Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Side 46

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Side 46
46 útlit umsjón: ingibjörg dögg kjartansdóttir ingibjorg@dv.is 12. nóvember 2010 föstudagur Eftir útskrift úr Listaháskólanum vorið 2005 hélt Eygló Margrét Lárusdóttir út í heim þar sem hún komst í starfsnám hjá Bernhard Willhelm, AsFour, eins og ThreeAsFour hét þá, og Jeremy Scott. Með þá reynslu í farteskinu fór hún síðan að hanna undir eigin nafni, EYGLO, þegar hún kom aftur heim. Til að byrja með seldi hún hönnun sína í KronKron og Liborius en nú hefur hún fært sig yfir í GK á Laugavegi. Eins fæst hönnun hennar í versluninni Kiosk. Fékk innblástur á röntgendeild Konur á ansi breiðu aldursskeiði versla við Eygló en viðskiptavinir hennar eru allt frá tvítugu upp í sextugt. „Á meðan ég er að hanna vöruna hugsa ég þó aðallega um konur á aldrinum 25 ára til 40 ára. Ég snobba mikið fyrir efnum og hef líka sjúklega gaman af því að sníða. Ég er sífellt að reyna að finna upp hjólið. Ég hef bara alveg fáránlega gaman af þessu,“ segir hún brosandi. Núna er hún að vinna að vetrarlínunni 2011/2012. „Ég er að skanna inn röntgenmynd- ir og leika mér aðeins í photo- shop. Þetta er mjög spennandi allt saman,“ segir hún glettin. Innblásturinn sækir hún í um- hverfið. „Ég fór með barnið mitt upp á slysó þar sem ég sá rönt- genmynd uppi á vegg. Mér fannst þessi mynd svo æðislega falleg að hún varð kveikjan að þessari línu. Einu sinni fór kærastinn minn upp í Háskóla til þess að sækja upplýsingar um alls kyns nám. Hann kom meðal annars heim með jarðfræðiblað og í því var smásjármynd af grjóti. Það var upphafið að línunni fyrir árið 2009. Enn sem komið er koma hugmynd- irnar bara svona ósjálfrátt.“ Nýjasta línan hennar heitir Glow in the Dark og lýsa sumar flíkurnar upp í myrkri. Í fötum frá mömmu Hennar uppáhaldshönnuður heitir Mary Karantzou. „Hún er ung og útskrifaðist bara fyrir nokkrum árum. Hún býr í London en ég mæli með því að fólk leiti hana uppi á netinu því hún er að gera alveg tryllta hluti. Alber Elbaz, aðalhönnuður Lanvin, er líka alveg ótrúlega góður. Hann vinnur meira með þetta klassíska sem ég elska svo mikið. Ég er sjálf að reyna að finna jafnvægið á milli þess að skapa eitthvað nýtt en gera samt flíkur sem hægt er að eiga í mörg ár. Ég elska svoleiðis.“ Annars eru hennar fyrirmynd- ir margar. „Allir sem eru að gera góða hluti og virða fólkið í kringum sig. Ég þoli ekki yfirborðsmennsku, sem mér finnst bæði agalega tilgangs- laus og hallærisleg. Ekki það að ég sé að lenda í því,“ segir hún og hlær. „En þessi ást mín á klassískum flíkum kemur líklega fyrst og fremst frá mömmu. Enda geng ég mikið í fötum frá henni sem eru frá árunum í kringum 1970– 1980. Ef það er einhver sem þekkir gæði og tíma- lausa hönnun þá er það mamma.” Farandsýning um Evrópu Auk þess að vinna að næstu línu er Eygló að undirbúa sig fyrir samstarfsverkefni þar sem norðurevrópskir hönnuðir fara um Evrópu. Þær Rebekka Jónsdóttir, sem hannar undir merk- inu REY, Katrín Alda og Rebekka Rafnsdæt- ur, sem hanna undir merkjum Kalda, Saga Sig- urðardóttir ljósmyndari, Andrea Maack listakona og ilmvatnssmið- ur og fleiri Íslendingar eru að fara til Stokkhólms í nóvember. Þar munu þær sýna verk sín í konseptversl- un og galleríi ásamt fatahönnuð- um, vöruhönnuðum, listamönnum, ljósmyndurum og kvikmyndar- gerðarfólki frá Norðurlöndunum og Eistlandi. „Þetta er einhvers konar farandsýning sem á að fara víðar á komandi mánuðum. Í septemb- er vorum við í London og það var vel heppnað. Þetta er hugsað sem kynning á hönnuðum sem eru að gera eitthvað annað en hinir týp- ísku skandinavísku hönnuðir.“  Ung grein á Íslandi Hún segir að á síðustu árum hafi verið vakning um íslenska hönn- un hér á landi og að hún finni vel fyrir áhuganum. „Eins er það nýtilkomið hvað það er mik- il samstaða á milli hönnuða í miðbænum. Ég hef líka heyrt tal- að um það hvað Laugavegurinn sé blómstrandi hvað þetta varðar. Sérstaklega samanborið við það sem gengur og gerist víðs vegar í borg- um Evrópu. Í rauninni er það frekar magnað. Ég man þegar Lakkrísbúð- in opnaði á Laugaveginum þegar ég var í Listaháskólanum. Áður var ekk- ert slíkt til. Annað hvort gengu allir í eins fötum eða second-hand fötum. En svo bara spratt allt þetta upp,“ segir hún áköf. „Fatahönnun er svo ný grein hérna en árlega útskrifast um tíu ein- staklingar úr fatahönnun í Listaháskól- anum. Margir úr þeim hópi eru að vinna að eigin verkefnum, sumir fara að vinna fyr- ir aðra og enn aðrir fara í eitthvað allt annað. Við sem stöndum að Kiosk erum flest útskrifuð úr Listaháskólanum en úr mismunandi árgöng- um.“  kærleikur í kiosk Kiosk er verslun á Laugaveginum sem hún á og rekur ásamt átta öðrum íslenskum hönnuð- um. „Við vorum nokkur sem vorum útskrifuð úr hönnun sem höfðum spáð í því í svolítinn tíma hvort það væri ekki kominn tími til að opna okk- ar eigin verslun. Síðan tókum við okkar tíma í að finna rétta húsnæðið og lögðum vinnu og kær- leik í það þegar við gerðum það upp. Enda erum við líka svona svakalega ánægð með útkom- una,“ segir hún brosandi. Síðan skiptast þau á að standa vaktina og deila kostnaði á milli sín. „Þetta gengur eins og í sögu. Það er hægt að gera ótrúlega hluti ef maður er hluti af svona teymi. Verkaskiptingin er góð og ég þarf ekki að gera allt sjálf eins og ég þyrfti að gera ef ég væri ein. Planið er að opna vefverslun á næstu mánuðum.“   Eygló Margrét Lárusdóttir fatahönnuður hannar undir merkinu EYgLO og rekur verslunina Kiosk ásamt átta öðrum hönnuðum. Hún segir frá spennandi samstarfsverkefni sem flakkar um Evrópu, listinni við að skapa eitthvað nýtt en klassískt í senn og því hvernig röntgenmyndir veittu henni innblástur. Þessi ást mín á klassískum flíkum kemur líklega fyrst og fremst frá mömmu. Enda geng ég mikið í fötum frá henni sem eru frá árunum í kringum 1970–1980.  „Ég þoli ekki yfirborðsmennsku“ reynir að finna jafnvægið Eygló leitast við að sameina framsækna og klassíska hönnun. Takið eftir töskunnni sem stúlkan ber um hálsinn. Fatnaðurinn fæst í Kiosk. Eygló margrét Lárusdóttir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.