Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Side 32
32 nærmynd umsjón: ingibjörg dögg kjartansdóttir ingibjorg@dv.is 12. nóvember 2010 föstudagur Óhætt er að segja að Jónína Ben sé litrík-ur karakter. Hún er íþróttafræðingur, detox-ráðgjafi, athafnakona og samfé-lagsrýnir. Þannig er henni lýst á Wikip- edia. Aftan á bókarkápunni á nýútkominni ævi- sögu hennar segir að hún sé kraftmikil og áræðin en einnig ein umdeildasta persóna íslenskrar samtímasögu. Sjálf segist hún vera sterk eða frek, eftir því hvernig það sé orðað. Baugsmálið er hennar stærsta barátta til þessa, barátta sem kostaði hana nánast æruna en náði þó ekki að buga hana. Baráttan við Bakkus reynd- ist líka erfið en að lokum náði Jónína tökunum á honum. Kjaftfor og hvatvís segir Jónína það sem hún meinar og stendur við það. Hún stóð fast á því að íslenska fjármálakerfið væri í molum og að Bún- aðarbankinn hefði ekki verið seldur, honum hefði verið stolið. Í Kastljósi bauðst hún til að mæta þeim sem væru ábyrgir fyrir því og ræða málin. Almenningur vissi ekki hvaðan á sig stóð veðrið og margir töldu hana hálfskrýtna, bitra eða jafnvel alveg klikkaða. Sjálf gekk hún í gegnum gjaldþrot. Hún var einnig í innsta hring íslenskra fjármálarisa. Heilsurækt er hennar þema og hefur hún reist hvert líkamsræktarveldið á fætur öðru. Stundum hefur gengið vel, stundum ekki. Á tímabili átti hún sand af seðlum. Í annan tíma var hún skítblönk. En alltaf hefur henni tekist að rísa aftur á fætur. Aðframkomin af streitu flaug hún til Póllands þar sem hún kynntist detox-meðferðinni sem var Íslendingum svo framandi á þeim tíma. Hún breiddi út boðskapinn og flaug út með Árna John- sen, Ásgeir Þór Davíðsson, Þorstein Hjaltested og fleiri mæta menn sem vildu hreinsa sig að innan. Síðan hefur hún veitt um 1.000 Íslendingum de- tox-meðferð á gamla herstöðvarsvæðinu. Hún fór að heiman fjórtán ára og gifti sig fyrst sautján ára. Hún var gift Stefáni Einari Matthías- syni í fjórtán ár en átti síðar í ástarsambandi við Jóhannes Jóhannesson í Bónus og Styrmi Gunn- arsson. Nýlega gekk hún í hjónaband með Gunn- ari Þorsteinssyni í Krossinum. „andinn dregur fólk áfram“ Jónína vakti fyrst athygli landsmanna sem eró- bikkkennari og sá meðal annars um morg- untrimm landsmanna árið 1986. Sveitt í skokkinu sem og alla daga lét hún samfélagsmál sig varða og lét ýmis spakmæli um lífið og tilveruna falla í hita leiksins. „Andinn dregur fólk áfram og hver og einn vinnur að því að finna sigurvegarann í sjálfum sér,“ sagði hún síðar með sannfæringarkrafti og hélt Yoga-spinning námskeið þar sem hún kynnti einnig aloe vera-heilsuvörur, sem voru „ekki fæðubótarefni“ heldur „lífsnauðsynlegar“. Í Aust- urríki lærði hún líka klang-músíkþerapíu sem virkaði örvandi á mannssálina. atvinnurekandi ársins Um þessar mundir stendur hún í stórræðum með detox- ævintýrið en Jónína Ben er og hefur alltaf verið heilsu- drottning. Á tímabili rak hún líkamsræktarstöð með Ágústu Johnson. Síðar hélt hún til Svíþjóðar þar sem hún keypti illa rekna heilsurækt- arstöð í eigu sex karlmanna. „Eigendurnir vildu allir vera í forstjóraleik,“ sagði hún og breytti áherslunum svo um munaði. Fjórum árum síðar var heilsuræktin orðin ein sú stærsta á Norðurlöndunum og Jónína var valin atvinnurekandi ársins í Hels- ingjaborg. Hún ætlaði sér þó aldrei að setjast að í Svíþjóð eins og fram kom í viðtali frá þessum tíma: „Það má alltaf selja eitt fyrirtæki. Ég hef gert það áður. Þetta eru bara dauðir hlutir.