Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Page 12
12 fréttir 12. nóvember 2010 föstudagur
Fulltrúar ríkisins og fjárfestingarfé-
lagsins Giftar mótmæltu því í Héraðs-
dómi Reykjavíkur síðastliðinn mið-
vikudag að þurfa að vitna fyrir dómi
um mál sem tengjast einkavæðingu
Búnaðarbankans árið 2002.
Óskar Thorarensen, lögfræðingur
hjá embætti ríkislögmanns, segir að
málið hafi verið tekið fyrir með stutt-
um fyrirvara. „Beðið var um frest til
að afla gagna og svara beiðinni um
að vitna fyrir rétti. Málið felst í því að
ríkið gæti hugsanlega orðið gagnaðili
í skaðabótamáli og fékkst vikufrestur
til að taka afstöðu til þess,“ segir Óskar.
Gift fjárfestingarfélag hét áður
Eignarhaldsfélag Samvinnutrygg-
inga. Í september 2008, skömmu fyr-
ir bankahrun, fékk Gift 167 milljónir
evra að láni hjá Kaupþingi, eða sem
svarar um 25 milljörðum króna. Óljóst
er um eignir félagsins en það skuld-
aði um 45 milljarða króna við banka-
hrunið og virðist hafa tapað öllu eigin
fé sínu. Fulltrúi Giftar andmælti vænt-
anlegri vitnaleiðslu sem ætlað er að
leiða í ljós sannleikann um sölu Bún-
aðarbankans.
Lækkun milli mánaða
Aðdragandi vitnamálsins er sá að lög-
menn Þorsteins Ingasonar, fyrrver-
andi útgerðarmanns, fóru nýverið
fram á að sextán einstaklingar yrðu
kallaðir til vitnis hjá Héraðsdómi
Reykjavíkur vegna kaupa S-hópsins
á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum í
ársbyrjun 2003. Vitnamálið er rekið til
þess að draga fram sannanir fyrir því
að við einkavæðingu Búnaðarbanka
Íslands hafi S-hópnum verið veittur
um 500 milljóna króna afsláttur frá
upphaflegu kaupverði vegna yfirvof-
andi málaferla og skaðabótakrafna
Þorsteins á hendur bankanum. Af-
slátturinn var væntanlega settur inn
á afskriftareikning og ætlaður til þess
að mæta mögulegum skaðabótakröf-
um Þorsteins. Þetta þurfa lögmenn
Þorsteins að sýna fram á og kalla eftir
vitna máli af þeim sökum.
Upphaflegt söluverð á 46 prósenta
hlut ríkisins í Búnaðarbankanum var
ákveðið liðlega 11,9 milljarðar króna
á þágildandi verðlagi. Þegar upp var
staðið og samningar undirritaðir í jan-
úar 2003 var kaupverðið komið niður í
11,4 milljarða króna.
Bréf Finns
Skýringin á þessari lækkun er enn á
huldu. Finnur Ingólfsson, sem var
í forystu S-hópsins á þessum tíma,
gaf þó vísbendingar um það í bréfi
til Þorsteins Ingasonar í fyrra hvern-
ig á lækkuninni gæti staðið. Þar lýsir
Finnur meðal annars fundi væntan-
legra kaupenda með fulltrúum fram-
kvæmdanefndar um einkavæðingu
með svofelldum hætti: „Á þeim fundi
var rætt um að ríkið sem seljandi
bankans bæri ábyrgð á útlánatapi
vegna lána til kjúklingaframleiðenda
og svo skaðabótakröfu þinni á hend-
ur bankanum. Um þá kröfu var sér-
staklega fjallað í áreiðanleikakönnun
þeirri sem vitnað er í. Ef undirritaður
man rétt þá var PwC (PriceWater-
houseCoopers) beðið um það í tví-
gang að fara yfir kröfu þína og leggja
á hana mat. Það var gert vegna þess að
hún var talin geta fallið á bankann og
þar af leiðandi haft áhrif á verðmæti
hans. Það var alveg ljóst að áhyggj-
ur kaupanda af þessum tveimur mál-
um voru miklar þegar kaupin áttu sér
stað. Eins og fram kemur í áreiðan-
leikakönnuninni og þú vitnar til í bréfi
þínu frá 24. apríl sl. (2009) var hér um
verulega háar upphæðir að ræða sem
gætu haft mikil áhrif á verðmæti bank-
ans,“ segir orðrétt í bréfi Finns til Þor-
steins.
Seljendur svari spurningum
Síðar segir Finnur í bréfinu að fram-
angreind mál hafi verið með þeim
síðustu álitamálum sem rædd voru
við söluna á hlut ríkisins í Búnaðar-
bankanum. „Hvort seljandi tók tillit til
þessara mála við ákvörðun á söluverði
bankans verða fulltrúar seljenda að
svara fyrir. Seljandi lagði áherslu á að
ganga frá endanlegu kaupverði við
undirskrift samninga en ekki bíða og
sjá til hvað yrði um þessar kröfur og
taka þá kaupverðið til endurskoðun-
ar líkt og gert var við söluna á Lands-
banka Íslands hf.“
Fleira bendir í sömu átt og Finnur
ýjar að. Frá því gengið var frá frum-
samkomulagi og þar til endanleg-
ur kaupsamningur var undirritaður
í janúar 2003 hafði hlutfall greiðslu í
dollurum verið hækkað á sama tíma
og krónan hafði hækkað umtalsvert
gagnvart dollar.
