Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Page 10
10 fréttir 12. nóvember 2010 föstudagur
Áfram í
varðhaldi
Karlmaður á þrítugsaldri hefur
verið úrskurðaður í áframhaldandi
gæsluvarðhald til 25. nóvember
að kröfu lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu. Maðurinn, sem er
erlendur ríkisborgari og var hand-
tekinn um miðja síðustu viku, er
grunaður um aðild að máli sem
snýr að ætlaðri framleiðslu fíkni-
efna, sölu þeirra og dreifingu. Fjór-
ir aðrir karlar, sem sátu í gæslu-
varðhaldi frá 21. október vegna
rannsóknar sama máls, hafa verið
úrskurðaðir í farbann til 8. desem-
ber. Lagt var hald á amfetamín og
kókaín og um 2 kíló af marijúana
auk sex milljóna króna í reiðufé í
tengslum við rannsóknina.
Sunnlendingar
mótmæltu
Fjöldi manns kom saman á Aust-
urvelli á fimmtudag til að mót-
mæla fyrirhuguðum niðurskurði
á framlögum til heilbrigðismála.
Fólkið kom af Suðurlandi og
hafði meðferðis undirskriftalista
með yfir 10 þúsund undirskrift-
um og afhenti fimm ráðherrum.
Það voru Samtök sveitarfélaga
sem efndu til þessara friðsælu
mótmæla sem voru skipulögð
með nokkurra vikna fyrirvara.
Þess er krafist að íbúar á Suður-
landi fái notið sömu mannrétt-
inda og aðrir landsmenn.
Smokkurinn er
sjálfsögð skynsemi
Smokkurinn má ekki vera feimn-
ismál, segir í fréttatilkynningu frá
nokkrum félagasamtökum, en þar
er sagt frá nýrri smokkaherferð. Yfir
hundrað þjóðþekktir Íslendingar
hafa ákveðið að taka þátt í herferð-
inni sem verður í anda þeirrar her-
ferðar sem gerð var árið 1986. Nú er
tíðni klamydíu hæst á Íslandi af ná-
grannalöndum okkar og hafa sextán
Íslendingar smitast af HIV það sem
af er ári. Það eru félagasamtökin
Smokkur – sjálfsögð skynsemi, Ást-
ráður, félag læknanema og Íslenska
auglýsingastofan sem standa fyrir
herferðinni.
Bankarnir ráða
við niðurfærslu
„Samkvæmt fulltrúa í sérfræðinga-
hópnum fengu bankarnir 420 millj-
arða afslátt af lánasöfnum heimil-
anna við yfirfærsluna milli gömlu og
nýju bankanna. Því er ljóst að bank-
arnir ráða vel við sinn hlut og enn er
töluvert svigrúm til að koma til móts
við fólk sem á í meiri vanda en svo
að almenn leiðrétting hjálpi þeim,“
segir í tilkynningu sem þingmenn
Hreyfingarinnar hafa sent frá sér
vegna niðurstöðu sérfræðingahóps
um skuldavanda heimilanna. Það
er einnig mat þingmanna Hreyfing-
arinnar að svigrúm lífeyrissjóðanna
sé einnig nægilegt og að leiðrétting
lána sé sú aðgerð sem skynsamleg-
ast sé að ráðast í samhliða sértækum
úrræðum fyrir þá sem almenn leið-
rétting dugar ekki til.
Sophia Hansen var dæmd í tólf
mánaða fangelsi, skilorðsbundið til
þriggja ára, í Hæstarétti á fimmtu-
dag. Var hún dæmd fyrir að bera
rangar sakir á Sigurð Pétur Harð-
arson. Deilt var um undirskriftir á
þremur viðskiptabréfum en Sophia
taldi að nafn sitt hefði verið falsað á
þau. Hún fól lögfræðingi sínum að
kæra málið til lögreglu árið 2007. Við
yfirheyrslu hjá lögreglu lýsti Sophia
því að hún grunaði Sigurð Pétur um
að hafa falsað nafn hennar en það á
að hafa leitt til þess að hann var rang-
lega sakaður um skjalafals.
