Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Blaðsíða 31
Framlag rÚV til leiklistar Í tilefni af 80 ára afmæli Ríkisútvarpsins mun Leikminjasafn Íslands standa fyrir málþingi um fram- lag stofnunarinnar til íslenskrar leiklistar. Málþingið fer fram í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins klukkan 11.00 á laugardag. Málþingið hefst með nokkuð fjölbreyttri dagskrá þar sem ýmsir ræðumenn fara meðal annars yfir upphaf útvarpsleikhúss á Íslandi, hvernig Þorsteinn Ö. varð mesti leikari þjóðarinn- ar og Spaugstofuna. Að lokum verða svo pallborðsumræður undir stjórn Kolbrúnar Halldórsdóttur en í þeim taka þátt Páll Magnússon útvarpsstjóri, Páll Baldvin Baldvinsson, Þorgerður E. Sigurðardóttir og Viðar Eggertsson. Don Pasquale í sambíóunum Gamanópera Donizettis, Don Pasquale, verður sýnd í uppfærslu Metropolitan-óperunnar í Sambíóunum, Kringlunni, laugardaginn 13. nóvember klukkan 17.00. Söngkonan fræga Anna Nebtrebko er í aðalkvenhlutverkinu en í karlhlutverkunum eru Matthew Polenzani, Mariusz Kwiecien og John Del Carlo. Leikstjóri er Otto Schenk, hljómsveitarstjóri er James Levine. Don Pasquale er ein af vinsælustu gamanóperum Donizettis og var sýnd hér í Þjóðleikhúsinu árið 1961 með Kristni Hallssyni í titilhlutverkinu. Sýn- ing Metropolitan-óperunnar var frumsýnd árið 2006 og hlaut þá góðar viðtökur gagnrýnenda. Hún verður endursýnd miðvikudaginn 17. nóvember klukkan 18.00. FöstuDagur n Gildran í gilli í Austurbæ Hin goðsagnakennda rokksveit Gildran fagnar nú útkomu nýrrar tónleikaplötu sem ber nafnið Vorkvöld. Þetta er sjöunda plata sveitarinnar og á henni er einnig hljóðversútgáfa af nýjasta lagi þeirra, Blátt blátt, sem er eftir Birgi Har- aldsson við texta Vigdísar Grímsdóttur. Tónleikarnir verða föstudagskvöldið 12. nóvember í Austurbæ í Reykjavík. n Kaffibarinn kominn með bílpróf Kaffibarinn fagnar 17 ára afmæli sínu með stæl og heldur margra daga tón- listarveislu sem teygir sig inn í desem- bermánuð. Veislan er uppnefnd Úti að aka: Kaffibarinn er kominn með bílpróf. Meðan hátíðin stendur yfir verður verð á öli í lágmarki til klukkan 01.00. Á föstudagskvöldið mætir plötusnúðurinn Sexy Lazer á svæðið og á laugardag verður Orphic Oxtra með lifandi flutning og Alfons X spilar. laugarDagur n Stórtónleikar Sálarinnar Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns heldur stórtónleika í Laugardalshöll laugardaginn 13. nóvember. Tilefnið er útgáfa nýjustu plötu Sálarinnar, Upp og niður stigann, sem út kemur í október og er fyrsta stúdíóplata sveitarinnar frá árinu 2005. Sálinni til fulltingis á þessum tónleikum verða nokkrir aðstoðarmenn og munar þar líkast til mestu um 13 manna vaska sveit blásara úr Stórsveit Reykjavíkur, en óhætt er að fullyrða að þar sé um að ræða fremstu brassmenn lýðveldisins. Lúðrablástur er nokkuð áberandi á plötunni nýju og er það liður í viðleitni Sálverja til að útvíkka hljóm bandsins. Dagskrá tónleikanna verður tvískipt, en leikin verða nokkuð jöfnum höndum lög af nýju plötunni og þekkt lög frá ferli sveitarinnar, sem skreytt verða kraftmiklum lúðrablæstri.Einungis verður um þessa einu tónleika að ræða og verða þeir ekki endurteknir. Höllin verður „stóluð upp“ og fjöldi miða því takmarkaður að sama skapi. Miðaverð verður 4.500 í sal og 3.500 í stúku. n Chaplin fyrir þau yngstu Litli tónsprotinn er áskrift að góðri skemmtun fyrir alla fjölskylduna og gefur yngstu tónlistarunnendunum einstakt tækifæri til að kynnast töfrum tónlistarinnar á klukkutímalöngum tónleikum með Sinfóníuhljómsveitinni. Iðjuleysingjarnir eftir Charlie Chaplin verður sýnd með lifandi hljómsveitar- tónlist. sunnuDagur n Krassandi sirkus Sirkus Íslands setur upp Sirkus Sóley í Tjarnarbíó. Búast má við krassandi og fjörugri sýningu. Miðaverði er haldið í lágmarki en 1.500 krónur kostar inn á sýninguna. Meðlimir Sirkuss Íslands hafa náð færni á heimsklassa í jafnvægislistum, gripli, loftfimleikum og auðvitað eru trúðarnir sprellfjörugir. Búast má við krassandi sirkusatriðum, áhættuatriðum og vænum brögðum sem aldrei hafa sést áður á Íslandi. Nýstofnsett Gaflaraleikhús verður leikhús allra Hafnfirðinga og utanbæjarbomsa: Opið og líflegt leikhússetur Gaflaraleikhúsið hefur tekið við lyklavöldum að leikhúsinu að Strandgötu 50 í Hafnarfirði. Fyrir hópnum fara meðal annarra Björk Jakobsdóttir leikkona og eiginmað- ur hennar Gunnar Helgason. Björk segir