Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Qupperneq 21

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Qupperneq 21
föstudagur 12. nóvember 2010 fréttir 21 Leitarsveitin Stakkur í Keflavík hóf leit á fyrsta degi rannsóknarinnar og eftir nokkrar klukku stundir komu aðrir leitarflokkar víðar að. Fjörur voru gengnar, leitað í mannlausum húsum, skipum og bátum. Kafarar leituðu við bryggjur og hafnir voru slæddar. Þá létum við kanna allar hugsanlegar leiðir frá landinu, bæði með skipum og flugvélum. Margir urðu til þess að koma með ábendingar vegna hvarfs Geir- finns og skrifuðu til mín, bæði á meðan ég vann að rannsókninni og eins eftir að hún var ekki lengur í höndum okkar í Keflavík. Flest bréfin voru nafnlaus og oft ódagsett. Fólk sagði frá draumum og sýnum, bæði í svefni og vöku. Karl eða kona, sem kallar sig „Hjálpfús“, sendi mér svohljóðandi bréf: „Blessaður, Haukur Guðmundsson“ Ég skrifa þér þetta bréf í sambandi við Geirfinnsmálið svokallaða. En það er best að segja það eins og skot að þetta er ágiskun, sem kom til vegna lesturs íslenska kaflans úr bók. Árið 1974 er getið um umferð- arslys skammt frá Innri-Njarðvík. Jeppi með tveimur mönnum lenti í árekstri við fólksbíl og var mikið skemmdur eftir sprengingu í bensíntanki. Mað urinn lést en hinir tveir sluppu og eftir skrifum í bókinni ómeiddur. Þar sem mig minnir að Geirfinnur hafi unnið á gröfu einhvers staðar í ná grenni Keflavíkur datt mér sí svona í hug hvort hann hafi átt leið þar hjá og séð eitthvað sem átti ekki að sjást. Þetta skeði 9. nóvember, 10 dögum áður en hann hvarf. Nú þegar búið er að taka þrjá í gæslu datt mér í hug hvort þú myndir athuga menn jeppans og aðstæður á slysstað. Persónulega finnst mér þetta ekki óhugsandi án nokkurra gagna né annars og þar sem ég held að þetta sé ekki svo erfitt í athugun fyrir þig og myndi ekki tefja þig svo ég lét þetta fara frá mér að sjálfsögðu án ábyrgðar. Ef þetta reynist vitleysa vona ég að þú gleymir þessu, ef ekki þá veit ég ekki meira um þetta en áður greinir og vonast til að vera laus allra mála. Sagt er frá slysinu á móti blaðsíðu þar sem getið er um Geirfinns- málið. Virðingarfyllst, Hjálpfús.“ ---------- Dómurinn Hæstiréttur kvað upp dóm í Guðmundar- og Geirfinnsmálum 22. febrú- ar árið 1980. Sævar Marinó Ciesielski var dæmdur í 17 ára fangelsi, Kristján Viðar Viðarsson í 16 ára fangelsi, Tryggvi Rúnar Leifsson í 16 ára fangelsi, Guðjón Skarphéðinsson í 10 ára fangelsi, Erla Bolladóttir í þriggja ára fangelsi og Albert Klahn Skaftason í 12 mánaða fangelsi. Sakborningar héldu því fram að játningar þeirra hefðu verið fengn- ar með harðræði og leiðandi spurningum og löng einangrunarvist hefði einnig brotið þá niður. Í rökstuðningi með dómi Hæstaréttar er þess sérstaklega getið að dómendur hafi ekki tekið mark á þeim full- yrðingum sakborninga að þeir hafi verið þvingaðir til að játa á sig sak- ir í málunum. Það teldist hins vegar sannað að hinir ákærðu hafi orðið Guðmundi Einarssyni og Geirfinni Einarssyni að bana og sumir þeirra að auki gerst sekir um rangar sakargiftir og annað refsivert athæfi. Í bókarlok – Haukur hefur orðið: „Ég vil ekki gefa mér neitt um hluti sem ég hef enga vitneskju um. En ég hallaðist fljótlega að því að þetta hefði verið einhvers konar slys. Ég veit ekki hvernig það hefur viljað til. En þegar við vorum búnir að grafa upp allt sem við gátum um Geirfinn, lífshlaup