Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Blaðsíða 94

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Blaðsíða 94
Svali á FM957: Kennir fólKi Crossfit 94 fólKið 10. desember 2010 Föstudagur sveinn Waage: Bleikt.is opnaður Íslenski kvennavefurinn bleikt.is, vef- ur fyrir drottningar, verður opnaður í dag en spenna yfir opnun vefjarins hefur stigmagnast. Nú þegar á síðan rétt tæplega 5.400 vini á Facebook þrátt fyrir að ekki hafi birst einn stafkrókur. Hlín Einarsdóttir er ritstjóri vefjarins en hún hefur verið dugleg að skrifa pistla á Pressuna og vakið mikla athygli. Mikið hefur gengið á í undirbúningi vefjarins og varð Hlín meðal annars fyrir því óláni að fara úr axlarlið í viðtali á Bylgjunni. Hlín situr fyrir á veggspjaldi til að kynna opnun vefjarins ásamt Ásdísi Rán sem mun skrifa á bleikt.is ásamt öðrum konum sem ætla að skrifa um málefni fyrir konur. „Kjötar“ Nilla upp Eftir að hinn ungi Níels Thibaud Gir- erd sló í gegn með rímum sínum í netsjónvarpi mbl.is fékk hann sinn eigin þátt. Í nýjasta innslagi sínu fer hann í þjálfun til einkaþjálfara Íslands, Egils Einarssonar. „Ef þú ætlar að vera banga einhverjar chicks þá verður þú að kjöta þig upp,“ var það fyrsta sem Egill sagði við Nilla. Egill lét Nilla gera hinar ýmsu æfingar og fóru þeir meðal annars í bekkpress- una. Það kom fljótt í ljós að líkamlegir burðir eru ekki sterka hlið Nilla en hann náði ekki að lyfta nema 30 kílóum. Hann reyndi við 40 og 50 en án árangurs. Það er því ljóst að Gillz á erfitt verkefni fyrir höndum. „Ég er búinn að æfa Crossfit núna í tvö ár og fór til Englands að sækja mér réttindi til að kenna þetta,“ seg- ir útvarpsmaðurinn Sigvaldi Kalda- lóns, betur þekktur sem Svali, sem stýrir morgunþættinum Svali og fé- lagar á FM957. Svali hefur unnið á FM í nítján ár en nú ætlar hann að kenna Crossfit samhliða þeirri vinnu. „Ég ætlaði fyrst að sækja um rétt- indin bara til þess að hafa þau. En ég er svo heppinn að hafa verið að æfa með svo góðu fólki í Crossfit Reykja- vík að ég ætla að fara að þjálfa þar. Ég er búinn í útvarpinu á milli eitt og tvö á daginn þannig að ég fer að kenna eftir það,“ segir Svali, en hvernig kynntist hann Crossfit fyrst? „Það var nú bara skorað á mig að mæta. Evert Víglundsson, Cross- fit-kennari, sagði við mig í beinni að ég væri ekki maður með mönn- um nema ég væri í Crossfit. Sjálf- um fannst mér nú bara tímaeyðsla að labba þarna inn en ég ákvað að taka áskoruninni. Svo var þetta ein- faldlega svo skemmtilegt og í engu samræmi við að fara í ræktina. Ég líki þeim hlutum ekki einu sinni saman. Það er íþróttafólk í Crossfit. Þarna erum við að móta grunninn með æf- ingum á borð við ólympískar lyfting- ar og fimleika,“ segir Svali. Útvarpsmaðurinn geðþekki er fjögurra barna faðir og nú getur hann farið að draga krakkana með sér á æfingar. „Nú erum við að inn- leiða „Crossfit kids“. Krakkar eru með allt sem þarf í þetta innbyggt en við þurfum bara að virkja það. Þessi námskeið byrja í janúar þannig að þá get ég farið að draga fjölskylduna með,“ segir Sigvaldi Kaldalóns, Svali á FM957. tomas@dv.is M aður tók undir sig stökk, í dúnúlpunni og með farangurinn á bakinu, og hljóp þarna um flugvöllinn eins og gas- ella,“ segir Sveinn Waage um það þegar hann hitti Liverpool-goð- sögnina Kenny Dalglish á flug- vellinum í Manchester í vikunni. Sveinn var staddur á Englandi þar sem hann var fararstjóri Liverpool- klúbbsins í ferð á leik Liverpool og Aston Villa á mánudaginn. „Við vorum á leiðinni heim, á flugvellinum í þessari borg sem maður reynir nú að eyða sem allra minnstum tíma í. Eins og oft á þessum flugvöllum þá var þarna einhver jólasveinn að reyna að selja manni miða í einhverju bíla- happdrætti. Þar sem ég hafði smá tíma til að drepa þá leyfði ég hon- um að röfla aðeins í mér. Þá kom félagi hans og sagðist hafa séð Kenny Dalglish hjá „terminal“ níu.“ Sveinn var ekki lengi að rjúka af stað eins og fyrr sagði og fann á endanum kappann. „Ég veit ekki hvað ég hljóp langt en það var komið „go to gate“ hjá okkur. Ég fann hann þarna og henti af mér draslinu og svo var myndavélin rif- in upp.“ Fyrir jafn heitan Liverpool- aðdáanda og Svein er varla hægt að hitta fyrir stærri stjörnu enda lét Sveinn allar klisjurnar fjúka til að fá mynd af sér með kappanum. „Ég kom með línur eins og „Your bigg- est fan from Iceland“ og svona. Ég hugsaði bara á meðan „Hvað ertu að segja?“ Sem betur fer átti hann ekkert í Icesave.“ Sveinn hefur áður hitt margar af skærustu stjörnum liðsins en hann segir að það hafi verið toppurinn að hitta Dalglish. „Ég hef borðað með Ian Rush, Neil Ruddock, Phil Thompson og John Aldridge og það var ágætt en bara að hitta hann toppaði það.“ Sveinn segir að ferðin hafi heppnast einstaklega vel enda unnu hans menn sannfærandi 3–0 sigur. Það var þó fimbulkuldi í Bítlaborg og átti Sveinn meira að segja erfitt með að klæða hann af sér. „Ég var þarna í tveimur peys- um, með húfu, vettlinga og í dún- úlpunni en það vantaði samt ekki ungar stúlkur í nárasíðum smápils- um og engum sokkabuxum. Það er eitt af undrum veraldar hvern- ig þessar dömur klæða sig þarna í kuldanum. Mjög fyndið að sjá þær trítla þarna um á pinnahælum í snjónum.“ asgeir@dv.is Hljóp DalglisH uppi Sveinn Waage, einn heitasti Liverpool- aðdáandi landsins, náði mynd af sér með knattspyrnukappanum Kenny Dalglish á flugvellinum í Manchester. Sveinn, sem er tröll að burðum, hljóp eins og fætur toguðu um flugvöllinn með farangurinn á bakinu. Hann segir það eitt af undrum veraldar hvernig ungar stúlkur í Liverpool-borg klæði sig í kuldanum. Sveinn og Kenny Á flugvellinum í Manchester. Sveinn Waage Einn heitasti Liverpool- stuðningsmaður landsins. Útvarpsmaður í flottu formi Svali er kominn með kennsluréttindi í Crossfit og ætlar að kenna samhliða vinnu í útvarpi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.