að markmið hóps- ins sé að byggja upp öflugt leikhús sem verði miðpunktur allrar leik- listarstarfsemi á Stór-Hafnarfjarð- arsvæðinu. „Við erum nokkur sem stönd- um að þessu, flest okkar eru alvöru gaflarar en svo eru þarna líka inn- fluttir andskotar eins og við köll- um þá. Einn af þessum innfluttu er maðurinn minn, Gunnar Helgason. Stefna Gaflaraleikhússins er að skapa vettvang fyrir leiksýningar þar sem leikarar og listrænir stjórn- endur fá mikið svigrúm til sköp- unar. Við verðum með íslensk verk og ætlum að höfða sérstaklega til kvenna. Leiðin að áhorfendunum er í gegnum konur því þær hafa valdið til valsins og hreinlega alls á heimilinu og það veit ég best allra.“ Björk segir stemninguna verða hlý- lega og að hægt verði að njóta veit- inga meðan á sýningum standi. „Við verðum með borðastemningu, fólk getur komið og fengið sér jóla- glöggið hjá okkur og slakað á eftir annasamar verslunarferðir.“ Björk segir eitt af markmiðum leikhússins vera að byggja upp öfl- ugt barna- og unglingastarf í leik- list. „Við ætlum okkur að halda námskeið og leiklistaræfingar fyr- ir ungmennin okkar og það er mikilvægt starf. Í Hafnarfirði er góð hefð fyrir góðu leiklistaruppeldi og það skilar sér margfalt. Unga fólk- ið verður öruggt og skapandi. Sjáðu bara þessa kláru leiklistarkrakka í MR. Allir meira og minna úr Hafn- arfirði. Utanbæjarbomsur eru auðvitað hjartanlega velkomnar,“ segir Björk. „Okkar fyrsta sýning verður frum- sýnd 27. nóvember og það er jóla- dagskrá með Selmu Björnsdóttur, mér og tveimur ljótum hálfvitum. Við ætlum að halda uppi miklu sprelli og dagskráin er full af óvænt- um atriðum.“ kristjana@dv.is föstudagur 12. nóvember 2010 fókus 31 Hvað er að GERAsT? út fyrir konu sem reisir sig upp með aðstoð undraefnisins næl- ons. „Þróun mannsins hefur alltaf verið sett fram á myndrænan hátt og þá þannig að í huga flestra er þróunarkenningin svartur, loðinn api sem breytist í snyrtilegan, vel greiddan hvítan karlmann í afa- nærbuxum. Við skiptum karlinum út fyrir konu og það er merkilegt hvað það eitt breytir miklu,“ segir Sigrún. Stelpurnar segjast í rann- sóknarvinnu sinni enda ekki hafa fundið myndræna framsetningu á þróun mannsins þar sem konan er myndefnið. „Það er merkilegt, enda eigum við okkar raunveru- legustu mynd af þróun manns í ap- anum henni Lucy sem fannst hér á jörð. En myndin af Lucy skilar sér ekki í myndheimildir. Í okkar til- lögu að myndrænni útfærslu á þró- un mannsins stendur konan uppi í lok ferilsins fullkomlega stífð í næl- oni. Allur líkaminn sléttur og felld- ur undir stífu yfirborði nælonsins. Meira að segja hárið er stífað í næl- onsokkabuxur í settlegar krullur.“ Tryllingur undir hjúpnum Önnur verk á sýningunni segir Sig- rún vera af ýmsum toga. Eitt fjalli til að mynda um getnað og hvernig manneskjan verði til og annað fjalli um samspil kynjanna og fram- setningu á valdi. „Nælonið bindur verkin saman,“ segir Eirún. „Eða ætti ég kannski að segja að næl- onið leggist yfir verkin? Einhver sagði að siðmenningin væri þunnt lag yfir grófu og óbeisluðu náttúru- eðli. Aðeins þyrfti að hrufla lítillega við þessu þunna lagi siðmenning- ar til að hleypa upp fornu og grófu eðli mannsins. Þannig hugsum við líka um nælonið. Það er ein- hver tryllingur undir þessu næloni og spurning hvað gerist þegar það klórar einhver í það. Eða ef nælon- konurnar sjálfar reyna að brjótast úr hjúpnum.“ aðþrengDar konur í nælonsokkabuxum Ef við værum strákar hefðum við verið margsinnis beðnar um að vera með skemmtisjónvarpsþátt eins og Strákarnir okkar með Sveppa og Audda. Er náttúruleg fegurð til? Er hún einhvers virði? Þéttleiki sokkabuxnanna afskræmir andlit þeirra í ljósmyndaverkinu Andlit þar sem þær tefla fram eigin andlitum, annars vegar afskræmdum með næloninu og hins vegar fegruðum með farða og ljósmyndatækni. Í hjólreiðatúr Sýningin Tight var fyrst sett upp í Amos Anderson-lista- safninu í Helsinki í Finnlandi og var sýningarstjóri Kaj Martin. Jólaskrall Jólaskrall er jóladagskrá sem verður frumsýnd 27. nóvember í nýju Gaflaraleikhúsi. Getnaðarhjól Verkið Hjól er ákveðin þungamiðja í sýningunni. Verkið er skúlptúr sem hangir í lofti safnsins. Litaspilið í hring Gjörningaklúbbsins er myndað með sokkabuxum og skína litirnir, sem tákna tíðahring kvenna, í gegnum form mynduð úr líkamshlutum sem tengjast getnaði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.