Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 74

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 74
74 sakamál umsjón: kolbeinn þorsteinsson kolbeinn@dv.is 10. desember 2010 föstudagur Morð á Mínútu Japaninn Mutsuo toi átti lengi vel heiðurinn af verstu fjöldamorðum í heimi, framin af einstaklingi. Á um hálftíma banaði hann nánast helmingi íbúa heimaþorps hans, Kaio. Þann 21. maí 1938 gekk tuttugu og eins árs Jap-ani berserksgang í þorp-inu Kaio, skammt frá Tsuyama-borg í Okayama í Japan. Þegar upp var staðið hafði mað- urinn, Mutsuo Toi, drepið þrjátíu manns og var atburðurinn kallað- ur Tsuyama-fjöldamorðin. Mutsuo Toi fæddist 5. mars 1917 í Okayama og voru foreldrar hans ágætlega efnaðir. Foreldrar hans dóu úr berklum þegar hann var barn að aldri og því fór svo að hann og systir hans ólust upp hjá ömmu sinni. Mutsuo Toi var þekktur fyrir að vera mannblendinn, en við sautján ára aldur, í kjölfar gifting- ar systur hans 1934, varð breyting þar á og hann varð ófélagslynd- ur og einangraðist. Slíkt ku ekki hafa verið óalgengt í Japan og er kallað „hikikomori“ og einkenn- ir fólk sem leitast við að einangra sig vegna ýmissa persónulegra og samfélagslegra vandamála. Undarleg dreifbýlishefð Mutsuo Toi fékk mikinn áhuga á sögu vændiskonu að nafni Sada Abe, sem varð fræg fyrir að hafa í maí 1936 kyrkt elskuga sinn og skorið af honum kynfærin. Síð- an gekk hún um með kynfærin afskornu í handtösku sinni. Saga Sada Abe varð alræmd í Japan og varð sveipuð goðsagnakenndum blæ og uppspretta túlkunar kvik- myndagerðarmanna, heimspek- inga og annarra. Allt að einu. Mutsou hóf skrif skáldsögu, Yutokaiomaru, en ekki fer miklum sögum af söguþræði hennar. Mutsuo tók virkan þátt í því sem kallað er „Yobai“ á jap- önsku og gæti útlagst næturgöltur á okkar ylhýra máli. Yobai er jap- önsk hefð sem ku einkum og sér í lagi vera við lýði í dreifbýli lands- ins. Hún snýst um að ungir karl- menn lauma sér upp í rúm hjá konum um miðjar nætur og reyna að fá þær til kynmaka. Verstu fjöldamorð einstaklings Sem fyrr segir gekk Mutsuo Toi berserksgang í þorpinu Kaio. Á meðal þrjátíu fórnarlamba hans var amma hans. Morðin framdi Mutsuo með haglabyssu, jap- önsku sverði og öxi og auk þeirra þrjátíu sem féllu fyrir hendi hans tókst honum að særa þrjá alvar- lega áður en hann beindi hagla- byssunni að sjálfum sér og batt enda á eigið líf. Fjöldamorðin voru talin verstu fjöldamorð einstaklings í heims- sögunni allt til ársins 1982 þeg- ar Woo Bum-kon, suðurkóresk- ur lögreglumaður, varð 56 manns að bana og særði 35 í Gyeongs- angnam-do í Suður-Kóreu og svipti sig lífi í kjölfarið. Helmingur þorpsbúa Að kvöldi 20. maí rauf Mutsuo Toi rafmagnslínur til Kaio þannig að þorpið var sveipað algjöru myrkri. Um hálftvöleytið eftir miðnætti banaði hann ömmu sinni, sem þá var 76 ára, með því að höggva af henni höfuðið með öxi. Að morðinu á ömmu sinni loknu spennti hann tvö rafljós á enni sitt og laumaðist um þorp- ið með svipuðum hætti og hann hafði gert þegar hann tók þátt í Yobai og fór inn á heimili ná- grannanna. Mutsuo myrti tuttugu og níu nágranna sína, tuttugu og sjö dóu á staðnum en tveir síðar af sárum sínum, og særði þrjá til viðbótar alvarlega. Sem fyrr segir beitti hann haglabyssu, sverði og öxi við ódæðin sem tóku ekki nema um hálftíma. Þegar upp var staðið var nærri helmingur þorpsbúa ekki lengur í tölu lifenda. Í dögun batt Mutsuo enda á eigið líf. Vildi hlífa ömmu við skömm Mutsuo hafði skilið eftir sig sjálfs- morðsbréf og þar kemur fram að hann hafði greinst með berkla, sem þá voru ólæknandi sjúkdóm- ur, og í kjölfarið hafði hann ekki haft erindi sem erfiði í kynferð- islegri umleitan gagnvart ungum konum í þorpinu. Mutsuo skildi eftir sig nokkrar langar orðsendingar þar sem hann viðraði áhyggjurnar sem hann hafði af þeim samfélagslegu afleiðingum sem sjúkdómurinn hafði í för með sér. Honum fannst sem nágrannar hans af gagn- stæða kyninu hefðu orðið kulda- legir í hans garð þegar fréttist af sjúkdómnum. Honum fannst hann forsmáður og var kallaður kynlífsóður. Í hefndarskyni ákvað hann að fara inn á heimili kvennanna og bana þeim og hafði þennan ör- lagaríka dag beðið þess að þær kæmu heim. Mutsuo fannst mið- ur að geta ekki banað öllum þeim sem hann vildi því það hefði hugsanlega leitt til þess að sak- laust fólk hefði dáið. Einnig kom fram í kveðjubréfi hans að hann hefði banað ömmu sinni því hann gat ekki hugsað sér að hún þyrfti að bera þá skömm og fordæmingu sem hefði fylgt því að vera amma morðingja. Um hálftvöleyt-ið eftir miðnætti banaði hann ömmu sinni, sem þá var 76 ára, með því að höggva af henni höfuðið með öxi. Mutsuo toi Hefndi fyrir höfnun sem hann upplifði. Vændiskonan sada Abe, f. miðju mutsuo fékk mikinn áhuga á máli vændiskonunnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.