“ líkamsræktarveldið sem hrundi Eftir að heim var komið ætlaði hún sér að reisa líkamsræktarveldi. Þegar fallið var frá því að opna stærsta skemmtistað landsins í Austurstrætinu stökk hún til og opnaði sjöttu Planet Pulse-lík- amsræktarstöðina í húsnæðinu. Markmiðið var að á næstu þremur árum yrðu staðirnir fimmtán. Svo fór að Jónína fór á hausinn. Árið 2009 leiddi hún hóp erlendra fjárfesta sem vildu kaupa World Class að beiðni sænsks vinar. Sagði hún eðlilegt að setja spurningarmerki við það að sömu eigendur héldu rekstrinum áfram eftir að hafa skipt um kennitölu. „Kenni- töluflakk er ekki rétta leiðin því þá hefði ég verið til í að kunna það trix á sínum tíma þegar ég fór á hausinn. Þá var ég með margar stöðvar í rekstri og það var bara ein þeirra sem dró mig í kaf. Það hvarflaði hins vegar aldrei að mér að setja hana undir aðra kennitölu. Kennitöluflakkið er ekki sniðugt og nýir eigendur þurfa að koma að þessu.“ barbie er dauð Tilraun Jónínu til þess að breyta líkamsvitund fólks og þá aðallega kvenna vakti athygli á sínum tíma. Á meðal þess sem hún sagði var að fyrir- sætur væru lifandi fatahengi sem óþarfi væri að líta öfundaraugum. „Útlitsdýrkun nútímans get- ur tortímt andanum og þá hefur maðurinn misst sérstöðu sína í sköpunarverkinu. Konur leita í fá- fengilegheit þegar þær gleyma að nýta sér hæfi- leika sína því allar konur búa yfir einhverjum hæfileikum ótengdum útliti sínu. Sorg fylgir því oft þegar einhverju megrunarmarkmiði er náð og hamingjan lætur samt á sér standa. Fyrirsætur eru lifandi fatahengi og víst er skemmtilegt að fylgjast með þeim, hins vegar þarf fólk ekki að lifa sig inn í þeirra heim frekar en teiknimyndir Disney.“ Frasinn „Barbie er dauð“ er einn af hennar þekktustu frösum og sprottinn frá þeim tíma er hún hélt fyrirlestra um líkamsímynd kvenna. Vildi hún meina að karlar með bumbu litu enn svo á að þeir væru aðlaðandi á meðan konur þyrðu varla út úr húsi hefðu þær bætt nokkrum grömmum á sig. Þessu viðhorfi yrðu þær að breyta. detox-„kraftaverkið“ Rétt mataræði var henni einnig hugleikið. „Megr- un er villandi orð. Of lítið eða rangt mataræði veldur offitu og sjúkdómum.“ Hvatti hún fólk til þess að setja sér langtímamarkmið og „ekki lifa í blekkjandi auglýsingamennsku. Hver og einn ákveður sjálfur hvort honum finnst hann vera orðinn feit- ur.“ Rétt mataræði er henni enn hugleikið. Nú hvetur hún fólk til þess að hreinsa líffær- in með grænmeti. „Þetta er hálfgerð fasta,“ sagði hún um detoxið sem hún kynntist í Póllandi. „Þegar líkaminn fer að fasta fer fitan í vöðva- vefjum út í meltingarveg- inn. Þannig að föstunni fylgir engin hungurtilfinning.“ Eftir fjóra til fimm daga færi ým- islegt að gerast, lifrin hreins- aði sig, blóðið líka, fituvefir minnkuðu og boðefnabreyt- ingar yrðu í heilanum því fólk færi að hugsa öðru- vísi, minni ykist og fólk hugsaði skýrar. Þegar þetta viðtal var tekið og enn í dag hefur Jónína tröllatrú á detoxinu sem hjálpaði henni að ná tökum á heilsunni og hrista af sér sautján kíló. „Það eiga sér kraftaverk stað þarna!