Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Qupperneq 14

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Qupperneq 14
14 fréttir 12. nóvember 2010 föstudagur Stefnt er að því að tónlistar- og ráð- stefnuhúsið Harpa verði tekið í notk- un þann 4. maí árið 2011, en bygging Hörpu hefur ekki gengið áfallalaust fyrir sig. Efnahagshrun, eldsvoð- ar og framleiðslugallar eru með- al þess sem hefur sett strik í reikn- inginn við framkvæmdina. Bygging tónlistar- og ráðstefnuhúss var frá upphafi mjög metnaðarfullt verk- efni og ekkert átti að spara við fram- kvæmdina, enda Harpa engin smá- smíði en byggingin verður fullkláruð 28.000 fermetrar. Samkvæmt Pétri J. Eiríkssyni, stjórnarformanni Port- us eignarhaldsfélags Hörpu, mun kostnaður við bygginguna nema um 17 milljörðum króna. Hann segir að inni í þeim kostnaði sé all- ur frágangur, að skrifstofurými á 7. og 8. hæð undanskildu, en frágangi á þeim verður frestað. Þá mun frá- gangi á nokkrum VIP-herbergjum við útveggi hússins einnig verða frestað um einhvern tíma. Pétur seg- ir að kostnaður við frágang þessara rýma sé áætlaður um 400–500 millj- ónir króna, en óvíst er hvenær ráð- ist verður í að klára þau. Þá mun glerhjúpurinn sem umlykur Hörpu kosta 3,2 milljarða króna og mun sá kostnaður vera inni í áðurnefndum 17 milljörðum. Á heimasíðu Austurhafnar-TR, sem á Portus, kemur fram að þessi upphæð eigi þó aðeins við um kostnað við Hörpu frá því byrjað var á verkinu aftur eftir að byggingarfé- lagið fór í þrot. Áður var búið að setja 10 milljarða í verkefnið sem voru af- skrifaðir. Heildarkostnaður nemur því í raun rúmum 27 milljörðum en ekki 17. Þá er kostnaður Reykjavík- urborgar vegna frágangs lóðarinnar áætlaður tæpar 290 milljónir króna á þessu ári og því næsta. Ríki og borg eignast Hörpu á 35 árum Pétur segir að tekjur Hörpu muni al- gjörlega standa undir rekstrarkostn- aði. „Við áætlum að rekstrarkostnað- ur Hörpu árið 2012, sem er fyrsta heila rekstrarárið, verði 1.503 milljónir og að rekstrarhagnaður verði 69 milljónir. Það er ekki gert ráð fyrir rekstrarfram- lögum frá ríki og borg.“ Hann segir þó að byggingarkostnaður sé alfarið fjár- magnaður með lánum sem tekin voru hjá íslensku bönkunum og það kem- ur í hlut í ríkis og borgar að greiða af þeim lánum, tæpan milljarð á ári. Á 35 árum munu ríki og borg þannig eign- ast Hörpu. Ríkið fær 54 prósenta hlut og borgin 46 prósenta. Í samanburði við þennan tæpa milljarð má nefna að niðurskurður ríkisins á heilbrigðis- stofnunum á landsbyggðinni árið 2011 stefnir í að verða rúmir tveir milljarð- ar króna. Auka ljósadýrð fyrir 200 milljónir Aðili í leikhúsbransanum, sem vill ekki láta nafns síns getið, sagði í samtali við DV að Harpa væri eingöngu hönn- uð með klassískan tónlistarflutning í huga en ekki leik- eða óperu sýningar. Hann sagði að töluverð óánægja ríkti í óperu- og leikhúsbransanum vegna þessa. Nú á seinni stigum framkvæmdar- innar hefur þó verið ákveðið að bæta við þann ljósabúnað sem upphaflega var áætlaður í Hörpu. Það er einmitt gert til að freista þess að laga húsnæð- ið