Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Síða 52
Strákarnir okkar í Þýskalandi 3. hluti
52 sport texti : annas sigmundsson as@dv.is 12. nóvember 2010 föstudagur
Þ
ýska handknattleikslið-
ið Kiel situr um þessar
mundir í efsta sæti þýsku
Bundesligunnar. Fast á
hæla þeim kemur síðan
lið Rhein-Neckar Löwen sem Guð-
mundur Þ. Guðmundsson þjálf-
ar. Lið Hamborgar sem barðist við
Kiel um meistaratitilinn allt fram á
síðustu stundu á liðinni leiktíð er
síðan í þriðja sæti og Füchse Berlín
sem Dagur Sigurðsson stjórnar er í
fjórða sæti.
Alfreð Gíslason þjálfar lið Kiel.
Hann tók við liðinu árið 2008.
Undir hans stjórn varð liðið þýskur
meistari árið 2009 og 2010. Einn-
ig vann liðið meistaradeild Evr-
ópu árið 2010, sterkustu deild í
heimi. Undir hans stjórn spilar líka
Aron Pálmarsson sem kosinn var
besti nýliði þýsku Bundesligunn-
ar í fyrra. Meiðsli virðast hins veg-
ar vera farin að hrjá leikmenn Kiel.
Hinn sænski Kim Ander son hefur
ekki geta leikið í vetur en hann er
örvhent skytta. Christian Zeitz sem
hefur leyst hann af hólmi meidd-
ist síðan í leik á móti Grosswall-
stadt á þriðjudaginn og verður frá
næstu þrjár vikurnar. Alfreð verð-
ur því væntanlega að láta rétthentu
skyttuna Jerome Fernandes leysa
þá örvhentu af hólmi í næsta leik.
Alfreð hefur nú þjálfað og búið
í Þýskalandi í 13 ár. Árið 1997 tók
hann við liði Hameln eftir að hafa
náð frábærum árangri með lið KA
á Akureyri árin á undan. Hann tók
síðan við liði Magdeburgar árið
1999 og gerði liðið meðal annars
að þýskum meistara auk þess sem
liðið vann meistaradeildina. Á
þeim tíma spilaði Ólafur Stefáns-
son undir stjórn Alfreðs.
Kiel liggur í norðanverðu Þýska-
landi og þar eru um 250 þúsund
íbúar. Borgin er töluvert undir
norrænum áhrifum. Þaðan sigla
sem dæmi ferjur til Svíþjóðar og
Noregs. Kiel er auk þess í fylkinu
Schleswig-Holstein sem eitt sinn
heyrði undir Danmörku.
Blaðamaður DV hitti Alfreð
Gíslason og Aron Pálmarsson í Kiel
á heimili Alfreðs í vikunni. Virð-
ist fara vel um þá í Kiel. Greinilegt
er að Alfreð hugsar vel um Aron
og eru þeir nánast eins og feðgar.
Einnig er Kara Guðrún Melstað,
eiginkona Alfreðs, dugleg að veita
Aroni ráð um hvernig hann eigi að
sinna heimilisstörfum. Aron býr
einn í tveggja hæða íbúð í Kiel auk
þess sem hann keyrir um á Audi S5
sem er talinn kosta um 14 milljónir
króna. Alfreð virðist þó halda Aroni
vel við efnið enda þykir hann einn
agaðasti þjálfari heims og er meðal
annars þekktur fyrir að eyða mörg-
um klukkutímum á hverju degi yfir
myndbandsupptökum af leikjum.
Ætlast til að við vinnum
alla titla
Alfreð, hvernig leggst tímabilið í
þig? Þið eruð efstir. Urðuð meistar-
ar síðustu tvö árin. Hver var stefn-
an með liðið í upphafi tímabils?
Alfreð: „Við höfum aldrei gefið
það upp hvert við ætlum okk-
ur. Við ætlum að berjast um flesta
þá titla sem eru í boði. Það hefur
ekkert breyst. Ýmislegt getur þó
breyst. Til hins betra eða verra. Of
mikil meiðsli geta hrjáð liðið á vit-
lausum tíma og svo framvegis og
þá getur orðið erfitt að verða þýsk-
ur meistari. Markmiðið er alltaf að
spila betri handbolta og ná betri
árangri.“
Er mikil pressa hér í Kiel á að lið-
ið vinni alla þá titla sem í boði eru?
Alfreð: „Það er ætlast til þess
hér í Kiel að við vinnum alla titla.