“ sagði hún og glennti upp augun. „Sérstaklega í andlega þættin- um. Þegar þú byrjar að fasta neyðistu til að heim- sækja sjálfan þig og sú heimsókn endar yfirleitt í gríðarlegri hamingju. Við fæðumst nefnilega öll í lagi.“ svarar fullum hálsi Um meðferðina er þó deilt. Læknir sagði að fólk hefði þurft aðstoð lækna og verið lagt inn í fram- haldi af detox-meðferð vegna blóðþrýstings- og blóðskykurskrísu. Jónína svaraði gagnrýninni fullum hálsi, eins og henni einni er lagið. „Ég hvet læknasamtökin til þess að fara yfir öfga- skrif, níðskrif, blekkingarleik, lyfjasýki, trúleysis- ofstæki, tengsl við Hreiðar Má, áráttuhegðun og lygar þessa manns. Ég og fleiri höfum fengið nóg af skrifum hans sem einkennast af ofsóknaræði. Hann er lyflæknir og matar landlækni á þvælu. Tékkið á tengslum hans við þá sem ég hef verið að gagnrýna í viðskiptalífinu og þá sér fólk hvað ligg- ur að baki þessu ef það er þá ekki hrein geðveila. Ég hef fengið kvartanir undan honum ítrekað.“ Síðan spurði hún hvort fólk mætti ekki tjá sig nema það væri læknar. „Þetta er bara mennta- hroki,“ sagði hún og bætti við: „Ég þekki orkuþörf líkamans miklu betur en læknar. Ég er menntaður íþróttafræðingur og hef lært miklu meira en þeir.“ gerði dýrkeypt mistök drukkin Þrátt fyrir þessar áherslur á heilsurækt hefur áfengi verið henni til trafala. Árið 2006 hafði hún algjörlega misst tökin. Í kringum jól og fram að áramótum drakk hún allt of mikið og var líðan hennar eftir því, hörmuleg. „Í hjarta mínu hafði ég í mörg ár gert mér grein fyrir því að eina raunhæfa leiðin væri að hætta alveg. Það er svo auðvelt að misnota áfengi aftur og aftur þegar maður hefur gert það einu sinni. En eins og fleirum fannst mér það bara svo bölvanlega leiðinleg lausn að ég lét ekki verða af því,“ segir hún í ævisögunni. Þar lýs- ir hún því líka að þar sem hún hafði hvorki misst dag úr vinnu né drukkið sig fulla marga daga í röð leit hún ekki á sig sem alvöru alkóhólista. Að lok- um fór hún í afvötnun í ársbyrjun 2007. „Ég get ekki lagt næga áherslu á að mín stærstu mistök í lífinu voru að byrja að drekka áfengi. Ekki aðeins hefur mér liðið verst þegar ég hef drukkið ótæpi- lega, heldur hef ég undir áhrifum gert nærri allt það sem ég sé eftir í lífinu.“ Eitt af því sem hefur valdið henni vandræð- um er hversu meiðandi orð hún hefur látið falla um mann og annan í umræðunni. Slík ummæli hafa valdið reiði og skilið eftir sig sár. Hún seg- ir þó að ljótustu skrifin til Jóhannesar í Bónus og annarra hafi átt sér stað þegar hún var undir áhrif- um. „Þaðan koma líka bloggfærslur sem urðu mér dýrkeyptar og valda því að stór hópur fólks mun aldrei breyta um skoðun á mér. Það gildir einu hve merkilega hluti ég hef að segja. Ég verð alltaf kon- an sem hafði uppi ljót orð um landsþekkta menn.“ bestu vinirnir samkynhneigðir Staða kvenna er mál sem hún lætur sig varða. Hún hefði aldrei gengið í Krossinn ef gamlar regl- ur hefðu verið þar enn í gildi. „Krossinn sem var með þær gömlu hugmyndir að konur ættu að vera í síðum pilsum með sítt hár. Ég hefði aldrei nokk- urn tímann tekið þátt í því vegna þess að það hefði brotið gegn öllum mínum prinsippum um kon- una sem manneskju.