Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 40
40 Jólamatur Föstudagur10. desember 2010 Purursteikin Best er að kaupa svínasíðu sem búið er að snyrta og skera í puruna. þá er steikin sett í eldfast mót með puruna niður og vatn sett þar sem það nær upp fyrir puruna. Sett í ofn í 175 gráður í 20 mínútur. Þá er steikinni snúið við, vatninu hellt af henni (jafnvel notað í soð), salti nuddað vel í puruna og steikt áfram í 50 – 60 mínútur. Ofninn settur á 200 gráður og steikt áfram í ca. 15 mínútur eða þar til puran fer að poppa. Rauðsprettan Rauðsprettuflaki er velt upp úr hveiti, eggi og raspi og síðan djúpsteikt. Sett á gróft rúgbrauð með salati, remúlaði og t.d. spergli og sítrónu. Dönsk lifrarkæfa 500 gr svínalifur 250 gr svínafita 1 laukur 2 egg 1 msk. smjör 1 msk. hveiti 1 msk. allrahanda 50 ml mjólk salt og pipar Hakkið svínalifur og svínafitu ásamt lauknum Setjið í hrærivélarskál ásamt restinni af hráefninu og blandið vel saman. Sett í smurt form og bakað í vatnsbaði í 55 mínútur við 180 gráður. Eplasalat 2 stk. græn epli 1 dl rjómi 100 gr sýrður rjómi 1 tsk. sítrónusafi 1 msk. sykur Skrælið eplin og kjarnhreinsið Skerið eplin í teninga, þeytið rjómann ásamt sykrinum, bætið sýrðum rjóma og sítrónusafa við og blandið saman við eplin. n Bjóddu til þín góðum gestum í langan og notalegan hádegisverð Jólamatur að dönskum sið Fyrir alla þá sem langar til að reyna danska matargerð um jólin eins og hún gerist best er hádegisverðurinn rétti tíminn. Að njóta jólaandans með áherslu á dönsk nota- legheit, „hygge“, gerir aðventuna skemmtilega og spenn- andi. Snorri Birgir Snorrason, kokkur í Brauðbæ á Óðins- véum, gefur okkur uppskriftir sem auðvelt er að reyna heima við til að bjóða góðum gestum í langan og nota- legan hádegisverð. Á matseðlinum er purusteik, innbök- uð kæfa, drottningarskinka, smurbrauð og kæfa. Þessu er gott að skola niður með góðu öli. kristjana@dv.is Snorri í Brauðbæ Snorri segir þann sið að snæða af hlaðborði í desember mega rekja til Dana, þjóðarinnar sem stundum er sögð hugsa með maganum. Skráðar heimildir um jólahlað- borð á Íslandi eru ekki auðfundnar en líklegt er að Bjarni í Brauðbæ hafi riðið á vaðið fyrir hartnær 15 árum. mynDiR RóBERt REyniSSon Hamborgarhryggur og sósa Kaldar sneiðar með frískandi sinnepssósu. Ekki hafa sneiðarnar of þykkar. Smurbrauð með rauðsprettu Það er ekki flókið að reiða fram fallegt smurbrauð – og afar ljúffengt. Smurbrauð með beikoni Matarmikið smurbrauð með beikoni og sveppum. Hátíðarsalat Sætt salat með skinkunni og purusteikinni er ómissandi. Góð purusteik er til prýði Það þarf að passa purusteikina svo hún verði góð. innbökuð kæfa Girnileg kæfa sem er ekki erfitt að útbúa. 25% afsláttur af öllum jólavörum föstudag & laugardag Jólagjöfin fyrir þá sem þér þykir vænt um Lín Design Laugavegi 176 Sími 5332220 www.lindesign.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.