Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 58
58 Jólaföndur Föstudagur10. desember 2010 101 jól hverfisgata 10 sími 5800 101 101hotel@101hotel.is www.101hotel.is hátíðarmatseðill undir dönskum áhrifum. gamalgrónir réttir með nýstárlegum blæ. alla daga fram að jólum. borðapantanir í síma 5800 101. Þegar jólin nálgast eru Íslendingar duglegir að lýsa upp mesta skamm- degið með hinum ýmsu jólaljós- um innandyra sem utan. Verslan- ir keppast við að selja frumlegar og flottar seríur en á mjög einfaldan hátt er hægt að föndra sína eigin ser- íu úr íslenskri ull. Það sem þarf í gerð þessarar ljósaseríu eru tíu golfkúlur, tíu ljósa sería, kemba eða þæfingar- ull og sápa. Bútur er tekinn af kembunni og vafinn utan um golfkúlu. Þetta er bleytt með vatni til þess að ná festu en síðan er sett væn sletta af sápu í lófann og golfkúlan nudduð. Með þessu er ullin þæfð utan um kúluna þar til hún er orðin mjög þétt. Að því loknu er sápan skoluð úr og kúlan látin þorna. Einnig er hægt að setja kúlurnar í nælonsokkabuxur, eina kúlu í einu, og hnútur bundinn á milli. Sokka- buxurnar eru því næst settar í þvotta- vél vafðar inni í handklæði og þetta þvegið á 40 gráðum. Þegar kúlurn- ar eru þurrar er klipptur kross í þær og kúlan tekin út. Lítið gat er klippt hinum megin við krossinn en þar er ljósaperan sett í gegn. Hægt er að nota uppþvottalög í stað sápu og mælt er með að nota ljósa kembu svo að ljósið skíni vel í gegnum hana. gunnhildur@dv.is Einfalt er að föndra jólaseríuskraut úr íslenskri ull: Jólasería úr þæfðri ull DV1012098537 Skapaðu snjóbyl úr pappa Fallegt gluggaskraut sem einfalt er að gera. DV1012099217 DV1012094119 DV1012094270 DV1012096352 DV1012093078 DV1012095503 DV1012098130 Skapaðu snjó- byl úr pappa Á heimasíðu Mörthu Stewart getur þú fundið leiðbeiningar um allt er viðkemur heimilinu, þar á meðal hvernig hægt er að búa til svona ótrúlega einfalt en dásamlega fallegt jólaskraut. 1. Brjóttu blaðið saman Byrjaðu með ferningslaga blaði. Brjóttu blaðið í tvennt þannig að úr verði þríhyrningur. 2. Brjóttu þríhyrninginn aftur í tvennt Brjóttu þrí- hyrninginn aftur saman, þannig að hvössu hornin mætist. 3. Brjóttu þríhyrninginn aftur saman 4. Komdu þríhyrningn- um í rétt form Brjóttu þrí- hyrninginn aftur saman þannig að hann myndi formið sem sýnt er hér að ofan. Þú gætir þurft að laga formið til svo hliðarnar passi saman. Passaðu því að pressa samskeytin ekki niður fyrr en þetta passar saman. 5. Klipptu af Klipptu af neðsta hluta blaðsins í beinni línu. 6. Klipptu út mynstur Klipptu með beinum línum og bugðum. Leiktu þér að því að finna út falleg mynstur og vertu óhrædd við að prófa. 7. Taktu í sundur Taktu var- lega í sundur til að sjá útkomuna á fallegu snjóflögunni þinni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.