Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Page 42
42 sakamál umsjón: kolbeinn þorsteinsson kolbeinn@dv.is 12. nóvember 2010 föstudagur
Matur, kynlíf, Morð
að kvöldi 10. júní 2007 matreiddi Anne Stout eftirlætismat eigin-manns sín Bills, safa-
ríka steik. Að kvöldverði loknum
leiddi hún hann inn í svefnher-
bergi heimilis þeirra í Darby í
Montanaríki í Bandaríkjunum
þar sem þau nutu ásta og nutu
þess síðan að kúra saman um
stund.
Að örfáum mínútum liðnum
sagði Anne að hún væri ekki syfj-
uð og að hún ætlaði að bíða eft-
ir að synir þeirra tveir, sem höfðu
farið út að skemmta sér, kæmu
heim. Bill hugðist vakna snemma
næsta dag til að fara í útreiðartúr
með vini sínum og var því feginn
að geta lagst til hvílu.
illa fyrir kallaður
Í bítið daginn eftir hringdi vinur
Bills og Anne svaraði. Vinurinn
vildi vita hvað tefði Bill, enda ætl-
uðu þeir í útreiðartúr. Anne gaf
þá skýringu að Bill væri illa fyr-
ir kallaður og myndi ekki fara á
hestbak þann daginn.
Um níuleytið fór Anne út,
meðal annars til að afhenda
góðgerðarstofnun gamlan fatn-
að, og kom ekki heim fyrr en um
eftirmiðdaginn. Skömmu síð-
ar hringdi hún í miklu uppnámi
í neyðarlínuna: „Ég var að koma
heim og það er eitthvað ekki í lagi
með manninn minn. Það er blóð
og augun eitthvað undarleg og
hann er kaldur.“
Þegar sjúkraliðarnir komu á
staðinn sáu þeir að Bill var liðið
lík – og engin furða þar sem hann
hafði verið skotinn í höfuðið. Að-
stoðarlögreglustjórinn Ron Holt-
on fann níu millimetra skothylki
undir koddanum og kúluna sjálfa
í rúminu.
Anne bendir á barböru,
gamla ást
Við fyrstu athugun var enga byssu
að sjá og Anne, í öngum sínum,
sagði Ron að hún hefði ekki hug-
mynd hver hefði viljað Bill illt,
nema sennilega hún Barbara
Miller, plágan sú. Anne sagði að
umrædd Barbara hefði ofsótt
fjölskylduna um tveggja ára skeið
með rætnum tölvupósti og bréf-
um því hana hefði þyrst í hefnd.
Barbara og Bill höfðu þekkst
snemma á áttunda áratugnum.
Þau höfðu hist í Kaliforníu og
búið saman í um hálft ár, en síð-
an skildi leiðir.
Þau hittust aftur við brúðkaup
systur Barböru árið 2005 í Ark-
ansas og endurnýjuðu kynnin.
Barbara sagði síðar að það hefði
verið eins og þau hefðu aldrei yf-
irgefið hvort annað. Brúðkaup
systur Barböru varðaði upphaf
ástarævintýris Bills og Barböru,
sagði Anne Ron Holton. Anne
sagði ennfremur að hún hefði
komist að hliðarspori Bills mán-
uði síðar og að Bill hefði sam-
stundis bundið enda á ástaræv-
intýrið.
Heift og haturspóstur
En Anne sagði að Barbara hefði
ekki verið reiðubúin til að slíta
sambandi sínu við Bill og síðan í
maí 2005 hefði hún sent haturs-
póst. Barbara gat bara ekki afbor-
ið þá tilhugsun að Bill hefði kast-
að henni fyrir róða, sagði Anne.
Þar sem frásögn Anne var það
eina sem lögreglan gat byggt á lá
beint við að finna umrædda Bar-
böru Miller og heyra hennar hlið
á málinu. Barbara kom af fjöllum
og var slegin að heyra af örlögum
Bills, en hún hafði verið í Arkans-
as þegar morðið var framið og gat
sannað það með upptökum úr
eftirlitsmyndavélum.