Fólk er vant því að við berjumst
um titla og vinnum þá. Ég finn hins
vegar ekki fyrir neinni pressu. Enda
skiptir það mig kannski ekki það
miklu máli hvaða vonir fólk hef-
ur. Flestir ætlast þó til þess að við
vinnum titla. Það var tæpt í fyrra
hjá okkur en þá unnum við ekki
þýsku deildina fyrr en rétt í lokin.
Þetta verður örugglega mjög jafnt
í vetur. Rhein-Neckar Löwen [sem
Guðmundur Þ. Guðmundsson
þjálfar, innsk. blaðamanns] virðist
ætla að blanda sér meira í toppbar-
áttuna en í fyrra.“
Flytur til argentínu þegar
ferlinum lýkur
Nú tókst þú við liðinu árið 2008
og ert með samning til 2014. Hef-
ur þú eitthvað leitt hugann að því
hvað þú ætlar að gera að þeim
tíma liðnum? Einhver verkefni sem
freista þín á Íslandi? Jafnvel að taka
aftur við landsliðinu?
Alfreð: „Ég held að það komi
ekki aftur til greina að ég taki við
íslenska landsliðinu. Ætli maður
reyni ekki að halda áfram að þjálfa
þangað til maður verður sextugur.
Þá ætla ég að flytja eitthvert ann-
að eins og Argentínu sem dæmi og
eiga gott líf.“
Var það alltaf markmiðið hjá
þér að verða þjálfari? Áttirðu þér
aðra drauma sem þú átt kannki eft-
ir að láta rætast?
Alfreð: „Ég átti mér nú drauma
um að gera eitthvað annað þeg-
ar ég yrði stór. Lærði sagnfræði á
sínum tíma við Háskóla Íslands og
starfaði við ýmislegt heima. Þegar
maður lítur síðan á kennaralaun
sem dæmi þá held ég að það sé
bara best að halda áfram í hand-
boltanum.“
Nú hefur þú verið búsettur í
Þýskalandi síðustu 13 árin. Er fjöl-
skyldan ekki orðin hálfþýsk?
Alfreð: „Ég á þrjú börn. Elstu
börnin tvö eru farin til Íslands. Þau
búa á Akureyri. Sá yngsti er einn
eftir hérna í Þýskalandi. Þetta er
auðvitað svolítið tilbreytingarlaust
líf hjá manni hér í Þýskalandi. Það
Alfreð Gíslason þjálfar lið Kiel í Þýska-
landi. hann tók við því árið 2008. undir
hans stjórn varð liðið þýskur meistari
2009 og 2010. Einnig vann liðið meist-
aradeildina 2010, sterkustu deild í heimi.
undir hans stjórn spilar Aron Pálmars-
son sem kosinn var besti nýliði þýsku
Bundesligunnar í fyrra. Þeir segja engan
stórstjörnubrag á leikmönnum Kiel.
SterkaSta lið heimS
Aron
Pálmarsson
vinstri skytta
FÆðingardagur
19.07.1990
Fyrri lið
FH.
HÆð og þyngd
193 cm og 95 kg.
Fjölskyldustaða
Á lausu.
menntun
-
ÁHugamÁl
Fótbolti og tónlist.
uppÁHaldstónlist
xxx Rottweiler og nýja platan með Blaz Roca.
uppÁHaldsbíómynd
Aviator.
uppÁHaldsmatur
Lambið frá ömmu.
í Hvaða sÆti lendir ísland Á Hm?
Fyrsta sæti, að sjálfsögðu.
Alfreð Gíslason
þjálfari
FÆðingardagur
07.09.1959
Fyrri lið
KA, Hameln, Magdeburg
og Gummersbach.
HÆð og þyngd
191 cm og 110 kg.
Fjölskyldustaða
Giftur Köru Guðrúnu Melstað.
börn
elfar, 27 ára, Aðalheiður, 20 ára, og Andri, 16 ára.
menntun
Sagnfræðingur frá Háskóla Íslands.
ÁHugamÁl
Handbolti, garðurinn minn og Akureyri.
uppÁHaldstónlist
Arcade Fire (þessa stundina).
uppÁHaldsbíómynd
One flew over the cuckoo‘s nest.
uppÁHaldsmatur
Norðlenskt lamb/Samherjaþorskur.
í Hvaða sÆti lendir ísland Á Hm?
3. sæti.
Ég held að það komi ekki aftur
til greina að ég taki við
íslenska landsliðinu.