Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Síða 40
María Stefanía fæddist á Siglufirði
og ólst þar upp. Hún stundaði nám
við Barnaskólann á Siglufirði og
lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræða-
skóla Siglufjarðar 1948. Hún fór ung
til Vestmannaeyja að vinna og þar
kynntist hún Hafsteini, eiginmanni
sínum. Er hún gifti sig flutti hún til
Vestmannaeyja þar sem þau hjón-
in bjuggu í tólf ár en 1963 fluttu þau
í Kópavoginn. Þar bjuggu þau fyrst
á Hlíðarvegi og síðar í Kastalagerði.
María flutti síðan í Lækjarsmára 2 í
Kópavogi, árið 1997.
Auk húsmóðurstarfa vann María
á Saumastofu Kópavogs og síðar á
saumastofu Kópavogshælis í tíu ár.
María var félagi í Oddfellowregl-
unni frá 1981 og var virk í kvenfélag-
inu Heimaey og í Siglfirðingafélag-
inu.
Fjölskylda
María giftist 16.6. 1951 Hafsteini
Júlíussyni, f. 8.6. 1928, d. 15.2. 1990,
múrarameistara. Hann var son-
ur Gunnlaugs Júlíusar Jónssonar,
f. 31.7. 1895, d. 4.9. 1978, múrara-
meistara í Vestmannaeyjum, og Sig-
urveigar Björnsdóttur, f. 22.9. 1891,
d. 27.9. 1934, húsmóður.
Börn Maríu og Hafsteins eru Sig-
urveig Helga, f. 9.9. 1951, gift Bjarna
Ragnarssyni, f. 27.11. 1950 og eru
börn þeirra María, f. 1975, en mað-
ur hennar er Daði Már Ingvarsson,
f. 1977, og eru börn þeirra Hrefna
Ósk, f. 1994, Daníel Már, f. 2002, og
Gabríel Már, f. 2004; Steinar, f. 3.11.
1980 en dóttir hans er María Ísa-
bella, f. 2.4. 2009, en áður átti Bjarni
dótturina Anettu Rós, f. 3.12. 1971
en maður hennar er Christian, f.
5.4. 1978, og eru börn þeirra Sunna
Dögg, f. 22.9. 1989, Thelma Rut, f.
22.5. 1999, og Oliver, f. 2.4. 2009.
Eiríksína Kristbjörg, f. 20.6. 1955,
gift Óskari Sverrissyni, f. 14.5. 1959,
og eru synir þeirra Bjarki, f. 10.9.
1988; Sævar Már, f. 10.8. 1990.
Guðný, f. 19.7. 1956, gift Jóhanni
Sveinssyni, f. 15.3. 1955, og eru börn
þeirra Elísa, f. 6.1. 1978; Hafsteinn
Ævar, f. 23.3. 1982.
Sigurður, f. 3.8. 1959, kvæntur
Svövu Aldísi Viggósdóttur, f. 20.10.
1961 og eru börn þeirra Harpa
Hödd, f. 31.8. 1982, en maður henn-
ar er Ísak Halldórsson Nguyen, f.
8.7. 1983 og er sonur Hörpu Baltas-
ar Breki; Viggó, f. 22.1. 1987.
Júlíus Geir, f. 1.1. 1963, kvæntur
Margréti Herdísi Guðmundsdóttur,
f. 30.4. 1962, og eru börn þeirra Haf-
steinn, f. 10.12. 1984, en kona hans
er Karitas Sveinsdóttir, f. 4.3. 1987;
Eysteinn Freyr, f. 12.7. 1989; Guð-
mundur Þór, f. 29.12. 1993; Júlíus
Mar, f. 7.6. 2004.
Þröstur, f. 20.1. 1964, kvænt-
ur Hrafnhildi Karlsdóttur, f. 11.11.
1962, og eru börn þeirra Orri, f.
19.11. 1985; Katrín, f. 30.3. 1989, en
maður hennar er Ómar Þór Yngva-
son, f. 18.1. 1988; María, f. 17,10.
1993.
Sambýlismaður Maríu frá 1998
er Aðalsteinn Guðlaugsson, f. 17.7.
1926, en dóttir hans er Sóvleig, f.
28.8. 1961.
Systkini Maríu Stefaníu: Sigurð-
ur, f. 27.5. 1917, d. 12.2. 1944, var
búsettur í Sandgerði, var kvænt-
ur Rósu Magnúsdóttur og eignuð-
ust þau þrjú börn; Ásbjörg Una, f.
19.5. 1919, d. 4.9. 1972, var búsett
í Reykjavík, var gift Katli Ólafssyni
og eignuðust þau fjögur börn; Hall-
dóra Guðrún, f. 5.7. 1921, d. 4.6.
2009, lengi húsmóðir í Vestmanna-
eyjum, var gift Boga Jóhannssyni
og eignuðust þau sex börn; Sveinn
Pétur, f. 27.6. 1924, d. 18.12. 1998,
lengst af sjómaður á Siglufirði, var
kvæntur Hansínu Jónatansdóttur
og eignuðust þau eitt barn; Ásgrím-
ur Guðmundur, f. 22.2. 1927, d. 14.1.