Útilokað var að Bill hefði svipt
sig lífi þegar þar var komið sögu
enda hafði skotvopnið fundist í
þvottakörfu á heimilinu.
bréfin ekki frá barböru
Lögreglan hafði einnig komist að
því að meint bréf frá Barböru voru
alls ekki frá henni. Bréfin voru
öll með póststimpli frá Arkansas
en rannsókn leiddi í ljós að Anne
hafði skrifað bréfin, þóst vera Bar-
bara, og sett umslögin óstimpluð í
önnur umslög merkt pósthúsinu í
Fort Smith í Arkansas. Starfsmaður
pósthússins hafði opnað umslög-
in, fundið frímerkt og árituð um-
slög og stimplað þau og sent áfram
og því virtust bréfin koma frá Ark-
ansas.
Til að bæta gráu ofan á svart
kom í ljós að Anne átti von á
500.000 dala líftryggingu vegna
dauða Bills auk húss þeirra.
Snemma árs 2008 taldi lögregl-
an að hún hefði nægar sannanir til
að ákæra Anne fyrir morð á eigin-
manni sínum. Réttarhöldin hóf-
ust í júní 2008 og það var mat sak-
sóknara að hvati morðsins hefði
ekki eingöngu verið hefndarþorsti
af hálfu Anne, heldur einng græðgi
– um var að ræða kaldrifjað morð,
ekki ástríðuglæp.
slóð vísbendinga
Glæpur Anne var allt annað en full-
kominn. Erfðaefni úr henni fannst
á meintum bréfum Barböru, skot-
vopnið hafði verið illa falið og blóð-
ugir gúmmíhanskar og púðurleifar
fundust í farangursrými bifreiðar
hennar.
Verjandi Anne hélt fram sakleysi
hennar og fullyrti að í raun væri
ekki að finna nokkra sönnun þess
að hún hefði tekið í gikk byssunn-
ar, sem Bill hafði reyndar tilkynnt
horfna tveimur vikum fyrir morðið.
En vitnisburð Barböru var ekki
unnt að hrekja. Barbara sagði að
árið 2005 hefði Bill sagt henni að
þau hjónin héldu til hvort í sínum
hluta hússins. Í raun hefði Bill rætt
um að skilja við Anne svo hann og
Barbara gætu átt líf saman í Arkans-
as, en síðar hefði hann dregið í land
og sagst þykja það leitt og bundið
enda á öll samskipti sín og Barböru.
ofsóknir Anne
„Eftir að ég fékk tölvupóstinn frá
honum hafði ég aldrei samband
við hann aftur,“ sagði Barbara. „En
skyndilega fór ég að fá símhring-
ingar frá Anne. Hún var æst og
hringdi og krafðist upplýsinga um
líf mitt, samband mitt við Bill og
vildi stöðugt fá að vita meira,“ sagði
Barbara við réttarhöldin.
Barbara sagðist hafa verið svo
hrædd við Anne að hún þorði ekki
öðru en að svara símtölunum, en í
lokin hefði hún sagt Anne að sam-
bandi sínu og Bills væri lokið og að
hún skyldi láta sig í friði.
En Anne var ekkert á þeim bux-
unum og knúin áfram af taum-
lausri afbrýðisemi datt henni í hug
hin fullkomna hefnd, að eyðileggja
líf þeirra tveggja manneskja sem
höfðu sært hana, að myrða eigin-
manninn og klína morðinu á ást-
konu hans.
Það tók kviðdóm aðeins sex
klukkustundir að komast að nið-
urstöðu um sekt Anne og 26. sept-
ember 2008 var hún dæmd í lífstíð-
arfangelsi.
sjúkleg afbrýðisemi og hefndarþorsti
knúðu Anne Stout til að fyrirkoma eigin-
manni sínum. síðan reyndi hún að skella
sökinni á ástkonu eiginmannsins frá fyrri
tíð. En morðið var ekki fullkomið og anne
hafði skilið eftir sig slóð vísbendinga.
Við fyrstu at-hugun var enga
byssu að sjá og Anne,
í öngum sínum, sagði
Ron að hún hefði ekki
hugmynd hver hefði
viljað Bill illt, nema
sennilega hún Barbara
Miller, plágan sú.
Hafði ekki erindi sem erfiði Anne
stout skildi eftir of marga lausa enda.
Anne orðin númer í kerfinu Anne vildi klekkja á ástkonu eiginmannsins.