Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Síða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Síða 13
föstudagur 12. nóvember 2010 fréttir 13 „Við förum fram á hjálp frá íslensk- um stjórnvöldum. Við höfum sent beiðni á þingmenn, ráðherra, að- stoðarmenn ráðherra, ráðherra í Danmörku og sendiráð Íslendinga í Danmörku en enginn virðist geta gert neitt. Við getum ekki meira, það er bara þannig. Fjölskyldan er alveg búin á því,“ segir Ragnheiður Rafns- dóttir, systir Hjördísar Aðalheiðar- dóttur sem flúði með dætur sínar hingað til lands í október eftir að hafa fengið nóg af því sem hún segir vera ofbeldi og ofsóknir barnsföður síns. DV.is sagði frá því á fimmtudag að dóms- og mannréttindaráðuneytið hafi falið Valborgu Þ. Snævarr hæsta- réttarlögmanni að gæta réttar Kims Grams Laursens, sem krefst þess að fá þrjár dætur sínar og Hjördís- ar send til Danmerkur. Hjördís sak- ar föðurinn um andlegt og líkamlegt ofbeldi sem og vanrækslu. Hjördís og ættingjar hennar eru ósátt við að dóms- og mannréttindaráðuneytið skuli ganga svo hart fram sem raun ber vitni og ætli að óathuguðu máli að taka af henni börnin og afhenda þau ofbeldisfullum föður þeirra. Aðgerðum hótað Í bréfi sem Valborg hefur sent Hjör- dísi er vísað til Haag-samnings- ins um brottnám barna og flutning þeirra milli landa og þess krafist að lögum verði framfylgt og stelpurnar, Emma, Matilda og Mia verði sendar til Danmerkur. Lögfræðingur dóms- málaráðuneytisins skorar á Hjör- dísi að fara með stelpurnar til síns heima í Danmörku við fyrsta mögu- lega tækifæri. Í bréfi frá lögfræð- ingnum var þess óskað að hún yrði við þessum óskum fyrir klukkan tvö á fimmtudag, ellegar yrði „gripið til frekari aðgerða og brottför barnanna til Danmerkur undirbúin af hálfu dómsmálaráðuneytisins.“ Þegar DV hafði samband við Hjördísi í gærkvöldi var hún ásamt systur sinni og dætrum á Höfn í Hornafirði þar sem þær eru nú bú- settar. Hún sagðist ekki ætla að verða við kröfu dómsmálaráðuneytisins. Hjördís hefur verið boðuð í réttarsal í Kolding þann 15. nóvember næst- komandi. „Hún er auðvitað kvíðin og upplifir óöryggi. Hún er hrædd um að verða send út aftur,“ segir Ragn- heiður systir hennar. Allt útlit er fyrir að hún og dætur hennar verði sendar út á næstunni. Skilin eftir auralaus Ragnheiður segir mikinn mun á því hvernig stelpunum líði núna og þegar þær voru úti í Danmörku. „Maður sér það á því hvernig þær bera sig. Þær eru komnar í skóla og systir mín hefur sótt um vinnu hér. Bæjarfélagið stendur 100 prósent á bak við hana og það er alveg frá- bært,“ segir Ragnheiður. Þá segir hún fjölskylduna lengi hafa stutt við bak- ið á henni í þessum hremmingum en þau trúi því ekki að íslensk stjórn- völd geti ekki gripið inn í. Þá seg- ir hún lögfræðing þeirra í raun lítið geta gert þar sem málið sé í lögsögu Danmerkur. Hjördís segist hafa farið frá föður barnanna í mars eftir að hann lét sig hverfa af heimilinu í tvær vikur. Þetta hafi í raun fyllt mælinn en fram að því hafi hann ver- ið búinn að beita hana andlegu sem og líkamlegu ofbeldi í nokk- urn tíma. „Hann skildi okkur eft- ir peningalaus en sem betur fer var mamma hjá okk- ur svo að hún gat keypt í matinn.“ Hjördís hefur ver- ið heimavinnandi og hafði hún því enga peninga þeg- ar Kim yfirgaf hana og börnin. Lokaðar dyr Félagsmálayfirvöld í Vejle, þar sem Hjördís bjó með fjölskyldu sinni, ráð- lögðu henni að fara með stúlkurnar til Íslands þegar ljóst var að faðirinn væri farinn að heiman. Það gerði hún en gerði síðan aðra tilraun til búa ytra eftir það til að fullnægja lögum um umgengni og forsjá. Það segir hún að hún hefði aldrei átt að gera. „Ég fór til Danmerkur og mamma mín kom með okkur, en hann [Kim] leigði hús rétt hjá okkur. Hann var með lykil að húsinu okkar og vorum við því alltaf mjög hrædd.