hans, reikninga og viðskipti, fundum við engar vísbendingar eða neitt annað sem gat komið okkur á einhverja slóð. Ég fullyrði að sjaldan hefur verið safnað jafnmiklum upplýsingum um nokkurn mann í rannsókn af þessu tagi. Við vorum einfaldlega að reyna að svara spurningunum: Hvað gerðist? Af hverju? Við gátum hvergi tengt Geirfinn við nokkurn skapaðan hlut. Í mínum huga eru afdrif Geirfinns algerlega óupplýst mál. Rannsókn málsins í Reykjavík og dómsniðurstaða Hæstaréttar hafa í engu breytt þeirri bjargföstu sannfæringu minni. Ég vil hins vegar leggja áherslu á að ég veit ekkert um hvarf Guðmundar Einarssonar og er í þessu sambandi ekki að ræða um það mál. Þessum tveimur málum verður að mínum dómi að halda aðskildum. Ég, eins og aðrir, var í fyrstu ánægður með þegar fréttir bárust af því að búið væri að upplýsa Geirfinnsmálið. Ég kom ekkert að rannsókn- inni sem leiddi til þeirrar niðurstöðu. En þegar ég las yfir gögn málsins runnu á mig tvær grímur svo ekki sé meira sagt. Ég las dómana og for- sendur þeirra oftar en einu sinni. Allar götur síðan hef ég verið þess full- viss að saklausir einstaklingar voru sakfelldir og dæmdir til langrar fang- elsisvistar. Hvergi nokkurs staðar er að finna lögfulla sönnun um eitt eða neitt. Ekkert var lagt til grundvallar dómunum annað en framburð- ur sakborninga. Það vantaði ástæðu, vantaði morðvopn, vantaði lík. Klúbbmálið ótrúlega Þar með erum við komin að þeim kafla málsins sem mér þykir ævin- lega með ólíkindum að skuli geta brugðið fyrir í sögu sakamálarann- sókna á Íslandi. Það er þáttur Klúbbmanna. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir Magnúsi Leópoldssyni, Einari Bollasyni, Valdimar Olsen og Sigur- birni Eiríkssyni var ítrekað framlengdur og þeir sátu inni í liðlega 100 daga. Það er með öllu óskiljanlegt að hægt skyldi vera að halda mönn- um svo lengi í gæsluvarðhaldi sem reyndust saklausir. Mér er kunnugt um að tveir þessara manna þekktust ekki. Þeir höfðu aldrei séð hvor annan þegar þeir losnuðu út fangavist inni. Þetta voru Valdimar Olsen og Einar Bolla son. Þeir voru kynntir eftir að gæsluvarðhaldinu lauk. Og þessir menn áttu að hafa sammælst um að hafa farið til Keflavíkur til fundar við Geirfinn. Mér er algerlega hulið hvers vegna rannsakendur sáu ekki fyrr villu síns vegar. Ég tel fráleitt að þetta gæti gerst í dag. Búið er að breyta leik reglunum og menn huga með öðrum hætti að réttindum grunaðra. Ég er ekki með þessu að segja að allar breytingar á réttarfarsreglum hafi orðið til batnaðar en að þessu leyti hefur mönnum tekist að sníða ágalla af kerfinu sem unnið var eftir á 8. áratug síðustu aldar. Allt varð þetta til þess að sá fræjum efasemda í mínu höfði. Ég hef velt málinu fyrir mér allar götur síðan, hitt marga og reynt að varpa ljósi á það sem gerðist, að minnsta kosti fyrir sjálfan mig. Ég hitti Tryggva Rún ar Leifsson áður en hann lést árið 2009. Ég hef rætt við Guðjón Skarphéð insson og fleiri og allt hnígur í sömu átt, að saklausir menn hafi verið dæmdir. (Millifyrirsagnir eru á ábyrgð DV) ið rannsakað eins rækilega og hvarf Geirfinns. Rannsóknin fór fram undir handleiðslu Valtýs Sigurðs- sonar, núverandi ríkissaksóknara, en hann var þá fulltrúi sýslumanns í Keflavík. Strax í upphafi var ljóst að einhverjar mannaferðir voru í kring- um Geirfinn þegar hann hvarf. Þeg- ar ég las dómana þegar sakborning- arnir voru loks dæmdir í Hæstarétti fannst mér ekkert þar sem hönd var á festandi varðandi afgerandi sann- anir. Engin áþreifanleg sönnunar- gögn var að hafa. Hin ákærðu höfðu verið beitt harðræði, þau voru undir áhrifum lyfja og voru að ýmsu leyti brotnar manneskjur þegar þessir at- burðir urðu. Hvernig ætli það hafi til dæmis verið fyrir Erlu Bolladóttur að vera hneppt í gæsluvarðhald rétt nýorðin móðir? Ég ímynda mér að því hafi fylgt mikill sálrænn þrýst- ingur.