Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 96

Dagblaðið Vísir - DV - 10.12.2010, Síða 96
n Jón Gnarr borgarstjóri opn- aði Jólabæinn á Hljómalindarreit við hátíðlega athöfn klukkan 15 á fimmtudag. Með honum í för var hans gamli félagi Sigurjón Kjart- ansson en þeir gerðu það gott eins og margir muna í grínþáttunum Fóstbræðrum á sínum tíma. Það var enginn skortur á fóstbræðrum á Hljómalindarreit á fimmtudaginn því Karlakórinn Fóst- bræður söng fyrir við- stadda sem gæddu sér á heitu súkku- laði. Í Jólabænum verða verslanir og sölubásar til jóla, auk þess sem samfelld viðburðadag- skrá verður þar og víð- ar í mið- borginni á næst- unni. Ástin spyr ekki um aldur! Fóstbræður opnuðu Jólabæ n Veitingahúsaeigendurnir Simmi og Jói ætla að standa fyrir tónleika- röð á Hamborgarafabrikkunni í desember. Áætlað er að fá marga af eftirtektarverðustu tónlistarmönn- um landsins til að spila á staðnum í hádeginu. Jónas Sigurðsson hefur þegar troðið upp með hljómsveit sinni Ritvélar framtíðarinnar. Meðal annarra sem koma fram í hádeg- inu næstu daga eru Selma Björns, Páll Óskar, Bjartmar og Bergrisarnir, BlazRoca og Klassart. Tónlist- armaðurinn Jón Jónsson mun síðan halda lokatónleikana á Þorláks- messu- kvöld. bJartmar treður upp n Tímaritið Séð og heyrt greinir frá því í vikunni að Karl Th. Birgisson, ritstjóri Herðubreiðar, sé á föstu með Önnu Lilju Jóhannsdóttur sálfræðinema. Nokkur aldursmun- ur er á parinu, því ritstjórinn Karl er 47 ára en Anna er 21 árs. Samkvæmt Séð og heyrt hafa þau verið saman í nokkra mánuði og segja kunn- ugir að þau geisli af ást. Karl hefur vakið athygli fyrir Orð skulu standa, sem sýnt hefur verið í Borgar- leikhúsinu. Karl th. með Kærustu DV borgar 2.500 krónur fyrir fréttaskot sem leiðir til fréttar. Fyrir fréttaskot sem verður aðalfrétt á forsíðu greiðast 25.000 krónur. Fyrir besta fréttaskot vikunnar greiðast allt að 50.000 krónur. Alls eru greiddar 100.000 krónur fyrir besta fréttaskot hvers mánaðar. Áskriftarsíminn er 512 70 80 Fréttaskot 512 70 70 sólarupprás 11:06 sólsetur 15:34 Ármann Þorvaldsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupthing Singer og Fried lander og höfundur bókarinn- ar Ævintýraeyjunnar hefur búið í London undanfarin ár. Hann segist í samtali við DV ekki vera á heimleið á næstunni „þar sem hlutirnir væru óljósir í augnablikinu.“ Hann kann vel við sig í London þar sem hann starf- ar sem ráðgjafi og vinnur jafnframt að eigin verkefnum sem að hans sögn „ganga ágætlega.“ Árið 2007 keypti Ármann 365 fer- metra hús á Dyngjuvegi í Laugarás- hverfinu fyrir 92 milljónir. Til stóð að bæta tveimur hæðum við húsið og með því stækka það um 270 fermetra ásamt því að byggja tvöfaldan bílskúr og breyta öllu innra skipulagi þess. Framkvæmdir stóðu stutt og stöðvuð- ust með öllu árið 2008 í miðju banka- hruninu og hefur húsið því staðið hálfklárað að utan og fokhelt að innan nágrönnum til lítillar gleði. Nú hefur orðið breyting þar á og und- anfarna tvo mánuði hefur sést til verkamanna að störf- um á lóðinni. Ármann tjáði blaðamanni að ekki væri ætlunin að klára húsið heldur væri aðeins verið að klára það sem þyrfti svo unnt yrði að fjar- lægja vinnupallana og þannig koma í veg fyr- ir slysagildrur. Einnig ætlaði hann að láta mála húsið að utan svo það yrði ekki leng- ur þyrnir í augum nágrannanna. Aðspurður segist hann ekki vita hvort hann selur húsið og endurtek- ur að hlutirnir séu „óljósir hjá hon- um í augnablik- inu eins og hjá fleirum.“ hanna@dv.is Ármann Þorvaldsson ætlar ekki að snúa aftur til Ævintýraeyjunnar í bráð: ánægður í london Ekki á leiðinni heim Ármann sagði að hlutirnir væri óljósir hjá sér eins og fleirum í augnablikinu.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.