1999, lengst af sjómaður á Siglu-
firði, var kvæntur Guðbjörgu Frið-
riksdóttur og eignuðust þau fimm
börn; Þorsteinn Helgi, f. 30.5. 1929,
d. 14.2. 2000, lengst af skipstjóri á
Ólafsfirði, var kvæntur Hólmfríði
Magnúsdóttur og eignuðust þau
fjögur börn; Björn, f. 9.8. 1930, fyrrv.
verslunarstjóri í Reykjavík, kvænt-
ur Önnu Guðmundsdóttur og eiga
þau tvö börn; Svava Kristín, f. 10.11.
1932, d. 10.5. 2007, verslunarmað-
ur í Reykjavík, var gift Hrafnkatli
Guðjónssyni og eignuðust þau þrjú
börn; Sigríður Bjarney, f. 17.8. 1934,
fyrrv. skrifstofustjóri í Kópavogi.
Foreldrar Maríu Stefaníu voru
Björn Sigurðsson frá Héðinsfirði, f.
14.11. 1892, d. 30.8. 1974, skipstjóri
á Siglufirði, og k.h., Eiríksína Kr. Ás-
grímsdóttir, f. 11.4. 1897, d. 18.9.
1960, húsmóðir á Siglufirði.
Útför Maríu Stefaníu fór fram í
Kópavogskirkju mánudaginn 8.11.
sl.
Sigurður fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í húsi afa síns, Sveins Egils-
sonar, að Laugavegi 105. Hann var
í Austurbæjarskólanum og Gagn-
fræðaskóla Austurbæjar (Vörðu-
skóla), lauk þaðan landsprófi, lauk
stúdentsprófi frá Verslunarskóla
Íslands 1976, stundaði síðar nám í
viðskiptafræði við Háskóla Íslands
og lauk þaðan BS-prófi í viðskipta-
fræði árið 2003.
Að loknu stúdentsprófi starfaði
Sigurður á verkstæði Jóns Sveins-
sonar & Co til 1990 er það fyrirtæki
hætti rekstri. Hann hóf þá sjálf-
stæðan atvinnurekstur við þakvið-
gerðir og starfaði síðan í umboði
bandaríska fyrirtækisins SWEPCO
(Southwestern Petroleum Corpor-
ation) og flutti inn málningar- og
þakviðgerðarvörur frá því fyrirtæki.
Sigurður starfrækti síðan bók-
haldsþjónustuna SMCO – reikings-
hald og ráðgjöf, að loknu há-
skólanámi og þar til hann varð
bráðkvaddur á heimili sínu.
Sigurður var áhugamaður um
silungaveiði og skotveiði og naut
þá samveru og aðstoðar írska sett-
erhundsins Pjakks (1991–2010). Þá
hafði hann ánægju af lestri góðra
bóka.
Fjölskylda
Sonur Sigurðar og þáverandi sam-
býliskonu hans, Kristínar Þor-
steinsdóttur, f. 6.1. 1965, er Jón
Þorsteinn Sigurðsson, f. 27.5. 1980.
Sigurður og Kristín slitu samvistum
1984.
Systkini Sigurðar eru Kristján
Þ. Jónsson, f. 29.5. 1948, en kona
hans er Sveinbjörg Guðmarsdótt-
ir, f. 15.9. 1951 og eru dætur þeirra
Rakel Linda, f. 29.7. 1969, og Sig-
urlaug, f. 15.7. 1974, en fyrir átti
Kristján synina Sigurð Þ., 22.10.
1967, og Birgi Æ., 14.2. 1968; Inga
Sveinbjörg Jónsdóttir, f. 15.8. 1953;
Jóna Fríður Jónsdóttir, f. 4.8. 1955,
en maður hennar er Þorsteinn Ingi
Jónsson, f. 31.1. 1955, og er dótt-
ir þeirra Lísa Björk, f. 13.7. 1987;
Svala Rún Jónsdóttir, f. 22.4. 1959,
en maður hennar er Guðmundur
Óli Reynisson, f. 17.7. 1954, og eru
börn þeirra Gunnar Ingi, f. 14.4.
1984, Heiða Rut, f. 28.10. 1987, Ólöf
Rún, f. 31.3. 1992, en fyrir átti Guð-
mundur dótturina Margréti Erlu, f.
22.11. 1979.
Foreldrar Sigurðar: Jón Kristófer
Sveinsson, f. í Reykjavík 22.1. 1929,
fyrrv. framkvæmdastjóri, og Sig-
urlaug Kristjánsdóttir, f. í Stykkis-
hólmi 28.9. 1930, d. 8.6. 2006, hús-
móðir.
Útför Sigurðar fór fram frá Foss-
vogskirkju fimmtudaginn 11.11.