“ Sannfærðari en áður „„Ég kem,“ sagði Geirfinnur í sím- ann áður en hann fór að heiman frá sér til fundar við „þessa menn“ í síð- ara skiptið. Og hann kemur – sannleikurinn kemur í ljós ef við gefumst ekki upp við að leita að honum hvað sem það kostar. Ég treysti því og það vita „þessir menn“,“ segir í niðurlagi bókarinnar. Haukur hefur með öðr- um orðum ekki enn gefið upp von um að sannleikurinn komi í ljós. „Það eru áreiðanlega einhverjir enn meðal okkar lifenda sem vita ná- kvæmlega hvað varð um Geirfinn. Ég er búinn að fara yfir þetta aftur og aftur og reyna eitt og annað til þess að varpa ljósi á hvarf hans. Ég hef rætt við marga síðan þessir atburð- ir urðu. Það hefur aðeins sannfært mig enn frekar um sakleysi þeirra sem dæmdir voru. Það er farið skil- merkilega yfir þessa sögu í bókinni.“ Merkileg björgunartilraun Hauki var vikið úr embætti vegna handtökumálsins svonefnda, sem ítarlega er greint frá í bókinni. Þar með var endir bundinn á feril hans innan lögreglunnar og hann snéri sér að öðru. Löngu síðar varð Haukur hvata- maður að merkilegri tilraun til þess að bjarga Guðrúnu Gísladóttur, ný- tískulegu fiskiskipi í eigu Festis í Grindavík, af hafsbotni á grunn- sævi við Noregsstrendur. Skipið hafði strandað með fullfermi af frystri síld. Haukur eignaðist skip- ið og skipulagði björgunartilraunir. „Okkur hafði tekist að rétta skipið á hafsbotni og þegar það stóð á rétt- um kili voru ekki nema um 8 metr- ar niður á loftnetsstöng. Það var nú allt og sumt. En við urðum loks frá að hverfa, aðallega vegna peninga- leysis. Þetta var spennandi verk- efni. Við hjónin lögðum allt undir og vel það. Þetta var áhætta. Við átt- um skipið skuldlaust en það náðist aldrei upp.“ Millimetrum frá dauða Haukur kippir sér ekki upp við að af og til blási á móti í lífinu. Síðast í sumar lenti hann í alvarlegu slysi, en hefur náð sér undravert vel á strik. „Ég var að fylla á loftþrýsti kút við tæki sem notað er til að sand- blása. Ég hafði ekki unnið við þetta tæki áður. Flest slys verða fyrir ein- hvern aulagang og það getur vel átt við um þetta slys. Það var 8 tommu stállok sem lét undan þrýstingi og skaust í andlitið á mér og mölbraut það. Ég þyki hafa sloppið ótrúlega vel. Nú er ég með 8 málmplötur úr títani í andlitinu. Sjónin á öðru auganu laskaðist eitthvað og það er ekki útséð um hvernig það fer. Mér er sagt að það hafi munað milli- metrum að ég steindræpist,“ segir Haukur. Allar götur síðan hef ég verið þess fullviss að saklausir ein- staklingar voru sakfelld- ir og dæmdir til langrar fangelsisvistar. Hvergi nokkurs staðar er að finna lögfulla sönnun um eitt eða neitt. Ekk- ert var lagt til grund- vallar dómunum annað en framburður sak- borninga. Það vantaði ástæðu, vantaði morð- vopn, vantaði lík. „SaklauSir einStaklingar voru Sakfelldir“ 17 ára dómur Sævar Cisielski hlaut 17 ára dóm árið 1980. Tveir aðrir hlutu 16 ára dóm í Geirfinnsmálinu. MynD róBert reyniSSon
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.