Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 38
38 Jólahald Föstudagur10. desember 2010
ML-0714-14-51.jpg
Hallgrímur Helgason
DV1007076134_02.jpg
Sigríður Beinteinsdóttir
DV0912229492_02.jpg
Selma Björnsdóttir
SH0903254573_06_2.jpg
Ragnar Kjartansson
DV12239041007_Ellý Ármanns_0_
DULLA_2_2.jpg
Ellý Ármansdóttir
DV100722_bubbi_03_unnin.jpg
Bubbi Morthens
DV12211041007_2.jpg
Eiríkur Jónsson
Hvað kemur þér í jólaskap?
Bubbi Morthens: „Lítil börn koma
mér í jólaskap. Gleðin og spenning-
urinn hjá þeim er smitandi og svo er
ég sjálfur bara lítið barn í anda.“
Selma Björnsdóttir söngkona:
„Jólalögin, myrkrið, fyrstu jólaserí-
urnar og piparkökulykt, hún kemur
mér alltaf í jólaskap.“
Jakob Frímann Magnússon mið-
borgarstjóri: „Skapandi laufa-
brauðsskurður í skemmtilegum fé-
lagsskap kemur mér í jólaskap.“
Besta minning frá jólum
Eiríkur Jónsson blaðamaður: „Það
var þegar ég var í Karíbahafinu á
jólunum og borðaði hálfan anan-
as á ströndinni í jólamatinn. Þau jól
standa upp úr því þá var ég laus við
borgarastyrjöldina sem fylgir allt-
af jólunum á Íslandi, þegar þjóðin
gengur af göflunum af stressi og vitl-
eysu.“
Hallgrímur Helgason rithöfundur:
„Það var þegar ég var úti í New York
að skrifa 101 Reykjavík, þá var ég
bara aleinn á jólunum. Ég fór á „din-
er“ og borðaði einhvern ömurleg-
an „meatloaf“ og fór síðan í messu
í næstu kirkju. Á leiðinni hitti ég
heimilislausan mann og gaf honum
20 dollara og upplifði klisjuna um að
sælla er að gefa en að þiggja. Ég fékk
jól í hjarta sem er ekki hægt að fá á Ís-
landi, því við erum svo rík og eigum
svo mikið af öllu og fáum svo ennþá
meira í jólagjöf.“
Hvað finnst þér
ómissandi á jólunum?
Ragnar Kjartansson listamað-
ur: „Mér finnst alveg ómissandi að
reykja vindil á aðfangadagskvöld,
að það sé svona þungur vindlareyk-
ur yfir öllu. Þetta gerðu afi minn og
pabbi og nú reyni ég að gera þetta.“
Sigríður Beinteinsdóttir söng-
kona: „Það sem mér finnst vera mest
ómissandi um jólin er að hafa fjöl-
skylduna nálægt mér. Það finnst mér
vera stór hluti af jólunum og eigin-
lega stærsti hlutinn. Annað sem mér
finnst vera ómissandi er Nóa-Síríus-
konfektið og Egils malt og appelsín.
Þetta eru hlutir sem ég er alltaf með
á jólunum; fjölskyldan, konfekt og
malt og appelsín.“
Skrýtnustu jólin?
Ellý Ármannsdóttir, rithöfund-
ur og blaðamaður: „Það eru jólin
sem ég var ein. Það var þegar ég var
sjónvarpsþula hjá RÚV og nýskilin
við barnsföður minn sem ég á tvö
börn með. Börnin voru hjá pabba
sínum og ég ákvað að taka vaktina
á aðfangadagskvöld þar sem ég yrði
ein. Þá var ég uppi í Efstaleiti og þar
var jólahlaðborð með hangikjöti og
uppstúfi og svona. Það var yndislegt
fólk þarna upp frá, Gerður G. Bjark-
lind var að vinna og við spjölluðum,
drukkum jólaöl og borðuðum kon-
fekt. Eftir vaktina fór ég síðan í mið-
næturmessu í Hallgrímskirkju og
sofnaði í miðri messu. Ég var mjög
leið yfir því að vera ekki með strák-
unum mínum. Þannig að þetta voru
mjög skrýtin jól og eitthvað sem mig
langar aldrei að upplifa aftur, því jól-
in eru jú tíminn til að vera með fjöl-
skyldunni.“
Allir hafa sína siði og venjur um jólin. DV spurði nokkra þekkta einstaklinga hvern-
ig þeir upplifa þessa hátíð ljóss og friðar.
Jólin mín
og jólin þín
Hallgrímur Helgason
Sigríður BeinteinsdóttirSelma Björnsdóttir
Ragnar Kjartansson
Ellý Ármannsdóttir
Bubbi Morthens
Eiríkur Jónsson
Jakob Frímann Magnússon
Öflugir fjarstýrðir
bensín og rafmagns-
bílar í miklu úrvali.
Tómstundahúsið, Nethyl 2 - s: 587 0600 - tomstundahusid.is
SKÓLAVÖR‹USTÍG 6B
SÍMI 562 6999
www.marialovisa.com