“ Um tíma var hún var þó við það að missa trúna á kynsystrum sínum. „Stundum missi ég trúna á konur. En svo fæ ég mér glas af vatni og læt um- mæli þeirra um mig sem vind um eyru þjóta. Þeir sem ekki ráða við það sem ég skrifa á Facebook geta sleppt því að lesa það í stað þess að froðufella í illsku sinni og illkvittni.“ Samkynhneigðir menn hafa reynst henni bet- ur. „Ég lít ekki öðrum augum á samkynhneigða en annað fólk þótt Gunnar geri það. Hann trúir því að þessu ástandi megi breyta. Ég hef enga skoð- un á því og ætla ekki að reyna að hafa það. Mínir bestu vinir eru hommar og þeir trúnaðarvinir sem ég hef alltaf getað treyst eru hommar. Ég held að það sé bara mjög mikilvægt fyrir konur, sérstak- lega einhleypar konur, að eiga hommavini. Þeir eru vinkonur í raun.“ ástir jónínu og gunnars Gunnari kynntist Jónína fyrir nokkrum árum þeg- ar hann hringdi í hana því hann vildi komast í detox í Pólland fyrst hann hafði haft það fyrir sið í þrjátíu ár að fasta í janúar. Sögusagnir urðu svo til þess að þau náðu saman, en eftir þrálátan orð- róm um rómantískt samband ákváðu þau að hitt- ast og ræða málin. „Ég man ég hugsaði: „Ég og Gunnar í Krossinum? Bara aldrei!“ Hittust þau á Holtinu og voru þar ásamt fjölda útrásarvíkinga. Á þeim fundi gerðist eitthvað og með þeim tókust ástir. „Þar kviknaði eitthvað sem var ekki umflúið,“ sagði hún. Gunnar var nýskilinn á þesum tíma og alls ekki á leið í nýtt samband. „Það er ofboðslega erfitt fyr- ir hann og hans trúarskoðanir að byrja í nýju sam- bandi. Það stóð aldrei til hjá honum. Hann ætlaði bara að vera einn það sem eftir var.“ Trúin hjálpaði þeim nú samt að ná saman líka. „Við erum bæði svo lánsöm að vera mjög trúuð og við erum sann- færð um að við höfum verið leidd saman á þessu augnabliki í lífi okkar beggja.“ sársaukafullt að skilja „Sko, það er alltaf sársaukafullt að skilja. Ég hef verið fráskilin í tólf ár og er þeirrar skoðunar að fólk eigi að reyna gjörsamlega allt til að halda sínu hjónabandi gangandi vegna þess að sársaukinn er það ofboðslegur fyrir börn. Það er að sama skapi erfitt fyrir börn að sjá foreldra sína ganga í nýtt „Minn stærsti draumur er að verða forsætisráðherra“ Jónína Benediktsdóttir er litríkur karakter sem hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum. Hún er heilsu- drottning sem hefur þurft að berjast við Bakkus. Kona sem laðast að sterkum mönnum og hefur verið í umdeildum ástarsamböndum með Jóhannesi í Bónus og Styrmi Gunnarssyni. Og ekki vakti það minni athygli þegar hún gekk í hjónaband með Gunnari í Krossinum. Hún var mitt í hringiðunni í Baugsmálinu og var við það að missa æruna en hikaði aldrei við að segja sína meiningu. Núna býður hún upp á detox- meðferðir og deilir við lækna um ágæti þeirra. Kennitöluflakk er ekki rétta leiðin því þá hefði ég verið til í að kunna það trix á sín- um tíma þegar ég fór á hausinn. Þá var ég með margar stöðvar í rekstri og það var bara ein þeirra sem dró mig í kaf.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.