Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2010, Page 29
mánudagur 1. nóvember 2010 sviðsljós 29
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Söngkonan Mariah Carey á von á barni með eiginmanni sínum, Nick Cannon. Hún er komin
sex mánuði á leið og vita þau hjónin
ekki hvort von er á stelpu eða strák.
Mariah missti fóstur fyrir tveim-
ur árum og sagði hún í viðtali fyrir
skömmu að það hefði verið það erf-
iðasta sem hún hefði nokkurn tíma
gengið í gegnum. Mariah og Nick
bíða nú barnsins með mikilli eftir-
væntingu en þau giftu sig í apríl 2008
og segjast vera búin að plana barn-
eignir síðan þá. Nafnið á barninu er
víst löngu ákveðið en það var gert á
fyrsta stefnumóti þeirra hjúa.
Í skýjunum
með óléttuna
Hamingja Mariah á von á barni í janúar.
Stjörnur
Í Stuði!
Kate Hudson hélt hrekkjavökupartí:
a ðalhrekkjavökupartí-ið í Hollywood var heima hjá Kate Hud-son á laugardaginn.
Þangað mætti fjöldi frægs fólks:
Nicole Richie og Joel Madden,
Amanda Seyfried, David Spade,
Rachel Zoe, Gwen Stefani og
kærasti Goldie Hawn, stjúpfaðir
Kate, Kurt Russel.
Af myndunum að dæma var
mikið stuð á fólki.
Lifði á 300
Kaloríum
Portia de rossi talar um baráttuna við anorexíu:
L eikkonan Portia de Rossi talaði um baráttuna sem hún háði við anor-exíu í þætti Opruh Winfrey á dög-unum. Sagði Portia að hún hefði
lifað á aðeins 300 kaloríum á dag á tímabili
og hún hafi verið stolt af viljastyrknum sem
hún bjó yfir til að borða svo lítið. Leikkonan
sem er samkynhneigð og er gift þáttastjórn-
andanum Ellen DeGeneres sagði að stór
þáttur af anorexíunni hafi tengst kvíðanum
sem hún upplifði yfir að vera lesbía.