Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Qupperneq 54
54 sport umsjón: tómas þór þórðarson tomas@dv.is 12. nóvember 2010 föstudagur
Strákarnir okkar í Þýskalandi 3. hluti
orðin betri. Ég er farinn að skilja
flest og næ að redda mér á flest-
um stöðum.“
miklar framfarir hjá aroni
Alfreð, nú kom Aron til þín í
fyrra, þá 19 ára gamall. Hefur þú
séð miklar breytingar og framfarir
hjá honum sem leikmanni?
Alfreð: „Já, mjög miklar. Það
má segja að hann hafi verið hálf-
gert barn þegar hann kom fyrst
til Kiel. Það hefur orðið hrikalega
mikil breyting á honum. Það er
auðvitað rosalega mikið stökk að
koma úr handboltanum heima og
fara síðan í þýska boltann. Þetta
eru ekkert eintóm skemmtileg-
heit hérna. Á Íslandi er hægt að
fara í bæinn um helgar því það
er vika á milli leikja. Í Þýskalandi
er ekkert tími til að lifa einhverju
venjulegu lífi.“
Hvernig mynduð þið lýsa lífi
atvinnumanna hér í Þýskalandi?
Nú er Kiel stórlið. Lifa leikmenn
Kiel eins og knattspyrnustjörnur?
Alfreð: „Nei. Ég held að þetta
sé bara mjög látlaust líf. Leik-
menn Kiel eru mjög agaðir. Það er
voðalega lítill tími til að gera eitt-
hvað annað en spila handbolta.“
Aron: „Það er enginn glamúr í
þessu. Auðvitað er þýska Bundes-
ligan í handbolta alltaf að stækka
en hún verður aldrei jafn stór og
knattspyrnan.“
Alfreð: „Það er líka ótrúlegt
með knattspyrnumenn hvað þeir
æfa lítið miðað við hvað launin
eru há hjá þeim. Þetta á kannski
ekki við um stærstu liðin en mað-
ur trúir því varla hvað er stundum
í gangi hjá minni liðum. Hið sama
myndi aldrei ganga í handboltan-
um. Þá á ég sem dæmi við bras-
ilíska leikmenn sem hafa spilað
átta ár í þýsku Bundesligunni í
knattspyrnu en eru enn með túlk
með sér á æfingum.“
Aron: „Þegar ég kom til Kiel
þurfti ég að vera í einkakennslu
í þýsku tvo tíma á dag, þrisvar í
viku fyrstu mánuðina.“
Gott að Logi lét allt flakka
Nú gaf Logi Geirsson út bók ný-
lega. Hvað finnst ykkur um bók-
ina og að svona bók sé gefin út?
Alfreð: „Ég hef nú bara séð
forsíðuna. Mér fannst þeir góð-
ir að gera bakið á honum svona
breitt.“
Aron: „Ég er búinn að lesa
bókina. Auðvitað segir Logi mik-
ið. Mér fannst hún hins veg-
ar ekkert brjálæðislega sláandi.
Hann segir kannski sums staðar
hluti um menn sem hann hefði
eftir vill ekki átt að gera. Þetta
sleppur samt.“
Hvað með það að vera fyrir-
mynd ungra leikmanna? Er Logi
ekki svolítið að sverta ímynd sína?
Aron, hugsar þú um það að þú
sért fyrirmynd yngri leikmanna á
Íslandi?
Aron: „Auðvitað hugsa ég um
það. Ég held að það hafi samt ver-
ið mikilvægt fyrir Loga að láta allt
flakka í bókinni til þess að geta
selt hana.“
Átt þú þér einhverja fyrirmynd
í handboltanum?
Aron: „Ég lít mest upp til Ól-
afs Stefánssonar og Guðjóns Vals
Sigurðssonar. Hvað þeir eru að
gera mikið fyrir sig. og þá á ég við
í æfingunum.“
Eiga að setja markið hátt á
Hm
HM í handbolta er á næsta
leiti. Er raunhæft að gera kröfu
um verðlaunasæti á mótinu?
Aron: „Liðið hefur náttúrulega
unnið verðlaun á síðustu tveim-
ur stórmótum. Ef Guðjón Valur
verður klár og við verðum með
okkar sterkasta lið þá eigum við
náttúrulega að setja markið hátt.“
Alfreð: „Það er svo margt sem
verður að vera í lagi. Ef markvarsl-
an verður eins og á síðustu stór-
mótum á liðið að eiga möguleika
á verðlaunasæti. Ef þeir spila eins
og í síðustu tveimur leikjum eiga
þeir hins vegar litla möguleika.
Varnarleikurinn er líka gríðarlega
mikilvægur.“
sér ekki eftir að hafa
farið ungur út
Aron, var þetta rétti tíminn hjá
þér til að fara, svona ungur, í at-
vinnumennsku?