María Stefanía
Björnsdóttir
húsmóðir í Kópavogi
Sigurður Magnús
Jónsson
viðsKiptafræðingur og framKvæmdastjóri
Fædd 13.9. 1931 - Dáin 25.10. 2010
Fæddur 13.9. 1931 - Dáinn 25.10. 2010
40 minning 12. nóvember 2010 föstudagur
andlát
andlát
merkir íslendingar
Björn fæddist í Sauða-
nesi, sonur Halldórs
Björnsson, prests þar,
og f.k.h., Sigríðar Vig-
fúsdóttur húsmóð-
ur. Kona Björns var
Sigríður Einars-
dóttir frá Saltvík á
Tjörnesi en meðal
barna þeirra voru
Þórhallur, biskup
í Laufási í Reykja-
vík, faðir Tryggva
forsætisráðherra og
Dóru forsetafrúar,
og Vilhjálmur, bóndi,
smiður og jarðrækt-
armaður í Rauðará við
Reykjavík sem stóð þar
sem nú eru höfuðstöðvar frí-
múrara, faðir Halldórs, skólastjóra
á Hvanneyri, afa Sveins Runólfssonar
landgræðslustjóra, og faðir Laufeyj-
ar, móður Finnboga Guðmundssonar
landsbókavarðar.
Björn lauk stúdentsprófi frá Bessa-
staðaskóla 1844 og guðfræðiprófi
frá Prestaskólanum 1850. Hann var
kennari að Laufási í Eyjafirði, varð að-
stoðarprestur séra Gunnars Gunnars-
sonar þar 1852, fékk prestakallið 1853,
hélt því til æviloka og var prófastur
1863–82.
Burstabærinn sem
enn stendur í Laufási
var einmitt reistur í
tíð sr. Björns Hall-
dórssonar á árnum
1866–70. Elstu hlut-
ar hans eru þó frá
því um 1840 og er
elsta húsið í bæn-
um hið svokallaða
Brúðarhús, þar
sem brúðurin gat
klætt sig upp á fyrir
brúðkaupsathöfn.
Björn var afar
vel látinn prestur en
í Íslenskum æviskrám
er hann sagður vel gef-
inn, orðlagður kennimað-
ur og skáld gott. Auk þess var
hann hinn besti búmaður, vefari
og smiður. Björn var eitt af kunn-
ustu sálmaskálum landsins og orti
fjölda sálma í sálmabókina 1886.
Hann þýddi m.a. sálminn Á hendur
fel þú honum og orti jólasálminn
sem allir þekkja, Sjá himins opnast
hlið. En hann orti einnig fjörug og
stórskemmtileg veraldleg kvæði sem
m.a. birtust í ljóðasafninu Snót og í
Sunnanfara.
Björn Halldórsson
prófastur og sKáld í laufási
f. 14.11. 1823, d. 19.12. 1882
merkir íslendingar
merkir íslendingar
Eysteinn fæddist á Hrauni
á Djúpavogi. Hann var
sonur Jóns Finnsson-
ar, prests í Hofsþing-
um, og k.h., Sigríðar
Hansdóttur Beck
húsfreyju. Bróðir
hans var dr. Jakob
Jónsson, sóknar-
prestur í Hallgríms-
kirkju og rithöf-
undur, faðir Þórs
veðurfræðings og
rithöfundanna Guð-
rúnar, Svövu og Jök-
uls leikritaskálds sem
var faðir rithöfundanna
Elísabetar, Illuga og Hrafns.
Eysteinn stundaði nám hjá
föður sínum, við Samvinnuskólann
1925–27 og við Pitman‘s College í
London. Hann gerði ungur bandalag
við Hermann Jónasson gegn Jónasi
frá Hriflu og hófst yngri til mannvirð-
inga í stjórnmálum en dæmi voru um
hér á landi, varð alþm. tuttugu og sex
ára og ráðherra í Stjórn hinna vinn-
andi stétta 1934, aðeins tuttugu og
sjö ára. Eysteinn var síðan ráðherra í
stjórnum Framsóknarflokksins fram
að Viðreisn, 1959, lengst af fjármála-
ráðherra.
Eysteinn tók við Fram-
sóknarflokknum af Her-
manni og gegndi þar
formennsku í stjórnar-
andstöðu 1962–68. Þá
var hann stjórnar-
formaður SlS 1975–
78 og formaður
Náttúruverndar-
ráðs 1972–78.
Eysteinn þótti
með mælskustu
þingmönnum á sín-
um yngri árum en
hafði ráma og frem-
ur óáheyrilega rödd.
Hann var með útstæð
eyru sem skopteiknar-
ar nýttu sér óspart, og leið
fyrir það að á Viðreisnartímanum
kenndu sjálfstæðismenn Framsókn-
arflokknum einum um haftastefnur
fyrri ára.
Eysteinn var engu að síður merkur
stjórnmálamaður, skarpgreindur,
samviskusamur og reglumaður og
sjálfum sér samkvæmur í utanrík-
ismálum sem málsvari vestrænnar
samvinnu – ólíkt Hermanni Jónas-
syni. Þá var Eysteinn mikill útivistar-
maður og einlægur málsvari náttúru-
verndar.
Eysteinn Jónsson
alþm., ráðherra og formaður framsóKnar
f. 13.11. 1906, d. 11.8. 1993