að leiklistar-, popptónlistar- og óp- eruflutningi. Samkvæmt heimildum DV átti að setja upp 450 ljós í Hörpu, þar af 200 sérhönnuð fyrir tónleika Sinfóní unnar og aðra sambærilega tónlistarviðburði. Þá eru eftir 250 ljós sem nýtast í aðra viðburði. Samkvæmt heimildum DV er ætlunin að bæta um 100–150 ljósum við þann fjölda, með kostnaðaraukningu upp á 200 milljón- ir króna. Má ætla að við þessar breyting- ar muni rekstrarkostnaður Hörpu aukast til muna. Þá herma heimildir DV að Harpa verði best ljósum búna hús sinnar tegundar í Evrópu. Þór- unn Sigurðardóttir, stjórnarformaður Ago rekstrarfélags Hörpu sem er í eigu Portus, sagði breytingar á ljósabún- aði nauðsynlegar en þær hefðu ekki aukinn kostnað í för með sér, enda væri skorið niður á öðrum stöðum. Þá myndi búnaðurinn borga sig upp á tveimur árum. Airwaves-tónlistarhá- tíðin væri til að mynda bókuð í Hörpu næsta haust. Áætluð opnun í september 2009 Tæp öld er síðan fyrst var farið að tala um nauðsyn þess að byggja tón- listarhús í Reykjavík, en segja má að Hljómskálinn í Reykjavík, sem byggð- ur var árið 1923, hafi verið fyrsta tón- listarhúsið á Íslandi. Hann leysti tíma- bundið þörf tónlistarmanna fyrir æfingahúsnæði, en varla mikið meira en það. Það er þó langur vegur frá netta Hljómskálanum við Tjörnina að íburðarmikla tónlistarhúsinu Hörpu við höfnina. Árið 1999 tilkynntu Reykjavíkur- borg og ríkið að þau ætluðu í sam- einingu að beita sér fyrir byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss í miðborg Reykjavíkur en staðsetning lá þó ekki fyrir fyrr en ári síðar. það var svo árið 2002 að samningur milli ríkis og borg- ar um byggingu Hörpu var formlega undirritaður. Í framhaldi af því fór af stað hugmyndasamkeppni og ramma- skipulag var unnið. Þegar niðurstaða matsvinnu, árið 2005, lá fyrir var til- boð Portus-hópsins valið hagkvæm- ast. Árið 2006 var svo tekin fyrsta skófl- ustungan að Hörpu við Austurhöfn í Reykjavík. Á þeim tíma var áætlað að starfsemi hæfist í húsinu í september árið 2009. Eins og flestir vita hafa þær áætlanir ekki staðist, enda áttu eftir að koma upp ýmsir ófyrirsjáanlegir erfið- leikar. Ýmis áföll Haustið 2008, þegar framkvæmdir við tónlistarhúsið voru vel á veg komn- ar, hrundi allt íslenska bankakerfið og efnahagskreppa skall á. Fljótlega eftir það tilkynnti Portus að fyrirtækið hefði gefist upp á verkefninu. Þá leit út fyr- ir að framkvæmdir við tónlistarhúsið myndu stöðvast og að ókláruð Harp- an stæði eftir sem gapandi sár í mið- borg Reykjavíkur sem minnisvarði um góðæristíma. Það varð þó ekki raunin enda mikill vilji hjá bæði ríki og borg til að ljúka verkefninu sem fyrst. Í mars árið 2009 eignaðist fyrirtækið Austur- höfn-TR, sem er í eigu íslenska ríkisins og Reykjavíkurborgar, Portus og dótt- urfélög þess. Í framhaldi af því gekk Austurhöfn-TR frá samkomulagi við Íslenska aðalverktaka um verkfram- kvæmdina alveg til loka og hjólin fóru að snúast á ný. Allt leit því út fyrir að framkvæmd- ir við Hörpu gætu gengið snurðulaust fyrir sig en sú varð ekki raunin. Síðast- liðið sumar gerðist það