Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Side 17
föstudagur 12. nóvember 2010 nærmynd 17 BLÁI HRINGURINN ALÞJÓÐADAGUR UM SYKURSÝKI 14.NÓVEMBER KAUPUM HRINGINN TIL STYRKTAR SAMTÖKUM SYKURSJÚKRA FÆST Í ÖLLUM APÓTEKUM Helga og Obama í Hvíta húsinu Helga hitti Obama á fjáröflunarfundi demókrata. arlega um 160.000 dali af American Express-greiðslukorti hans og fengu borgað aukalega fyrir að veita honum vernd. Sumar lygarnar voru beinlínis ófyrirleitnar, að því er virðist. Vickram er sagður hafa sagt Davidson að faðir Helgu hefði afneitað henni. Í kjölfar- ið gaf Davidson þeim fjögur hundruð milljónir króna. Helga er núna vistuð í hámarksör- yggisgæslufangelsi í Westchester og veit ekkert hversu mikla athygli mál- ið hefur fengið. Vickram hefur tjáð sig við bandaríska fjölmiðla úr fangelsi og heldur fram sakleysi sínu. Réttarhöld í málinu fara fram í desember og mun þá koma í ljós hvort Helga Ingvarsdóttir sé saklaus leiksloppur í þessu umsvifa- mikla svikamáli. Hvað sem málaferlin munu leiða í ljós mun fjölskylda Helgu aldrei snúa við henni baki. „Þetta er mikill harmleikur“ ROgeR DaviDsOn vildi verja verðmætt safn tónverka: „Ég er fórnar- lamb svindlara“ Bandaríska tónskáldið Roger Davidson sagði sig vera „fórn- arlamb flókins lygavefs svika- hrappa af verstu gerð“ í yfirlýs- ingu sem hann sendi fjölmiðlum vegna málsins. Hann sagði Helgu Ingvarsdóttur og Vickram Bedi hafa verið meira en tölvuviðgerð- armenn líkt og sumir fjölmiðlar hafi lýst þeim. „Í raun ráku þau háþróað tölvu- og veföryggisfyrir- tæki sem vann sér inn traust herra Davidsons með að spinna vel út hugsað svindl á meðan þau ving- uðust við hann.“ „Herra Davidson er farsæll tónlistarmaður sem varð fyrir því að tölvan hans fékk alvarlegan vír- us. Á tölvu hans var að finna umfangsmikið safn tónverka og listrænna verðmæta sem hann vildi verja. Og líkt og á við um svo mörg okkar, þá er hann ekki lærður tölvusérfræðingur.“ Í tilkynningunni segir að forgangsatriði Davidsons þessa stundina sé að aðstoða saksóknarann í Westchester svo hinir meintu glæpamenn fái það sem þeir verðskuldi. „Auðvitað myndi hann vilja að sjá endurheimtur á þeim gríðarlegu upphæðum sem stolið var frá honum. Þær upplýsingar sem birst hafa um þær fjárhæðir í fjölmiðlum eru ónákvæmar. En eftir því sem dóms- málið skýrist munu þær tölur koma í ljós. Þangað til óskar Davidson eftir því að fjölmiðlar virði friðhelgi einkalífs síns og fjölskyldu sinnar á þess- um erfiðu tímum.“ mynD ROgeRDaviDsOnmusic.net Vickram Bedi segir að Roger David- son hafi ekki verið plataður heldur hafi hann gefið sér og Helgu Ingvars- dóttur peningana sem þau eru sökuð um að hafa svikið af honum. „Saga Rogers er ekki sannleikanum sam- kvæm,“ er haft eftir Bedi í dagblaðinu The Journal News. „Hann var ekki þvingaður af ótta eða harðræði til að gera það sem hann gerði,“ sagði hinn meinti svikahrappur. Bedi sagðist hafa fengið peningana til að fara með viðkvæmar upplýsingar sem leyndust á tölvu tónskáldsins. Bedi segir að Davidson hafi komið með vírussýkta tölvu í viðgerðarþjón- ustu sína, Datalink Computer Pro- ducts, í ágúst árið 2004. En áhyggjur hans voru fyrst og fremst að þau við- kvæmu gögn sem geymd voru á hörð- um diski tölvunnar. Meðal annars tónverk, „gríðarlegt magn af klámefni“ og síðast en ekki síst tölvupóstsamskipti milli tónskáldsins, fjölskyldu hans og lögfræðinga þeirra. Bedi segir að fjölskyldan hafi rætt það við lögfræð- inga að flytja hluta gríðarlegra auðæfa sinna frá Liechtenstein til Banda- ríkjanna. En þau vildu komast hjá því að greiða skatta af peningunum í Bandaríkjunum, Frakklandi og fleiri löndum. „Þau voru að flytja rúmlega 400 milljónir dollara. Og höfðu miklar áhyggjur af þessu því þau höfðu ekki greitt skatta af þessum peningum í rúmlega 60 ár.“ Þessi frásögn Bedis hefur ekki fengist staðfest hjá Davidson er sérstaklega tekið fram í umfjöll- un LoHud.com. „Hann var hræddur um að tölvupóstarnir væru á tölvunni og vildi vita hvort þeir væru sýktir af vírus og óttaðist að þeir kæmust á netið. Tölvupóstarnir fjölluðu í stuttu máli um að fjölskyldan var að ræða við lögfræðingana um þessa peninga, hvernig fjölskyldan kom þeim úr Bandaríkjunum og hvernig þau ætluðu sér að koma þeim aftur til landsins í formi arfs.“ vickRam BeDi segir að davidsOn Hafi ekki verið beittur þrýstingi „hann var ekki þvingaður“ Heildsaladóttir Helga er dóttir ingvars j. karlssonar. Hann er nú farinn út til bandaríkjanna að hjálpa dóttur sinni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.