Aron: „Ég fór auðvitað svolít-
ið ungur út. Ég var búinn að vera
í meistaraflokki í þrjú tímabil og
hafði spilað tvö tímabil í íslensku
deildinni. Það má segja að ég hafi
farið ungur út „handboltalega“ séð
og líka bara reynslulítill í lífinu.
Má þar nefna heimilisstörf og svo-
leiðis. Vissulega er gott að gefa sér
tíma áður en maður fer í atvinnu-
mennsku. Ég náði hins vegar að
aðlagast nokkuð fljótt og hef aldrei
séð eftir þeirri ákvörðun að fara
svona fljótt í atvinnumennsku.“
Alfreð: „Aron, mamma þín
sagði að þú hefðir tekið fimm ára
stökk á einu ári. Það er líklega rétt
hjá henni.“
Betra að vera heima
en á bekknum
Alfreð, einhverjar ráðlegging-
ar handa ungum íslenskum leik-
mönnum?
Alfreð: „Þetta getur auðvitað
verið svolítið hættulegt. Ef leik-
menn fara út þegar þeir eru á
aldrinum 17 til 19 ára og lenda
hjá einhverjum lélegum liðum
og sitja þar á bekknum er miklu
betra að halda sig á Íslandi aðeins
lengur. Auðvitað er til dæmis gott
að vera búinn að stíga sín fyrstu
skref með íslenska landsliðinu.
Gæðin á handboltanum heima er
líka mjög mikil. Það er margt gott
í flestum liðum sem spila í efstu
deild. Það er stórt skref aftur á
bak að ætla sér að fara í annarrar
deildar lið í Danmörku eða Nor-
egi bara til þess að komast út fyrir
landsteinana.“
Aron: „Þetta snýst mikið um
það að velja rétt lið. Mörg lið hafa
sem dæmi glímt við fjárhags-
vandræði. Það getur verið ansi
fúlt að vera kominn út í atvinnu-
mennsku og flýja síðan heim með
skottið á milli lappanna því þú
færð ekki borguð laun.“
Hefur árangur Füchse Berlin
komið ykkur á óvart í vetur?
Alfreð: „Nei. Þeir eru búnir að
vera að byggja upp gott lið síðustu
árin. Þeir fengu góða leikmenn
í sumar og þá ekki síst Alexand-
er Petersson. Hann er búinn að
gera frábæra hluti fyrir þá. Mjög
góður varnarleikur hjá þeim og
markmaður þeirra er einnig góð-
ur. Tímabilið er hins vegar bara
nýbyrjað og það þarf að halda það
út.“
Átt þú mikil samskipti við hina
íslensku þjálfarana hér í Þýska-
landi?
Alfreð: „Ekkert það mikil.
Það er líka svolítið mismikið. Við
erum í sömu deildinni og heyrum
alveg hver í öðrum. Það eru hins
vegar engin stöðug samskipti.“
aLfrEð GísLason hefur unnið flesta titla sem í boði eru:
hefur Þjálfað í
Þýskalandi í 13 ár
alfreð Gíslason er þjálfari þýska liðsins Kiel. undir hans stjórn varð liðið þýskur
meistari árið 2009 og 2010. einnig vann liðið meistaradeildina á síðustu leiktíð og
lék til úrslita árið 2009. Áður en alfreð tók við liði Kiel þjálfaði hann lið Gummers-
bach á árunum 2006 til 2008 en samfara því var hann landsliðsþjálfari íslands. hann
hætti með landsliðið eftir em í noregi í janúar 2008.
Á árunum 1999 til 2006 þjálfaði hann lið magdeburgar. undir hans stórn vann
magdeburg þýsku deildina árið 2001 og meistaradeild evrópu árið 2002. einnig
vann liðið ehf-keppnina árið 2001. Þess má geta að eitt fyrsta verk alfreðs hjá
magdeburg var að fá ólaf stefánsson til félagsins en ólafur spilaði með magdeburg
1999 til 2003. Áður en alfreð tók við magdeburg hafði hann þjálfað lið hameln frá
árinu 1997 en þangað kom hann frá Ka. hann hefur því verið þjálfari í Þýskalandi
síðustu 13 árin. alfreð hélt heim til akureyrar úr atvinnumennsku árið 1991 og
gerðist spilandi þjálfari Ka. hann stjórnaði Ka frá árinu 1991 til 1997 og spilaði með
liðinu til 1995. Gerði hann Ka að stórveldi og varð liðið tvisvar bikarmeistari undir
hans stjórn auk þess sem liðið varð íslandsmeistari síðasta árið undir hans stjórn
árið 1997.
sem atvinnumaður spilaði hann með tusem essen í Þýskalandi frá 1983 til 1987
og bidasoa á spáni 1989 til 1991. hann varð þýskur meistari með tusem essen 1986
og 1987 og bikarmeistari árið 1988. með bidasoa vann hann spænska bikarinn árið
1991. alfreð var kjörinn íþróttamaður ársins á íslandi árið 1989 eftir að landsliðið
hafði unnið b-heimsmeistarakeppnina sama ár. hann spilaði 190 landsleiki og
skoraði í þeim 542 mörk.
alfreð er 51 árs og giftur Köru Guðrúnu melstað. börn þeirra eru elfar, 27 ára,
aðalheiður, 20 ára, og andri, 16 ára. hann lauk ba-prófi í sagnfræði frá háskóla
íslands árið 1983.