Upphæð viðskiptabréfanna
nam rétt rúmum fjörutíu og tveim-
ur milljónum króna. Sigurður Pétur
var hreinsaður af sök eftir að rann-
sókn sænskra rithandarsérfræðinga
leiddi í ljós að Sophia hefði senni-
lega skrifað sjálf undir viðskiptabréf-
in. Í febrúar á þessu ári var Sophia
dæmd í sex mánaða skilorðsbund-
ið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavík-
ur. Í viðtali við DV í október sagði
Sophia sína hlið á málinu. „Sigurð-
ur höfðaði mál í héraðsdómi til þess
að fá skuldabréf, sem hann segir mig
hafi skrifað undir, borguð. Á þessum
skuldabréfum er Rúna yngri dótt-
ir mín vottur, en enginn hefur hitt
dætur mínar í tuttugu ár nema ég og
yngsta systir mín. Þær tala hvorki né
skilja íslensku og ég veit ekki hvernig
Sigurður Pétur hefur átt að komast í
samband við þær.“
Auk þess að fá tólf mánaða skil-
orðsbundinn fangelsisdóm var
Soph iu gert að greiða allan sakar-
kostnað málsins, samtals 251 þús-
und krónur. birgir@dv.is
Sophia Hansen hafði Sigurð Pétur Harðarson fyrir rangri sök:
Dómurinn þyngdur
Dómurinn þyngdur Hæstiréttur
Íslands þyngdi dóm Héraðsdóms
Reykjavíkur yfir Sophiu Hansen úr
sex mánuðum í tólf mánuði.
mynD Sigtryggur ari
Þorgils Óttar mathiesen tók sér rúmlega 22 milljónir króna í arð út úr eignarhalds-
félagi sem hefur verið úrskurðað gjaldþrota. Í ársreikningnum þar sem greint er frá
arðgreiðslunni er eiginfjárstaða neikvæð um hálfan milljarð króna. Lánið sem er af-
skrifað var veitt þegar Þorgils Óttar hætti hjá Sjóvá árið 2005 og var sérlega hagstætt.
Þorgils Óttar Mathiesen, fjárfest-
ir og fyrrverandi landsliðsfyrirliði
í handknattleik, tók sér rúmar 22
milljónir króna í arð í hitteðfyrra út
úr eignarhaldsfélagi sínu C22 ehf.
Þetta kemur fram í ársreikningi fé-
lagsins fyrir árið 2008. Félagið er
gjaldþrota í dag og er skiptum lokið
á búinu. Nánast ekkert fékkst upp
í nærri 600 milljóna króna skuld-
ir félagsins og þarf viðskiptabanki
C22 að afskrifa kröfuna á hendur
því.
Skuldin við bankann var til-
komin þannig að Þorgils Óttar fékk
tæplega 600 milljóna króna kúlu-
lán frá Íslandsbanka til hlutabréfa-
kaupa þegar hann lét af störfum
hjá tryggingafélaginu Sjóvá í árslok
2005. Það kom fram í starfsloka-
samningi Þorgils Óttars við Sjóvá
og í öðrum gögnum sem DV hefur
undir höndum, og sagði blaðið frá
þeim anga málsins í ágúst.
Lánið frá Íslandsbanka notaði
Þorgils Óttar til að kaupa fjörutíu
prósenta hlut í fasteignafélaginu
Klasa af Íslandsbanka og Sjóvá.
Lánið var skilyrt á þann hátt að
Þorgils Óttar varð að nota það til
að kaupa hlutabréfin í Klasa en
hann varð jafnframt forstjóri fé-
lagsins í kjölfarið starfslokanna
hjá Sjóvá.
