Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Page 80
80 LífsstíLL umsjón: xxxxxxxxx xxx@dv.is 10. desember 2010 föstudagur
Íslenski
dansflokkur-
inn í I.D.
Magazine
„Einstakt listaverk,“ sögðu blaðamenn
I.D. magazine um sýningu Íslenska
dansflokksins Transaqunia – Into thin Air.
I.D. magazine er eitt stærsta tímaritið um
menningu, tísku og hönnun í Banda-
ríkjunum. Tímaritið hefur verið gefið út
síðan 1954 og er selt og því dreift um
allan heim. Blaðamenn tímaritsins komu
hingað til lands til þess að sjá sýninguna
og spjalla við höfunda verksins. Á vef
tímaritsins er hægt að sjá viðtal við
myndlistarkonuna Gabríelu Friðriksdótt-
ur, sem er einn af þremur höfundum
verksins, og brot úr sýningunni. i-don-
line.com/i-spy/transaquania-thin-air
Sendu Elísa-
betu í versl-
unarferð
Langar þig í eitthvað af þessum
vörum úr monki? Það er ekkert mál.
Þú getur fengið Elísabetu Gunnars
til að fara í verslunarleiðangur fyrir
þig. Hún er ung Reykjavíkurmær sem
búsett er í stokkhólmi um þessar
mundir og býður Íslendingum upp
á verslunarþjónustu. Á síðunni sinni
mælir hún með nokkrum verslunum,
vel völdum flíkum og bendir á
kjarakaup. síðan getur þú legið yfir
heimasíðum, pantað flíkurnar á
netinu og látið senda þær til hennar
eða beðið hana um að fara í búðina
og kaupa það sem þig langar í. Hún
sér svo um að senda dýrindin til þín.
elisabetgunnars.tk
monki.com
Novafon
-Fyrir þig og þína vellíðan
»Hljóðbylgjumeðferð sem styður við
náttúrulega starfsemi líkamans
» Gefur tækifæri til fljótverkandi
sjálfsmeðferðar
» Nýtist við meðferð flestra tegunda
verkja t.d.:
» Vöðvaverkjum – gigt
» Höfuðverk
» Verk í hnakka
» Eymsli í öxlum
» Tennisolnboga
» Þursabit
» Íþróttameiðslum
» Íslenskar leiðbeiningar
» Geisladiskur fylgir sem sýnir
hvernig á að nota tækið
Novafon eða hljóðbylgjur voru fyrst
uppgötvaðar sem læknanlegar
bylgjur af þýskum prófessor Dr. Med.
Erwin Schliepharke árið 1930
Skólavörðustíg 20
Sími 5444344
Jólagjöfin 2010
segja stjörnurnar okkur eitt-hvað um ástina? Við leit-um ráða hjá stjörnuspekingi Íslands, Gunnlaugi Guð-
mundssyni, og biðjum hann að segja
okkur hvaða þýðingu stjörnuspek-
in hefur þegar kemur að samskipt-
um kynjanna. Okkur til skemmtunar
biðjum við hann að rýna í stjörnukort
frægra para.
Verðum að hnýta lausa enda
Gunnlaugur segir ástina þarfnast
sjálfsþekkingar og að vissulega veiti
stjörnuspekin okkur svör sem hjálpi
okkur að skilja okkur sjálf og aðra.
Það sé reyndar umburðarlyndið sem
sé mikilvægast. „Ástin þarfnast sjálfs-
þekkingar, samvinnu og umburðar-
lyndis. Þegar tvær manneskjur elska
hvor aðra þá þurfa þær að mætast á
miðri leið og báðar þurfa að gefa eftir.
Til að geta átt í langvarandi og góðu
sambandi þurfum við sjálf að vera í
góðu jafnvægi. Við verðum að vera
búin að hnýta lausu endana í eigin
persónuleika því að óuppgerð mál
koma fyrr en síðar upp á yfirborðið
og eyðileggja sambandið. Persónu-
legt óöryggi leiðir til afbrýðisemi og
ótta. Óttinn verður til þess að við
verðum hrædd við að missa ástina.
