Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Síða 16
16 nærmynd 12. nóvember 2010 föstudagur
„Öll fjölskyldan er í sjokki og þetta er
mikill harmleikur. Við trúum öll á sak-
leysi hennar og við vitum að hún hefði
aldrei getað svikið neinn og prettað.
Það er ekki til óheiðarleiki í henni,“
segir náinn ættingi Helgu sem vill ekki
koma fram undir nafni. „Ég vil ekki vera
að blanda mér í þessa umræðu, þetta
er svo viðkvæmt mál.“
Kurteis og ljúf stelpa
Helga ólst upp á Seltjarnarnesi og eft-
ir grunnskóla fór hún í Verzlunarskóla
Íslands þar sem hún stundaði nám í
eitt ár. Starfsmaður við skólann minnist
hennar sem kurteisrar og ljúfrar stelpu
sem hafi stundað námið vel. Bekkjar-
systir Helgu úr Versló man eftir henni
sem hressri stelpu. Henni er sérstak-
lega minnisstætt að Helga var með fal-
legt, sítt hár, alveg niður á bak. Hún var
á málabraut og var meðal annars með
Ellý Ármansdóttur og Hreiðari Má Sig-
urðssyni í bekk. Hún tók þátt í félagslíf-
inu í skólanum og var vinamörg.
Eftir menntaskóla lá leið hennar í
háskóla þar sem hún lauk BA-gráðu í
fjölmiðlafræði og seinna mastersgráðu
í stjórnmálafræði frá Emerson College
í Boston. Hún þykir vera afburðanáms-
maður og góðum gáfum gædd.
Af efnaðri fjölskyldu
Helga Stefáns Ingvarsdóttir er dótt-
ir Ingvars J. Karlssonar læknis og at-
hafnamanns og Ingigerðar Ágústu
Guðmundsdóttur tannlæknis. Ingvar
hefur verið umsvifamikill í íslensku við-
skiptalífi og er meðal annars stjórnar-
formaður heildverslunarinnar Karls K.
Karlssonar og Lífsvals ehf. Faðir Ingv-
ars var Karl Kristján Karlsson stórkaup-
maður í Reykjavík. Faðir Ingigerðar var
Guðmundur Gíslason forstjóri Bifreiða
og landbúnaðarvéla. Ingigerður og
Ingvar skildu árið 1990.
Vickram „klikkaður“
Allir þeir sem DV náði tali af um mál-
ið hafa sömu sögu að segja um Helgu;
hún þykir sérlega yndisleg, tillitssöm
og hlý manneskja. Enginn sem þekkir
hana getur trúað því að hún hafi framið
þann glæp sem hún er grunuð um að
hafa framið.
Einstaklingur sem ekki vill láta nafns
síns getið segir að fjölskyldan hafi mar-
goft hvatt Helgu til að fara frá Vickram
og segir hann vera „klikkaðan“. Án þess
að vilja fara nánar út í þau mál segja
þau hann vera mjög ákveðinn ein-
stakling og í þau skipti sem Helga hafi
reynt að skilja við hann hafi hann kom-
ið til landsins og sannfært hana um að
koma aftur með sér til Bandaríkjanna.
Önnur manneskja sem vill ekki
tala undir nafni bendir á að Helga sé
dæmigert skilnaðarbarn og að skiln-
aðurinn hafi mótað hana að einhverju
leyti. „Það er ekki erfitt fyrir Vickram
að stjórna henni. Hann er með sterkan
karakter og mjög sannfærandi.“ Sam-
band þeirra hefur valdið mörgum í fjöl-
skyldunni áhyggjum.
Vickram Bedi, sem er af indversk-
um ættum, er tölvunarfræðingur að
mennt og hefur búið í Bandaríkjunum
alla sína ævi.
Var á Íslandi fyrir stuttu
Nágrannar Helgu og Vickrams í Banda-
ríkjunum lýsa þeim sem fyrirmynd-
arnágrönnum sem hafi haldið sig út
af fyrir sig. „Þau héldu lóðinni snyrti-
legri og voru mjög vingjarnleg en við
kynntumst þeim ekki náið. Þau virtust
eiga marga kunningja og það var mikill
gestagangur á heimili þeirra.“ Einbýlis-
hús þeirra er staðsett í grónu hverfi stutt
frá miðbæ Chappaqua í New York-fylki.
Það er fallegt en laust við allan íburð.
Nágrannarnir segja hverfið vera rólegt
og gott og lítið sem ekkert er um glæpi.
Edda Björgvinsdóttir leikkona er
móðir æskuvinkonu Helgu og man vel
eftir henni á heimili sínu. „Hún Helga
var alltaf svo jákvæð og yndisleg. Allt-
af að hvetja aðra áfram og ég bara trúi
ekki að hún sé flækt í þennan glæp.
Hún gaf alltaf frá sér svo fallega orku.“
Helga var á landinu fyrir stuttu og
heimsótti þá vini og ættingja. Að sögn
þeirra sem hittu hana virtist hún af-
slöppuð og glöð og það var ekkert sem
benti til þess að hún væri í vandræð-
um. Nú bíður hennar hugsanlega 25
ára fangelsi. „Ef þessi svik áttu sé stað,
þá hefur Helga ekki vitað af þeim. Ég er
sannfærð um það,“ segir frænka henn-
ar sem vill ekki láta nafns síns getið.