Vissulega er gott að gefa
sér tíma áður en maður
fer í atvinnumennsku.
Ég náði hins vegar að
aðlagast nokkuð fljótt.
aron PáLmarsson var valinn nýliði Ársins 2010 í ÞýsKalandi:
spilaði 15 ára með
meistaraflokki
aron Pálmarsson spilar sem vinstri skytta með stórliði Kiel. hann kom til liðsins
árið 2009 frá fh. hann var valinn nýliði ársins í þýsku bundesligunni árið 2010
og vann á sama tíma þýsku deildina með Kiel og meistaradeild evrópu. aron
var einungis 15 ára þegar hann spilaði fyrsta leikinn sinn með meistaraflokki
fh. hann spilað 16 leiki með meistaraflokki fh og skoraði í þeim 119 mörk.
hann var valinn besti sóknarmaður íslensku deildarinnar árið 2009 og mikil-
vægasti leikmaðurinn. Árið 2006 vann aron Partille Cup-handknattleiksmótið í
svíþjóð með fjórða flokki fh og var hann valinn besti leikmaður úrslitaleiksins.
hann byrjaði að spila með íslenska landsliðinu árið 2008 og varð í þriðja sæti á
evrópumeistaramótinu með liðinu í janúar 2010. Á hann 25 landsleiki að baki
og hefur skorað í þeim 57 mörk.
aron er tvítugur. báðir foreldrar hans voru miklir afreksmenn í íþróttum.
Pálmar sigurðsson, faðir arons, var einn fremsti körfuknattleiksmaður landsins
og spilaði lengst af með haukum auk þess að spila með Grindavík og íslenska
landsliðinu. arndís heiða einarsdóttir, móðir hans, lék handbolta með meistara-
flokki fh. aron á eina systur sem heitir svala og er níu ára.
CHristian ZEits á fLottari audi
Hvernig eru þýsku stelpurnar? „Þær eru nú ekki nálægt því eins flottar og
þær íslensku. maður hefði haldið að þær væru nú myndarlegri þar sem Kiel er
í norður-Þýskalandi og ekki svo langt frá danmörku. Ég hef allavega ekki enn
farið á stefnumót með þýskri stelpu og er samt búinn að vera hérna í eitt og
hálft ár.“
Ert þú á flottasta bílnum af leikmönnum Kiel? „mér finnst bíllinn minn
náttúrulega flottastur. Christan sprenger ekur hins vegar um á audi rs5 en
minn er bara s5. vélin í bílnum hans er 450 hestöfl en 350 hestöfl hjá mér.“
Hvernig gengur þér með heimilisstörfin? „Það gengur bara ágætlega. Ég
var hins vegar alveg eins og viðvaningur fyrst þegar ég flutti út. Kara, eiginkona
alfreðs, er líka mjög dugleg að veita mér ráð.“
Er hún kannski bara nánast eins og mamma þín? „já, alveg klárlega. sem
dæmi var ég að flytja í nýja íbúð í sumar. Það má segja að hún hafi nánast séð
um allan flutninginn. Það eina sem ég þurfti að gera var að sjá um einhverja
pappíra.“
Ætlar þú þér að vera áfram í Kiel næstu árin eða gætirðu hugsað þér
að fara eitthvert annað síðar? „mér líður mjög vel hérna og það er allt til
staðar hjá Kiel. Ég sé því enga ástæðu til að leita annað. auðvitað væri gaman
að vera í öðrum löndum eins og danmörku en deildin hérna er einfaldlega sú
besta í heimi. líklega væri gaman að enda ferilinn í sólinni á spáni þegar maður
er farinn að dala sem leikmaður.“
Ertu frægur í Kiel? Vita allir hver þú ert? „vissulega fáum við mikla athygli í
Kiel. maður er alveg beðinn um eiginhandaráritanir úti á götu eða þegar maður
fer í verslanir. Þetta er hins vegar ekkert neitt voðalega mikið atriði. Kiel er
náttúrulega stórlið í handbolta en knattspyrnuliðið hérna er ekkert sérstaklega
gott sem dæmi.“
Eru leikmenn Kiel því eins og hálfgerðar knattspyrnustjörnur í Kiel?
„já. Það má örugglega segja að við séum einhvern veginn þannig hér í Kiel.“