“ Hún segir hann hafa fylgst með þeim og haldið ofbeldinu áfram. Hjördís upplifir kerfið í Danmörku þannig að hvert sem hún leitaði hafi hún komið að lokuðum dyrum. Sýslumaður komst að þeirri niður- stöðu að faðirinn skyldi fá að hafa dæturnar í sex klukkustundir annan hvern laugardag en það fannst Hjör- dísi engan veginn ganga þar sem þær voru hræddar við hann. Vitum ekkert „Ég gat ekki hugsað mér að senda stelpurnar mínar til manns sem þær voru hræddar við. Þegar að hann kom í fyrsta skipti í umgengni, vildu stelpurnar ekki fara með honum þannig að hann fór aftur án þeirra.“ Hún segir umgengnina hafa verið mjög erfiða í kjölfarið, hún hafi í raun þurft að þvinga stelpurnar til þess að fara með honum. Hjördís segist hafa upplifað Dannmörku sem fangelsi og að hún hafi viljað fara heim til fjöl- skyldu og vina. Að lokum flúði hún aftur heim nú í október. Hún hef- ur meðal annars leitað til Kvenna- athvarfsins hér á landi vegna málsins og óskað eftir því við danskan barns- föður sinn að hann leiti hjálpar. Að sögn Hjördísar og ættingja hennar hefur hann í hótunum vegna barnanna. „Nú er ég bara eins og ein- hver glæpamaður vegna þess að ég fór með þær, ég hef talað við alla og enginn getur hjálpað okkur, ég vil að íslensk stjórnvöld hjálpi okkur.“ Hjör- dís segir dómara í máli hennar í Dan- mörku ekki hafa talið hana vera með nein gögn sem staðfestu að Kim væri ofbeldisfullur. Hún segist hins vegar vera með gögn frá Landspítalanum, kvennaathvarfi í Danmörku sem og á Íslandi, lögregluskýrslu með mynd af áverka, vottorð frá sálfræðingi sem hefur hitt stelpurnar og vottorð frá leikskóla. Hjördís þráir það heitast að geta lifað eðlilegu lífi á Íslandi en hún stefnir á nám í kennslu. „Við í rauninni vitum ekki neitt hvert framhaldið verður,“ sagði Hjördís í samtali við blaðamann DV í gærkvöldi en hún og fjölskylda hennar biðla til dómsmálaráðu- neytisins og spyrja hvort ekkert sé hægt að gera. Ekki náðist í Ög- mund Jónasson dóms- og mann- réttindaráðherra við vinnslu þess- arar fréttar. RÁÐUNEYTI UNDIRBÝR BROTTFLUTNING BARNA Lögmaður dóms- og mannréttindaráðu- neytisins hótar aðgerðum í máli ein- stæðrar móður sem flúði með dætur sínar til Íslands. Konan segir þær hræddar við föður sinn sem hafi beitt þær andlegu og líkamlegu ofbeldi í gegnum tíðina. Sam- kvæmt bréfi lögmannsins undirbýr dóms- málaráðuneytið nú flutning barnanna úr landi. Aðstandendur hennar biðla til ráðuneytisins um að koma til hjálpar. jón bjArki mAgnúSSon blaðamaður skrifar: jonbjarki@dv.is bréfið frá lögfræðingi dómsmálaráðherra UndirrituðumlögmannihefurveriðfaliðafhálfuDóms-ogmannréttindaráðu- neytisinsaðfarameðmálbarnsföðurþíns,KimGramLarsen.Hefurumbj.minn gertkröfuágrundvelliHaagsamningsinsumeinkaréttarlegáhrifafbrottnámi barnatilflutningsmillilandasbroglögnr.160/1995umviðurkenninguog fullnustuerlendraákvaðanaumforjábarna,afhendingubrottnuminnabarnaofl. Felstíþvíaðverðilögmætuástandiekkikomiðá,meðtafarlausriförbarnannatil Danmerkuraðnýju,verðuraðfararbeiðnisendhéraðsdómiogkrafistafhendingar barnannaágrundvellitilvitnaðralaga. LjósteraðförþínmeðbörninfráDanmörkutilÍslands,ánsamþykkisumbj.míns varólögmætogbrotbæðigegnforsjárréttihansogumgengnisréttihanssem dómstóllíDanmörkuhafðinýveriðákveðiðmeðanárekstriforsjármálsykkar stæðiogliggurþvífyriraðfallistyrðiáslíkakröfuþurfitilþessaðkomaaðbeina málinutildóms. Ernúskoraðáþigaðkomalögmætuástandiáaðnýjumeðþvíaðfarameð börnintilsínsheimaíDanmörkuviðfyrstamögulegatækifæriogánnokkurra tafa.Væntiégþessaðheyrafráþérumafstöðuþínaíþeimefnumfyrirkl.14á morgun,fimmtudaginn11.nóvember,enhafiégekkiheyrtfráþéreðalögmanni þínumfyrirþanntímamáttþúvæntaþessaðhafistverðihanda,ánfrekariviðvör- unar,umundirbúningkröfuumaðförtilaðkomabörnunumúrþínuumráðum ogíhendurumbj.mínseðatilDanmerkur. Reykjavík10.nóvember2010, Virðingarfyllst, ValborgÞ.Snævarrhrl. bréfið Nú er ég bara eins og einhver glæpamaður vegna þess að ég fór með þær, ég hef talað við alla og enginn getur hjálpað okkur, ég vil að íslensk stjórnvöld hjálpi okkur. biðlar til stjónvalda Hjördíserhrædd viðframhaldiðenhúnupplifðisíðustu mánuðiíDanmörkueinsogfangelsisvist. Enginn pabbi ÁteikninguEmmuerenganpa bbaað finna,enþarerumamma,systurnarþrjár, geldrisonur Hjördísar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.