tvisvar að eld- ur braust út á byggingarsvæðinu. Sem betur fer urðu ekki neinar skemmdir á húsnæðinu sjálfu og litlar sem engar tafir urðu á framkvæmdum. Í mars komu fram ryðskemmdir í stáleiningum glerhjúpsins á suðurhlið Hörpu. Ríkharður Jónsson, hönnun- arstjóri hjá Íslenskum aðalverktökum, sagði þá í samtali við DV að tiltölulega auðvelt væri að lagfæra skemmdirnar í stálvirkinu og að málað yrði yfir þær áður en verkinu lyki. Þetta virðist þó ekki hafa verið rétt metið hjá Ríkharði því nú í haust var gefin út yfirlýsing um að stálvirkið væri gallað og að rífa þyrfti það og endurbyggja. Pétur, stjórnarformaður Portus, segir að búið hafi verið að setja allan vegginn upp og að einungis hafi átt eftir að glerja hann. „Það komu fram sprungur í málmsteypunni. Það kom í ljós að gæðaeftirliti í Kína hefur ver- ið ábótavant þannig að framleiðend- urnir neyddust til að rífa þetta niður og smíða allt upp á nýtt. Þeir testuðu ekki það sem þeir áttu að testa.“ Samkvæmt Pétri bera Kínverjarnir bera þó allan kostnað vegna gallans. Þrátt fyrir þetta áfall segir Pétur að Harpa verði opnuð 4. maí næstkomandi. Hann telur ólík- legt að suðurhliðin verði tilbúin fyrr en í júní en það muni ekki koma að sök. 27 MILLJARÐA SKRAUTHÚS Margt hefur gengið á við byggingu tónlist- ar- og ráðstefnuhússins Hörpu sem vígt verður næsta vor. Síðasta uppákoman er galli í glerburðarvirki á suðurhlið hússins og nauðsynlegt er að rífa það allt niður. Glerhjúpur Hörpu kostar um 3,2 milljarða króna en Pétur J. Eiríksson, stjórnarfor- maður Portus, segir að kínverskir fram- leiðendur burðarvirkisins beri allan kostn- að af enduruppsetningu suðurveggjarins. SólRún lilJA RAgnARSdóttiR blaðamaður skrifar: solrun@dv.is Það kom í ljós að gæðaeftirliti í Kína hefur verið ábóta- vant þannig að fram- leiðendurnir neyddust til að rífa þetta niður og smíða allt upp á nýtt. langþráður draumur Ýmislegt hefurgengiðáviðbygginguHörpu enloksinssérfyrirendannáþví. 1923 Hljómskálinn íReykjavík byggður ogleysir tímabundið þörftónlist- armannafyrir æfingarhús- næði. 2005 Mat- svinnulýkur ogtilboð Portusertalið hagkvæmast. 2007 Fyrsta steypantekin aðbyggingu Hörpu. október 2008 Íslensku bankarnirhrynja ogefnahags- kreppaskellurá. nóvember 2008 Portus,sem áogbyggirHörpu, segisthafagefist uppáverkefninu. 1999 Íslenskaríkiðog Reykjavíkurborg tilkynnaaðþau ætliísameiningu aðbeitasér fyrirbyggingu tónlistar-og ráðstefnuhússí Reykjavík. 2002 Samningurá milliríkisog borgarum byggingu Hörpu, formlega undirritaður. frá Hljómskála til Hörpu febrúar 2009 Sameiginlegviljayfirlýs- ingríkisogborgarum áframhaldandibyggingu tónlistarhússundirrituð. júní 2010Eldur brýstútíHörpu. maí 2011 Tónlistar-og ráðstefnu- húsiðHarpa verður opnað. ágúst 2010 EldurbrýstútíHörpuí annaðsinn.Íljóskemur aðmálmsexstrending- arsembúiðeraðsetja áallasuðurhliðHörpu reynastgallaðirogþarf aðrífaþáallaniður. mars 2009 Austurhöfn-TR,fyrirtækií eiguríkisinsogborgar- innar,eignastPortusog dótturfyrirtæki.Hjólinfara afturaðsnúast. 20111923
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.