Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Blaðsíða 55

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2010, Blaðsíða 55
Á sunnudaginn verður heimsmeistar- inn í Formúlu 1 krýndur en fjórir öku- þórar eiga möguleika á titlinum. Það hefur ekki gerst í sögu íþróttarinnar að svo margir ökumenn eigi möguleika á lokadegi. Fernando Alonso á Ferr- ari er í bestu stöðunni en hann verður meistari landi hann öðrum af tveim- ur efstu sætunum. Mark Webber fylgir fast á hæla hans og liðsfélagi Webber hjá Red Bull, Sebastian Vettel, á einn- ig fína möguleika. Lewis Hamilton á McLaren verður að vona að Alonso fái ekkert stig í mótinu og að Red Bull- strákunum gangi afar illa. Möguleik- arnir eru því afar litlir. Svo gæti farið að Red Bull nái fyrsta og öðru sæti en eigi samt ekki heimsmeistara. Laugardagurinn aldrei mikilvægari Brautin í Abu Dhabi svipar mikið til hinnar níðþröngu Mónakó-braut- ar en í furstadæminu er boðið upp á tuttugu og eina beygju, þar af þrjár s-beygjur og eitt nálarauga sem leið- ir út á lengsta beina kafla brautarinn- ar. Það gefur því auga leið að framúr- akstur verður erfiður og tímatakan því aldrei mikilvægari, sérstaklega miðað við það sem er undir. „Það einfaldlega nauðsynlegt fyr- ir alla nema Alonso að vera á fremsta stað á ráslínu,“ segir formúluspekingur Íslands, Gunnlaugur Rögnvaldsson, sem mun að sjálfsögðu lýsa keppn- inni í beinni á Stöð 2 Sport á sunnu- daginn. „Það verður hálfur sigur unn- inn á laugardeginum og þar verður án efa mikil spenna. Það er einfaldlega háspennudæmi fram undan hjá öku- mönnunum,“ segir Gunnlaugur en Red Bull landaði tveimur efstu sætun- um í Abu Dhabi í fyrra og þá leit liðið gríðarlega vel út síðastliðinn sunnu- dag í Brasilíu þar sem það vann tvö- falt. Er ekki hætt við því að liðið verði fremst á ráslínu og stingi af? „Vettel hefur verið á miklu flugi og sálrænt séð er hann í fantaformi. Webber hefur ekki unnið í sex mót- um í röð en í Suður-Kóreu átti hann möguleika á góðum bita en féll úr leik vegna eigin mistaka. Red Bull-menn tóku efstu tvö sætin þarna í fyrra og þeir verða sterkir á ný. Hvort þeir stingi af í ár er ég ekki svo viss um,“ segir Gunnlaugur. Ferrari-svindlið eins og rangstöðumark Alls ekki er ólíklegt að gríðarlega at- hyglisverð staða komi upp í Abu Dhabi. Miðað við gengið í síðustu mótum gæti Sebastian Vettel auðveld- lega leitt keppnina og Mark Webber orðið annar. Verði staðan þannig og Alonso ekki neðar en í fjórða sæti þarf Vettel að taka mikilvæga ákvörðun um hvort hann ætli að hleypa Webber fram úr sér. Komi Vettel fyrstur í mark, Webber annar og Alonso í þriðja eða fjórða standa Red Bull-menn uppi án heimsmeistaratitils ökumanna þrátt fyrir að vinna tvöfalt í Abu Dhabi. „Það er alveg ómögulegt að segja til um hvað menn gera. Eigandi Red Bull vill ekki að liðið sitt sé með einhvern leikaraskap en Christian Horner fram- kvæmdastjóri hefur sagt að ökumenn- irnir verði sjálfir að taka ákvörðun um þetta mál. Þetta er bara spurning um hvert eðli íþróttarinnar er. Sumir horfa á þetta sem einstaklingsíþrótt en aðrir liðsíþrótt,“ segir Gunnlaugur en á Hockenheim í sumar hleypti Fel- ipe Massa liðsfélaga hjá Ferrari, Fern- ando Alonso, fram úr sér og gaf hon- um þannig sjö aukastig. Mikið hefur verið skrifað og skrafað um þetta mál og vilja margir innan Formúlunnar ytra meina að verði Alonso meistari sé það illa fenginn titill. „Dómararnir dæmdu í þessu máli þegar það gerðist og það stendur. Það er ekkert hægt að gráta Björn bónda yfir hálft tímabilið. Þetta er ekkert ósvipað því