Fulltrúar ríkisins í einkavæðing-
arnefnd á þessum tíma og fulltrúar
S-hópsins í Eglu hf., Samvinnulífeyr-
issjóðnum, Eignarhaldsfélagi Sam-
vinnutrygginga (nú Gift) og fleiri fé-
laga, hafa verið beðnir um að vitna
eiðsvarnir fyrir Héraðsdómi Reykja-
víkur um kaupin á bankanum. Í þeim
hópi eru menn eins og Ólafur Ólafs-
son, Finnur Ingólfsson, Kristinn Hall-
grímsson, Axel Gíslason, Baldur Guð-
laugsson, Jón Sveinsson, Guðmundur
Ólason og Skarphéðinn Berg Steinars-
son. Í þessum hópi er einnig Knútur
Þórhallsson sem situr nú í skilanefnd
Kaupþings en var endurskoðandi
Búnaðarbankans þegar hann var
seldur.
Vitnamálið
Athyglisvert er að aðeins fulltrúi rík-
isins og Fjárfestingarfélagsins Gift-
ar mættu í dómssal síðastliðinn mið-
vikudag og andmæltu því að vera
kallaðir fyrir dóm til þess að leiða í ljós
sannleikann um söluna á Búnaðar-
bankanum. Í næsu viku verður mál-
inu fram haldið í réttarsal og þá skýr-
ist hvort framangreindir einstaklingar
verða kvaddir til vitnaleiðslu. Nið-
urstöður hennar geta reynst Þor-
steini mikilvægar þegar hann höfðar
á ný skaðabótamál, sem að líkindum
mun beinast gegn Arion banka, arf-
taka Búnaðarbankans og Kaupþings.
Ekki er þó loku fyrir það skotið að Þor-
steinn geti krafið ríkið eða S-hópinn
um skaðabætur.
Lögvarðir hagsmunir Þorsteins
Í lögum um meðferð einkamála er
heimild til að leita eftir vitnaleiðslu
fyrir dómi til þess að sanna atvik, þótt
málsaðili hafi ekki gert kröfu vegna
atviksins í dómsmáli. Þetta er þeim
skilyrðum háð að viðkomandi að-
ili, í þessu tilviki Þorsteinn Ingason,
hafi lögvarða hagsmuni af því að leita
sönnunargagna. Hins vegar þarf vit-
namálið að geta ráðið einhverju um
það hvort viðkomandi málsaðili láti
verða af málshöfðun vegna viðkom-
andi atvika.
Lögmenn Þosteins Ingasonar telja
augljóst að hann hafi lögvarða hags-
muni af því að leiða sannleikann í
ljós um söluna á Búnaðarbankan-
um. Jafnframt eru möguleikar á því
að vitnaleiðslurnar geti ráðið miklu
um skaðabótakröfur Þorsteins og þá á
hendur hverjum.
Fyrir Alþingi liggur nú tillaga frá 15
þingmönnum stjórnarflokkanna um
að hefja rannsókn á einkavæðingu
bankanna, en margir telja að ræt-
ur bankahrunsins liggi að einhverju
leyti í einkavæðingunni. Einkavæð-
ingin var ekki rannsökuð sérstaklega
af rannsóknarnefnd Alþingis. Þing-
mannanefnd Atla Gíslasonar náði
ekki samkomulagi um slíka rannsókn
en ljóst er að meirihlutavilji er á þingi
fyrir rannsókn á einkavæðingu bank-
anna. Það sýnist því vera þversagnar-
kennt ef fulltrúar ríkisvaldsins neita að
bera vitni um einkavæðingu Búnaðar-
bankans á sama tíma og Alþingi er í
þann mund að samþykkja rannsókn á
þessari sömu einkavæðingu.
Ríkið og gift
vilja ekki vitna
Fulltrúi fjárfestingarfélagsins Giftar og fulltrúi ríkisins andmæltu því hjá dómara í vikunni að þurfa að
bera vitni um söluna á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum árið 2003. Vitnamálið er höfðað til þess að leiða
fram sannleikann um söluna en það getur haft afgerandi áhrif á hundraða milljóna króna skaðabótakröfur
Þorsteins Ingasonar, fyrrverandi útgerðarmanns, gegn Arion banka, ríkinu eða S-hópnum.
Það var al-veg ljóst að
áhyggjur kaupanda af
þessum tveimur mál-
um voru miklar þegar
kaupin áttu sér stað.
jóhann haukSSon
blaðamaður skrifar: johannh@dv.is
Búnaðarbankinn S-hópurinnundir
handleiðsluFinnsIngólfssonar,Ólafs
Ólafssonar,KristinsHallgrímssonar
ogfleirikeyptibankannániðursettu
verðiíjanúar2003.
Bréf til Þorsteins FinnurIngólfsson
skrifaðiÞorsteinibréfífyrraþarsemhann
dregurframmögulegarástæðurþessað
kaupverðBúnaðarbankansvarlækkað.
Skaðabótakröfur Sannleikurinnum
sölunaáBúnaðarbankanumgætistutt
hundruðmilljónakrónaskaðabótakröf-
urÞorsteinsIngasonargegnArion
banka,ríkinueðaS-hópnum.