Fyrir vikið missum við á endanum
ástvininn eða ástina úr sambandinu
því enginn getur búið í sambandi
sem er byggt á tortryggni eða ótta.“
Ást er vinna
Gunnlaugur bendir á að við fæðumst
öll með ákveðið upplag. „Hver mað-
ur býr yfir sinni einstöku orkugerð og
við þurfum að sætta okkur við þá eig-
inleika sem búa í upplaginu og móta
persónuleika okkar. Ákveðnum eig-
inleikum verður ekki breytt og við
getum ekki breytt þessum eiginleik-
um í fari maka okkar. Eigi að síður
er ýmislegt hægt að gera sjálfur með
sig. Hægt er að vinna með það sem
er til staðar og hver maður getur orð-
ið það versta og það besta sem býr í
upplagi hans.
Gunnlaugur segir algengustu
ástæðu þess að fólk skilur einmitt
vera þá að lítil sjálfsþekking leiði til
þess að við fjarlægjumst aðra eða
lendum í óþarfa árekstrum. „Fyr-
ir suma er sjálfsþekking nauðsynleg
en fyrir aðra er þetta spurning um
að bæta það sem er gott. Að fá meira
út út sjálfum sér og lífinu til þess að
geta verið umburðarlynd gagnvart
öðrum.“
En hvernig skyldi honum lítast
á þessi pör sem hann er beðinn um
að skyggnast í stjörnukortin fyrir?
„Ég hef skoðað stjörnukort flestra
þessara para nema þeirra Unnar og
Björns. Mér líst vel á þau öll, það er
misjöfn orka í þessum sambönd-
um. Í sambandi Jóhönnu og Jónínu
er hæglát og róleg orka sem er samt
sem áður gífurlega sterk. Þær eru
nánar þótt þær séu að mörgu leyti
ólíkar. Angelina og Brad eru orku-
mikið par þar sem orkan er töluvert
ólík en stundum gengur það upp því
við leitum í þá orku sem við búum
sjálf ekki yfir.“
kristjana@dv.is
Hvað segja himinhvolfin
okkur um ástina? Er ein-
hver teikn þar að finna?
Stjörnuspekingurinn Gunn-
laugur Guðmundsson skoð-
ar ástina, sambönd og rýnir
í stjörnukort frægra para.
Ástin og
stjörnurnar
Ábyrg og íhaldssöm Gunnlaugur hefur fulla
trú á því að brúðkaup áratugarins hjá bresku
skötuhjúunum Vilhjálmi og Kate eigi eftir að
enda í farsælu hjónabandi. „Þau eiga mjög vel
saman, eru bæði frekar ábyrg og íhaldssöm,“
segir Gunnlaugur. „Það er vegna þess að þau
eru bæði með tungl, tilfinningar, í krabba og
því mjög samrýnd tilfinningalega.“
Dorrit dustar rykið af Ólafi merki-
legt hversu oft konur í steingeit velja sér
maka í valdaembætti. steingeitin þráir
öryggi og því sækir hún í maka í góðri
stétt og stöðu. ólafur og Dorrit eru
bæði í jarðarmerkjum og því lík í grunn-
eðli. Dorrit er töluvert villtari, hefur
gaman af því að hrista upp í hlutunum,
og er því góð fyrir ólaf. Það mætti segja
að hún dusti af honum rykið.“
Sprengjukokkteill sem virkar „Brad er bogmaður en mjög yfirvegaður og
lokaður tilfinningalega. Hún Angelina er hins vegar mjög skapstór og skapheit
og erfið eða óútreiknanleg í sambúð. Ég er viss um að það er aldrei dauður
punktur þar (Angelina er tvíburi, hrútur og krabbi).“ Þessi blanda virðist vera mikill
sprengjukokkteill en Gunnlaugur segir það ekki endilega vera. Þau eigi reyndar
ágætlega vel saman. „Þetta er fínt fyrir bogmanninn Brad Pitt því bogmönnum
leiðist ef lífið er of auðvelt.“