóttir, Jóhanna Sigurðardóttir,
Kolbrún Halldórsdóttir, Rúnurnar báðar í
Stígmótum. Takk fyrir mig, þetta er alveg
að verða sú veröld sem ég vil.“
MAÐUR DAGSINS
„Ég horfi ekki á handbolta.“
KATLA LIND SIGURÐARDÓTTIR
15 ÁRA
„Nei, ég hef trú á þeim. Þeir fara áfram.“
NIKOLA MILANSON
16 ÁRA
„Ég held að það sé of snemmt að segja
til um það.“
SIGURÐUR MARTEINSSON
22 ÁRA
„Nei, alls ekki. Ég hef mikla trú á þeim
og þeir eiga eftir að gera það gott.“
SOPHIE MARA
37 ÁRA
„Nei, þetta eru fínir strákar. Þeim á eftir
að ganga ágætlega í framhaldinu.“
STEFNI GUNNARSSON
24 ÁRA
ER ÍSLENSKA LANDSLIÐIÐ Í HANDBOLTA BÚIÐ AÐ MISSA ÞAÐ?
DÓMSTÓLL GÖTUNNAR
MÁNUDAGUR 1. nóvember 2010 UMRÆÐA 19
Fjöldauppsagnir í göngunum
Okkar helzti veiðifiskur,
þorskurinn, er nú veidd-
ur í þriðjungsmagni
miðað við það sem áður
var, skuldir sjávarút-
vegsins 500 milljarðar.
KJALLARI
Á valdastólum Runólfur Ágústsson, formaður stjórnar Vinnumálastofnunar, og Guðbjartur Hannesson félagsmálaráðherra sátu
ársfund Vinnumálastofnunar á föstudaginn. MYND EGGERT JÓHANNESSON
LÝÐUR
ÁRNASON
kvikmyndagerðarmaður skrifar