„Ég elska Helgu og styð hana alla leið
í þessu máli. Hún er ekki bara frænka
mín heldur líka góð vinkona, ég þekki
hana vel og veit að hún er saklaus.“
Tengdamóðirin grætur
Blaðamaður náði tali af móður
Vickrams, tengdamóður Helgu, sem
kynntist henni fyrir 11 árum þegar
Vickram og Helga felldu hugi sam-
an. Hún segir að Helga sé með betri
manneskjum sem hún hafi á ævi sinni
kynnst og hrósar henni í hástert. „Helga
er yndislegasta manneskja sem ég hef
kynnst, mjög ljúf og góð. Ég er búin að
þekkja hana núna í 11 ár og ég veit að
þau eru saklaus, þetta eru falskar ásak-
anir.“ Hún grætur í símann og segist
ekki eiga pening til að borga trygging-
argjaldið til að þau losni úr gæsluvarð-
haldi. Hún grátbiður um hjálp og spyr
hvort íslensk stjórnvöld geti eitthvað
gert fyrir þau. Mamma og pabbi Helgu
svara ekki símtölum hennar. Hún seg-
ist ekki geta staðið í þessu, getur ekki
slakað á og segir að hún sé að fá hjarta-
áfall af streitu. Það fer ekki á milli mála
að fjölskyldur beggja eru harmi slegnar.
Ingvar, faðir Helgu, hefur einnig tal-
að máli hennar en hann sagði í samtali
við Vísi að hann tryði á sakleysi henn-
ar og að sannleikurinn í málinu myndi
koma fram. Hann er núna ásamt Ingi-
gerði í Bandaríkjunum þar sem þau
vinna í máli dóttur sinnar í sameiningu.
Hundruð milljóna
Það var síðastliðinn mánudag sem
Helga var handtekin á heimili sínu
í Chappaqua. Lögreglan handtók
Vickram Pedi í bíl móður sinnar en þá
var hann klæddur í náttföt og reyndi
að fela sig fyrir lögreglunni. Í bílnum
fannst mikill farangur og svo virtist sem
hann hefði ætlað að leggja á flótta. Lög-
reglan hafði verið að rannsaka málið
síðan í júlí og hafði rökstuddan grun
um að Helga og unnusti hennar væru
að undirbúa flótta til Íslands á næstu
dögum.
Héraðsdómur í Westchester-sýslu
í New York-ríki Bandaríkjanna ákærð-
in síðan Helgu og Vickram Bedi fyr-
ir stórfelldan þjófnað en þeim er gefið
að sök að hafa í gegnum tölvufyrirtæki
Vickrams, Datalink Computer Serv-
ices, haft sex til tuttugu milljónir dala,
sem svarar 670 til 2.200 milljónum ís-
lenskra króna, af Roger C. Davidson,
samkvæmt erlendum fjölmiðlum.
Davidson, sem er þekktur píanóleikari
og tónskáld, er sonarsonur stofnanda
olíufyrirtækisins Schlumberger Ltd.
Houston og sterkefnaður. Davidson
leitaði til Datalinks Computer Servic-
es með vírussýkta tölvu í ágúst 2004 og
hafði áhyggjur af því að tónverk hans,
myndir og önnur verðmæti á hörðum
diski tölvunnar myndu glatast. Helgu
og Vickram er gefið að sök að hafa log-
ið því að Davidson að tölva hans væri
sýkt af afar hættulegum vírusi og kvaðst
Bedi hafa tæknina, samböndin og
þekkinguna til að rekja uppruna hans.
Það sem fylgdi í kjölfarið var eins og
eitthvað úr Hollywood-bíómynd.
Vickram Bedi mun hafa sagt fórnar-
lambinu að hann hefði rakið uppruna
vírussins til afskekkts þorps í Hond-
úras. Bedi sagði frænda sinn, foringja
í indverska hernum, hafa flogið til
Hondúras í indverskri herflugvél og í
njósnaför sinni haft uppi á harða diskn-
um sem bar vírusinn sem fannst í tölv-
unni. Þessi sami frændi hefði komist á
snoðir um að Davidson væri í mikilli
hættu vegna pólsks prests sem tengd-
ist Opus Dei. Þeir sem hafa séð mynd-
ina eða lesið bókina Da Vinci lykillinn
muna kannski að morðóði munkurinn
í þeirri bók tilheyrði einmitt Opus Dei-
reglunni.
Bedi laug því síðan að banda-
ríska leyniþjónustan CIA hefði ráðið
hann til að vinna fyrir sig til að stöðva
pólska prestinn við að komast að
bandarísku ríkisstjórninni. Á meðan
á öllu þessu stóð eru þau sögð hafa
rukkað Roger C. Davidson mánað-
Ættingjar og vinir Helgu Ingvarsdóttur
eru harmi slegnir yfir fréttum af hand-
töku hennar í Bandaríkjunum og segjast
fullvissir um sakleysi hennar. Mál Helgu
og Vickram Bedi hefur vakið mikla at-
hygli bæði hér á landi og erlendis. Mála-
vextir þykja ótrúlegir og minna á sögu-
flettu í Hollywood-mynd þar sem pólskir
prestar í Opus dei, indverskir hermenn
og tölvuvírus á hörðum diski í Hondúras
koma við sögu.
HAnnA ólAfsdóTTIr
blaðamaður skrifar: hanna@dv.is
Við trúum öll á sakleysi hennar
Ég elska Helgu og styð hana
alla leið í þessu máli.
sönnunargögn Lögreglanmeðbrotafskjölumogpeningumsemfundustá
heimiliþeirra.
„Þetta er mikill harmleikur“
3. bekkur í Verzló Helgavareittárí
VerslóogvaríbekkmeðHreiðariMá
SigurðssyniogEllýÁrmannsdóttur.