Líkt og DV greindi frá í febrú-
ar bað Þorgils Óttar um afskriftir
á skuldum félagsins í fyrra og kom
það fram í ársreikningi fyrir árið
2008. Þar segir: „Félagið hefur því
farið fram á það við lánveitanda
sinn að hann felli niður skuldir
þess eða að öðrum kosti yfirtaki
það til að komast hjá því að félagið
fari í þrot.“
Hærri arður greiddur út
Á sama tíma og þessi beiðni lá fyrir
tók Þorgils Óttar sér umræddar 22
milljónir króna í arð vegna hagn-
aðar félagsins árið 2007. Það sem
hefur gerst eftir þetta er hins veg-
ar að félagið er orðið gjaldþrota
en það lá fyllilega ljóst fyrir þegar
Þorgils Óttar tók sér arðinn út úr
félaginu, líkt og kom fram í reikn-
ingnum. Þorgils Óttar hélt hins
vegar þessum arði eftir, samkvæmt
þessu, þrátt fyrir ógjaldfærni fé-
lagsins.
Arðurinn sem Þorgils Óttar tók
sér út úr félaginu var sömuleiðis
hærri en sá arður sem félagið tók
við vegna rekstrarársins 2007. Mót-
tekinn arður nam tæpum 18 millj-
ónum króna en útgreiddur arð-
ur nam 22 milljónum líkt og áður
segir. Félagið hafði skilað hagnaði
upp á 120 milljónir árið 2007 og
arðgreiðslan tilkomin út af þessum
hagnaði. Tap félagsins árið 2008,
árið sem arðurinn var greiddur
út, nam hins vegar meira en 1.700
milljónum króna og var eigið féð
neikvætt um hálfan milljarð.
Kröfuhafar verða af fénu
Kröfuhafar Þorgils Óttars og C22
verða því af þeim fjármunum sem
hann greiddi sér út fyrir árið 2007.
Í stað þess að fá nærri 25 milljónir
króna upp í kröfur sínar fær bank-
inn tæpar tvær milljónir króna út
af gjaldþroti félagsins.
Þorgils Óttar heldur því eft-
ir tíu sinnum hærri upphæð en
kröfuhafar félags hans fá vegna
hagstæðs kúluláns sem honum
var veitt við starfslokin hjá Sjóvá.
Lánið var hagstætt fyrir Þorgils
Óttar í þeim skilningi að vextirnir
voru lágir og ekkert lántökugjald
var tekið vegna þess. Í gögnun-
um sem DV greindi frá fyrr árinu
kom þetta ljóslega fram: „ÍSB lán-
ar hlutfélaginu [sic] 85% af kaup-
verði, með „hagstæðum“ vaxta-
kjörum (100–130 punkta álag á
libor) og engri lántökuþóknun,
stilla þarf upp lánssamningi (BÁ/
GÓ).“ Greiddir voru vextir af lán-
inu á þeim tíma sem félag Þorgils
Óttar hélt bréfunum sem hann
keypti fyrir það en það voru vext-
ir af fjárfestingu sem honum hafði
verið rétt á silfurfati ásamt fjár-
mögnun.
Þorgils Óttar græddi því tals-
vert meira á viðskiptunum við Ís-
landsbanka en hann tapaði þrátt
fyrir gjaldþrotið og umræddar 600
milljóna afskriftir.
ingi f. vilHjálmSSon
fréttastjóri skrifar: ingi@dv.is
Félagið hefur því farið fram
á það við lánveitanda
sinn að hann felli nið-
ur skuldir þess eða að
öðrum kosti yfirtaki
það til að komast hjá
því að félagið fari í
þrot.
TÓK SÉR ARÐ ÚR NÆR
GJALDÞROTA FÉLAGI
22 milljóna arður Þorgils
Óttar tók sér 22 milljóna króna
arð út úr félagi sem hefur verið
úrskurðað gjaldþrota. Afskrifa
þarf 600 milljónir af skuldum
félagsins. Bjarni Ármannsson,
bankastjóri Glitnis, kom að
því að veita Þorgils Óttari
„hagstæðu“ lánafyrirgreiðsl-
una sem fjárfestingar félagsins
byggðu á. Íslandsbanki þarf
að afskrifa lánið.