þegar rangstöðumark í fótbolta er látið standa. Þetta gerðist, dómararnir sektuðu Ferrari og þar með lauk málinu,“ segir Gunnlaugur. Tölfræði um lokamótið Gunnlaugur heldur úti síðunni kapp- akstur.is en þar má finna alls kon- ar tölfræði í kringum lokamótið. Við grípum fyrst niður í athyglisverða staðreynd um þann sem líklegast er að landi heimsmeistaratitlinum, Fernando Alonso: „Alonso hefur lok- ið flestum hringjum allra, eða 1.065 af 1.074. Hann hefur bara leitt 126 af þeim, sem er mögulega lægsta hlutfall nokkurs meistara síðan Keke Rosberg leiddi 84 hringi árið 1982 í 16 mót- um. Alonso gekk ekki vel í Abu Dhabi í fyrra með Renault. Hann ræsti af stað í fimmtánda sæti og lauk keppni í því fjórtánda. Ferrari komst ekki í loka- umferð tímatökunnar í fyrra og ekki í stigasæti í mótinu.“ Einnig er velt upp hinum ýmsu möguleikum varðandi atburðarás í Abu Dhabi. „Ef Webber vinnur mótið í Abi Dhabi, þá verður Alonso að ná öðru sæti til að landa meistaratitlinum, Webber væri þá með 263 stig, en Alonso 264. Ef Vettel vinnur mótið, þá dugar Alonso að ná fjórða sæti til að hampa titlinum í stað Vettels. Ef Alonso verð- ur fimmti og Vettel fyrstur, þá fengju báðir 256 stig og þeir væru báðir með sama árangur hvað varðar fyrsta, ann- að og þriðja sæti. En Vettel fengi titil- inn, þar sem hann er búinn að vera þrisvar í fjórða sæti, en Alonso bara tvisvar. Svo bætist við þetta að ef Webber nær öðru sæti á eftir Vettel, þá yrði hann líka með 256 stig, en 4 sigra en Alonso og Vettel 5 og Webber tapar því fyrir þeim.“ Úrslitastund í Abu DhabiTuttugasta og síðasta mótið í Formúlu 1 á keppnisárinu 2010 fer fram í Abu Dhabi á sunnudaginn. Þar verður heims-meistarinn krýndur en fjórir menn eiga möguleika á honum. Fernando Alonso á Ferrari leiðir stigamótið en Red Bull- strákarnir Mark Webber og Sebastian Vettel fylgjast fast á hæla hans. Lewis Hamilton á McLaren á einnig veika von. Gunnlaugur Rögnvaldsson, formúlu- spekingur Íslands, sér fram á spennandi mót í furstadæminu. 1 Fernandoalonso 246 stigFerrari Þjóðerni: Spænskur Sigrar í ár: 5 Á verðlaunapalli: 10 sinnum Verður meistari ef hann vinnur í Abu Dhabi. Má verða annar ef Webber vinnur. Má enda fjórði ef Vettel vinnur. 3 sebastian Vettel 231 stigRed Bull Þjóðerni: Þýskur Sigrar í ár: 4 Á verðlaunapalli: 9 sinnum Verður meistari ef hann vinnur í Abu Dhabi og Fernando Alonso endar í fimmta sæti. 2 markwebber 238 stigRed Bull Þjóðerni: Ástralskur Sigrar í ár: 4 Á verðlaunapalli: 10 sinnum Verður meistari ef hann vinnur í Abu Dhabi og Fernando Alonso endar í þriðja sæti. STIGAKEPPNI ÖKUMANNA Ökumaður Lið Stig 1. Fernando Alonso Ferrari 246 2. Mark Webber Red Bull 238 3. Sebastian Vettel Red Bull 231 4. Lewis Hamilton McLaren 222 5. Jenson Button McLaren 199 6. Felipe Massa Ferrari 143 7. Nico Rosberg Mercedes 129 8. Robert Kubica Renault 126 9. M. Schumacher Mercedes 72 10. R. Barrichello Williams 47 11. Adrian Sutil Force India 47 STIGAKEPPNI BÍLASMIÐA Lið Stig 1. Red Bull 469 2. McLaren 421 3. Ferrari 389 4. Mercedes 201 5. Renault 145 6. Williams 69 7. Force India 68 8. Sauber 45 9. Toro Rosso 11 10. Hispania 0 11. Lotus 0 12. Virgin 0 STIGAGjÖF Í FoRMúLU 1 1. 25 stig, 2. 18 stig, 3. 15 stig, 4. 12 stig, 5. 10 stig, 6. 8 stig, 7. 6 stig, 8. 4 stig, 9. 2 stig, 10. 1 stig staðan BÍLLINN GæTI KLÁRAÐ dæMIÐ Þegar Red Bull-bíllinn er sem bestur er hann einfaldlega ósnertanlegur. MyNd REUTERS TóMAS ÞóR ÞóRÐARSoN blaðamaður skrifar: tomas@dv.is föstudagur 12. nóvember 2010 sport 55
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.